Áfall fyrir trúverðugleika

  Í sjö til átta ár höfum við stöðugt fengið að heyra skemmtilegar sögur af Hussein Obama.  Hann var sagður hafa fæðst í Kenya í Afríku. Verið þar svínahirðir múslimaþorps fjölskyldu sinnar.  Hann hafi lagt - og leggi - hatur á kristna; svarið þess eið að kollvarpa vestrænum samfélögum.  Leggja þau undir kúgunarhæl Íslam.  Drepa alla kristna og heiðingja.  Mola á þeim hauskúpuna með steini.

  Til að ná takmarkinu laumaði "múlattinn" (eins og hann er kallaður í Morgunblaðinu) sér til Bandaríkja Norður-Ameríku svo lítið bar á.  Með klækjum,  fölsku fæðingarvottorði og vú-dú svartagaldri hirti hann forsetastólinn.  Hlunkaði sér í hann og gerðist áhrifamesti einstaklingur heims.  

  Enginn hefur verið duglegri við að hampa þessu krúttlega ævintýri en ljúflingurinn Dóni Trump.  Nú,  skyndilega og óvænt, snýr kosningaskrifstofa hans við blaðinu.  Þar á bæ hafa skærustu perurnar í gervibrúnku-ljósabekknum kannað málið og komist að splunkunýjum sannleika.  Samkvæmt yfirlýsingu þeirra fæddist Hussein í Bandaríkjunum.  Hin sagan,  segja þeir,  sé lygasaga sem Hillary Clinton samdi og kom af stað.  Grandalaus Trump féll í þá gryfju að trúa lygum hennar.  Hún misnotaði sakleysi hans og hrekkleysi.

  Þetta er áfall fyrir trúverðugleika forsetaframbjóðenda.  Héðan í frá verður að taka því sem þeir segja með fyrirvara.  Þeir "dissa sannleikanum",  eins og Vigdís Hauks orðar það svo skemmtilega í þágufallsplágunni - af öðru tilefni, vel að merkja.     

  


mbl.is Obama og fæðingarstaðurinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég myndi aldrei styðja Donald Trump til nokkurra verka, en ég vona hinsvegar að Sigmundur Davíð og Gunnar Bragi verði formaður og varaformaður Framsóknarflokksins, því að það myndi gulltryggja slæmt gengi Framsóknarflokksins í komandi kosningum..

Stefán (IP-tala skráð) 16.9.2016 kl. 11:50

2 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Ja hérna hér!! 

Sigurður I B Guðmundsson, 16.9.2016 kl. 15:00

3 Smámynd: Jens Guð

Stefán,  Dóni Trump er alveg ágætur verkmaður til margra hluta. Til að mynda er hann búinn að tapa helmingnum af föðurarfinum í klaufalegum fjárfestingum.  Það er afrek.

Jens Guð, 17.9.2016 kl. 18:04

4 Smámynd: Jens Guð

Sigurður I B,  ég tek undir það.

Jens Guð, 17.9.2016 kl. 18:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband