Veitingaumsögn

hrefnusteikin í Bike Cavekrossarar 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  - Réttur:  Hrefnusteik

  - Veitingastaður:  Bike Cave,  Skerjafirði

  - Verð:  2495,-

  - Einkunn: *****

  Þeir eru ekki margir veitingastaðirnir sem bjóða upp á hvalkjöt.  Þeim mun meira fagnaðarefni er að boðið sé upp á hrefnukjöt í Bike Cave í Skerjafirði.  Ennþá meira fagnaðarefni er hvað steikin og meðlæti eru mikið lostæti.

  Kjötið er marinerað til margra daga.  Það er síðan kryddað kryddblöndunni frábæru "Best á nautið" og snöggsteikt. Ytra lag dökknar og fær ljúfengt steikarbragð.  Í miðju er kjötið fallega rautt án þess að vera blóðugt.  Allt lungnamjúkt.

  Meðlæti er ferskt salat, krossarar og bearnaise-sósa.  Jarðaber gefa salatinu skarpt frískandi bragð.  Krossarar eru náskildir frönskum kartöflum.  Þetta eru skarpkryddaðar (ég greindi papriku, salt og pipar) djúpsteiktar kartöflur.  Þær eru mun bragðbetri en hefðbundnar franskar.  Stökkar (crispy) í gegn. Toppurinn yfir i-ið er bearnaise-sósan.  Hún er ekki venjuleg.  Þetta er verðlaunuð sósa,  uppskrift Hjördísar Andrésdóttur verts og listakokks á Bike Cave.  Besta bearnaise-sósa sem ég hef smakkað. Blessunarlega að mestu laus við smjörbragðið (sem háir iðulega bearnaise-sósum).       

  Ég mæli eindregið með hrefnusteikinni í Bike Cave í Skerjafirði. Hún er sælkeramáltíð.

--------------------------------------------------------

  Fleiri veitingaumsagnir má finna með því að smella HÉR

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Hvalkjötið bergst aldrei. Það þarf snilling til að gera óæti úr hvalkjöti.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 12.9.2015 kl. 22:40

2 identicon

Ummmm. Ég hreinlega slefa yfir tölvuborðið.Vantar svona veitingastað á Akureyri!

Sigurður Bjarklind (IP-tala skráð) 13.9.2015 kl. 07:45

3 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Ég er ekki alveg viss um snilld fyrsta ræðumanns.  En einhverju sinni var ég á ferð um Hafnarfjörð og kom við á A. Hansen og fékk hrefnukjöt sem var alveg með ágætum.

 Ári seinna var ég þar á ferð með dóttur mína á leið í flug frá Keflavík en hún býr erlendis.  Vegna þess að þær dætur mínar eru svo pempíjulausar og til í hvað sem er þá bauð ég henni uppá hrefnusteik á A. Hansen. 

Um leið og diskarnir komu á borðið þá sá ég að þetta var hroðinn sem skorin er utan af langgeymdu hvalkjöti, en sagði ekki neitt. Við mötuðumst ræddum og hlógum. 

Í grennd við Kúagerði bað ég hana afsökunar og sagði að hvalkjöt gæti verið betra en þetta.  Hún hló og sagði já en pabbi við vorum saman.   

Hrólfur Þ Hraundal, 13.9.2015 kl. 07:51

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hrefnukjöt er algjört lostæti, hér má fá það bæði ferskt og marinerað.  Eina sem þarf að gæta að er að snöggsteikja það, Hrefnan er betri en nautakjöt að mínu mati.  Alla vega það nautakjöt sem okkur er boðið uppá hér. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.9.2015 kl. 10:50

5 Smámynd: Hjóla-Hrönn

Ó, mæ.  Nú hef ég ástæðu til að hjóla út í Skerjafjörð.  Hef fengið mér kaffi og köku á Bike Cave, bragðgóða og á sanngjörnu verði.  Mæli hiklaust með þessu litla, skemmtilega kaffi/veitingahúsi.

Hjóla-Hrönn, 13.9.2015 kl. 13:31

6 Smámynd: Jens Guð

Axel Jóhann,  og fátt kjöt er betra undir tönn en hvalkjötið.

Jens Guð, 13.9.2015 kl. 17:08

7 Smámynd: Jens Guð

Sigurður,  annar möguleiki er að skjótast í höfuðborgarferð.

Jens Guð, 13.9.2015 kl. 17:09

8 Smámynd: Jens Guð

Hrólfur,  takk fyrir umhugsunarverða sögu.  

Jens Guð, 13.9.2015 kl. 17:10

9 Smámynd: Jens Guð

Ásthildur Cesil,  ég er þér sammála með að hrefnukjöt sé betra en nautakjöt.

Jens Guð, 13.9.2015 kl. 17:11

10 Smámynd: Jens Guð

Hjóla-Hrönn,  ég tek undir meðmæli þín með Bike Cave.

Jens Guð, 13.9.2015 kl. 17:12

11 identicon

Bernessósa án smjörbragðs er valla bernessósa. Hún er nefnilega sett saman úr smjöri og eggjarauðum. Ef ekki er að henni smjörbragð er eitthvað skrítið við uppskriftina.

Og gott hrefnukjöt er gulli betra. Gamalt og þrátt er það ekki.

Tobbi (IP-tala skráð) 14.9.2015 kl. 15:16

12 identicon

Bearnaise án smjörbragðs... 90% smjör!  

Held að sumir fengju hjartaáfall ef ég þyrði að bera þessa vitleysu undir þá.

Tussa án píkubragðs?

Asgeir Halldorsson (IP-tala skráð) 16.9.2015 kl. 12:49

13 Smámynd: Jens Guð

  Trixið við góða bearnaise-sósu er að hún bragðist ekki eins og japlað sé á smjörstykki.  

Jens Guð, 18.9.2015 kl. 21:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband