Kristin hljómsveit í blóðugum átökum við lögregluna

  Bandaríska hljómsveitin Matthew 24 now er þekkt fyrir kristilegan boðskap.  Þetta er svokölluð guðspjallahljómsveit (gosepel).  Enda veitir ekkert af að boða kristilegan kærleika,  ást og frið hvar sem þvi verður viðkomið.  Í heimi þjáðum af ofbeldi, andúð og hatri,  fordómum og heift er kærleikur og ást sterkasti mótleikurinn.    

  Á dögunum lentu liðsmenn hennar í útistöðum við starfsmenn matvörumarkaðarins Walmart í Arizona.  Walmart er bandaríska Bónus-keðjan (ódýrasta lágvöruverslunin). Lögreglan var kölluð til.  Þá brá svo við að liðsmenn hljómsveitarinnar buðu ekki fram vinstri kinnina heldur hnefa.  

  Þegar á leið átök var gripið til skotvopna.  Einn í hljómsveitinni var skotinn til bana.  Lögreglumaður var einnig skotinn.  En tórir.

  Áríðandi er að taka fram að framganga liðsmanna Matthew 24 Now er ekki til fyrirmyndar né dæmigerð fyrir hegðun milljarða kristinna.    

  Hér má sjá myndband af atburðarrásinni.  Betur hefði farið á faðmlögum,  knúsi og blessun.    


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hér á landi lenti ,,afskaplega kristin " kona í miklum hremmingum á bíl sínum þar sem djöfullinn hafði tekið sér tímabundna bólfestu í henni samkvæmt áræðanlegum heimildum manns hennar, sem er sérfróður um himinn og helvíti. Döfullinn skellti í hana úr einni Vodkflösku og bætti svo á hana úr einni rauvínsflösku á saklausri leið henar í Sndlaug Vesturbæjar. Sem betur fer þvældust handrið og slíkt fyrir bíl hennar og heftu för hennar í sundlaugina. Nú hefur blessuð konan verið svift ökuleyfi ævilangt, en djöfullinn slapp væntanlega fyrir horn.

Stefán (IP-tala skráð) 15.4.2015 kl. 11:45

2 Smámynd: Jens Guð

Stefán,  gott að einhver slapp fyrir horn í þessari gandreið um Vesturbæinn.

Jens Guð, 15.4.2015 kl. 23:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.