Magnaðar myndir

  Fátt er skemmtilegra að skoða en sláandi flottar ljósmyndir.  Einkum ljósmyndir sem hafa orðið til þegar óvart er smellt af á réttu augnabliki og útkoman verður spaugileg.  Tekið skal fram að ekkert hefur verið átt við meðfylgjandi ljósmyndir.  Ekkert "fótóshopp" eða neitt slíkt. 

  Myndirnar stækka og verða áhrifameiri ef smellt er á þær.

magnaðar myndir 1magnaðar myndir 2magnaðar myndir 3magnaðar myndir 4magnaðar myndir 5magnaðar myndir 6magnaðar myndir 7magnaðar myndir 8magnaðar myndir 9magnaðar myndir 10magnaðar myndir 11


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þessi mynd af þjófótta máfinum gæti þess vegna verið tekin á höfuðborgarsvæðinu þar sem máfar fara hamförum þessa dagana með þvílíkum látum að aðrir fuglar hvarfa úr görðum og jafnvel líka hundar kettir og jafnvel börn fá ekki þrifist. En máfar virðast vera heilög gæludýr hjá borgarstjóra Reykjavíkur og standa heiðursvörð að hans sögn þegar hann mætir í Ráðhúsið að hlusta á reiða og svikna forelda barna sem fá ekki leikskólapláss fyrir börn sín.

Stefán (IP-tala skráð) 14.8.2022 kl. 03:51

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

Mávar eru snöggir að forða sér þegar stuggað er við þeim. En öðru máli gegnir um kríurnar sem hafa skitið svo mikið á Sjálfstæðisflokkinn á Seltjarnarnesi að flokkurinn hefur flúið Nesið í stórum stíl og heimtar núna leikskólapláss í Reykjavík, enda eru þar lægstu leikskólagjöldin á landinu. cool

4.5.2022:

Lægstu leikskólagjöldin í Reykjavík

Þorsteinn Már, forstjóri Miskunnsama samherjans, er hins vegar skaðræðisgripur og eins gott fyrir börn að halda fast um ís í brauði þegar karlinn nálgast.

Og Hildur Björnsdóttir, innsti koppur í búri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, var svo bundin af því að gefa fólki hamborgara að hún hafði ekki tíma til að mæta á fundi borgarstjórnar í þrjá mánuði fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Enda stálu mávar hamborgurunum af henni jafnóðum.

Miðflokkurinn vill endurreisa Skothúsið við Tjörnina til að skjóta þaðan á allt kvikt en einkum á máva sem hafa vit á því að standa heiðursvörð þegar borgarstjórinn mætir í vinnuna. cool

Sjálfstæðisflokkurinn er aftur á móti skíthræddur við fugla og tekur á sig stóran krók þegar hann sér til að mynda lóur, þresti, svani og endur.

"Katrín Atla­dótt­ir, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Sjálf­stæðis­flokks­ins, lagði orð í belg um hegðun máva og kvaðst auk þess hræðast fugla mest af öllu." cool

Þorsteinn Briem, 14.8.2022 kl. 06:08

3 identicon

Það væri nú illa gert hjá Miðflokknum Þorsteinn, að skjóta þá sem bera mesta virðingu fyri borgarstjóranum. Þarf að athuga hvort einhverjar endur eru eftir á Tjörninni, nema þá endur fyrir löngu. Hvað varð um hamborgarabrauð Hildar, sem framhaldsskólanemar höfnuðu, fór það í máfana, vini Dags ? Annars voru Hildur og Jón í Einimel að eignast fjölmiðlaveldi og gætu notað það í næstu kosningabaráttu. Það er því ekki bara Play sem er stýrt úr Einimel, þeirri áhrifamiklu götu í Vesturbænum. 

Stefán (IP-tala skráð) 14.8.2022 kl. 07:57

4 Smámynd: Jens Guð

Stefán,  það þarf að nýta mávinn til matar.  Til að mynda í veislusal ráðhússins

Jens Guð, 14.8.2022 kl. 08:03

5 Smámynd: Jens Guð

Steini,  takk fyrir þínar skemmtilegu söguskýringar. 

Jens Guð, 14.8.2022 kl. 08:05

6 Smámynd: Jens Guð

Stefán (# 3),  hvaða fjölmiðlaveldi voru Hildur og Jón að eignast?

Jens Guð, 14.8.2022 kl. 08:07

7 identicon

Fjölmiðlaveldið Sýn. Það gæti endað með miklum mávahlátri ef Jón Áskeir gamli viðskiptafélagi þeirra myndi svo eignast Sýn líka.

Stefán (IP-tala skráð) 14.8.2022 kl. 11:26

8 Smámynd: Jens Guð

Stefán (# 7),  takk fyrir upplýsingarnar.

Jens Guð, 14.8.2022 kl. 13:40

9 identicon

Viltu þá ekki bjóða þig fram til að elda máfakjötið? 

Ingibjörg Ingadóttir (IP-tala skráð) 14.8.2022 kl. 13:58

10 identicon

Það á að útrýma mávum (máfum?).  Þetta er ekkert annað en fljúgandi rottur.  Kannski þegar mávum hefur verið útrýmt geti rotturna stað heiðursvörð fyrir Dag hinn duglausa, ekki eru önnur kvikyndi líkleg til þess.

Bjarni (IP-tala skráð) 14.8.2022 kl. 14:10

11 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Hauslausa konan er flott!

Sigurður I B Guðmundsson, 14.8.2022 kl. 15:04

12 Smámynd: Jens Guð

Ingibjörg,  ég bý einn og elda ekki mat.  Mest er ég í að hita upp tilbúna rammíslenska rétti fyrir sjálfstæða Íslendinga,  1944.  Til að mynda ítalska bolognise,  mexikósku chili corn carne,  indverskt kjöt í karrý o.sv.fr.

Jens Guð, 14.8.2022 kl. 16:19

13 Smámynd: Jens Guð

Bjarni,  góður punktur. 

Jens Guð, 14.8.2022 kl. 16:20

14 Smámynd: Jens Guð

Sigurður I B,  hún er toppurinn.

Jens Guð, 14.8.2022 kl. 16:21

15 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Renni yfir bloggara dagsins í dag og gær og græddi ca 5 lífs mínútur með hlátri,ekki samt mávahlátri,sem er annað gæludýrið sem ég fóðra(eftir sultar ekka þess),en hitt er húsfluga,snillingur að erta mig og ég næ ekki að reka hana út að gegna sínu hlutverki,eða hvað? 
 En það er kalt en næst kaldast 1,2 cels.fyrir norðan að Végerðstöðum  Fnjóskadal þar sem amma mín lifði það af,kíki alltaf á Trausta veðurfræðing og hef gaman af.

Helga Kristjánsdóttir, 14.8.2022 kl. 19:31

16 Smámynd: Jens Guð

Helga,  takk fyrir innlitið.

Jens Guð, 14.8.2022 kl. 19:45

17 Smámynd: Grímur Kjartansson

Mér finnst líka þessi mynd mögnuð - Talíbanar í einkaþotu á leið til Noregs að heimta fjárhagsaðstoð handa Afganistan

Grímur Kjartansson, 15.8.2022 kl. 11:24

18 Smámynd: Jens Guð

Grímur,  snilld!

Jens Guð, 15.8.2022 kl. 11:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband