Færeyingur smíðaði Hörpu

harpa A 

  Ráðstefnu- og tónlistarhöllin Harpa hefur verið á milli tannanna á fólki.  Samt ekki þannig að fólk sé að bíta í hana heldur er fólk endalaust að þrasa um hana.  Það er stöðugt vælt undan einu og öðru sem að Hörpu snýr.  Eiginlega öllu.  Nema þeim sem smíðaði Hörpu.  Um hann vita fáir. 

  Þegar Björgúlfur gamli hrinti í framkvæmd byggingu Hörpu varð strax ljóst að enginn Íslendingur myndi ráða við að smíða þetta flókna og nýstárlega hús.   Hófst þá leit út um allan heim að einhverjum sem gæti smíðað Hörpu.  Það var sama hvar borið var niður með fyrirspurn um slíkan mann.  Allir bentu á sama manninn:  Færeyinginn Ósbjörn Jacobsen.

  Færeyingar neita Íslendingum aldrei um neitt.  Þvert á móti.  Færeyingar vilja alltaf allt fyrir Íslendinga gera.  Lána Íslendingum hitt og þetta.  Jafnvel háar peningaupphæðir.  Reyndar eru Færeyingar ennþá áhugasamari um að gefa Íslendingum peninga.  Ekki vantar viljann til þess.  Það sem heldur aftur af Færeyingum með að fylla alla vasa Íslendinga af peningum er að Færeyingarnir óttast að Íslendingum þyki það niðurlægjandi og móðgandi.

  Það var því eins og við manninn mælt:  Um leið og Íslendingar komu skríðandi á hnjánum til Ósbjórns og spurðu hvort að nokkur smuga væri að hann gæti smíðað Hörpu svaraði Ósbjörn án umhugsunar:  "Ja,  tað skal ég."  Hann losaði sig með það sama úr öllum verkefnum og henti sér í að byggja Hörpu.

  Aðstandendur Hörpu skammast sín fyrir að hafa þurft að leita út fyrir landsteinana eftir smiði.  Fyrir bragðið hafa þeir eiginlega haldið leyndu hver smíðaði Hörpu.  Eða réttara sagt látið lítið á því bera.  Eflaust er hægt að finna nafn Ósbjörns einhversstaðar í gögnum um Hörpu.  Það er að segja í smáa letrinu.  

   


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Hann hefði átt að  vera einn af boðsgestum. Verði nýja ríkisstjórnin tekin við völdum fyrir jól,bjóðum við Færeyingum í fagnað þar þeim til heiðurs,ég sé til þess!!???

Helga Kristjánsdóttir, 1.10.2011 kl. 02:00

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Flottir þessir Færeyjingar.

Ásdís Sigurðardóttir, 1.10.2011 kl. 11:37

3 Smámynd: Jens Guð

  Helga,  ég tek undir það.

Jens Guð, 1.10.2011 kl. 21:13

4 Smámynd: Jens Guð

  Ásdís,  þeir eru meiriháttar.

Jens Guð, 1.10.2011 kl. 21:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband