15.6.2009 | 00:30
Kvikmyndaumsögn
- Titill: The Hangover ("Hundasýkin" á færeysku, "Þynnkan" á íslensku)
- Sýningarstaður: Sambíón
- Einkunn: **1/2 (af 5)
The Hangover er bandarísk gamanmynd sem gerist í borg syndanna, Las Vegas. Leikstjórinn, Todd Phillips, á að baki myndir á borð við Road Trip, Old School og Starsky & Hutch.
Að uppistöðu til gengur myndin út á að þrír kunningjar vakna upp eftir næturslark í borginni og reyna að átta sig á atburðum næturinnar. Þeir muna ekki eftir neinu. Hægt og bítandi tekst þeim að fylla upp í eyðurnar.
Söguþráðurinn er byggður á raunverulegum atburði. Jafnvel má ætla að eitthvað þessu líkt hafi gerst mörgum sinnum víða um heim. Þar fyrir utan er söguþráðurinn ekki upp á marga fiska og skiptir litlu máli. Það eru samskipti félaganna innbyrðis og við annað fólk sem afgreiða brandarana. Brandararnir eru þokkalega margir og margir þokkalega fyndnir. Sumir nokkuð ferskir. Þar ber einn félaganna hita og þunga. Sá er Zach Galifianakis í hlutverki Alans. Hann er í miðið á ljósmyndinni hér fyrir ofan. Án hans hlutverks væri myndin ansi þunn.
Einstaka brandari er mjólkaður um of. Dæmi um það er hversu mikið og ítrekað er gert út á að einn félaganna missir framtönn á næturslarkinu. Til gamans má geta að viðkomandi leikari hefur frá barnsaldri verið án þessarar tannar í raunveruleikanum.
Myndin er auglýst sem "ein albesta grínmynd sumarsins". Hún stendur undir þeirri fullyrðingu. Í og með vegna þess að framboð á góðum grínmyndum er takmarkað. Töluvert er um ofleik í myndinni. Einnig er hún dálítið klisjukennd og þess vegna oft fyrirsjáanleg. Sem er allt í lagi. Þetta er fyrst og fremst létt grínmynd og reynir ekki að vera neitt meira. Hún heldur jöfnu flugi til enda. Ágæt skemmtun fyrir fólk á öllum aldri. Það eru mörg fín rokklög í myndinni í bland við nokkur leiðinleg popplög.
Kvikmyndir | Breytt s.d. kl. 10:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
14.6.2009 | 00:03
Siggi Lee handtekinn í Færeyjum
Vegna ljósmyndarinnar - sem sýnir færeyskan hrút í bakgrunni - í síðustu færslu er við hæfi að fylgja henni eftir með þessu ágæta myndbandi af glæsilegum færeyskum hrútum. Í Færeyjareisunni bar til tíðinda að ferðafélagi minn, Siggi Lee Lewis, var handtekinn með látum.
Það bar þannig til að eitt kvöldið var kappinn að viðra sig á rölti fyrir aftan skemmtistað í Þórshöfn. Þar voru fyrir nokkrir smákrakkar og einn ungur maður. Siggi var varla farinn að kasta kveðju á hópinn þegar nokkrir menn birtust úr öllum áttum, skelltu Sigga eldsnöggt upp að húsvegg og handjárnuðu. Hinum manninum var skellt flötum í mölina og hann einnig handjárnaður.
Það var fagmannlega að handtökunni staðið. Allt gekk snurðulaust fyrir sig á örfáum sekúndum. Aðkomumennirnir voru í borgaralegum klæðum en veifuðu strax lögregluskilríkjum í kjölfar handtökunnar.
Sigga Lee var nokkuð brugðið við þessa óvæntu kveðju og spurði hvað væri í gangi. Það virtist ríkja bankaleynd um það. Lögreglumennirnir fóru með hraði í gegnum það sem í vösum Sigga var, þar á meðal vegabréf og önnur skilríki. Við skoðun á þeim pappírum bráði snöggt af lögreglunni og handjárn voru fjarlægð með hraði af Sigga. Svo yfirgaf löggan svæðið jafn skjótt og hún kom. En hafði hinn handjárnaða manninn með sér.
Eftir helgina fletti ég upp í dagbók lögreglunnar í Þórshöfn. Þar kom ekkert fram um þessa lögregluaðgerð. Helgin var sögð hafa verið ósköp venjubundin. Allt með kyrrum kjörum að undanskildu því að laus hundur var á ferli í borginni. Lögreglan brýndi fyrir hundeigandanum að passa betur upp á hundinn. Hundeigandinn tók vel í þá bón.
Hér er Siggi að blanda saman færeyska ákavítinu Lívsins vatni og Jolly kóla.
Svo fékk hann sér færeyskt öl í Glitni. Hann sést koma þarna út í kvöldsólina með sólgleraugu og ískalt ölið. Það var ekki meira en svo í glösunum að ölið var jafnan uppdrukkið áður en menn náðu að setjast niður með glasið. Alveg furðulegt hvað það gekk hratt fyrir sig.
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 02:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (34)
13.6.2009 | 00:21
Meira af Færeyjareisu
Eitt af mörgu sem gerir ferð til Færeyja ánægjulega er að færeyskt ritmál er auðlesið fyrir Íslendinga. Kunnugleg orð þýða þó ekki alltaf það sama á íslensku og færeysku. Á efstu myndinni er verslun merkt sem gávubúð. Slagorð hennar er "Góð gáva gleður". Færeyska orðið gáva þýðir gjöf. Þetta er gjafavöruverslun.
Á næstu mynd er aðstaða Rauða krossins í Færeyjum. Hann kallast Reyði krossur. Færeyingar tala um reyðan penna og reyðan jakka þegar þeir eiga við rauðan penna og rauðan jakka.
Þriðju myndina hef ég stóra til að í baksýn sjáist klettabeltin sem út um allt setja skemmtilegan svip á Þórshöfn. Ef vel er að gáð sést einnig færeyskur hrútur, eða "veðrur" eins og hrútur er kallaður á færeysku og framborið "vegrur".
Það var sama hvort kíkt var á skemmtistað, matsölustað eða í búð: Allstaðar voru Íslendingar. Þeir áttu það sameiginlegt að hafa flúið frá atvinnuleysi á Íslandi til Færeyja í kjölfar efnahagshrunsins á Íslandi síðasta haust. Undanfarna áratugi hefur færeysk króna kostað 10 íslenskar krónur. Í dag kostar færeysk króna 24,5 íslenskar. Laun í Færeyjum hafa verið heldur hærri en á Íslandi og þegar þau eru reiknuð á núverandi gengi í dag geta vinnandi Íslendingar í Færeyjum sent dágóða upphæð til framfærslu sinna fjölskyldna á Íslandi. Íslendingar í Færeyjum eru í sömu stöðu hvað það varðar og Pólverjar sem hafa verið í vinnu á Íslandi undanfarin ár.
Hinsvegar er nokkuð dýrt fyrir Íslending að ferðast til Færeyja um Þessar mundir. Bjór sem áður kostaði á bar 500 íslenskar krónur kostar núna 1225 kall (50 færeyskar krónur). Það er reisn yfir því.
12.6.2009 | 03:07
Færeyjareisan
Það var ekki alveg beina leiðin að heilsa upp á Færeyinga. Í fyrstu atrennu klaufuðumst við ferðafélagar til að fara til Þórshafnar á Langanesi í staðinn fyrir að fara til Þórshafnar í Færeyjum. Þetta klúður kostaði breytta ferðaáætlun um eina viku. Sem var allt í lagi. Þannig lagað. Næsta föstudag tókst þó ekki betur til en að flogið var til Egilsstaða í stað þess að heilsa upp á Færeyinga.
Íslensk hljómsveit sem heitir Mezzoforte átti á spila á hljómleikum í Færeyjum þarna um kvöldið. Það muna kannski einhverjir eftir þessari hljómsveit síðan hún sendi frá sér smellinn Garden Party fyrir næstum þremur áratugum.
Mezzoforte nýtur gífurlega mikilla vinsælda í Færeyjum. Þar er þessi hljómsveit þvílík súpergrúppa að færeyskir fjölmiðlar tíunda allt sem að henni snýr með uppsláttarfrétt á forsíðu dagblaða og í sjónvarpsfréttum. Ég veit fátt um þessa hljómsveit annað en það sem ég les um hana í færeyskum dagblöðum. Ég er ekkert neikvæður gagnvart fönkuðu fjúsjóni Mezzoforte. Bara ekki minn djass.
Þegar ég fór til Færeyja um páskana í fyrra sögðu færeyskir fjölmiðlar frá fyrirhuguðum hljómleikum Mezzoforte í Danmörku í júní sama ár. Ég varð aldrei var við að þeirra hljómleika væri getið í íslenskum fjölmiðlum.
Það var gist á hóteli á Egilsstöðum yfir blánóttina. Um kvöldið hitti ég þar (á barnum) skemmtilega Skagfirðinga, Siglfirðinga, Færeyinga og fleira skemmtilegt fólk. Síðan var haldið til Færeyja eldsnemma á laugardagsmorgni. Svo ánægjulega vildi til að í hópi þeirra ferðafélaga er ég kynntist var kærustupar. Konan er færeysk fósturdóttir Siffa vinar míns af Wall Street og Classic Rock og maðurinn er fóstursonur Erlings Thoroddsen náfrænda míns, trúfélaga í Ásatrúarfélaginu og hótelstjóra á Raufarhöfn. Hvorugt þeirra hafði ég hitt áður en þó talað við manninn í síma. Hann heitir Jens Kristján eins og ég. Það urðu fagnaðarfundir. Og Siffi varð hissa þegar hann ræddi við fósturdóttir sína þarna í síma á Egilsstöðum og hún rétti mér símann.
Mezzoforte héldu tvenna hljómleika í Færeyjum síðdegis á laugardeginum. Það var troðið út úr dyrum á báðum hljómleikunum í Norræna húsinu í Þórshöfn. Allir sem ég hitti og mættu á hljómleikana voru í sjöunda himni og verulega hamingjusamir með hljómleikana. Ég fór hinsvegar á allt öðru vísi og færeyska hljómleika með píanóleikaranum Kristian Blak og fleirum. Og var kátur.
Á myndinni hér fyrir ofan er ég að deila við færeyska rokkara sem aðhyllast óbreytt ástand: Að Færeyjar séu hluti af danska sambandsríkinu. Þetta er fyrir utan skemmtistaðinn Glitni í Þórshöfn. Á myndinni fyrir neðan syng ég fyrir þá Skál við syngja Skagfirðingar. Það er fastur liður á pöbbarölti í Færeyjum. Fyrir og eftir þann söng sagði ég þeim að Færeyingar ættu að kljúfa sig frá Danmörku. En talaði fyrir daufum eyrum. Held ég. Annars man ég það ekki glöggt. Þar fyrir utan hef ég sterkan grun um að það hafi verið gaman þarna á Glitni. Í baksýn á myndinni glittir í Íslending sem ég man ekki hvað heitir.
Fjölmiðlar | Breytt s.d. kl. 23:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
28.5.2009 | 22:05
Á leið til Færeyja - í annarri tilraun
Nú geri ég aðra tilraun á einni viku til að komast til Þórshafnar í Fjáreyjum. Fyrri tilraunin tókst ekki betur en svo að hún endaði í Þórshöfn á Langanesi. Ég var að uppgötva að fleiri en ég mislásu á farseðilinn. Ég fékk nefnilega útlendan gjaldeyri afgreiddan í bankanum út á farseðilinn til Þórshafnar á Langanesi.
Í þetta sinn getur fátt farið úrskeiðis. Allir hlutir hafa verið tvískoðaðir. Skerpukjötið bíður.
Ferðalög | Breytt s.d. kl. 22:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (25)
27.5.2009 | 01:56
Færeyskur brandari
Færeyskur húmor er dásamlegur. Ég kann ekki að greina hann. En það er alltaf gaman þegar Færeyingar senda mér brandara. Ég veit ekkert hvort þeir eru frumsamdir eða færeyskir yfir höfuð. Það skiptir ekki máli. Stemmningin er alltaf sú sama Hér er einn dæmigerður:
Nunna gengur framhjá geðveikrahælinu. Einn vistmanna hleypur að henni, skellir henni í jörðina og sparkar í hana liggjandi um leið og hann segir sigri hrósandi: "Já, var það ekki? Þú ert ekki eins mikið hörkutól og þú þykist vera, Batman!"
Á færeysku: Ein nonna gegg framvið Kaggan, tá ein av bumsunum har, leyp út og bukaði nonnuna av og sparkaði hana har hon lá, meðan hann segði: "náhh.. tú ert ikki so skrappir kortini, ha? Batman..."
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 21:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
26.5.2009 | 13:10
Smellnar ljósmyndir
Galdurinn við marga góða og broslega ljósmynd er þegar tekist hefur að frysta rétta sekúndubrotið. Hér eru nokkur bráðskemmtileg dæmi um slíkt.
25.5.2009 | 22:52
Frábært morgunútvarp
Rás 2 hefur notið þeirrar gæfu síðustu ár að þangað hefur safnast rjómi íslenskra dagskrárgerðarmanna. Mér nægir að nefna fólk eins og Óla Palla, Guðna Má, Margréti Erlu Maack, Ásgeir Eyþórsson, annan Ásgeir sem ég man ekki hvers son er, Snorra Sturluson, Matta (man ekki hvers son), Frey Eyjólfsson, Andreu Jóns, Villa "Naglbít", Andra Frey, Dodda litla, Búa Bentsen og marga sem ég man ekki eftir í fljótu bragði. Sorry fyrir gleymskuna.
Þvílíkt úrvalslið. Með fullri virðingu fyrir mörgum ágætum dagskrárgerðarmönnum á X-inu, Útvarpi Sögu og fleiri ágætum útvarpsstöðvum.
Hratið er á Effemm 957. Þvílík hörmungar útvarpsstöð.
Á miðvikudaginn, klukkan 10:30, mæti ég, kátur og hress (ef mér tekst að vakna svo óvenjulega snemma), í hljóðver rásar 2 til að ræða um leitina að 100 bestu íslensku plötunum. Að þeirri leit standa rás 2, Félag íslenskra hljómplötuútgefanda og www.tonlist.is. Ég mun tæpitungulaust gera grein fyrir mínum viðhorfum til þessa áhugaverða verkefnis.
Tónlist | Breytt 26.5.2009 kl. 13:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
24.5.2009 | 21:55
Ljósmyndir af Phil Spector
Þessar bráðskemmtilegu ljósmyndir af Phil Spector voru allar teknar á meðan bandarískir dómstólar fjölluðu um morðákæru á hendur honum. Nema fyrsta myndin. Hún er örlítið eldri. Phil hefur forðast myndavélar eins og heitan eld í gegnum tíðina. Ástæðuna segir hann vera þá að hann myndist illa. Það hefur ekki verið átt við (fótósjopp) neina af þessum myndum nema þá síðustu.
Phil er afar viðkvæmur fyrir útliti sínu. Hann hefur farið í margar lýtaaðgerðir. Meðal annars hefur hann látið festa eyrun að aftan við höfuðið. Honum þótti þau vera of útstæð. Hann skiptir ört um hárlit, hárgreiðslu, gleraugu og fatastíl. Hann dvelur löngum stundum fyrir framan spegil hvern dag og greiðir hárið í ýmsar áttir ásamt því að vera stöðugt að máta ný föt.
Phil er höfundur margra þekktra laga í flutningi Tínu Turner, Bítlanna, Dolly Parton, Emmylou Harris, Lindu Ronstadt og fleiri. Hann er ennþá þekktari fyrir upptökustjórn á plötum Johns Lennons, Georges Harrisonar, The Ramones, Leonards Cohens, Bítlanna og fleiri.
Phil hefur alla tíð þótt verulega skrítinn. Margir telja hann vera geðveikan. Nýverið var hann sakfelldur fyrir morð á lítið þekktri leikkonu. Hér er eitt hans þekktasta lag. Það var samið löngu fyrir daga pönksins. Þess vegna þýðir ekkert að setja sig í pönkstellingar. Þetta myndband er komið til ára sinna. Emmylou Harris (sú lengst til hægri) er í dag gráhærð og miklu sætari:
Tónlist | Breytt 12.6.2009 kl. 00:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
24.5.2009 | 00:10
Upprifjun á spennandi og áhugaverðum skoðanakönnunum
Ég byrjaði að blogga fyrir tveimur árum. Á dögunum fékk ég ósk frá bókaútgefanda um að nokkrar gamansögur af blogginu mínu verði birtar sem kafli í bók. Það er bara gaman. Og reyndar ekki í fyrsta skipti sem gamansögur af blogginu mínu koma út í bók. Í fyrra kom út frábær bók um Önnu frænku mína frá Hesteyri, Ég hef nú aldrei verið algild. Þar eru nokkrar upprifjanir mínar af samskiptum við Önnu sem höfðu birst á blogginu.
Vegna kaflans í væntanlegri bók fletti ég upp á gömlum bloggfærslum. Þar rakst ég á fyrstu skoðanakannanir sem ég setti upp á blogginu. Það er gaman að rifja þær upp.
Fyrsta skoðanakönnun var um John Lennon og Paul McCartney. Spurt var hvor væri í meiri metum. Sjálfur tók ég fram að ég geri ekki upp á milli þessara manna. Þeir eru í sama uppáhaldi hjá mér: Sem frábærir lagahöfundar, söngvarar og túlkendur. Báðir mistækir en jafn miklir snillingar fyrir því þegar best hefur látið.
Það kom mér á óvart að strax í upphafi skoðanakönnunarinnar var hlutfallið þannig að 70% kusu Lennon og 30% McCartney. Þetta hlutfall hélst óbreytt fram yfir 1000 greidd atkvæði.
Í næstu könnun var spurt um hvor hljómsveitin væri merkilegri; Bítlarnir eða The Rolling Stones. Niðurstaðan breyttist ekkert frá upphafi til 455 greiddra atkvæða:
Bítlarnir 62,4%, The Rolling Stones 25,7% og 11,9% voru mér sammála um að gera ekki upp á milli þessara hljómsveita.
Í þriðju skoðanakönnuninni spurði ég hver væri besta/merkasta hljómsveit íslensku rokksögunnar. Ég forvann könnunina með því að ræða við 30 manna hóp tónlistaráhugamanna. Hjá þeim fékk ég uppástungur um líklega sigurvegara í svona könnun. Þegar til kom sat ég uppi með um 30 nöfn. Þá hófst niðurskurður í samvinnu við þessa sömu sem ég hafði rætt við. Takmarkið var að þrengja hringinn niður í eins fá nöfn og hægt væri. Að lokum stóðu uppi 8 nöfn sem ég stillti upp í formlega skoðanakönnun.
Nánast frá upphafi mynduðust þau úrslit sem urðu endanleg.
Ég miðaði við að úrslit væru klár þegar 500 atkvæði hefðu verið greidd. Þegar 547 atkvæði höfðu verið greidd urðu úrslitin þessi:
1. Trúbrot 24,8%
2. Utangarðsmenn 19,8%
3. Sigur Rós 16,9%
4. Sykurmolarnir 12,1 %
5. Gyllinæð 10,6%
6. Þeyr 8,8%
7. Ham 5,0%
8. Mínus 2,0%
Tónlist | Breytt s.d. kl. 17:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
22.5.2009 | 21:18
Misheppnuð ferð til Færeyja
Í kvöld ætlaði ég að vera í Þórshöfn í Færeyjum. Þau áform klúðruðust rækilega þrátt fyrir einbeittan vilja um annað. Undirbúningi var í fáu áfátt. Flugmiði var keyptur fyrir mörgum dögum á netinu. Eldsnemma í morgun, vel tímanlega, var mætt út á flugvöll, bókað sig inn og gengið um borð.
Fljótlega eftir að í loft var komið vaknaði grunur um að flugstjórinn væri eitthvað að tala um Akureyri. Ég hnippti í ferðafélaga, spurði hvers vegna flugstjórinn væri að röfla um Akureyri þegar við værum á leið til Þórshafnar. Mér var bent á að það væri millilent á Akureyri. Sem og var gert. Þar yfirgáfu margir flugið en nokkrir nýir farþegar bættust við.
Af því að ég vaknaði fyrir klukkan 6 í morgun dottaði ég í flugvélinni. Ég rumskaði þegar flugvélin var að lenda í Þórshöfn. Þórshöfn? Það er enginn flugvöllur í Þórshöfn. Ójú, Þórshöfn á Langanesi. Þangað var ég kominn.
Þegar betur var að gáð kom í ljós að bókað hafði verið flug til Þórshafnar á Langanesi. Ég bókaði ekki sjálfur flugið en var með útprentun og hafði ekki tekið eftir neinu. Hafði einfaldlega engan grun um að mögulegt væri að rugla saman Þórshöfn á Langanesi og Færeyjum. Flugmiðinn kostaði álíka og til Færeyja, 32 þúsund kr. (báðar leiðir). Þannig að það var ekkert grunsamlegt við þetta.
Stórslysalaust tókst að koma sér í bæinn aftur. Því miður var uppselt til Færeyja í dag. En ég er búinn að bóka flug til Færeyja í næstu viku.
Hér fyrir neðan er mynd af Þórshöfn á Langanesi. Myndirnar efst eru af Þórshöfn í Færeyjum. Íbúar Þórshafnar í Færeyjum eru 20 þúsund. Ég veit ekki hvað íbúar Þórshafnar á Langanesi eru margir. Kannski 3 eða 4 hundruð.
Ferðalög | Breytt 12.6.2009 kl. 00:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (57)
21.5.2009 | 14:25
Dýramyndir
Dýr geta verið yndislega krúttleg og / eða glæsileg og tignarleg. Hér eru nokkur bráðskemmtileg sýnishorn.
