8.12.2010 | 01:01
Bestu plötur ársins 2010
Bandaríska poppmúsíkblaðið Rolling Stone hefur birt lista yfir bestu plötur ársins 2010. Rolling Stone er söluhæsta músíkblað heims. Það selst í næstum tveimur milljónum eintaka. Eðlilega ber listinn þess nokkur merki að blaðamenn og plötugagnrýnendur Rolling Stone eru bandarískir. Blaðið er jafnframt dálítið íhaldssamt og sinnir aðallega þekktum poppstjörnum fremur en jaðarmúsík og þungarokki. Gaman væri að hlera viðhorf ykkar til listans. Ég er svona rétt la, la sáttur. Þannig lagað. Ég er meira fyrir pönk.
Svona lítur listinn út (í bláum sviga er staða sömu plötu í áramótauppgjöri helsta keppinautar Rolling Stone, bandaríska poppmúsíkblaðsins Spin. Í svörtum sviga þar fyrir aftan er staða plötunnar í uppgjöri bandaríska vefmiðilsins amazon.com):
1. Kanye West
My Beautiful Dark Twisted Fantasy (1) (5)
2. The Black Keys
Brothers (30) (2)
3. Elton John and Leon Russell
The Union (-) (-)
4. Arcade Fire
The Suburbs (3) (4)
5. Jamey Johnson
The Guitar Song (5) (12)
6. Vampire Weekend
Contra (11) (10)
7. Drake
Thank Me Later (16) (-)
8. Robert Plant
Band of Joy (35) (-)
9. Eminem
Recovery (38) (-)
10. LCD Soundsystem
This Is Happening (4) (6)
11. The Dead Weather, Sea of Cowards (-) (-)
12. John Mellencamp, No Better Than This (-) (-)
13. Taylor Swift, Speak Now (-) (-)
14. Robyn, Body Talk (10) (19)
15. The National, High Violet (26) (8)
16. Kid Rock, Born Free (-) (-)
17. Beach House, Teen Dream (17) (3)
18. Kings of Leon, Come Around Sundown (-) (-)
19. M.I.A., Maya (8) (-)
20. Neil Young, Le Noise (28) (-)
Tónlist | Breytt s.d. kl. 20:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
7.12.2010 | 00:35
Það er svo auðvelt að búa til ódýran og flottan sportbíl
Sumir halda að það sé meiriháttar mál að búa til glæsilegan og að þvi er virðist dýran sportbíl. Það er samt svo lítið mál að það er broslegt. Og kostar svo lítið. Hér er þetta sýnt stig af stigi. Þetta er svo einfalt og auðvelt að við getum flokkað það undir sparnaðarráð. Vindum okkur í þetta:
Það þarf aðstöðu í bílskúr eða bílakjallara fjölbýlishúss. Eða þokkalega rúmgóða stofu með stórum útkeyrsludyrum. Þetta gengur ekki upp í kjallara með venjulegum 60 cm breiðum dyrum.
Einföldustu útgáfu af bílagrind og sætum.
Dekk undan reiðhjólunum.
Létta grind.
Skera niður pappa til að átta sig á útlínum bílsins.
Það er gott að hafa fyrirmynd til að átta sig á hlutföllum.
"Boddý-ið" er búið til úr fisléttum og sveigjanlegum plaströrum. Það er síðan þakið með venjulegu brúnu innpökkunarlímbandi.
Ljósin þurfa að vera að sínum stað. Það skiptir máli.
Þetta er dáldið flott. Bíllinn kominn á götuna með númeri.
Þá er bara að bjóða farþega í bíltúr.
Flottasti bíllinn í umferðinni. Samsettur úr reiðhjóladekkjum og innpökkunarlímbandi.
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 21:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
6.12.2010 | 12:30
1001 gamansaga - sýnishorn
Í síðustu viku birti ég á þessum vettvangi útdrátt úr bókinni 1001 gamansaga eftir Helga Seljan. Það féll í góðan jarðveg. Þess vegna er ekki eftir neinu að bíða með að birta hér annan skammt úr bókinni. Ef smellt er á slóðina http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1121929/ má sjá fyrri færsluna og frekari upplýsingar um bókina.
-------------------------------------------
.Einu sinni var ég spurður af dóttursyni mínum hvort ég vissi hver væri munur á fjallabíl og hesti, en því gat ég ekki svarað. Jú, fjallabíllinn er með farsíma en hesturinn með fax..Ég er þekktur að því að geta ekki sagt nei þegar ég er beðinn einhvers. Hönnu eiginkonu minni blöskrar eðlilega og einu sinni á hún að hafa sagt: Það er gagn að þú ert ekki kvenmaður að geta ekki neitað neinum um neitt.
.Eitt sinn kom ég út á Eskifjörð og í kaffiboði þar sagði Regína Thorarensen við mig: Mikið þykir mér vænt um þessar minningargreinar sem þú skrifar um Reyðfirðinga, annars vissi maður bara ekkert hver væri dauður þar.
.Vinkona mín bað mig eitt sinn að skrifa nokkrar gamansögur. Ég tók vel í það og sagðist skyldu vera með nokkrar góðar. Þegar hún var að ganga út sagði hún: Helgi minn, viltu hafa gott bil á milli þeirra svo ég sjái hvar hver endar.
.Eitt sinn kom ég niður í þing eftir að ég hætti þar til að hitta Karvel Pálmason. Þá gengur Ragnar Arnalds fram hjá okkur og segir: Já, á nú að fara að æfa á nú að fara að syngja? Ég svara: Jú, jú, nú vantar okkur bara það að þú semjir söngleik fyrir okkur. Þá ansaði Ragnar: Já, og á hann altso að heita Bakkabræður?
Bækur | Breytt s.d. kl. 12:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.12.2010 | 00:16
Trúfélag bað fyrir velgengni vændishúss
Ég er byrjaður að lesa nýju bækurnar í jólabókaflóðinu. Og reyndar er ég líka byrjaður að birta útdrátt úr einni þeirra, 1001 gamansögu, sjá: http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1121929/ . Kannski birti ég fljótlega eitthvað úr fleiri bókum.
Bækur | Breytt s.d. kl. 01:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (25)
3.12.2010 | 22:44
Saga um bónda og hest
Óla vantar hálft ár í nírætt. Hann verður ekki í vandræðum með að redda því. Sveitungarnir kalla hann aldrei annað en Bóndann í Neðra-Koti. Hann er bóndi í Efra-Koti. Sveitungarnir eru dálítið ónákvæmir. Fyrir áratug hélt Óli upp á áttræðisafmælið sitt með því að klippa stóra tölu af frakkanum sínum og sauma hana utan á hægri kinnina.
Óli er lágvaxinn, nettur og fíngerður - ef frá er talin kryppan á bakinu. Hún er klunnaleg. Fagurgrátt og þykkt hárið stendur ógreitt í allar áttir. Það er ekki klippt fyrr en það er farið að flækjast fyrir. Eða ef gesti ber að garði. Óli suðar og suðar í þeim að klippa sig þar til þeir láta undan og klippa sig.
Augabrýrnar á Óla eru loðnar og renna saman. Þær eru að mestu huldar á bak við stór gleraugu með þykkri skærgrænni umgjörð. Gleraugun ber Óli til að enginn fatti að hann sé orðinn blindur. Af sömu ástæðu bregður Óli sér aldrei af bæ. Nefið á Óla er mjótt og uppbrett með stórum útþöndum nösum. Kinnbein eru há og útstæð; eyrun smá og kuðluð að ofanverðu; munnsvipurinn ófríður, hakan breið og háls langur og mjór. Samt styttri en á gíraffa.
Axlirnar eru álútar. Sérstaklega sú hægri eftir að heyblásarinn náði hendinni við öxl. Höndin gerði síðar vart við sig á miðilsfundi í Efra-Koti. Vildi láta vita að sér liði vel. Það þótti Óla merkilegt. Þó að miðilinn væri tíður gestur í Efra-Koti hafði Óli aldrei sagt honum frá handarmissinum.
Óli er útskeifur og gengur svokallaðan þúfnagang. Það er eins og hann gangi stöðugt um þúfur. Þúfnagangurinn magnaðist verulega um árið eftir að sláttuvélin náði vænum bita framan af vinstri fætinum. Óla sárnaði við vélina. Það situr enn í honum.
Óli er með leðurkvenhanskablæti. Það ágerðist eftir að hann varð ekkill. Annað sem Óli sækir í er að bregða sér á hestbak. Það gerðist einmitt í gær. Tíð var góð. Óli setti hnakk og beisli á Grána og lét hann brokka með sig um túnið. Þar sem þeir þeystu um rennislétt túnið hugsaði Óli með sér: "Þetta er lífið. Þvílík sæla og frelsistilfinning að vera á hestbaki, finna golu kissa kinn, hlusta á hófadyninn. Hvað í heiminum er betra en þetta nema nýsteiktar kleinur?"
Óli náði ekki að hugsa þessa hugsun til enda þegar hann týndi Grána. Það var sama hvernig Óli leitaði og velti við hverjum steini í túninu: Ekki fannst Gráni. Hann er ennþá týndur. Líka hnakkurinn. En beislið týndist aldrei.
----------------------------------------------------------
Bækur | Breytt 7.12.2010 kl. 00:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
2.12.2010 | 22:52
Prestur dæmdur fyrir barnaníð
Enn einn presturinn. Enn eitt fórnarlambið. Enn eitt barnaníðið. Ætlar þetta engan endi að taka? Þetta er ekki bundið við kaþólsku kirkjuna - þó dæmin þaðan séu farin að skipta hundruðum. Né heldur er þetta bundið við Ólaf Skúlason, Gunnar Björnsson, Guðmund í Byrginu, Ágúst Magnússon eða Gunnar í Krossinum.
Nú eru Færeyingar felmtri slegnir. Ekki er langt síðan að upp komst að þingmaðurinn og forstöðumaður trúfélags, Jenis av Rana, beitti þöggun í barnaníðsmáli innan trúfélagsins. Færeyska dagblaðið Dimmalætting (dimmu léttir = árblik) hefur grafið upp að prestur í Norður-Hálogalandi í Noregi var í vor ákærður og sektaður fyrir barnaníð gagnvart dóttir sinni. Presturinn er færeyskur. Hann var áður prestur í Klaksvík í Færeyjum.
Presturinn var sektaður um 10.000 norskar krónur (um 200 þúsund íslenskar krónur). Ástæðan fyrir því að málið barst til Færeyja er sú að presturinn hefur ekki staðið skil á sektinni heldur farið í felur. Það er talið að hann sé jafnvel í felum í Færeyjum.
Meðal gagna í málinu eru sms (síma-smá-skilaboð) og tölvupóstur. Presturinn er fjögurra barna faðir. Það var upplýst og sannað að hann beitti börn sín ofbeldi. Þar á meðal dóttir undir 16 ára aldri kynferðislegu áreiti.
Fjölmiðlar | Breytt s.d. kl. 22:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (86)
2.12.2010 | 01:36
1001 gamansaga
Helgi Seljan er víðfrægur fyrir sínar skemmtilegu gamansögur. Þær hefur hann á hraðbergi og er fyrir bragðið eftirsóttur veislustjóri og skemmtikraftur. Það er fagnaðarefni að nú sé eitthvað af sögunum hans að koma út í bók. Hún heitir 1001 gamansaga. Ég hef fengið leyfi til að birta hér sýnishorn. Sögurnar eru ekki aðgreindar heldur settar fram í belg og biðu. Þannig eru þær einmitt sagðar af Helga.
Sami prestur þjónar bæði Reyðarfirði og Eskifirði, en á
heima á Eskifirði.
Ég var eitt sinn meðhjálpari á Reyðarfirði og klerkur,
er þá var, kom oft í heimsókn og þáði góðar veitingar hjá
Hönnu, konu minni. Einu sinni ruggaði hann sér svo í
stofustólnum að hann datt aftur yfir sig og braut stólinn.
Öðru sinni sat hann á eldhússtól þar sem setan var skrúfuð
vel niður, en í látunum sprengdi hann allar skrúfurnar frá
stólnum og sat svo sjálfur á gólfinu. Þetta fréttist víða og
m.a. á bæ í sveitinni þar sem orðhvatur strákur átti heima.
Nú kom prestur á bæinn og þá segir strákur við prest,
en hann vissi að hann átti heima á Eskifirði: Það er meiri
vitleysingurinn þessi prestur á Reyðarfirði, hann er búinn
að mölva tvo stóla fyrir Helga Seljan. Sagt er að prestur
hafi horfið óðara á braut.
.
Eftirlætisgamansaga Karvels Pálmasonar um mig var
sú að stuttu eftir að ég hafði náð í Hönnu konu mína hefði
vinkona Önnu tengdamóður minnar komið í heimsókn og
spurt tengdamömmu hvernig henni litist á nýja tengdasoninn.
Þá hefði Anna átt að svara: Ja, ef hann væri sokkur væri ég
löngu búinn að rekja hann upp.
.
Einu sinni var ég að skemmta ásamt Sigurði Jónssyni
og Karvel Pálmasyni. Kynnirinn hóf sína kynningu þannig
í upphafsávarpi um dagskrána: Fyrst koma skemmtilegir
skemmtikraftar, svo koma Helgi og Karvel.
.
Við endursendingar á pósti var áður merkt við ástæðu
endursendingar.
Einu sinni kom Fréttabréf ÖBÍ endursent til mín með
tveim merkingum. Annars vegar var merkt við að maðurinn
væri látinn, en hins vegar: Farinn, ekki vitað hvert.
.
Ég var að segja samstarfskonum mínum þrem hjá ÖBÍ gamansögu
af manninum sem spurður var af konu sinni hversu mikið
hann elskaði hana og nú lék ég þetta með nokkrum
tilþrifum: Hversu heitt elskarðu mig? Þá kemur fjórða
samstarfskonan að og spyr furðu lostin: Við hverja þeirra
ertu eiginlega að tala?
Bækur | Breytt s.d. kl. 01:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.11.2010 | 21:11
Skúbb! Stórfrétt!
Í íslensku pönkbyltingunni um og upp úr 1980 spruttu upp í öðrum hverjum bílskúr á landinu splunkunýjar ferskar og ötular pönksveitir. Þær voru að springa úr sköpun og spilagleði. Það var allt að gerast allsstaðar. Menn höfðu ekki undan að sækja spennandi viðburði. Það var hefð að margar hljómsveitir kæmu fram á hverjum hljómleikum. Þegar mest var um að vera var ekki hjá því komist að sækja allt upp í þrenna eða ferna hljómleika í viku.
Ein allra skemmtilegasta og sprækasta pönkhljómsveit þessa tímabils var Sjálfsfróun. Hún var skipuð yngstu liðsmönnum senunnar. Blessunarlega náði kvikmyndin Rokk í Reykjavík að fanga stemmninguna að hluta og varðveita. Sjálfsfróun var starfrækt í áratug eða svo. Á seinni hluta ferilsins kom hún sjaldan fram. En það voru þeim mun meiri tíðindi þegar það gerðist.
Ástæðan fyrir því að hljómleikar með Sjálfsfróun urðu fágætari með árunum var sú að liðsmenn hennar voru duglegir að stofna nýjar hljómsveitir á borð við Biafra Restaurant, Ósóma og Beatnecks svo örfáar séu nefndar. Jafnframt voru þeir í allskonar blaðaútgáfu, greinarskrifum, ljóðagerð og svo framvegis.
Saga Sjálfsfróunar einkennist ekki af eintómum dansi á rósum. Það var óregla á drengjunum. Dáldið um lím"sniff" og þess háttar. Það kom niður á heilsu þeirra. Bassaleikarinn Pési "Pönkari" féll frá 1982. Söngvarinn, Bjarni "Móhíkani", lést í bílslysi fyrir nokkrum árum. Bjarni tók á sínum tíma við bassanum þegar Pési féll frá. Bjarni spilaði einnig á bassa með Gyllinæð, Alsælu (heyr í tónspilara hér til vinstri. Bjarni er að vísu ekki kominn til leiks þar) og Haugi & Heilsubresti fyrir áratug, jafnframt því að "trúbadúrast".
Nú eru þau undur og stórmerki að gerast að verið er að endurreisa Sjálfsfróun. Það eru gítarleikarinn Siggi "Pönkari" og trommarinn Jómbi sem standa að því. Þeir voru báðir stofnendur Sjálfsfróunar í upphafi og voru í hljómsveitinni allan tímann ásamt Bjarna "Móhíkana".
Á seinni hluta ferils Sjálfsfróunar spilaði Frikki "Pönk" á bassagítarinn. Hann verður með í endurreisn hljómsveitarinnar. Á þessum tímapunkti er óljóst hvernig söngur verður afgreiddur. Bjarni sá að mestu um sönginn þó Siggi hafi sungið vinsælasta lag hljómsveitarinnar, Lollipop. Það er eins og mig rámi í að Frikki hafi einnig sungið eitthvað. Hvorugur þeirra vill sjá um sönginn núna. Þeir eru að leita að söngvara.
Hvað sem verður þá eru þetta stærsta frétt í íslensku rokksögunni til langs tíma: Að verið sé að endurreisa Sjálfsfróun. Ég hlakka meira til að heyra í þessari goðsagnakenndu hljómsveit á ný en til jólanna.
--------------------
Til gamans:
- Kunningi minn var við nám í Bandaríkjunum þegar kvikmyndin Rokk í Reykjavík var tekin þar til sýningar. Hann lét sig ekki vanta í kvikmyndahúsið. Það var að öðru leyti troðfullt af bandarískum pönkurum. Þeir virtust láta sér vel líka. Svo vel að þeir gátu ekki stillt sig um að fagna framlagi Sjálfsfróunar með dúndrandi lófaklappi.
- Mig minnir að það hafi verið Bítlavinafélagið, fremur en einhver önnur hljómsveit Jóns "Góða", sem á tímabili hóf hljómleika og / eða dansleiki sína á því að kráka Lollipop Sjálfsfróunar. Svo nákvæmlega að gítarsóló Sigga "Pönkara" var afgreitt nótu fyrir nótu. Enda eitt eftirminnilegasta gítarsóló íslensku pönkbyltingarinnar.
- Eitt sinn var ég staddur á Ísafirði þegar þar var haldin rokkhátíð sem mig minnir að hafi heitið Rokkstokk. Eða hvort hún hét Menntstokk og var undankeppni söngvarakeppni framhaldsskólanna. Þetta rennur saman hjá mér vegna þess að ég hef mætt á nokkrar svona músíkhátíðir á Ísafirði. Nema það að ein hljómsveitin krákaði blöndu af Lollipop Sjálfsfróunar og samnefndu útlendu lagi. Það tókst vel og var gaman.
- Varast ber að rugla saman Sigga "Pönkara", gítarleikara Sjálfsfróunar, og Sigga "Pönk", söngvara Forgarðs Helvítis og DYS.
Tónlist | Breytt 29.11.2010 kl. 00:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
26.11.2010 | 01:53
Það sem þú vissir ekki um Bítlana
Þessir fróðleiksmolar um Bítlana hér fyrir neðan eru flestir sóttir í samantekt breska poppblaðsins New Musical Express, www.nme.com. Þetta er söluhæsta breska poppblaðið. Á undanförnum árum búið að hrista af sér önnur vikublöð á borð við Melody Makers, Sound og Record Mirror. Það er nokkuð merkilegt að breskt músíkblað skuli hafa haldið sjó sem vikulegt músíkblað á meðan helsti keppinauturinn, bandaríska Rolling Stone, er hálfsmánaðarblað.
Hér eru molarnir:
Tónlist | Breytt 27.11.2010 kl. 04:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
24.11.2010 | 00:41
Tvífarar?
22.11.2010 | 23:03
10 ástæður fyrir því að sumir karlar velja frekar golf
Ef þið áttið ykkur ekki á hvað er hér í gangi þá er mér ljúft að upplýsa að þarna er um dúndur beinbrot að ræða. Kíktu aftur á myndirnar. Þetta er hrikalegt.
Ég er farinn að ruglast í talningunni. Er þetta 9 eða 10?
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 23:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
21.11.2010 | 00:28
Stílistar rokksins
Skoska mánaðarritið Clash hefur á undanförnum árum haslað sér völl sem eitt af helstu rokkblöðum heims. Þetta er vinsælt blað og vandað að virðingu sinni. Í nýjasta hefti blaðisins er birtur listi yfir helstu stíllista rokksins hvað klæðaburð varðar. Eflaust má deila um þennan lista. Ég geri athugasemd við að skautað sé framhjá að Elvis Prestley innleiddi í rokkið leðurklæðnað mótorhjólatöffarans Marlons Brandons. En þannig er listinn hjá Clash:
1 Keith Richards. Þessi gítarleikari The Rolling Stones hefur aldrei sett nafn sitt við neina merkjavöru. Samt sem áður hefur klæðaburður hans orðið fyrirmynd kvikmyndaleikara og rokkstjarna. Hvað heitir aftur kvikmyndaserían um sjóræningja sem Johnny Depp er frægur fyrir? Í upphafi ferils tileinkaði Patti Smith sér klæðaburð Keiths.
Keith hefur aldrei verið fyrir hálsbindi. Hinsvegar sækir hann í að hengja um hálsinn allskonar glingur. Lengst af var það til að smygla dópi í glingrinu á milli landa. Síðar varð þetta ávani. Á gamals aldri er Keith farinn að hengja jólaskraut og fleira í hárið á sér.
2 Paul Simonon. Bassaleikari bresku hljómsveitarinnar The Clash. Hann var ekki valinn í hljómsveitina út af hæfileikum heldur vegna þess að hann var flottur. Hann varð reyndar síðar mega flottur bassaleikari. En hann var valinn í The Clash út af töffaralegu útliti. Á meðan aðrir pönkarar söfnuðu hanakambi og eða lituðu hár sitt rautt og grænt klæddist Paul iðulega gamaldags jakkafötum og bar hatt. Hljómsveitin Egó tók Paul til fyrirmyndar á sinni fyrstu plötu, Breyttir tímar.
3. Debbie Harry. Söngkona Blondie.
4 David Bowie
5 Madonna
Tónlist | Breytt 22.11.2010 kl. 20:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
20.11.2010 | 03:14
Er presturinn þinn alvöru prestur?
Er presturinn þinn alvöru prestur? Eða er hann gerviprestur? Eða geimvera? Hvernig veistu hvort presturinn þinn hefur lokið námi í guðfræði? Eða hvort hann hefur verið formlega vígður til prests eftir kúnstarinnar reglum og óreglum? Þessum spurningum óska nú margir eftir að hafa spurt sig og fleiri að. Einkum 60 þúsund íbúar ítalska bæjarins Fane í útjaðri Verona.
20 undanfarin sumur mætti á svæðið "prestur" sem kynnti sig undir nafninu Faðir Tómatsósa (padre Tommaso). Hann birtist ætíð á sama tíma í Fane og lóan birtist á Íslandi á vorin. Allt sumarið og fram á haust sinnti hann starfi prests af ákafa og alúð á móti fastráðnum presti staðarins. Faðir Tómatsósa leysti fastráðna prestinn eiginlega meira og minna af þessi sumur. Enda veitti þeim fastráðna ekki af að teygja úr sér og viðra sig aðeins eftir hark vetrarins.
Í fyrra var nýr og ungur prestur fastráðinn í bransann í Fane. Það kom í hans hlut á dögunum að láta nánustu ættingja Tómatsósu vita af því að gamli maðurinn væri kominn á sjúkrahús. Faðir Tómatsósa er orðinn 84. ára og heilsan farin. Á sjúkrahúsinu er verið að lappa upp á hann þannig að hann geti kannski skrölt um í hjólastól.
Þegar nýi presturinn hóf leit að ættingjum gamla mannsins uppgötvaðist að kallinn heitir ekki Tómatsósa heldur Italo G. Við nánari forvitni nýja prestsins kom í ljós að kallinn er ekki og hefur aldrei verið alvöru prestur. Það var allt lygi og fals. Einhverskonar sprell í gamla manninum til að gera sér eitthvað til dundurs eftir að hann varð löggilt gamalmenni og farinn af vinnumarkaði.
Íbúar Fane eru felmtri slegnir vegna tíðindanna. Þeir eru niðurbrotnir yfir að hafa í 20 ár sagt óvígðum manni í skriftarstól frá öllum sínum syndum. Útlistað fyrir honum í smáatriðum frásagnir af tíðu framhjáhaldi og öðru kynlífi utan hjónabands. Bæjarstjórinn er í áfalli eftir að hafa löngum stundum tíundað fyrir gerviprestinum samskipti við vændiskonur, móttökur á mútufé og þess háttar.
Áhyggjur bæjarstjórans og annarra bæjarbúa snúa fyrst og fremst að því hvort gervipresturinn hafi gefið þeim upp rangan fjölda af Maríubænum sem þarf að fara með til að verða syndlaus. Það er hrikalegt fyrir þetta fólk ef það situr ennþá uppi með syndir vegna þess eins að hafa í einhverjum tilfellum farið með of fáar Maríubænir.
Góðu fréttirnar eru þær að Italo G virðist ekki hafa gengið það langt í prestshlutverkinu að gerast barnaníðingur.
Trúmál | Breytt s.d. kl. 13:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
19.11.2010 | 00:38
Bestu lög Bítlanna
Í síðustu færslu birti ég lista yfir vinsælustu lög Bítlanna. Sá listi sýndi þau lög Bítlanna sem flestir keyptu á iTunes í vikunni. Nú er bandaríska poppblaðið Rolling Stone að senda frá sér sérblað yfir 100 bestu lög Bítlanna. Ég veit ekki hvernig sá listi er unninn. Hvort þar liggur að baki álit ritstjórnar Rolling Stone eða hvort sá listi er unninn í samvinnu við þekktustu lagahöfunda rokksins.
Rolling Stone er söluhæsta poppblað heims. Selst í um 2 milljónum eintaka og er prentað á þýsku og frönsku og kannski fleiri tungumálum. Þetta er virt tímarit, vandað að virðingu sinni og alveg ástæða til að líta á það sem marktækt. Til gamans má geta að blaðamenn Rolling Stone hafa á síðustu árum fylgst náið með íslenskri músík. Þeir sækja Iceland Airwaves og fleiri íslenska músíkviðburði.
Á netsíðu RS hefur verið gefinn upp listi yfir þau lög Bítlanna sem raðast í 10 efstu sæti yfir bestu lög Bítlanna. Hann lítur þannig út:
Tónlist | Breytt s.d. kl. 00:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
18.11.2010 | 00:02
Vinsælustu lög Bítlanna
Á þriðjudaginn voru öll lög bresku Bítlanna, The Beatles, sett á iTunes. Ég veit ekki hvað þetta iTunes er. En svo virðist vera sem fólk með aðgang að tölvu og nettengingu geti sótt sér lög í gegnum þetta iTunes. Sennilega þarf að borga eitthvað fyrir lögin. Hvernig svo sem það allt saman er þá er gaman að skoða lista yfir hvaða lög Bítlanna njóta mestra vinsælda á iTunes. Sá listi er dálítið gallaður. Sum lög eru á fleiri en einum stað á listanum. Ástæðan fyrir því er sú að þau lög er að finna á fleiri en einni plötu. Hvert og eitt sæti fyrir sig gefur upp viðkomandi lag af aðeins einni plötu.
Þannig er listinn:
Tónlist | Breytt s.d. kl. 03:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
16.11.2010 | 01:05
Vekur upp spurningar...
Læknir í þýska smábænum Paderborn var að hefja skurðaðgerð á 36 ára gömlum sjúklingi. Þá rak læknirinn augun í húðflúr á handlegg sjúklingsins. Húðflúrið var mynd af sitjandi erni og hakakrossi. Vel þekktum táknum nasista. Viðbrögð læknisins voru þau að tilkynna eiginkonu sjúklingsins að hann hefði ekki geð í sér né samvisku til að lappa upp á nasista.
Það varð að kalla út annan skurðlækni til að framkvæma aðgerðina á nasistanum. Læknirinn sem neitaði að afgreiða nasistann gæti verið í vondum málum. Hann er - eins og aðrir læknar - bundinn af svokölluðum lækniseiði sem kenndur er við Hippokrates. Þar segir eitthvað á þá leið að læknirinn leggi við drengskap sinn að beita allri sinni kunnáttu af fullri alúð og samviskusemi og láta sér ávallt annt um sjúklinga sína ÁN MANNGREINARÁLITS.
Það getur hinsvegar verið varasamt fyrir nasistann að draga lækninn fyrir dómstóla. Samkvæmt þýskum lögum liggur 3ja ára fangelsi við því að bera nasistatákn á borð við örn og hakakross.
15.11.2010 | 00:50
The Byrds
Þessi bloggfærsla er skrifuð í framhaldi af því að Heiðar Sigurðsson skrifaði í athugasemd hjá mér eftirfarandi: "Persónulega hef ég aldrei skilið vinsældir The Byrds. Mér fannst tónlist þeirra og framkoma vera svo yfirgengilega væmin og lögin svo yfirborðsleg og illa samin að ég gat aldrei hlustað lengi þar til ég fékk meira en nóg."
Heiðar mælir fyrir munn fleiri sem þekkja The Byrds aðeins af lögum á borð við Mr. Tambourine Man og Turn, Turn, Turn!. Að vísu geri ég athugasemd við að þessi lög séu illa samin. Þau eru það ekki. Þarna er um að ræða lög sem náðu í flutningi The Byrds toppsætum á vinsælalistum og hafa verið krákuð af fjölda annarra en The Byrds. Til að mynda fyrrnefnda lagið af Rúnari Júl og síðarnefnda lagið af Judy Collins, Diesel Park West og Nina Simone. Þessi lög eru ekki samin af liðsmönnum The Byrds heldur Bob Dylan og Pete Seeger. Báðir óumdeilanlega í hópi bestu lagahöfunda rokksögunnar. Um Bob Dylan þarf ekki að hafa mörg orð. Hann var í helstu fjölmiðlum heims keppinautur bítilsins Johns Lennons um titilinn tónlistarmaður síðustu aldar.
Svo skemmtilega vill til að John Lennon var mikill aðdáandi bæði Bobs Dylans (sérstaklega) og Petes Seegers. Annar bítill, George Harrison, var ekki síðri aðdáandi þeirra og taldi Pete vera besta söngvahöfund síðustu aldar. Þriðji bítillinn, Paul McCartney, valdi lagið Turn, Turn, Turn! sem smáskífulag fyrir söngkonu er hann tók að sér, Mary Hopkins.En förum yfir feril The Byrds.
Þessi hljómsveit kom fram á sjónarsvið sem fyrsta bandaríska bítlahljómsveitin 1965 með laginu Mr. Tambourine Man eftir Bob Dylan.
Lagið toppaði vinsældalista um allan heim. Leikurinn var endurtekinn með Turn, Turn, Turn!.
Söngvarinn Gene Clark var höfundur allra frumsömdu laganna á fyrstu 2 plötum The Byrds, Mr. Tambourine Man og Turn, Turn, Turn!. Þær kynntu til sögunnar nýjan músíkstíl, folk-rokk. Það brúaði bil bítlarokksins og vísnasöngva (þjóðlagatónlistar). Stíll The Byrds einkenndist af klingjandi gítar (12 strengja Rickenbacker) og rödduðum söng. Þessi stíll hafði mikil áhrif á Bítlana, Bob Dylan og fleiri
The Byrds var þannig skipuð 1965 og næstu ár:
Tónlist | Breytt 16.11.2010 kl. 23:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
13.11.2010 | 21:45
Blessuð börnin
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 21:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
12.11.2010 | 00:08
Skemmtilegur samkvæmisleikur
Fréttablaðið og Morgunblaðið eru bæði með skemmtilegan dálk sem fylgir birtingu þeirra á dagskrá helstu sjónvarpsstöðva. Blaðamenn þessara dagblaða skrifa létta umsögn um sjónvarpsdagskrána. Úr þessu má gera sér léttan samkvæmisleik. Hann felst í því að við lestur dagblaðanna setur lesandinn fingur yfir höfund pistilsins. Veit þannig ekki hver er höfundur pistilsins. Leikurinn gengur út á það að giska á hvort kona eða karl skrifar pistilinn. Svo skemmtilega vill til að nánast undantekningarlaust er hægt að átta sig á hvort karl eða kona skrifar pistilinn.
Ef vísað er til klæðaburðar einhvers í sjónvarpsþætti eða eitthvað er nefnt sem tengist sápuóperum er næsta víst að kona er höfundur pistilsins. Ef hinsvegar fótbolti er nefndur eða eitthvað um pólitík er höfundurinn karl.
Prófið þennan leik. Í 99,9% tilfella er ágiskunin rétt um hvort karl eða kona er höfundur pistilsins. Það skemmtilega við þennan leik er að hægt er að afgreiða hann án aðstoðar utanaðkomandi.
11.11.2010 | 04:57
Hver þarf sendibíl ef hann á hjól?
Þegar flytja þarf eitthvað á milli staða, eitthvað sem er stærra en lítill innkaupapoki úr matvöruverslun, þá dettur fólki yfirleitt aldrei annað í hug en að hringja á sendibíl. Helst með lyftu og trillu. Þetta þekki ég vegna þess að ég ek um á sendibíl. Staðreyndin er þó sú að það er miklu þægilegra að selflytja vörur á litlu og lipru hjóli.
Í fljótu bragði er ekki auðséð hvað hér er á ferð. Við nánari skoðun kemur í ljós að þarna er verið að ferja stóran og glæsilegan spegil.
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 05:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)