Grínverksmiðja ríkisins rassskellt - einu sinni enn!

  Mannanafnanefnd ríkisins hefur til fjölda ára (næstum 15) barist með kjafti og klóm fyrir því að stúlku nokkurri sé gert að heita Stúlka.  Ástæðan er sú að stúlkan vill heita Blær.  Foreldrar hennar vilja sömuleiðis að hún heiti Blær.  Aðrir ættingjar,  vinir og kunningjar stúlkunnar vilja líka að hún heiti Blær.  Enda er nafnið Blær afskaplega fallegt nafn,  hvort heldur sem konur eða karlar bera það.  Nú hafa dómstólar bæst í hóp þeirra sem telja það til sjálfsagðra mannréttinda að stúlkan þurfi ekki að gegna nafninu Stúlka heldur fái að heita því nafninu sem hana langar til,  Blær.   

  Grínverksmiðja ríkisins hefur þar með verið rassskellt eina ferðina enn.  Brandarar hennar eru fúlir og engum til gleði.  Hún er og hefur alltaf verið til óþurftar.  Það hlýtur að renna upp sá dagur að einhver stjórnmálamaður taki upp á því að forða landsmönnum undan forsjá Grínverksmiðju ríkisins.  

  Nú taka væntanlega við há útgjöld og tímafrek vinna hjá Blæ og foreldrum hennar við að afla nýs vegabréfs og annarra pappíra með nafni Blævar í stað nafnsins Stúlku.  Kostnaður ríkissjóðs,  sameiginlegs sjóðs Blævar, foreldra hennar og annarra Íslendinga,  vegna þessa eina staka brandara Grínverksmiðju ríkisins er sennilega á aðra milljón króna.  Engum þótti brandarinn góður.  Nema útlendingum.  Þeim þykir reyndar tilvist Grínverksmiðju ríkisins vera ennþá betri brandari.

  Þessi brandari er bestur:  http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1278566/

  Blær,  til hamingju með að þú megir nú bera  lögformlega þitt fagra nafn,  Blær.  Eitt blæbrigðafegursta nafn í nafnaskrá Hagstofu Íslands.  


mbl.is Fær að heita Blær
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það á að leggja þessa nefnd niður, nema menn vilji hafa hana áfram sem áramótaskaup, og þá eingöngu sem slíka.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 31.1.2013 kl. 21:34

2 identicon

Hvað finnst ykkur um nafnið Bernhard María Svavarsson?

axel (IP-tala skráð) 31.1.2013 kl. 21:39

3 Smámynd: Ben.Ax. (Benedikt  Jóhannes Axelsson)

Sonur minn vill ekki heita Sóley.

Ben.Ax. (Benedikt Jóhannes Axelsson), 31.1.2013 kl. 22:36

4 Smámynd: Magnús Óskar Ingvarsson

Í Spænskumælandi löndum er Maríunafnið ekkert síður karlmannsnafn en kvenmanns. Oftast er það þó seinna nafn af tveimur skírnarnöfnum, eins og til dæmis Jesus Maria, sem er glettilega algengt karlmannsnafn á Spáni. 

Magnús Óskar Ingvarsson, 31.1.2013 kl. 22:38

5 Smámynd: Ómar Ingi

Ómar Ingi, 31.1.2013 kl. 23:25

6 Smámynd: Jens Guð

  Ásthildur Cesil,  ég er sammála.

Jens Guð, 31.1.2013 kl. 23:50

7 Smámynd: Jens Guð

  Axel,  mér finnst það ágætis heiti.  Mun betra en Ljótur Hrafn.

Jens Guð, 31.1.2013 kl. 23:54

8 Smámynd: Jens Guð

  Ben.Ax.,  er mannanafnanefnd að þvinga því nafni upp á hann?  Annars er Sóley fallegt nafn,  hvort sem er á blómi eða fólki.

Jens Guð, 31.1.2013 kl. 23:58

9 Smámynd: Jens Guð

  Magnús,  takk fyrir þennan fróðleiksmola.  Í Svíþjóð er Siggi kvenmannsnafn.

Jens Guð, 1.2.2013 kl. 00:01

10 Smámynd: Jens Guð

  Ómar Ingi,  takk fyrir innlitið.

Jens Guð, 1.2.2013 kl. 00:02

11 identicon

Heimasoðið: http://grefillinn.com/ma-ekki-heita-limur

Grefillinn (IP-tala skráð) 1.2.2013 kl. 03:26

12 Smámynd: Jens Guð

  Bergur,  góður!

Jens Guð, 1.2.2013 kl. 04:17

13 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Ég held ég haldi mig frá Svíþjóð!!

Sigurður I B Guðmundsson, 1.2.2013 kl. 10:20

14 identicon

 

Vonandi verður þessi dómur til þess að nefnd þessi verði lögð niður enda þessi nefnd algjörlega út í hött. Ég á vini sem bera nöfn sem hafa örugglega á einhverjum tímapuntki verið talin "óvenjuleg" en orðið svo "venjuleg." Til dæmis er nafnið Björn ekkert öðruvísi en Ljón eða Snæbjörn... frekar en Ísbjörn. Hver er munurinn á nafninu Þröstur og Spói. Lóa er algengt en ekki Fýll. Örn, Valur og Hrafn eru algeng en hvar er Fálki? Þetta er að ég held bara spurning um að venjast nöfnunum.

Arnar (IP-tala skráð) 1.2.2013 kl. 16:31

15 identicon

Annars minni ég þig bara á tribute tónleikanna í kvöld á Gamla Gauknum

http://gamligaukurinn.is/ 

Arnar (IP-tala skráð) 1.2.2013 kl. 16:47

16 Smámynd: Jens Guð

  Arnar, ég kvitta undir þín viðhorf. 

Jens Guð, 1.2.2013 kl. 23:51

17 Smámynd: Jens Guð

  Varðandi Guns N´ Roses hljómleikana í kvöld:  Ég var að vinna í kvöld til klukkan 11.  Bar inn á lager hjá mér (Aloe Vera umboðið) þrjú tonn af Banana Boat Aloe Vera geli.  Að vísu ekki í einni ferð heldur "trillaði" ég af 6 brettum.  Ég spara hellings pening á því að vera ekki í lagerhúsnæði með innkeyrsludyrum.  Fyrir bragðið get ég haft verðið á Banana Boat Aloe Vera gelinu lægra en aðrir.  Á móti vegur að það er puð að selflytja vöruna á trillu inn á lager.  Og missi samtímis af viðburðum á borð við GNR tribute. 

Jens Guð, 1.2.2013 kl. 23:59

18 Smámynd: Jens Guð

  Sigurður I.B.,  það er gaman að koma til Stokkhólms.  Sú borg er ein af mín uppáhalds.  Rosalega falleg borg og skemmtilegt mannlíf. 

Jens Guð, 2.2.2013 kl. 00:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband