Spennandi færeyskir hljómleikar um helgina

 

  Í kvöld (laugardag) klukkan hálf níu (20.30) verða heldur betur spennandi hljómleikar í Norræna húsinu með vestnorrænu hljómsveitinni Yggdrasil. 

  Þessi hljómsveit var stofnuð fyrir 30 árum af Færeyingnum Kristian Blak,  píanóleikara og tónskáldi.  Hann er reyndar margt annað.  Hann er potturinn og pannan í færeysku tónlistarlífi.  Þar rekur hann stærsta plötufyrirtækið,  Tutl (sem gaf m.a. út plötuna frábæru  Baldur  með Skálmöld).  Hann rekur einnig plötuverslun og stendur fyrir ótal tónlistarhátíðum í og utan Færeyja.  Hann spilar með fjölda hljómsveita af ýmsu tagi.  Bara svo fátt eitt sé nefnt.
.
  Kristian Blak er fæddur í Danmörku en hefur búið í Færeyjum í næstum fjóra áratugi.  Honum skilgreinir sig eðlilega sem Færeying burt séð frá fæðingarstaðnum.
.
  Yggdrasil var upphaflega samnorræn hljómsveit sem blandaði saman þjóðlegri músík (etnískri) og djassi.  Liðskipan Yggdrasil hefur aldrei verið fastnegld niður.  Í dag eru í Yggdrasil hljóðfæraleikarar sem voru ekki fæddir þegar ferill Yggdrasils hófst.  Eivör var söngkona Yggrasils um 2ja ára skeið. 
.
  Yggdrasil hefur sent frá sér plötu á hverju ári.  Þar af tvær með Eivöru. 
  Á hljómleikunum í Norræna húsinu verða með í hljómsveitinni grænlenskur trommudansari og íslenskur saxafónleikari.  Yggdrasil er töluvert djassaðri en í þeim tóndæmum sem hér fylgja.  Þetta er aldeilis frábær hljómsveit,
  Miðaverð á hljómleikana er aðeins 1000 kall.
  Með í för er undrabarnið og fiðlusnillingurinn Angelika Nielsen.  Hún er rétt um hálf þrítug í dag.  Á barnsaldri var hún strax undrabarn á fiðlu og dúxaði á öllum sviðum.  Meðal annars í frönsku og skrautskrift.  Þegar hún sem barn mætti á skrautskriftarnámskeið hjá mér þá missti hún af fyrsta kvöldinu.  En það var eins hún hefði aldrei gert annað en skrifa skrautskrift.  Hún náði öllu í fyrstu atrennu.  Hún þurfti enga tilsögn.  Ég hef aldrei kynnst öðrum eins hæfileikum í skrautskrift. Hún var og er undrabarn.  Það kom ekki á óvart að uppgötva hvað hún er frábær fiðluleikari.
 
  Kristian Blak sagði mér frá því þegar hann setti hana sem ungling inn í að spila djass.  Hún spilaði í fyrstu atrennu eins og hún hefði aldrei gert annað en spila djass.  Hún þurfti enga tilsögn.  Samt hafði hún ekkert hlustað á djass.   
 
  Angelika Nielsen er með hljómsveit sem heitir Kvönn (nafnið Angelika þýðir kvönn).  Þar eru innanborðs Kristian Blak og bassasnillingurinn Mikael Blak,  sem einnig eru í Yggdrasil.  Mikael Blak hefur oft spilað á Íslandi.  Meðal annars með Clickhaze (súper grúppu Eivarar) og pönksveitinni 200).   
.
  Í leiðinni vek ég athygli á hljómleikum Eivarar í Langholtskirkju annað kvöld (sunnudag). 
.
.
  Eivör er besta og flottasta söngkona heims í dag. 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ingi

Ómar Ingi, 21.1.2012 kl. 13:55

2 identicon

Meiriháttar flottur helgarpakki og yndisleg Eivör :)

Semur hún ekki líka lög sjálf ?

Eg sá viðtal við hana þar sem hún segir frá því að hún hafi farið um eyjarnar með upptökutæki og frngið fólk til að syngja inn á það færeysk þjóðlög sem voru í hættu á að gleymast.

Þetta finnst mér sýna vel hvað hún er virkilega snjöll og ekta.Og óvenjulegt framtak af svona ungum tónlistarmanni.

Skemmtileg myndböndin og sérstaklega Mykines festivalið.

Færeyingar virðast svo óhræddir við

að vera þeir sjálfir.Sem er auðvitað alltaf lang flottast.

Sólrún (IP-tala skráð) 21.1.2012 kl. 13:59

3 Smámynd: Jens Guð

  Ómari Ingi,  takk fyrir innlitið.

Jens Guð, 22.1.2012 kl. 00:44

4 Smámynd: Jens Guð

  Sólrún,  ég held að Eivör hafi verið um 12 ára þegar hún tók upp á því að safna gömlum færeyskum kvæðasöngvum á segulband.  Þegar hún 16 ára hljóðritaði sína fyrstu sólóplötu þá sótti hún í þetta kvæðasafn sitt.  Á þeim tíma voru jafnaldrar hennar að eltast við alþjóðlega tískustrauma í músík.  Sólóplata Eivarar sló í gegn og opnaði augu og eyru ungra færeyskra tónlistarmanna fyrir því að það gat verið "cool" að sækja í færeyska tónlistararfinn.

  Uppistaðan af músík Eivarar er frumsamin.  Eivör er góður lagahöfundur, frábær túlkandi og frábær söngkona.

Jens Guð, 22.1.2012 kl. 00:50

5 identicon

Ekki að ástæðulausau að hún á hér stóran aðdáendahóp

sem elskar hana.

Sólrún (IP-tala skráð) 22.1.2012 kl. 16:01

6 Smámynd: Jens Guð

Sólrún, sammála.

Jens Guð, 23.1.2012 kl. 19:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband