Óvæntur glaðningur hamingjusamasta Færeyings í heimi

  Fjöldi Íslendinga hélt í pílagrímsferð til Danmerkur í vikunni.  Skyldan kallaði á að sjá og hlýða á Guns N´ Roses á hljómleikum.  Það var sælustund.  Fréttaritari RÚV,  Andri Freyr Viðarsson,  gaf hljómleikunum einkunnina 15 á skalanum 0-10.  Slík var hamingjan með þá.

  Einn áhorfenda fór heim hamingjusamari en aðrir.  Sá er færeyskur tónlistarmaður,  Uni Debess.  Hann kom sér fyrir fremst við sviðið.  Dáðist þar að rándýrum hágæða hljóðnema sem söngvarinn, Axl Rose, brúkaði.  Hann eiginlega öfundaði kappann af gripnum.  

  Undir lok hljómleikanna náðu þeir augnsambandi.  Þá var eins og Axl læsi huga hans.  Um leið og hljómleikunum lauk þá teygði hann sig fram og skutlaði hljóðnemanum í fangið á honum og yfirgaf sviðið.

  Axl er ólíkindatól.  Stríðir við tvo geðræna sjúkdóma, óþol gagnvart tilteknum nauðsynlegum lyfjum og drekkur áfengi ofan í þau.  Iðulega hefur hann verið til vandræða innan og utan sviðs.  Allskonar pirringur, frekjuköst og duttlungar.  Oft hefjast hljómleikar ekki fyrr en klukkutímum of seint.  Tíð hlaup af sviði yfir í búningsherbergi.  Slagsmál á hótelum.  Þetta uppátæki - að gefa færeyskum söngvara sem hann þekkir ekki neitt rándýran hljóðnema - er ný og óvænt hlið á Axl.

  Færeyingar mældust nýverið hamingjusamasta þjóð í heimi.  Þessa dagana er Uni Debess hamingjusamastur þeirra allra.

axelrose_f9c773d577axl hljóðneminnuni debess

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Við Óli Palli trúum því samt ekki að nýja G 'N R tattúið á handlegg Andra Freys sé ekta. 

Stefán (IP-tala skráð) 29.6.2017 kl. 12:58

2 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

OK ég skal þá sætta mig við annað sætið!!!

Sigurður I B Guðmundsson, 29.6.2017 kl. 20:33

3 Smámynd: Jens Guð

Stefán,  ég er búinn að sjá ljósmynd af húðflúrinu.  Það er lítið og nett.  Ég er sannfærður um að það sé ekta.  Hann er búinn að vera harðlínu GNR aðdáandi frá 10 - 11 ára aldri.

Jens Guð, 30.6.2017 kl. 20:17

4 Smámynd: Jens Guð

Sigurður I B,  ég tek þá 3ja sætið.

Jens Guð, 30.6.2017 kl. 20:17

5 Smámynd: Mofi

Ég bý í Englandi og ég missti af tónleikunum þeirra hérna, alveg ófyrirgefanlegt.  Smá side note en við töluðum um þetta fyrir nokkru síðan en einn félagi minn var að deila þessu á facebook rétt í þessu og þetta er það sem ég var að leita að: https://www.youtube.com/watch?v=x_ofrRIkMDk

Mofi, 30.6.2017 kl. 21:34

6 Smámynd: Jens Guð

Mofi,  ég man eftir því.  Nú er þessi gítarsnillingur,  Gulli Falk,  fallinn frá.

Jens Guð, 4.7.2017 kl. 08:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband