Tvífarar?

elton&leonjens&eivör

  Viðar Júlí Ingólfsson sendi mér þessa mynd af framhlið umslags plötunnar  The Union  með Leon Russell og Elton John.  Með sendingunni fylgdi ábending um að við,  það er að segja ég og Leon Russell,  séum glettilega líkir.  Vissulega er einhver jólasveinasvipur á okkur báðum.  Þar fyrir utan:  Það er svo sem ekki leiðum að líkjast.

  Myndina af mér fékk ég senda frá Svandísi Guðmundsdóttur á Selfossi.  Mig grunar að myndin hafi verið tekin á Færeyskum fjölskyldudögum á Stokkseyri um verslunarmannahelgina.


Judas Priest heillaðir af færeysku víkingarokki Týs

  Það hefur lengi verið orðrómur á kreiki um að liðsmenn bresku þungarokkssveitarinnar Judas Priest séu aðdáendur færeysku víkingarokkaranna Týs.  Nú hefur þetta verið staðfest í spjalli þýska rokkmálgagnsins  In-Your-Face-Magazine  við söngvara Judas Priest,  Rob Halford.  Aðspurður um hvað sé í mp3 spilaranum hans svarar Robbi því til að það sé skandinavísk víkinga-metal hljómsveit sem heiti Týr.  Svo nefnir hann einnig nokkur önnur nöfn.  Þar á meðal Iron Maiden. 

  Þetta má sjá - ef vel er að gáð - á:  http://www.in-your-face.de/interviews/rob-halford-metal-kennt-keine-sozialen-barrieren


Lagalisti Sunnudagshugvekjunnar í kvöld

 

  Lagalistinn í  Sunnudagshugvekjunni  á Nálinni 101,5 var nokkuð hefðbundinn í kvöld.  Þannig lagað.  Og skemmtilegur um margt.  Þátturinn verður endurfluttur á föstudaginn á milli klukkan 19.00 og 21.00.  Ekki síst fyrir þá sem kunna vel að meta lagalistann,  þiggja sparnaðarráð og fleira.  Þannig var lagalistinn (röðin er ekki 100% nákvæm):

1   Nýtt kynningarlag þáttarins:  Fílharmóníuhljómsveit Kulusuk GrænlandiWhite Riot
2   Paul McCartneyShake a Hand
3   Moon MartinBad Case of Loving You
4   Faith no MoreAshes to Ashes
5   Hindu Love GodsBattleship Chains
6   Michelle ShockedOne Piece at a Time
7   Georgie SatallitesHippy Hippy Shake
8   Roger McGuinn (Please Not) One More Time)
9   Bob DylanLonesome Day Blues
10  Tom Robinson Band I Shall Be Released (eftir Bob Dylan)
11  Joan Baez Let Your Love Flow
12  Óskalag fyrir Guðmund Júlíusson:  AmericaVentura Highway
13  Tillaga frá Rögnvaldi gáfaða:  Killing JokeWardance
14  AudioslaveYour Time Has Come
15  Djass-klassíkin:  Miles DavisBlue in Green
16  Pönk-klassíkin:  The StranglersGo Buddy Go
17  Reggí-perlan:  I RoySatta-Amasa-Gana
18  Skrýtna lagið:  Elert PilgramAll Shook Up
19  MegasUndir rós
20  Marius frá FæreyjumOne in the Masses
21  Steinn KárasonÞórscafé
22  200 frá FæreyjumTunnilvisjón
23  GímaldinEkkert breytist
24  Nephew frá DanmörkuIgain & Igain &
25  Bergþóra ÁrnadóttirBorgarljós
26  Cornershop:  Conteraction (indverskt)

 


Sunnudagshugvekjan í kvöld: 200, Maríus, Faith no More, Stranglers...

200--

  Sunnudagshugvekjan  verður afgreidd á Nálinni fm 101,5 á milli klukkan 19.00 og 21.00 í kvöld.  Aldrei þessu vant verður færeysk músík óvænt spiluð.  Að minnsta kosti flottasta pönksveit heims,  200,  og art-poppsveitin Marius.  Kannski einhverjar fleiri færeyskar.  Annars hefst þátturinn jafnan á klassísku rokki og endar á íslensku poppi í bland við heimspopp.  Einhversstaðar þar á milli eru fastir liðir afgreiddir:  Pönk-klassíkin,  djass-klassíkin,  reggí-perla dagsins og "skrýtna lagið".   Iðulega flýtur sparnaðarráð með og eitthvað fleira fróðlegt.  Jafnframt reyni ég að afgreiða einhver óskalög sem bíða spilunar. 

  Klassíska rokkið verður að þessu sinni m.a. sótt í smiðju Faith no More og Living Colour.  Meira veit ég ekki á þessu stigi málsins.

  Þeir sem kjósa að hlusta á netinu geta smellt á þennan hlekk:   http://media.vortex.is/nalinfm

 

 


Þiggur íslenski forsætisráðherrann boð á hljómleika færeysku pönksveitarinnar 200?

200

  Í gær sagði ég frá því að færeyska pönksveitin 200 hafi boðið íslenska forsætisráðherranum og eiginkonu á hljómleika hljómsveitarinnar á Iceland Airwaves.  Sjá: http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1106522/ .  Svo virðist sem færeyski sendiherrann hafi ekki komið - eða ekki tekist að koma - erindinu til forsætisráðherrans.  Að minnsta kosti kannaðist fólk ekki við málið þegar málið var kannað á skrifstofu forsætisráðuneytisins í gær.  Mér er kunnugt um að milliliðum hafi verið fækkað og erindið sent í morgun beint til Hrannars B. Arnarsson,  blaðafulltrúa forsætisráðherra.

  Hljómleikar 200 verða á Amsterdam kl. 01.20 í nótt.

  Hér er erindið eins og Hrannari var sent það:   

 200 biður Jóhönnu Sigurðardóttir fyrirgefningar

Um helgina spilar 200 á hinni virtu og alþjóðlega viðurkenndu Iceland Airwaves tónlistarhátíð í Reykjavík. Þetta er í annað skipti sem 200 spila á þessari hátíð. Í fyrra skiptið var það árið 2005, þar sem gagnrýnendur viðhöfðu m.a. þá lýsingu að 200 hafi gert laugardagskvöld hátíðarinnar ógleymanlegt... "The sweaty punk rock, sublime sound and great musicianship of this trio made this concert the greatest surprise of Iceland Airwaves 2005 in its whole."

Í kjölfarið á umdeildri móttöku sem íslenski forsætisráðherrann og kona hennar fengu í Færeyjum fyrr á árinu vill 200 bera í bætifláka fyrir það. Þó ekki hafi borið á neinu á fréttamannafundi Jóhönnu Sigurðardóttur í Færeyjum kom fram að hún mætti kuldalegra viðmóti af hálfu einstakra stjórnmálamanna okkar en hún vildi láta í veðri vaka. Þetta kom ennþá betur fram í samtölum hennar við íslenska fjölmiðla.

Vegna þessa hefur 200 tekið að sér að biðjast fyrirgefningar. Vegna fólksins, landsins og þjóðarinnar. Skýrt og skorinort.

200 heitir á sendiherra Færeyja í Reykjavík að koma þeim boðum á framfæri við íslenska forsætisráðherrann að hún og kona hennar séu hjartanlega velkomnar á hljómleika 200 í höfuðborg Íslands á laugardagskvöldinu - og ef tími og aðstæður leyfa að setjast að snæðingi með hljómsveitinni á meðan hún dvelur á Íslandi.

Jafnframt býður 200 Jóhönnu um að veita viðtöku Riddarakrossi hljómsveitarinnar. Fyrri Riddarakrosshafar eru Magni Laksáfoss, Hergeir Staksberg, Annar Kristín Thomsen, Felix van der Berg og Jóhannes Patursson.


Besti þátturinn endurfluttur í hádeginu

  Besti þátturinn,  Fram og til baka og allt í kring,  frá fimmtudagskvöldinu verður endurfluttur á Nálinni fm 101,5 í hádeginu.  Nánar tiltekið á milli klukkan 11.00 og 13.00.  Umsjónarmaður þáttarins,  Gunni "Byrds" (Gunni í Japis, Gunni í Faco...),  tók vænan snúning á Bob Dylan í tilefni þess að Dylan á afmæli á næsta ári.  Verður sjötugur.  Einnig spilaði Gunnar nokkur lög með bandaríska gítarsnillingnum Clarence heitnum White (sjá myndband hér að ofan).  Þau lög eru af svo fágætri plötu að einungis eru til 5 eintök af henni hérlendis.  Einnig spilaði Gunnar eitthvað með Skip heitnum Battin,  bassaleikara The Byrds.

  Davíð Steingrímsson af Ob-La-Di bar kíkti í heimsókn.  Þeir fóru yfir upphafsár Cliffs Richards sem breska Presleys.  Þeir komu víðar við.  Meðal annars spiluðu þeir lag Johns Lennons  #9 Dream  í ljómandi áhugaverðum flutningi bandarísku gítarhljómsveitarinnar R.E.M. 

  Missið ekki af endurflutningnum.  Það er hægt að hlusta á netinu með því að smella á þennan hlekk:   http://media.vortex.is/nalinfm


Færeysk pönkhljómsveit heiðrar íslenska forsætisráðherrann og biðst fyrirgefningar

200Johanna_sigurdardottir

  Flottasta pönkhljómsveit heims er færeyska tríóið 200.  Það nýtur mikilla vinsælda á Íslandi og er vinsælasta rokkhljómsveitin í Færeyjum.  200 er nú að spila á Iceland Airwaves í annað sinn.  Að þessu sinni í Sjoppunni klukkan 17.00 á morgun og á Amsterdam kl. 01.20 aðfaranótt sunnudags.  Áður spilaði 200 á Iceland Airwaves 2005.  Einnig var 200 með nokkra hljómleika í Reykjavík árið 2002.  Siggi Pönk (Forgarður helvítis,  DYS) sagði í tímaritinu Undirtónum á sínum tíma að menn hefðu ekki heyrt almennilegt pönkrökk fyrr en þeir hefðu heyrt í 200.

  Í tilefni af hljómleikum 200 á Iceland Airwaves nú hefur pönksveitin 200 sent frá sér yfirlýsingu.  Í yfirlýsingunni er harmað að íslenski forsætisráðherrann,  Jóhanna Sigurðardóttir,  og eiginkona hennar hafi mætt kuldalegu viðmóti færeysks stjórnmálamanns í opinberri heimsókn til Færeyja á dögunum.  Pönksveitin 200 biður íslenska forsætisráðherrann fyrirgefningar (umbering) á þessu fyrir hönd fólks,  lands og þjóðar.

  Pönksveitin 200 hefur beðið færeyska sendiherrann á Íslandi um að koma boðum á framfæri við íslenska forsætisráðherrann þess efnis að þau hjónin séu boðin hjartanlega velkomin á hljómleika 200 á laugardag.  Jafnframt er þeim velkomið að snæða matarbita með liðsmönnum 200 hvenær sem henta þykir á meðan á helgardvöl hljómsveitarinnar stendur á Íslandi. 

  Til viðbótar býður pönksveitin 200 íslenska forsætisráðherranum að þiggja Riddarakross hljómsveitarinnar.  Áður hafa Magni Laksáfoss, Hergeir Staksberg (í hljómsveitinni Makrel), Anna Kirstin Thomsen, Felix van den Berg (svissneskur útvarpsmaður) og Jóannes Patursson verið sæmd Riddarakrossi 200.  Afskaplega sparlega er farið með úthlutun Riddarakross 200,  eins og sést á því að einungis 5 manneskjur hafa verið heiðraðar á þennan hátt á 14 ára ferli pönksveitarinnar. 

  Hér má lesa yfirlýsingu 200 í heild:    http://www.facebook.com/?tid=1469337855228&sk=messages#!/note.php?note_id=132942526758360&id=66148235829

orða 200


mbl.is Ráðherrar funda um skuldavanda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áríðandi skilaboð - þetta varðar ykkur öll!

  Eftirfarandi pistill er skrifaður af Finnboga Marinóssyni,  ljósmyndara,  og birtur hér með hans leyfi.  Þessi pistill á brýnt erindi til almennings og rík ástæða er til að vekja athygli á málinu og ná að kæfa bullið í Gunnari Guðmundssyni áður en þetta fer í algjört rugl.

finnbogiM

Fréttablaðinu þann 5. október birtist „frétt“ á blaðsíðu 2 undir fyrirsögninni „Sala á tónlist dregst saman um helming“. Sem áhugamaður og neytandi tónlistar vakti þessi fyrirsögn áhuga minn. Lestur greinarinnar setti mig hljóðan og í henni er alvarlegt mál einfaldað á svo ótrúlegan hátt að það má ekki hjá leggjast að svara.

 

Greinin byrjar á því að bera saman sölutölur á milli ára sem sýna glögglega að sala á tónlist hefur dregist saman. Þetta er staðreynd sem er ekki bundin víð Ísland.  Svo er talað um að á því ágæta ári 2002 hafi 26% landsmanna verið ADSL tengdir en 2008 sé hlutfalliðkomið í 94%.  Þá er vitnað í Gunnar Guðmundsson framkvæmdasjóra flytjanda og hjómplötuframleiðanda að ólöglegt niðurhal sé gríðarlegt vandamál. Hann segir: við sjáum það bara í sölutölum  að það er erlend tónlist sem verður fyrir barðinu á ólögleglu niðurhali.  Svo talar hann um að tónlistarfólk verði að fá greitt fyrir vinnu sína og það þurfi að fá umræðu í gang um þessi mál (er það kannski markmið fréttarinnar ?). Gunnar bætir ennfremur við að: „Þetta háir öllum ungum tónlistarmönnum og allri þróun á tónlist og hann talar um að það þurfi að fá stjórnvöld að borðinu.

Þá er vitnað í Björn Sigurðsson framkvæmdastjóra Senu. Íslensk tónlist sækir í sig veðrið en ... erlend sala að falla gríðarlega mikið og ástæðan fyrir því er þjófnaður. Niðurlag fréttarinnar er svo „Það er því miður þannig að nú eru heilu kynslóðirnar sem kunna ekki að nálgast tónlist nema hún sé ólögleg.

 

Vissulega er niðurhal vandamál. En að gera niðurhal eitt ábyrgt fyrir samdrætti á sölu á erlendi tónlist er fráleitt og að draga fram tölur um hlutfall þeirra sem voru og eru ADSL-tengdir er spaugilegt.

Samdráttur í sölu á erlendri tónlist er margþættur. Fyrst má nefna að Gæði tónlistinnar eru ekki þau sömu og þau voru og má það rekja til græðgi útgefenda sem eltast við skyndagróða frekar en að gefa tónlisarmönnum tíma til að þróast og finna sinn tón líkt og finna má dæmi um í poppsögunni.  Þar má nefna Bruce Springsteen til sögunnar. Fyrstu 2 plöturnar voru ekki upp á marga fiska og það var ekki fyrr en á þriðju plötu sem hann springur út og blómstrar. Plötur hans hafa síðan haldið áfram að seljast löngu eftir að þær koma fyrst út. Þetta kallast á fagmáli að búa til back catalog en fæstir af þeim tónlistarmönnum sem hljómplötuútgefendur hafa verið að fóstra undanfarna tvo áratugi geta státað af því að hafa byggt upp back catalogsem er einhvers virði.

Í öðru lagi má nefna verð. Útgefendur hafa skotið sig í fótinn við háls að verðleggja tónlist úr öllum takti við þann kostnað sem hlýst af framleiðslu og þetta er búið að leggja þung lóð á þá vogarskál sem hefur fælt fólk frá því að kaupa tónlist. Þá hafa þeir sem flytja inn tónlist sýnt ótrúlega takta í verðlagingu.  Ég man eftir því að hafa spurst fyrir um það hjáSenu hvers vegna plata sem var seld í útgáfulandinu sem mid price væri seld á verði tvöfaldrar plötu á Íslandi og svarið sem ég fékk var á þá veru að það væri verið að hífa upp álagninguna.

Það hefur ekki hjálpað sölu á erlendri tónlist að vöruúrval hennar hefur verið mjög takmarkað. Þegar neytandinn gengur inn í plötubúð og finnur ekki það sem hann leitar að gerist eitt af tvennu: Hann finnur vöruna annarstaðar, í netverslun, eða þá hleður henni niður ólöglega.

Í þriðja lagi skal nefna netverslun. Er hún með í þessum innfluttingstölum? Líklega ekki fyrst það er ekki minnst á hana í fréttinni.  En ég þori að hengja mig upp á að hún hefur aukist a.m.k. til samræmis við fall í sölutölum hjá Senu. Það má líka í framhaldi af þessu spyrja hver sé hin raunverulegi innflytjandi á tónlist á Íslandi? Ég ætla að fullyrða að það sé ekki hljómplötuinnflytjendur eins og þeir kalla sig heldur almenningur. Fólk sem ekki reynir lengur að finna það sem það hefur áhuga á í Íslenskri plötubúð vegna þess að þar er því er ekki sinnt.

Ásamt lélegu vöruúrvali þá hefur það ekki hjálpað hljómplötusölu að boðið hefur verið upp á lélega þjónustu í Íslenskum plötubúðum og þeir sem hafa heimsótt plötubúiðir reglulega geta allir sagt sögur af illa upplýstu starfsfólki sem hefur átt það eitt sem haldreipi að finnist það ekki í tölvunni finnist það alls ekki. Svo ekki sé talað um flokkun, en í mörg ár fylgdist ég með ,,Stranglers(rokk)plötunni The ,,Gospel According to the Men in Black í Gospel rekkanum. Engin furða að sá sem leitaði að henni finndi hana ekki og ekki seldist hún þarna. Þrátt fyrir nokkar ábendingar fékk platan að sitja þarna óáreitt fyrir áhugasömu og vel upplýstu starfsfólki.

 

Það er búið að vera ákaflega niðurdrepandi að vera neytandi á erlenda tónlist á Íslandi undanfarna tvo áratugi. Þrátt fyrir að vera búinn að vera ADSL tengdur frá 2001 þá hefur undirritaður aldrei hlaðið niður tónlist. Hann hefur spilað tónlist sem var hlaðið niður ólöglega en í öllum tilfellum hefur óþvolinmæði ráðið för tónlistin var ekki komin til landsins á löglegu formi en spennan fyrir því að heyra var öllu öðru sterkara.

Þá veltir fréttin því upp að Íslensk tónlist seljist vel. Ég held reyndar að hún hafi aldrei selst eins vel enda er rekinn mikill áróður fyrir henni í fjölmiðlum með slagorðum á borð við fyrst og fremst í Íslenskri tónlist. Er hér ekki verið að stilla þeirri íslensku upp á móti þeirri erlendu, í stað þess að sjá þetta sem einn pott?

 

Það er rétt að tónlistarmenn þurfi að fá greitt fyrir sína vinnu rétt eins og allir aðrir. En mig langar til að benda á að á undaförnum árum hafa ungir tónlistarmenn í síauknum mæli komið fram á sjónarsviðið og sagt að núna sé ekkert mál að taka upp tónlist heima hjá sér og dreifa henni svo á netinu. Er þetta sami hópurinn og vill svo fá greitt fyrir sína vinnu eða eru til tveir eða fleiri hópar?

Í fjórða lagi má nefna umbúðir. Þær selja. Því eigulegri sem hljómdiskurinn er því líklegri er hann til þess að selja. Þetta hafa erlendu plötuútgáfunar áttið sig á og við erum hægt og rólega að sjá þá finna þolmörkin hjá kaupendum, en nýjasta endurútgáfan á David Bowie plötunni ,,Station to Station slær öll fyrri met. Þar er platan endurútgefin sem 3 LP plötur 4 geisladiskar og 2 DVD diskar ásamt ýmsu öðru dóti. Mér er ekki ljóst hvaða stefna ræður ríkjum hjá þeim sem flytja inn erlenda tónlist til Íslands en ég veit fyrir víst að þeir hafa ekkert gert til að benda á og kynna allar þær fjömörgu og flottu útgáfur sem hafa verið að koma út undanfarin ár og ég veit að ættu erindi til fólks sem hreinlega veit ekki af þeim.

Gunnar kallaði eftir aðkomu ríkisins í fréttinni . Í því sambandi langar mig til aðrifja upp herferð sem var í gangi um miðjan áttunda áratuginn - Home Taping Is Killing Music. Þessi herferð kallaði eftir því að fólk hætti að taka upp tónlist á kassettur (man einhver eftir þeim?) enda væri slíkt að kæfa smásölu. Þetta hafði þau áhrif hér að ríkið kom að borðinu með því að leggja skatt á kassettur, og í dag óskrifaða geisladiska, sem rennur hvert? Jú, til hljómplötuframleiðenda. Þegar við kaupum óskrifaðan geisladisk í dag sem við síðan notum til að setja ljósmyndirnar okkar á, borgum við skatt til hljómplötuframleiðenda! Hvers vegna? Er Gunnar að kalla eftir einhverju slíku?

Að lokum. Hvers vegna ætti niðurhal að koma frekar niður á tónlist en t.d. bíómyndum. Þegar myndbandið ruddi sér braut þá var því spáð að kvikmyndahús ættu skammt eftir ólifað. Hvað hefur gerst? Í dag er okkur seld sama bíómyndin 4 sinnum. Fyrst kemur hún í bíó svo á leiguna og svo til sölu á mynddisk og að lokum getum við keypt tölvuleikinn. Hljómplötuiðnaðurinn skaut sig líklega til ólífs þegar hann fór í vörn gegn sinni eigin sköpun; geisladisknum og stafrænum upplýsingum. Í stað þess að leyfa sölu á einstaka lagi og eða heilu plötunum í verslunum hefur markaðurinn gert það sem honum finnst auðveldara valið aðra leið.

 

P.s.

 

Gunnar og Birgir ættu kannski að kynna sér þetta umhverfi allt betur og til að hjálpa vil ég benda þeim á ágætan lestur á bókinni Last Shop Standing eftir Graham Jones.


Draumalandið

autt

  Ekkert útvarp.  Ekkert sjónvarp.  Enginn plötuspilari.  Engin málverk á veggjum.  Engar bækur.  Engar styttur eða skúlptúrar  Engin listiðnaðarhönnuð húsgögn.  Engir sinfóníuhljómleikar.  Engar leiksýningar.  Engar kvikmyndir.  Engin tugmilljarða króna velta lista og menningar.  Engin Björk.  Engin Sigur Rós.  Enginn Erro.  Enginn Laxness.  Enginn Arnaldur Indriðason.  Engar nokkur hundruð íslenskir bókatitlar á markað erlendis.  Enginn ferðaiðnaður.  Ekkert Iceland Airwaves.  Ekkert Vesturport.  Engir þúsundir fjölmiðlamanna.  Engin friðarsúla í Viðey. 

  Bara fólk sem situr á Alþingi.  Bara Ásbjörn Ólafsson.  Bara fólk sem vinnur venjulega vinnu:  Kvótagreifar sem borga sér tugmilljónkróna arðgreiðslur út úr félagi í taprekstri.  Það er olöglegt.  Draumalandið.       


Bráðskemmtilegar ljósmyndir af geitum

geit 

   Geitur eru góðar skepnur.  Geitamjólk er hollari en kúamjólk.  Reyndar er kúamjólk óholl.  Óþol gagnvart geitamjólk er næstum óþekkt.  Enda étur geitin næstum allt:  Hún sporðrennir girðingarstaurum,  gaddavír og fátt þykir henni betra að jórtra á en niðursuðudósum.  Það halda geitinni engin bönd.  Hún étur þau.

  Geitinni þykir gaman að klifra upp þverhnípta hamra og veggi.  Geitur hafa keppnisskap eins og Guðjón Þórðarson,  eða hvað hann heitir þessi fótboltaþjálfari sem er alltaf öskrandi á leikjum og bítur fólk í nefið utan vallar.

  Geitin vill alltaf sýna sig fyrir öðrum geitum.  Ef ein geit klífur hátt upp klettavegg reynir önnur geit að klifra ennþá hærra.  Og þannig koll af kolli.

  Hér eru skemmtilegar ljósmyndir af geitum í Wyoming í Bandaríkjum Norður-Ameríku.  Þær keppast daglangt við að rölta um snarbrattan brúarvegg.  Það er bannað að gera þeim hverft við.  Annars er hætta á að þær rúlli niður vegginn.  Það þykir þeim niðurlægjandi. 

  Varast ber að rugla saman fjallageitum (með litlu f) og Fjallageitum.  Síðarnefnda fyrirbærið er gönguhópur fólks á höfuðborgarsvæðinu. 

fjallageitur.jpg

fjallageitura_1033895.jpg fjallageiturc_1033898.jpgfjallageiturd.jpg


Splundraði Yoko Bítlunum?

 
.
 Yoko Ono hefur verið sökuð um að hafa sundrað Bítlunum;  valdið endalokum mestu hljómsveitar rokksögunnar.  Fyrir það var hún hötuð í áratugi.  Jafnvel eimir eftir af því í dag,  meira en fjórum áratugum síðar.  Það má meta þátt Yoko(ar) í því að Bítlarnir liðuðust í sundur út frá mörgum sjónarhornum.
.
  Lennon var leiðtogi og hafði ríka þörf fyrir hirð.  Einhverja sem voru í hans liði,  fylgdu honum í gegnum þykkt og þunnt og litu upp til hans.  En hann hafði ekki minni þörf fyrir sterka persónu sér við hlið til aðhalds og trausts.  Framan af ferli Bítlanna var umboðsmaðurinn,  Brian Epstein,  "pabbinn".  Hann féll frá haustið 1967.  Þá helltist óstöðugleiki yfir John.  Hann fór að dópa sem aldrei fyrr.  Vinnualkinn Paul McCartney fór að einhverju leyti í skó Brians.  Var reyndar farinn að troða sér í þá áður því hlutverk Brians fjaraði dálítið út þegar Bítlarnir hættu að túra ´66.  Paul fór æ meiri hamförum.  Þrátt fyrir að vera "dipló" þá pirraði ráðríki hans hina Bítlana.  Það leiddi til þess að bæði George og Ringo hættu um tíma í Bítlunum.  Þeir litu á Lennon sem leiðtogann en hann var útúrdópaður.  Í þessu vandræða andrúmslofti birtist Yoko honum John sem frelsandi engill 1968.  Sterk persóna,  fræg og uppátækjasöm nýlistakona frá New York með frumlega hugsun.  
.
  John hafði numið myndlist og var áhugasamur um nýlist.  Þau Yoko smullu rækilega saman.  Urðu samlímd.  Svo samlímd að John bjó um hana í rúmi inni í hljóðveri Bítlanna.  Það var eitthvað sem hinir Bítlarnir áttu erfitt með að sætta sig við.  Fram að þeim tíma var óskrifuð regla að kærustur og eiginkonur Bítlanna væru ekki í hljóðverinu.  En nú voru John og Yoko límd saman allan sólarhringinn.  
.
  Ástandið leynir sér ekki í heimildarmyndinni um gerð plötunnar "Let it Be".  Þar kemur glöggt fram pirringur Georges vegna ráðríkis Pauls.  Sömuleiðis er lýsandi fyrir ástandið að þegar Bítlarnir æfa eitthvað lag þá er John ekki með öðru vísi en að hann dansar vals við Yoko.  John var orðinn afhuga þátttöku í Bítlunum og George og Ringo þreyttir á Paul.  Ósættið birtist einnig í því að þegar fjármál Bítlanna fóru í rugl þá dúkkaði Paul upp með sinn lögfræðing (tengdapabba) en hinir Bítlarnir voru með annan lögfræðing.  Allt fór í illindi og klessu.  Á þeim tímapunkti hefði samstarf Bítlanna sprungið í loft upp óháð innkomu Yoko(ar). 
.
  Eflaust auðveldaði Yoko honum John sínum að stíga það skref að tilkynna hinum Bítlunum að komið væri að endalokum hljómsveitarinnar.  Paul fékk taugaáfall.  Hann mótmælti og stakk upp á því að Bítlarnir færu í hljómleikaferð.  John svaraði eitthvað á þá leið að Paul væri geggjaður.  Hinir Bítlarnir vörpuðu öndinni fegnir.  Þeim dauðleiddist í hljómsveitinni og urðu frelsinu fegnir.  Það segir sína sögu að á næstu árum eftir endalok Bítlanna héldu Ringo og George áfram að spila inn á plötur með John.
.
  Annar flötur á málinu.  Bítlarnir voru í leiðtogahlutverki allan sinn feril.  Fyrst sem brautryðjendur "bresku innrásarinnar" á heimsmarkaði og síðan í framþróun rokksins yfir í hipparokk,  þungarokk,  progrokk,  sýru og það allt.  1969 kom síðasta alvöru plata Bítlanna,  Abbey Road,  út.  Frábær plata sem staðfesti í alla staði hversu stórkostleg þessi hljómsveit var.  En á þessum tímapunkti voru að koma fram hljómsveitir á borð við Led Zeppelin og Deep Purple með flinkari hljóðfæraleikurum og nýja nálgun í framsæknu rokki.  Ég er á því að Bítlarnir hafi hætt á besta tímapunkti sem nokkur hljómsveit hefur gert í sögu rokksins.  Hugsanlega hefðu Bítlarnir getað gert eina snilldar plötu til viðbótar.  Kannski.  En ekki fleiri.  Fyrstu alvöru sólóplötu Johns,  Plastic Ono Band (1970),  var slátrað af gagnrýnendum.  Hún þótti hljóma eins og "demo".  Strípuð,  hrá,  einföld og óunnin.  Í dag er þessi plata ætíð ofarlega á listum yfir bestu plötur rokksögunnar.  En það þurfti breyttan tíðaranda til (pönkbyltinguna ´76/´77 og nýbylgjuna).  Fyrsta sólóplata Georges Harrisonar,  All Things Must Past (1970),   var einnig meiriháttar flott.  Fyrsta sólóplata Pauls,  McCartney (1970),  var ekki alveg eins góð.  Sú næsta,  Ram (1971),  er betri.  Síðan hallaði undan fæti hjá öllum Bítlunum.
.
  Eftir stendur að goðsögnin Bítlarnir hefur stækkað eftir því sem frá líður.  Þökk sé því að hljómsveitin hætti á réttum tímapunkti.  Og þökk sé ötulli vinnu Yoko(ar) í að varðveita orðspor Bítlanna og Johns Lennons.  Paul hefur ekki alltaf verið sáttur við Yoko.  En hann hefur hælt henni fyrir þessa vinnu.  Hún hefur náð að upphefja ímynd hans sem friðarpostula og einn merkasta tónlistarmann rokksögunnar.  Í aldamótauppgjöri helstu fjölmiðla heims var John í þeim flestum útnefndur tónlistarmaður síðustu aldar. 
.
  Það er kannski ljótt að bæta því við að John var afar breyskur maður.  Ofbeldisfullur,  kjaftfor,  yfirlýsingaglaður,  dópisti,  drykkjubolti,  fullur af mótsögnum þvers og kruss,  vanrækti Julian eldri son sinn,  skapofsamaður,  ófyrirleitinn,  illkvittinn á stundum,  slagsmálahundur og sendi frá sér helling af draslmúsík.  Rebel.  Það er ástæðulaust að draga það fram.  John var ofurgreindur,  rosalega orðheppinn og fyndinn,  frábær söngvari,  frábær söngvahöfundur,  assgoti skemmtilegur gítarleikari á stundum og frábær tónlistarmaður þegar best lét.
.
 
.
  Því má bæta við að John samdi fjölda söngva um Yoko.  Bæði með Bítlunum og á sólóplötum.  Samanber myndböndin hér að ofan.  Paul samdi einnig lag um Yoko.  Hann hefur að vísu alltaf þrætt fyrir að "Get Back" sé um Yoko.  Textinn er,  jú,  óræður og ónákvæmur.  Í honum er margt sem passar engan veginn við lýsingu á Yoko.  En Paul er dipló.  Jo-Jo og Yoko eru nöfn sem hljóma líkt.  Þegar við bættist að Paul gjóaði iðulega augum að Yoko er hann söng:  "Farðu aftur til þíns heima" þá fær textinn merkingu.  
 
 .
  Hefði John valið sér annan vettvang en tónlistina voru honum ýmsir vegir færir.  Um svipað leyti og Bítlarnir komu fram sendi hann frá sér tvö smásagnasöfn.  Þau fengu mjög góða dóma.  Enda sögurnar frumlegar og fyndnar og skreyttar skemmtilegum teikningum Johns.  Þorsteinn Eggertsson þýddi nokkrar af þessum sögum snilldarlega og birti í Tímanum í gamla dag.  Og bætti um betur með flottum frumsömdum sögum í anda Johns Lennons.

mbl.is „Give Peace a Chance"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lagalisti Sunnudagshugvekjunnar í kvöld

 

 Flest gekk að mestu snurðulaust fyrir sig í  Sunnudagshugvekjunni  á Nálinni fm 101,5 í kvöld.  Í tilfefni af 70 ára fæðingarafmæli Johns Lennons í gær var dálítil Lennon stemmning í loftinu.  Þátturinn verður endurfluttur á föstudaginn á milli klukkan 19.00 og 21.00.  Annars var lagalisti þáttarins þannig (kannski ekki alveg 100% nákvæm röð):

1   Kynningarlag þáttarins:  The ClashTime is Tight
2   BítlarnirKansas City
3   John LennonMother
4   Humble PieNatural Born Boogie
5   Dylan & HarrisonGimme Some Truth  (eftir John Lennon)
6   MC5Tutti Frutti
7   Julian LennonKeep the People Working
8   The ByrdsSo Fine
9   David Bowie & Tin MachineWorking Class Hero  (eftir John Lennon)
10  Stevie Ray VaughanLook at Little Sister
11  Generation XGimme Some Truth  (eftir John Lennon)
12  Anthrax:  Milk  (Ode to Billy)
13  Óskalag fyrir Sigurð I.B. Guðmundsson:  BítlarnirBaby You´re a Rich Man
14  Djass-perlan:  The Dave Brubeck Quartet: Take Five
15  "Öðruvísi lagið":  Sigue Sigue SputnikLove Missle F1-11
16  Reggí-lag dagsins:  Ziggy MarleyABC (Bend Down Low)
17  Pönk-klassíkin:  Sham 69If the Kids Are United
18  Pétur Kristjánsson: Vitskert veröld
19  Youssou N´Dour frá SenegalJealous Guy  (eftir John Lennon)
20  Að tillögu Rögga á Akureyri:  Innvortis Allir glaðir
21 Marius frá FæreyjumOne in the Masses
22  GimaldinPayback
23  Tokyo Hotel frá ÞýskalandiInstant Karma  (eftir John Lennon)
24  Steinn KárasonOf seint
.
.
Eldri lagalistar:

Skagfirskir tannstönglar

timbur

  Það er margt í gangi úti á landi sem almenningur hefur ekki hugmynd um.  Nema hann lesi héraðsfréttablöðin.  Þau eru skemmtileg og fróðleg.  Fólki úti á landi dettur svo margt í hug.  Eftirfarandi frétt er úr skagfirska fréttablaðinu Feyki (töluvert stytt):   

  Erlingur Veturliðason bóndi í Skagafirði hefur ákveðið að hefja framleiðslu á tannstönglum. Erlingur og fjölskylda brugðu nýlega búi og við það safnaðist saman ýmislegt eins og girðingastaurar og innréttingar úr fjárhúsum og fjósi. Frekar en að láta þessi verðmæti fara fyrir lítið, ákvað fjölskyldan að koma þessu í verð. –Já þetta kom nú þannig til að við vorum að safna þessu í haug þegar við vorum að taka til á bænum og okkur fannst þetta vera ansi mikill viður sem þarna færi fyrir lítið, segir Erlingur. –Við ræddum það fyrst að gefa þetta inn á Hvammstanga í áramótabrennuna, en okkur fannst það einhvern veginn ekki hæfa þessu, þar sem við vorum að kveðja þarna okkar ástkæra bú eftir áratuga veru þar.

  Erlingur leitaði til kunnáttumanna í markaðsmálum og voru þeir sammála um að hugmynd Erlings um að setja á markað mismunandi stærðir og gerðir af tannstönglum gæti slegið í gegn. –Já þeir voru jákvæðir á þetta markaðsmennirnir. Við erum ekki að tala um venjulega fjöldaframleidda tannstöngla, heldur ætlum við að tálga hvern og einn út úr timbrinu, þannig að það verður enginn eins. Við ætlum að merkja þá sérstaklega, t.d. getur fólk lent á pakka sem inniheldur tannstöngla úr fjósinu, eða fjárhúsunum og svo verða þarna girðingastauratannstönglar. Erlingur segir að fjölskyldan ætli að vinna þetta saman, sitja saman úti í skemmu og tálga. –Við erum fjögur á bænum og ætlum að gera þetta að fjölskyldubisness og treysta þannig böndin á milli okkar líka, segir Erlingur.

En hvenær er von á framleiðslunni á markað? – Ef vel gengur ættu fyrstu pakkningarnar að koma á markað árið 2012 líklega síðla það ár. Það tekur náttúrlega tíma að tálga þetta til, en við teljum að eftirspurnin sé næg og á þessum tíma ætlum við að ná upp mikilli eftirspurn. Fara kannski í stórmarkaði og leyfa fólki að prófa og þannig. Vegna þess að enginn tannstöngull verður eins kemur þetta jafnvel til með að hafa söfnunargildi auk þess að passa upp í hvern einasta kjaft, það eiga allir eftir að finna stöngul við sitt hæfi.


Tónlistarperrinn

nálin101,5 

  Nýverið hóf göngu á Nálinni fm 101,5 splunkunýr þáttur.  Hann heitir  Perrinn.  Ekki spyrja mig hvers vegna.  Ég hef ekki hugmynd um tilurð nafnsins.  Hitt veit ég að fyrst stóð til að þátturinn héti  Úlpan.  Jæja,  nema það að í þættinum er ný íslensk tónlist kynnt.  Tékkið á þessum þætti á milli klukkan 19.00 og 21.00 í kvöld.  Það er líka hægt að hlusta á netinu með því að smella á:  http://media.vortex.is/nalinfm


Besti þátturinn frumfluttur á morgun (laugardag)

 

  Að öllu jöfnu er besti tónlistarþáttur í íslensku útvarpi,  Fram og til baka og allt í kring,  frumfluttur á fimmtudagskvöldum á Nálinni fm 101,5.  Hann er síðan endurfluttur á laugardögum á milli klukkan 11.00 og 13.00.  Í gær var hinsvegar bein útsending frá frábærum hljómleikum á Sódómu (sjá:  http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1103337/).  Besti þátturinn verður þess vegna frumfluttur á morgun (laugardag) á milli klukkan 11.00 og 13.00. 

  Umsjónarmaður þáttarins,  Gunni "Byrds" (Gunnar Gunnarsson,  Gunni í Faco,  Gunni í Japis...),  ætlar að venju að bjóða upp á ýmislegt spennandi.  Þar á meðal sitthvað sem hann lumar á af lögum sem aldrei áður hafa heyrst í íslensku útvarpi.  Til að mynda nýtt lag af væntanlegri plötu með syni Pauls McCartneys.  Einnig mun hann spila flutning ónefnds Íslandings á lagi Bobs Dylans,  Forever Young.  Líka eitthvað með Grateful Dead,  Traffic,  The Clash,  Eric Burdon & The Animals,  Emmylou Harris,  The Byrds,  Richard og Lindu Thompson...  Eða að minnsta kosti flestum þessara.   Gott ef Gunni spilar ekki líka óútgefið (formlega) efni með Bob Dylan og Johnny Cash saman.   Hvað sem verður er næsta víst að þetta verður dúndur þáttur.  Missið ekki af honum.  Það er hægt að ná honum á netinu með því að smella á   http://media.vortex.is/nalinfm

 


Öðruvísi flugfélag - með húmor

kulula 2kulula 5kulula 6kulula 7kulula 8

  Í Suður-Afríku er vinsælt flugfélag sem heitir Kululat.  Þar ráða grínarar ferð.  Þetta er flugfélag sem líkja má við "Besta flokkinn".  Merkingar á flugvélum Kululat ganga út á grínið.  Sami grallaragangur einkennir ávarp flugfreyja og flugþjóna.  Dæmi:  "Við lendingu eru farþegar beðnir um að taka með sér farangur en mega þó skilja eftir eitthvað sem flugáhöfn getur gert sér gott úr."

  Í hátalarakerfi flugvélarinnar hefur meðal annars verið tilkynnt:  "Það eru 50 leiðir til að yfirgefa kærustuna/kærastann.  En hér eru aðeins 4 útgöngudyr."

  Í ókyrrð í lofti komu þessi skilaboð:  "Setjið fyrst á ykkur súrefnisgrímur áður en þið bjargið börnum ykkar.  Ef ókyrrðin gengur ekki yfir þá vinsamlegast veljið uppáhalds barnið ykkar til að bjarga."

  Önnur tilkynning frá flugstjóra:  "Ef þið viljið reykja þá vinsamlegast gerið það úti á flugvængnum. - Ef ykkur tekst að kveikja í sígarettunni þar."

  Eftir ókyrrð í lofti sagði flugstjórinn:  "Þið ættuð að sjá hér.  Kaffið helltist yfir mig þegar flugvélin hrapaði í loftleysi.  Ég er löðrandi í kaffi að framan."

  Farþegi með húmor hrópaði á móti:  "Það er ekkert miðað við buxurnar mínar að aftanverðu!"  


Missið ekki af spennandi hljómleikum!

nálin101,5 

  Annað kvöld,  nánar tiltekið fimmtudaginn 7.  október klukkan 20.00,  skella á einhverjir rosalegustu hljómleikar sem um getur í langan tíma.  Og það er frítt inn!  Þetta er í boði útvarpsstöðvarinnar Nálarinnar.  Eftirfarandi halda uppi fjörinu fram til klukkan 01.00 á föstudagsmorgni:

  - MOY

  - HEMÚLL

  - LOGN

  - TAMARIN/GUNSLINGERS (http://www.myspace.com/tamaringunslinger)

  - CATERPILLARMEN (http://www.facebook.com/event.php?eid=130949466958002#!/pages/Caterpillarmen/122428376830?v=info)

  Þvílíkt fjör,  já,  ekki má gleyma að þetta er á Sódómu.  Fyrir þá sem eiga ekki heimangengt vegna veikinda eða að reiðhjólið sé bilað þá verða hljómleikarnir sendir út í beinni á Nálinni fm 101,5.  Þetta eru einmitt kynningartónleikar Nálarinnar.  Einnig er hægt að hlusta á netinu með því að smella á þennan hlekk:   http://media.vortex.is/nalinfm

  Þangað til:  Fylgist með á http://www.facebook.com/event.php?eid=130949466958002

Tamarincaterpillarmen


Lemmy um Bítlana

  Ég var svo heppinn að upplifa Bítlaæðið á fyrri hluta sjöunda áratugarins.  Þetta voru ótrúlegir tímar.  Þessi breska hljómsveit kom inn á markaðinn eins og hvítur stormsveipur.  Lagði undir sig heimsbyggðina á örskömmum tíma.  Valtaði yfir allt sem var í gangi í dægurlagamúsík.  Sem dæmi þá áttu Bítlarnir í júní 1964 sex lög í sex efstu sætum bandaríska vinsældalistans.  Þetta verður aldrei endurtekið.  Seinni tíma poppstjörnur hafa í besta árferði átt 2 lög samtímis á "Topp 10".  Þar á meðal bítillinn John Lennon.

  Í áramótauppgjöri bandaríska tónlistariðnaðarins kom í ljós að Bítlarnir höfðu selt 60% af heildarsölu platna í Bandaríkjunum 1964.  Og það þó þeir hafi ekki komið inn á markaðinn fyrr en um vorið 1964.  Þetta var skrýtin staða vegna þess að fram að þessu voru bandarískir skemmtikraftar allsráðandi á heimsmarkaðnum.

  Ein allra skemmtilegasta bloggsíða landsins er www.this.is/drgunni.  Á dögunum birti Dr.  Gunni opnu úr bók,  ævisögu Lemmys í Motorhead.  Ég las þá bók fyrir nokkrum árum.  Hún er um margt fróðleg og áhugaverð.  Meðal annars vegna fyrstu kynna Lemmys af Bítlunum.  Þar segir (mikið stytt):

    Bítlarnir kollvörpuðu rokki & róli og útliti fólks.  Það hljómar hjákátlegt í dag en á þeim árum fannst fólki Bítlarnir vera mjög síðhærðir.  Ég hugsaði:  "Vá,  hvernig geta strákar verið svona síðhærðir?"...

  Ég var svo heppinn að sjá Bítlana spila á upphafsárum þeirra.  Þeir voru virkilega fyndnir,  étandi snakk á meðan þeir sungu og reittu af sér brandara.  Þeir voru ótrúlegir.  Þeir hefðu getað verið uppistandarar.
  Bítlarnir voru hörku naglar... Ég kunni vel við The Rolling Stones.  En þeir komust ekki með tær þar sem Bítlarnir höfðu hælana.  Hvorki varðandi kímnigáfu,  frumlegheit,  lagasmíðar eða fas...
  Allir vissu að umboðsmaður Bítlanna var hommi.  Einhver úti í sal hrópaði:  "John Lennon er helvítis hommi!"... John hljóp að honum og sló hann niður með tilheyrandi blóðgusum,  blóðnösum og (brotnum) tönnum.
  "Vilja fleiri leggja orð í belg?" spurði John.  Þögn.  "Þá höldum við áfram."
  Bítlarnir opnuðu allar dyr upp á gátt.  Þetta var eins og Seattle-dæmið á tíunda áratugnum.  Plötufyrirtækin mættu á svæðið og allir fengu plötusamning.
.

Tvífari afa síns

  Norður-kóreaska þjóðin er heilaþvegin.  Þar trúa allir á guð.  Hann heitir Kim Il-Sung.  Hann er eilífðarforseti Norður-Kóreu.  Þó hann hafi látist fyrir einhverjum mörgum árum þá breytir það engu um styrka stöðu hans í þessu veigamikla embætti.  Eftir látið gerðist það eitt að sonur hans,  Kim Jong-Il,  hefur farið með umboð hans;  komið fram fyrir hans hönd á opinberum vettvangi,  skrifað í umboði hans undir pappíra og eitthvað svoleiðis.  En það er sá gamli sem ræður öllu.

  Kim Jong-Il hefur verið fundið það til foráttu að vera ekki nógu líkur pabba sínum og vera ekki eins hirðusamur um klæðnað eða jafn vel greiddur.

kim jung-il

  Nú er verið að kippa þessum vandamálum í lag.  Yngsti sonur Kims Jong-Ils hefur verið kallaður upp á dekk.  Sá heitir Kim Jong-Un.  Hann þykir glettilega líkur afa sínum í útliti.  Grunur leikur á að hann hafi farið í andlitslyftingu til að skerpa á því.  Þrátt fyrir að guttinn hafi stundað nám í Sviss er ekki til nein ljósmynd af honum frá þeim tíma eða þangað til núna að hann er farinn að sjást opinberlega. 

  Myndin til vinstri er af eilífðarforsetanum.  Myndin til hægri er af stráknum.

Kim Il Sungkim jong-un 

  Eldri bræður Kims Jong-Uns hafa verið í tómu rugli.  Þeim er ekki treyst fyrir einu né neinu.  Einn var handtekinn blindfullur með vændiskonum og fölsuð skilríki í útlöndum.  Ég man ekki hvort hann þóttist vera Japani eða geimvera eða eitthvað svoleiðis.  Fréttir af handtökunni lögðust illa í norður-kóreaska ráðamenn. 

     


Hverju er verið að mótmæla?

 klemmarinnólibjörnkárason

  Ég mætti kátur og hress í mótmælastöðu á Austurvöll í kvöld.  Ég vissi ekki alveg hverju var verið að mótmæla.  Það var góð stemmning.  Með mér í för var Vestur-Íslendingur frá Kanada.  Hann vissi ekki fremur en ég hverju við vorum að mótmæla.  Það skipti þó litlu máli.  Við mótmæltum einhverju.  Og Vestur-Íslendingurinn hefur tekið þátt i mótmælum í Bretlandi,  Kanada og víðar.  Þar var augljósara hverju var verið að mótmæla.

  En þetta var gaman.  Við mótmæltum öllu sem var í boði til að mótmæla:  Burt með spillingu,  burt með ríkisstjórn,  burt með stjórnmálastéttina,  burt með Alþingi,  burt með aðgerðarleysi,  burt með Geir Haarde og Ingibjörgu Sólrúnu,  burt með skjaldborg auðmanna,  burt með samspillingu,  burt með Sjálfstæðisflokkinn,  Framsóknarflokkinn,  Samfylkinguna,  Vinstri Græna og burt með allskonar.   Burt með fjórflokkinn,  burt með AGS,  burt með spillta verkalýðsforingja,  burt með verðtrygginguna,  burt með ESB...

  Bylting lá í loftinu 2009 og enn er hrópað á byltingu.  Heimilum  blæðir .  Glæpamenn fá milljarða afskrifaða.  Kúlulánakóngar og kúlulánadrottningar drottna á Alþingi.  Sérlegir efnahagsráðgjafar hrunsins blása sig út sem þá sem vita og geta.  Öllum öðrum betur. 

  Og hvað svo?  Kosningar strax?  Kosningar fyrsta laugardag hvers mánaðar?  Þjóðstjórn?  Utanþingsstjórn (undir forystu Gylfa Magnússonar og Rögnu)?  Einræði?  Stjórnleysi (anarkisma)?  Besta flokkinn og Frjálslynda flokkinn á þing?   

  Af hverju var lögreglan grýtt með steinum og allskonar drasli?  Af hverju tók Óli Björn Kárason brjálæðiskast í stað þess að fara heim og láta renna af sér?  Þó ekki sé nema örlítið.  

  Svona er Ísland í dag.  Mikið fjör.   "Föss" gítarsándið hjá Lennon er skemmtllegt þó George hafi hatað það.


mbl.is Réttlæti og heiðarlegt uppgjör
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.