Forsetaframbjóðandi viðurkennir heimilisofbeldi

  Líkamlegar refsingar á börnum eru ofbeldi.  Þegar barn er beitt slíku ofbeldi af uppalendum sínum þá er það heimilisofbeldi.  Það er bannað með lögum á Íslandi - eins og í öðrum siðuðum þjóðfélögum þar sem ofbeldi er ekki liðið.  Barnaverndarnefnd skerst í málið ef að grunur vaknar eða vitneskja um að barn sæti harðræði af þessu tagi.  

  Það er einkennilegt að á kosningafundi í Indiana í Bandaríkjum Norður-Ameríku þá hreykti frambjóðandinn Ted Cruz sér af því að á sínu heimili væru börn beitt ofbeldi.  Fyrir að grípa frammí væru þau rassskellt.   

  Fyrir utan það að ofbeldi gegn börnum er glæpur þá hafa rannsóknir leitt í ljós vondar,  skaðlegar og langvarandi afleiðingar þess.  Rassskellt börn verða árásargjarnari en önnur,  andfélagsleg og eru í mikilli hættu með að þróa með sér þunglyndi og kvíða fram eftir öllum aldri. Fólk sem beitir börn ofbeldi er vont fólk.   


mbl.is Olnbogaði konuna í andlitið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Gott að þetta var ekki íslenskur frambjóðandi!!

Sigurður I B Guðmundsson, 5.5.2016 kl. 18:27

2 Smámynd: Jens Guð

Sigurður I B,  Íslendingar viðurkenna aldrei neitt. Þeir þræta fyrir allt.

Jens Guð, 6.5.2016 kl. 05:03

3 identicon

Biblían mælir með ofbeldi gegn börnum, þannig að það hlýtur að vera rétt... eh

DoctorE (IP-tala skráð) 6.5.2016 kl. 12:33

4 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Þeir sem beita ofbeldi eru sjúkir.

Vísindaheilbrigðiskerfið stuðlar að ofbeldi með sínum einokunum, afneitunum og fordómum.

Vísindayfirlæknar eru um það bil að stjórna veröldinni til endanlegrar tortímingar, í siðlausu viðskiptasamstarfi við lyfjarannsóknar-sölufyrirtæki heimsins.

Það er upp á líf og dauða mikilvægt, að afhjúpa skelfilegar lyfjamafíublekkingar og tilheyrandi næringarskorts-sjúkdómaframkallandi heimsviðskipta-samningaundirritanir. Heimurinn er orðinn stjórnlaus bankaræningjaspillingarhít, og einungis almenningur getur stoppað þessar djöfulsins lögmannavörðu bankaveldistortímingar heimsins.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 7.5.2016 kl. 00:09

5 Smámynd: Jens Guð

DoktorE,  þú mátt ekki heldur girnast þræl náunga þíns.  Mundu það.  

Jens Guð, 7.5.2016 kl. 11:55

6 Smámynd: Jens Guð

Anna Sigríður,  þú hittir naglann á höfuðið - eins og oft áður.

Jens Guð, 7.5.2016 kl. 11:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband