4.10.2010 | 15:55
Áríðandi leiðbeiningar fyrir húsmæður
Það vill vefjast fyrir margri góðri stúlkunni hvernig eðlilegast og sjálfsagt er að haga sér inni á heimili. Hún er óörugg og veit ekki hvernig umgangast skal eiginmanninn þegar hann kemur örþreyttur heim úr vinnunni. Mér er ljúft að bæta úr þessu með því að birta hér leiðbeiningar úr kennslubók í heimilisfræði. Þetta er nýleg bók, eða frá 1950. Von er á nýrri og endurbættri útgáfu 2050. Þangað til gildir þessi. Ef vikið er frá leiðbeiningunum er næsta víst að hjónabandið lendi í hættu. Því er nauðsynlegt að prenta þetta út og hengja á ísskápinn.
Leiðbeiningar úr kennslubók í heimilisfræði
- Hafðu kvöldmatinn tilbúinn á réttum tíma. Það veitir honum þá tilfinningu að þú hafir verið að hugsa um hann og að þér sé annt um þarfir hans. Flestir karlmenn eru svangir þegar þeir koma heim og tilbúinn matur er hluti af því að láta hann finna hversu velkominn hann er heim, en það er karlmönnum nauðsynlegt.
- Notaðu 15 mínútur til að snyrta þig og skipta um föt áður en hann kemur heim. Hann er að koma heim úr leiðinlegri og erfiðri vinnu og er þreyttur. Vertu svolítið hress og skemmtileg til að hressa hann við.
- Taktu upp allt rusl og dót. Farðu eina umferð um húsið og safnaðu saman skólabókum, leikföngum, pappírsrusli og blöðum. Renndu svo tusku yfir borðin til að þurrka af og þrífa svolítið. Eiginmanni þínum mun finnast hann kominn í friðarparadís og það hefur mikið að segja fyrir hann.
- Snyrtu börnin til. Það tekur aðeins nokkrar mínútur að þrífa hendur og andlit og greiða þeim. Ef þarf, skaltu láta þau skipta um föt. Þau eru hans fjársjóður og hann vill sjá þau þannig.
- Sjáðu til þess að húsið sé hljóðlátt. Slökktu á öllum vélum, s.s. uppþvottavél, þvottavél, þurrkara og ryksugu. Reyndu að sjá til þess að börnin hafi hljótt. Taktu á móti honum með glöðu brosi.
- Gættu þess að hella ekki yfir hann kvörtunum þegar hann kemur. Ekki heldur kvarta þótt hann komi of seint í mat. Þú getur verið viss um að þínar kvartanir eru minni háttar í samanburði við það sem hann hefur þurft að þola yfir daginn.
- Sjáðu til þess að hann hafi það þægilegt. Láttu hann halla sér aftur á bak í hægindastól eða stingdu upp á því að hann halli sér smástund í rúminu. Vertu tilbúin með kaldan eða heitan drykk handa honum. Bjóddu honum að klæða hann úr skónum og hagræddu púðunum undir honum. Ræddu við hann með rólegri, mjúkri röddu. Leyfðu honum að slaka á.
- Láttu hann ráða kvöldinu. Ekki kvarta þótt hann fari aldrei með þig út að borða eða á aðrar skemmtanir, reyndu í stað þess að skilja að hann hefur fengið sinn skerf af þreytu látum yfir daginn og þarfnast hvíldar heima. Markmiðið er að gera heimilið að stað þar sem eiginmaður þinn getur fundið frið og reglu og getur slakað á eftir erfiðan dag.
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 16:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
3.10.2010 | 22:08
Lagalisti Sunnudagshugvekjunnar
Það var fjör í Sunnudagshugvekjunni á Nálinni fm 101,5 í kvöld. Írski gítargúruinn Rory Gallagher og fleiri voru assgoti sprækir. Hápunktur þáttarins var hinsvegar heimsókn tónlistarmannsins Gimaldins. Hann sagði fréttir af sér og sínum og tónlist sinni. Það var hið fróðlegasta spjall og skemmtilegt. Ég ætla að margir hafi haft gaman af því spjalli.
Þessi lög voru spiluð í þættinum:
Tónlist | Breytt s.d. kl. 23:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.9.2010 | 22:48
Besti þátturinn var frábær
Gunni "Byrds" heldur áfram að toppa sig í besta tónlistarþætti í íslensku útvarpi, Fram og til baka og allt í kring á Nálinni fm 101,5. Þátturinn er á dagskrá á fimmtudagskvöldum klukkan 19.00 og, ja, í kvöld var hann til 21.30. Hann er endurfluttur á laugardögum frá klukkan 11.00 og nú til 13.30.
Margt leggst á eitt við að gera þáttinn frábæran: Fjölbreytt lagaval, fróðlegar og skemmtilegar kynningar, svo og forvitnileg lög þekktra og minna þekktra flytjenda af sjaldheyrðum plötum sem sumar hverjar eru líkast til einungis að finna hérlendis í plötusafni Gunnars.
Í kvöld hóf Gunnar þáttinn með hljómsveitinni Blood, Sweat & Tears. Því næst dró hann fram perlur með Richard og Lindu Thompson og fyrstu hljómsveit Toms Pettys, Mudcrutch. Þá kom röðin að The Byrds og síðan írskum harmónikkuleikara, Sharon Shannon. Þar kom Steve Earle við sögu. Og af því að Gunni var byrjaður að spila írska músík lét hann Van Morrison fljóta með.
Því næst vatt hann sér í plötu til heiðurs Arthuri Alexander. Spilaði lög eftir kappann í flutningi stórstjarna á borð við Jack Jackson, Mark Knopfler, Robert Plant, Elvis Costello og Roger McGuinn.
Þessi frábæri þáttur endaði á lögum með Gene Clark, REM, Stevie Wonder og Eric Burdon. Kannski er ég að gleyma einhverjum.
Ég hlustaði á þáttinn með ungum Vestur-Íslendingi sem er hér í helgarferð. Sá er fornleyfafræðingur og er að halda fyrirlestur á Þórbergssetri (Þórðarsonar) um helgina. Hann er einnig tónlistarmaður og hefur verið með tónlistarútvarpsþætti. Til gamans má geta að fyrir áratug eða svo fékk hann mig til að halda vel sótta og vel heppnaða hljómleika í Skotlandi. Bróðir hans á lag á v-norrænu plötunni Rock from the Cold Seas (http://www.tonlist.is/Music/Album/4816/ymsir/rock_from_the_cold_seas/). Þar var hann í kanadísku hljómsveitinni Chokeaboh.
Þegar við hlustuðum á þáttinn hans Gunnars sagði maðurinn: "Þetta er þáttur sem maður vill eiga á teipi til að hlusta á aftur og aftur." Ég benti honum á og núna ykkur að þátturinn er endurfluttur á laugardaginn frá klukkan 11.00.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 23:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
29.9.2010 | 23:11
Skoðið blýantinn ykkar undir smásjá
Fyrir nokkrum dögum sýndi ég ykkur ljósmyndir af því hvernig blýantsoddar líta út þegar þeir eru skoðaðir undir smásjá. Þar leynast listaverk þegar betur er að gáð. Þetta má sjá hér: http://jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1097375/ . Ég hef skoðað fleiri dæmi og er ljúft að deila þeim með ykkur:
Þessi er eins og sög.
Er þetta ekki eins og stóll?
Og þetta eins og staup?
Hér er engu líkara en veglegur gönguskór sé mættur til leiks.
Svipar þessu ekki til póstkassa?
Skyrtuhnappur?
Hér hefur blýantsoddurinn klofnað og sólarkross Ásatrúarmanna blasir við.
Gat á blýantinum efst skilur eftir sig hjartalaga form. Þetta gerist þegar menn naga í hugsunarleysi blýantinn sinn á meðan þeir tala í síma.
27.9.2010 | 14:53
Sparnaðarráð - 50% sparnaður!
Í því árferði sem ríkir um þessar mundir er brýnt að Íslendingar standi saman og deili með hver öðrum sparnaðarráðum. Guðirnir blessi Ísland. Ekki stendur á mér. Ég hef komið á framfæri í Sunnudagshugvekjunni á Nálinni fm 101,5 mörgu notadrjúgu sparnaðarráðinu. Þó flestir hlusti samviskusamlega á Nálina eru alltaf einhverjir í þeirri ömurlegu aðstöðu að koma því ekki við að hlusta á útvarp einmitt þegar Sunnudagshugvekjan er í loftinu. Þetta á til að mynda við um fólk sem er statt í flugvél eða er í yfirheyrslu hjá lögreglunni.
Mér er ljúft að koma til móts við þá vesalinga sem lenda í þessum ósköpum og birta hér nýlegt sparnaðarráð úr Sunnudagshugvekjunni.
Þannig er að flestar fjölskyldur og einstaklingar þurfa að fara til læknis eða á slysavarðstofu af og til. Sumir oft á ári. Það kostar pening. Margar ferðir kosta marga peninga. Þennan kostnaðarlið má lækka um 50%. Það munar um minna. Það eina sem þarf að gera er að fara aðeins í annað hvert skipti.
Hér eru fleiri hagræðis- og sparnaðarráð:
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 14:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
26.9.2010 | 22:57
Lagalisti Sunnudagshugvekjunnar
Sunnudagshugvekjan á Nálinni fm 101,5 var um margt skemmtileg í kvöld. Þar munaði mestu um að Gunni "Byrds" kíkti í heimsókn. Hann hafði meðferðis plötuna Live at Royal Albert Hall 1971. Gunni er hafsjór fróðleiks um tónlist og ekki síst þessa plötu. Lagalisti kvöldsins var þannig:
Tónlist | Breytt s.d. kl. 23:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
26.9.2010 | 00:00
Kallinn reddar þessu III
Það er alltaf mega gaman að kallinum sem reddar hlutunum á "nótæm". Eitthvað fer úrskeiðis og kallinn grípur það sem hendi er næst til og vandamálið er úr sögunni "med det samme". Hér eru nokkur skemmtileg dæmi. Hægt er að sjá fleiri slík með því að smella á slóðina: http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1096306/.
Eitt hjólið hefur dottið undan verslunarhillunni. Kallinn lítur í kringum sig. Vatnsmelóna úr grænmetisdeildinni smellpassar undir hilluna.
Það var í ógáti ekið yfir naglamottu. Hún tætti báða hjólbarða undan bílnum vinstra megin. Sem betur fer var þetta í námunda við verslunarmiðstöð. Kallinn var snöggur að redda málunum með innkaupakerru og tveimur hlaupahjólum sem voru í skottinu á bílnum.
Konan vildi endilega fá afturendann á nýja bílnum viðarklæddan. Það var ekki í boði á bílasölunni. Kallinn reddaði því snarlega. Viðarklæddur skal skuturinn vera.
Festing á púströrinu undir bílnum gaf sig. Kallinn reddaði því í hasti með öryggisbeltinu.
Krakkinn þarf að drekka mjólk úr pelanum sínum. Kallinn hefur öðrum hnöppum að hneppa en halda undir pelann. Hann reddaði málinu í hvelli.
Krakkarnir báðu hjólabrettapall. Í næsta nágrenni var nóg af vörubrettum. Kallinn reddaði í einum grænum hjólabrettapalli.
Bleyjurnar kláruðust. Kallinn leysti málið með pappamáli.
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 08:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
24.9.2010 | 21:01
Hugljúf og rómantísk smásaga um gömul hjón
Gömlu hjónin, Jón og Gunna, komust hátt á tíræðis aldur. Þau voru alltaf sammála og samtaka. Hugsuðu eins og ein manneskja. Nánast frá 14 ára aldri. Eða frá því skömmu eftir að Gunna sagði: "Nonni, ég er ólétt."
Jón gat ekki leynt forvitni sinni. Áður en hann vissi af hrökk upp úr honum: "Hver er pabbinn?"
Bækur | Breytt 25.9.2010 kl. 16:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
24.9.2010 | 12:40
Er hægt að ná bílprófi út á kunningsskap?
Í dómi Hæstaréttar yfir tæplega áttræðum karli sem tældi barnunga stúlku til kynlífsathafna vekur margt undrun. Ekki þó hvernig barnaperrinn notfærði sér brotna sjálfsmynd fórnarlambsins og þroskamun þeirra. Þar er um kunna takta barnaníðinga að ræða. Hitt vekur meiri undrun. Það er hvernig stelpan fékk ökuleyfi. Í dómnum segir að perrinn hafi borgað fyrir hana bílpróf. Hún féll á prófinu. Sá gamli hafi þá hringt í yfirmann hjá Frumherja þannig að stelpan fékk ökuskírteini. Perrinn átti bílasölu og hefur verið í miklum samskiptum við Frumherja.
Kynferðisglæpamenn eiga alltaf málsvara. Einn slíkur hringdi í Útvarp Sögu í morgun. Hann sagði barnaníðinginn vera ljúfmenni í alla staði. Einstakt góðmenni. Hann hafi í raun ekki gert annað af sér en verða ástfanginn af barninu.
www.aflidak.is
www.stigamot.is
.
![]() |
Tældi unga stúlku með gjöfum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 12:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
23.9.2010 | 23:09
Besti þátturinn stóð glæsilega undir björtustu vonum
Besti tónlistarþáttur í útvarpi, Fram og til baka og allt um kring, stóð heldur betur undir væntingum í kvöld. Þátturinn er á dagskrá Nálarinnar fm 101,5 á fimmtudagskvöldum á milli klukkan 19.00 og 21.00. Síðan er hann endurfluttur á laugardögum á milli klukkan 11.00 og 13.00. Ekki missa af því.
Það er Gunni "Byrds" (Gunnar Gunnarsson, Gunni í Faco, Gunni í Japis...) sem stjórnar þættinum styrkri hendi og kynnir áhugaverð lög af góðri þekkingu og skemmtilegum frásagnarmáta. Gestur hans í þættinum var Davíð Steingrímsson, harðlínu McCartney-aðdáandi. Eðlilega komu Paul McCartney og Bítlarnir við sögu í þættinum. En líka Roger McGuinn, Them, Kinks, Neil Young, Traveling Wilburys, John Lennon og fleiri. Splunkunýtt lag með Elvis Costello var frumflutt í íslensku útvarpi.
Þá var borinn saman flutningur Toms Pettys annarsvegar og hinsvegar The Byrds á laginu I Feel a whole Lot Better (beðist er velvirðingar á hvað lagið endar bratt á myndbandinu fyrir ofan). Frábær þáttur. Ég þarf að drífa í því að komast yfir 3ju plötu Fireman þar sem þeir Youth (úr Killing Joke) og McCartney fara á kostum.
Á myndbandinu hérna fyrir neðan biður Paul sinn gamla vin, John Lennon, að hætta að atyrða sig. Paul hafði verið að senda John nett skot undir rós í söngvum sínum. Lennon svaraði með harkalegum opinskáum níðsöng, How Do You Sleep. Paul hefði mátt þekkja æskufélaga sinn betur en svo að reikna með að hann svaraði settlega fyrir sig undir rós. En togstreita þeirra ól af sér þetta fína lag. Paul undirstrikaði hverjum boðskapurinn var ætlaður með því að hafa lagið í Lennonískum stíl.
Hér fyrir neðan er níðsöngur Johns. Það þarf að hækka aðeins í tækjum. Tónstyrkurinn er í lægri kantinum. Þarna beitir John sínum hárbeittu eiturstungum með orðaleik á borð við setninguna "Það eina sem þú gerðir (merkilegt) var á árum áður". Þetta má líka skiljast sem: "Það eina sem þú gerðir (merkilegt) var lagið Yesterday." Svo jafnaði John sig eftir reiðikastið og sagði þennan níðsöng hafa verið í raun árás eða gagnrýni á hann sjálfan. Því má bæta við að þeir John og Paul náðu síðar sáttum og djömmuðu saman í svakalegu dóppartýi með Stevie Wonder. Ömurlegt djamm því allir voru út úr heimi á dópi. Upptaka sem hefur varðveist geymir meðal annars orðalag þar sem Stevie Wonder er boðið meira kókólfs sniff að hætti íslenskra útrásarvillinga.
Tónlist | Breytt 24.9.2010 kl. 10:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.9.2010 | 00:12
Hryðjuverkahellt flugfélag
Hver er ekki hræddur við að fljúga á milli landa og landsvæða? Hræddur vegna hættunnar á að illgjarnir hryðjuverkamenn leynist meðal flugfarþega og bíði færis til að sprengja flugvélina í loft upp skömmu eftir flugtak. Þetta er ástæðan fyrir því að við þurfum að undirgangast gegnumlýsingu og leit að vopnum fyrir flugtak. Meira að segja í sakleysislegu flugi innanlands og til Færeyja eða Grænlands.
Nú hefur nýtt flugfélag í Bandaríkjum Norður-Ameríku, TPA (Terrorsist-Proof Airlines), fundið upp aðferð til að bjóða upp á hryðjuverkahellt flug. Aðferðin er einföld. Farþegar þurfa aðeins að berhátta sig fyrir flug og föt þeirra koma með næsta flugi, sem er yfirleitt strax daginn eftir. Þar með sleppur enginn inn í flugvélina með skammbyssur, sprengjur í skóm, hnífa eða neitt slíkt. Mér skilst að Flugvélag Íslands ætli að taka þessa aðferð upp. Og enginn þarf þá að vera hræddur í flugi til Egilsstaða eða Akureyrar.
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 22:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (25)
21.9.2010 | 21:59
Maðurinn sem fann upp taktinn
Einu sinni voru ekki til tölvur. Ekkert internet. Engin fésbók og ekkert blogg. Ótrúlegt en satt. Aðeins lengra er síðan það voru ekki til neinir bílar og engar flugvélar. Oft hefur verið talað um þá byltingu sem varð þegar hjólið var fundið upp. Án hjólsins væri erfitt að búa til þokkalega bíla og flugvélar.
Önnur bylting - sem minna er talað um en er ekki síður merkileg - er þegar maður að nafni Idnagrag fann upp taktinn. Þetta var í sunnanverðri Afríku. Fyrir þann tíma dansaði fólk og gólaði án takts. Einn daginn var Idnagrag með magakveisu og treysti sér ekki til að dansa með hinu fólkinu. Hann sat aðgerðalaus á trjádrumbi og fylgdist með. Hann langaði samt að vera með í leiknum. Fremur en gera ekki neitt gólaði hann smávegis og fór að slá með flötum lófa á ber lærin. Sín, vel að merkja. Fyrst var þetta óreglulegur ásláttur. Vegna magakveisunnar hægði á áslættinum - miðað við það sem Idnagrag hafði vilja til. Hægt og bítandi varð áslátturinn reglubundinn. Klappið á lærin glumdi við með jöfnu millibili. Fólkið varð furðu lostið. Það hætti að dansa og góndi opinmynnt á Idnagrag. Þeir kjörkuðustu laumuðust til að prófa að slá á læri sér með jöfnu millibili. Þegar þeir sáu og heyrðu að þeir gátu það þá slógu þeir fastar. Fleiri og fleiri bættust í hópinn og slógu í takt.
Takturinn breiddist út eins og eldur í sinu. Hann barst meðal annars til Asíu. Þar er maður að nafni Travis Barker. Hann hefur getið sér vænt orð fyrir góð tök og glöggan skilning á takti. Á þessu myndbandi fer hann ítarlega yfir fyrirbærið. Trommuleikarar um allan heim liggja gapandi yfir þessu myndbandi.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 22:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
21.9.2010 | 00:08
Skoðið blýantana ykkar
Flestir blýantar líta út fyrir að vera að uppistöðu til eins. Þegar betur er gáð gera þeir það ekki. Þegar þeir eru skoðaðir undir smásjá eða stækkunargleri kemur annað í ljós. Hér eru nokkrar nærmyndir og smásjármyndir sem gefa skemmtileg mynd af því hvernig blýantsoddar líta út þegar betur er að gáð:
Þetta virðist vera venjulegur blýantsoddur. Skoðum það betur:
Þegar blýöntum er vandlega raðað upp má með lagni greina að þeir myndi stafrófið.
Þegar enn betur er skoðað lítur einn oddur út eins og þar sé búið að hengja hlekk á hann.
Þegar smásjáin er skerpt enn frekar er oddurinn eins og brjóstmynd af Elvis Presley.
Annar virðist geyma samanfléttuð hjörtu.
Enn annar er eins og hamarinn í Pink Floyd myndbandinu Another Brick on the Wall.
Og einn virðist skarta lykli.
Enn einn lítur út eins og myndarleg skrúfa.
Menning og listir | Breytt s.d. kl. 10:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
19.9.2010 | 22:04
Lagalistinn í kvöld
http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1083677/
http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1085626/
Tónlist | Breytt 20.9.2010 kl. 00:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
18.9.2010 | 21:58
Besti þátturinn var frumfluttur á Nálinni í dag
Besti tónlistarþáttur í íslensku útvarpi er Fram og til baka og allt um kring með Gunna "Byrds" (Gunnar Gunnarsson, Gunni í Faco, Gunni í Japis). Þátturinn er að öllu jöfnu frumfluttur á Nálinni 101,5 á fimmtudögum á milli klukkan 19.00 og 21.00. Hann er síðan endurfluttur á laugardögum á milli klukkan 11.00 og 13.00. Síðasta fimmtudag brá aftur á móti svo við að Gunnar lá lasinn heima. Í stað frumflutnings var endurfluttur eldri þáttur. Sem var ekki mikill skaði því sá þáttur var meiriháttar flottur. Í seinni hluta hans var stiklað á stóru í ferli Guðmundar heitins Ingólfssonar píanósnillings. Þar voru spilaðar sjaldheyrðar djassperlur með kappanum ásamt því sem gestur Gunnars, Birna Þórðardóttir barnsmóðir og ekkja Guðmundar, sagði frá.
Þrátt fyrir slæma haustflensu reif Gunnar sig á fætur í morgun og frumflutti þátt sinn. Ég veit ekki hvernig verður staðið að endurflutningi á honum. Hvort það verður á fimmtudaginn eða hvort Gunni frumflytur þá að venju nýjan þátt. Hvenær sem þátturinn frá í dag verður endurfluttur þá hlakka ég til að heyra hann aftur. Bæði var lagavalið að venju verulega áhugavert og sömuleiðis flæðir fróðleikurinn af vörum Gunnars.
Í þættinum í dag kynnti Gunnar meðal annars Gene Clark, bandarískan söngvahöfund, söngvara og gítarleikara. Gene var í The Byrds og dúettinum Dillard & Clark. Hann gerði líka nokkarar plötur með Clöru Olsen. Gunnar kynntist þessum Gene persónulega en Gene dó sama daginn og Bob Dylan vinur hans hélt upp á 50 ára afmæli sitt.
Sitthvað fleira spilaði og kynnti Gunnar í þættinum í dag. Til að mynda Elvis Costello, Roger McGuinn og írska söngkonu sem ég man ekki nafnið á. Þá upplýsti Gunnar hvaða Bítlalag er byggt á því lagi sem The Byrds flytja í myndbandinu hér fyrir neðan. Ég ætla ekki að upplýsa það hér heldur láta ykkur vita hvenær þátturinn verður endurfluttur - þegar það liggur fyrir. Það er nefnilega skemmtilegra að heyra lögin spiluðu í röð í þættinum.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 22:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
17.9.2010 | 21:13
Kallinn reddar þessu II
Ég hef rosalega gaman af kallinum sem iðulega er kallaður þúsund þjala smiður. Þessum sem allir þekkja. Hann þarf ekki að leita langt yfir skammt til að finna hluti til að laga það sem hefur farið úrskeiðis. Grípur til þess sem hendi er næst og kippir hlutunum í lag "med det samme":
Hver þarf GPS staðsetningatæki þegar hægt er að redda málunum á einfaldari hátt?
Vantar kælibox? Kallinn reddar því. Fyllir þvottavélina af ísmolum og málið er leyst.
Konan sér ekki á skjáinn á hraðbankanum vegna sólarinnar. Kallinn reddar því. Rífur sig úr skyrtunni og blokkerar sólina.
Í Bretlandi er hægri handar stýri allsráðandi. Þegar draumabíllinn fæst á góðu verði en er með vinstri handar stýri reddar kallinn því snarlega.
Rigning truflar móttöku frá gervihnettinum. Kallinn reddar því með regnhlíf.
Rúðuþurrkumótorinn bilar. Kallinn reddar því. Bindur snærisspotta í þurrkublaðið og stýrir því léttilega innan úr bílnum.
Það vantar rafmagn í næsta herbergi. Kallinn reddar því án þess að opna rafmagnstengið.
Hitaketillinn klikkar. Kallinn reddar því. Skorðar hitaketilinn bara ofan á straujárnið.
Hér eru fleiri reddingar kallsins:
http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/1094756/
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 21:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
16.9.2010 | 18:40
Veitingahússumsögn - Færeyskir dagar
- Veitingahús: Smurbrauðsstofa Sylvíu, Laugavegi 170
- Réttur: Ræstkjötssúpa og brauð með áleggi
- Verð: 500 kr. + 1000 kr.
- Einkunn: **** (af 5)
Þessa dagana eru færeyskir dagar á Smurbrauðsstofu Sylvíu. Þar er boðið upp á ræstkjötssúpu (rast kjöt). Einnig bakka með fjórum brauðsneiðum. Á einni brauðsneiðinni er skerpukjöt (skerpikjöt). Á annarri er færeysk rúllupylsa. Á þeirri þriðju eru niðursneiddir knettir. Á þeirri fjórðu eru niðursneiddir fríkadellur.
Ræst kjöt og skerpukjöt eru hvorutveggja þurrkað lambakjöt. Ræstkjötið er hryggur og frampartur og hangir skemur uppi. Það er á stigi svipuðu því sem við köllum siginn fisk. Skerpukjötið er læri (sjá mynd) og hangir lengur uppi en er ekki jafn þurrt og harðfiskur. Bæði skerpukjötið og ræstkjötið eru bragðsterk og gefa endingargott eftirbragð.
Það er algengt að Íslendingum þyki þetta ekki góður matur þegar það er smakkað í fyrsta skipti. Eftir að hafa smakkað það oftar vex sterk löngun í að komast í svona kjöt oftar. Þetta er svipað og löngunin í kæstan hákarl, kæsta skötu og hangikjöt. Eitthvað sem maður verður að fá sér í það minnsta árlega. Helst miklu oftar.
Ræstkjötssúpunni svipar mjög til íslensku kjötsúpunnar. Þetta er matmikil grænmetissúpa með rófum, gulrótum, lauk, hrísgrjónum og þess háttar. Hlutfall ræstkjötsins er minna en kjötið í íslensku kjötsúpunni. Í Færeyjum er algengt að ræstkjötið sé fjarlægt úr súpunni og borðað sér með soðnum kartöflum. Á Smurbrauðsstofu Sylvíu er kjötið í súpunni. Bragðið af ræstkjötinu gefur súpunni töluvert skarpara bragð en er af íslensku kjötsúpunni. 500 krónur fyrir súpuna á Smurbrauðsstofu Sylvíu er gott verð og auðveldar óvönum að smakka. Innifalið í verðinu er ábót ef einhver er rosalega svangur. Ég hef aldrei þurft á því að halda. Súpan er saðsöm og ein besta ræstkjötssúpa sem ég hef fengið. Alveg súper. 5 stjörnu súpa.
Það er ósanngjarnt að gefa einföldu "smurðu heimilisbrauði" hefðbundna einkunn (þó ég láti það draga heildareinkunn örlítið niður í þessari umsögn). Smurðu heimilisbrauði er ekki ætlað að vera veislumatur sem keppir við alvöru "danskt smurbrauð". Brauðbakkinn gefur góða hugmynd um hefðbundið smurt brauð á færeyskum heimilum. Þó er skerpukjöt meira til spari í Færeyjum en snætt hvunndags.
Færeyska rúllupylsan er keimlík þeirri íslensku. Sú færeyska er mildari og hlutfall kjöts meira á móti fitu. Það er töluvert af lauk í henni og smávegis af púðursykri.
Knettir eru soðnar fiskbollur. Uppistöðu hráefnið í knöttum er þorskur og kindamör. Saman við það er blandað lauk, salti og pipar. Sumir hafa örlítið af sykri með. Færeysku knettirnir eru blessunarlega lausir við hveitibragð íslensku fiskbollanna. Fyrir bragðið (í bókstaflegri merkingu) eru knettirnir eins og ferskari. Að öðru leyti er bragðið líkt.
Fríkadellur eru steiktar fiskbollur. Að öðru leyti eru þær alveg eins og knettir.
Þannig er frá brauðbökkunum gengið að hægt er að grípa þá með sér heim. Það er upplagt að gera. Meðal annars til að gefa öðrum að smakka með sér. Og þess vegna að grípa með sér nokkra bakka til að eiga daginn eftir. Jafnvel marga bakka til að eiga í marga daga.
Smurbrauðsstofa Sylvíu er lítil og hlýleg. Þar eru 14 sæti sem raðast við fjögur borð.
Færeysku dagarnir standa fram á helgi. Þið hafið morgundaginn (föstudag til klukkan 22.00) og laugardaginn (opið til klukkan 14.00) til að upplifa færeyska stemmningu í mat fyrir lítinn pening.
Matur og drykkur | Breytt 17.9.2010 kl. 18:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
15.9.2010 | 11:40
Jenis av Rana í predikunarferð til Íslands
Færeyski lögþingsmaðurinn, trúarleiðtoginn, heimilislæknirinn og formaður Miðflokksins er grátklökkur yfir þeim stuðningskveðjum sem rignt hefur yfir hann frá Íslendingum. Einkum eru Íslendingarnir fagnandi yfir brotum Jenisar av Rana á lögum um upplýsingaskyldu er hann beitti þöggun varðandi barnaníð innan trúfélags síns. Svo ekki sé minnst á skelegga baráttu Jenisar fyrir því að nýlegt lagaákvæði #266b verði afnumið. Það kveður á um að bannað sé að ofsækja samkynhneigða. Jenis av Rana vill að refsilaust sé að lemja homma. Enda sé það nauðsynlegt þeim til góða svo þeir brenni ekki um eilífð í vítislogum. Það er kvalafullt. Jenis av Rana vill ekki að neinn þurfi að upplifa slíkan sársauka. Og það svona lengi.
Nú er Jenis av Rana á leið í predikunarferð til Íslands. Trúfélag nokkurt hefur boðið honum að boða fagnaðarerindi sitt á samkomu hjá því. Ekki fylgir sögunni um hvaða trúfélag er að ræða. Aðeins að samkoman verði haldin stutt frá Reykjavík. Jenis av Rana ætlar að grípa með sér vanan forsöngvara til að gera viðburðinn hátíðlegri.
Grunur leikur á að Jenis av Rana muni í leiðinni halda námskeið til að kenna hvernig heppilegast er að lumbra með Biblíunni á hommum. Annað námskeið, þar sem kennt er hvernig þagga eigi niður barnaníð, er óþarft. Íslensku trúfélagarnir eru þaulvanir í því. Eiginlega atvinnumenn.
Áður hefur komið fram að innan um stuðningskveðjurnar frá Íslandi leyndist kveðja frá forstöðumanni 1000 manna trúfélags. Þau íslensku trúfélög sem eru næst því að vera með 1000 félagsmenn koma varla til greina. Það eru Ásatrúarfélagið með um 1500 félaga og Búddistar sem eru um 900. Önnur trúfélög eru töluvert fjölmennari eða fámennari. Þetta er dularfullt.
Það verður áhugavert að fylgjast með því hvort aðrir en íslenskir uppklapparar Jenisar av Rana sýni einhver viðbrögð við heimsókn hans og predikun stutt frá Reykjavík.
Jenis av Rana hefur einnig orðið var við stuðning heima fyrir. Hann er með 25 undirskriftir frá Færeyingum undir höndunum því til staðfestingar.
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 18:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (72)
14.9.2010 | 19:55
Áfengar kexkökur
Í Bandaríkjum Norður-Ameríku - einkum Suðurríkjunum - vilja menn og konur helst djúpsteikja allan mat. Liðið djúpsteikir hrútspunga, súkkulaði og annað sælgæti, kartöflur, kjúklinga, engisprettur, kalkúna, smáfugla og allskonar. Í Texas fær liðið sér ekki lengur bjór öðru vísi en djúpsteiktan. Það er gert með því að hnoða bjór innan í hveitikökur sem síðan eru djúpsteiktar. Þessi aðferð fer eins og eldur um sinu hjá kúrekahöttunum og gallabuxunum í Texas. Á pöbbnum biður fólk ekki um einn kaldan á kantinn heldur tylft. Tylft er slangur yfir 12 rjúkandi heitar nýsteiktar bjórkökur. Það er líka hægt að biðja um hálfa tylft.
Hveitideigið er haft dálítið salt. Það er heppilegt þegar fólk dettur í það. Að auki er hörku stemmning í þessu. Kökurnar bragðast í humátt að saltstöngum sem iðulega eru í boði á pöbbum.
Sömu lög gilda um djúpsteiktar bjórinn og annan bjór: Hann má einungis selja þeim sem eru 22ja ára og eldri. Enda er alkahólstyrkur djúpsteiktu bjórkökunnar 5% og varasamt að hleypa 21 árs fólki í hana. Það færi allt í rugl.
Matur og drykkur | Breytt 15.9.2010 kl. 00:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
13.9.2010 | 22:55
Kallinn reddar þessu
Öll þekkjum við þúsund þjala smiðinn. Kallinn sem kann öll ráð til að redda hlutunum. Eitthvað fer úrskeiðis og hann reddar dæminu með hið sama. Leitar ekki langt yfir skammt heldur grípur það sem hendi er næst og málið er dautt. Hér eru skemmtileg dæmi:
Það vantar skeið til að slafra í sig súpuna. Kallinn lítur í kringum sig. Sér einnota plastfrauðsmál og gaffal. Þetta steinliggur.
Festing öryggisbeltisins virkar ekki. Kallinn reddar því. Klemmir beltið bara með rúðunni. Málið er dautt.
Gamla túpusjónvarpið smellpassaði í hillusamstæðuna. Nýi flatskjárinn tekur meira pláss. Kallinn sagar bara úr hliðarplötunni. Flatskjárinn passar eins og hanski.
Hver kannast ekki við það vandamál að upptakarinn finnst ekki. Kallinn reddar því. Skellir skrúfbolta í næstu spýtu sem hann rífur undan sófasettinu.
Nýja sparperan í stofunni gefur ekki nóga birtu. Kallinn reddar því. Bætir bara við nokkrum perum til viðbótar.
Það er eitthvað ólag á innstungunni. Kallinn reddar því með skærum.
Geislaspilarinn og útvarpið í bílnum virkar ekki. Kallinn reddar því með ferðatækinu. Þetta þarf ekki að vera merkilegur gettó-blaster. Öllu skiptir að þetta virkar.
Bókahilluna í bókabúðinni vantar stuðning. Sem betur fer er til nóg af bókum í búðinni til að redda því. Kallinn kann þetta.
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 23:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)