Spaugilegt | Breytt 12.6.2009 kl. 00:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
19.5.2009 | 23:36
Hvað er í gangi? Furðulegar ljósmyndir
Þessar ljósmyndir fékk ég sendar. Og hló. Ég vona að þær skemmti ykkur jafn vel. Ég veit ekki hvað er í gangi. Hef grun um að einhverjar af þessum ljósmyndum eigi að vera fyndin og / eða frumleg listaverk. Einhverjar eru hugsanlega úr auglýsingum og hafa þá haft það hlutverk að fanga athygli áhorfandans.
17.5.2009 | 02:10
10 ástæður fyrir því að hundar bíta fólk
Það er þekkt að hundaeigendur velja sér hund sem líkist eigandanum í andliti. Sama má ætla með klæðaburð. Verra er þegar hundar eru klæddir upp þannig að hlegið er að þeim. Það er ljótt. En hver hefur sinn hátt á eins og innræti segir til um. Takið eftir hvað flestir hundanna eru daprir á svip. Hundar eru nefnilega mjög spéhræddir. Þeir vilja líta vel út og líður illa þegar þeir vita að verið er að hlæja að sér.
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 13:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
15.5.2009 | 12:00
Harkalega tekist á
Ég skrapp á bókasafn í gær. Það er svo gaman að glugga í héraðsfréttablöðin. Einkum Feyki frá Sauðárkróki. Á næsta borði hægra megin við mig sat miðaldra maður og las Fréttablaðið. Skyndilega gengur að honum aldraður maður og spyr kurteislega: "Verður þú lengi enn að lesa Fréttablaðið?"
Sá miðaldra sagðist ekki vita það. Það færi eftir því hvort eitthvað áhugavert sé á blaðsíðunum sem hann eigi eftir að fletta. Þá snöggfauk í þann gamla og hann hreytti út úr sér: "Þú ert búinn að einoka blaðið í meira en 20 mínútur. Þú ert ekki Palli einn í heiminum þó þu haldir það!"
Miðaldra maðurinn afsakaði sig með því að hann vissi ekki til að neinar reglur gildi um þetta. Sjálfur telji hann eðlilegast að fólk taki sér þann tíma sem þarf til að lesa hvað sem í boði er á bókasöfnum.
Við þetta æstist sá gamli upp. Hann sagði yngri manninn vera ósvífinn frekjuhund, óhæfan í mannlegum samskiptum og óuppalinn drullusokk. Lokaorð gamla mannsins voru þau að hann kæmi aldrei aftur í þetta bókasafn og það væri ófyrirleitni hins að kenna. Svo strunsaði hann hraðgengur út úr húsinu.
Ég blandaði mér ekki í deiluna. En glotti við fót í laumi um leið og ég gjóaði augum á næsta borð mér á vinstri hönd. Þar lá annað eintak af Fréttablaðinu og enginn var að lesa það.
Fjölmiðlar | Breytt s.d. kl. 23:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
14.5.2009 | 00:02
Ég sló met
Þetta var nú meira ævintýrið. Það byrjaði sakleysislega og án fyrirheita um ævintýri. Ég átti erindi til Landflutninga. Þegar erindið var afgreitt langaði mig í Malt. Þá var stefna sett á Bónus við Skútuvog. Eitthvað var ég annars hugar því ég var óvænt kominn í Húsasmiðjuna beint á móti Bónusi.
Frekar en fara þangað erindisleysu keypti ég múrtappa. Lítinn og sætan gulan tappa. Þegar ég kom að afgreiðslukössum ruku afgreiðsludömurnar upp á milli handa og fóta. Aðallega handa - í þetta sinn. Það vantaði strikamerkingu. Eftir jaml, japl og fuður fékkst niðurstaða í að múrtappinn kostaði 3 krónur. Afgreiðsludömurnar voru sammála um að hafa aldrei áður afgreitt jafn lága upphæð. Þær buðu mér plastpoka á 15 krónur. Ég afþakkaði gott boð og stakk múrtappanum í vasann.
Ég hringdi þegar í stað í höfuðstöðvar Hreimsmetabókar Guinness á Írlandi. Þar mætti ég ekki skilningi á málinu. Mér var tjáð að hlutverk bókarinnar væri eftirfarandi: Að allt í kringum hnöttinn (all around the world) sé fólk á bjórkrám að þrefa um hvað sé stærst, sterkast, hraðskreiðast og svo framvegis. Bókin svari þeim spurningum. Enginn vilji vita hver borgaði lægsta verð í Húsasmiðjunni við Skútuvog.
Ég hótaði að bið verði á að ég láti vita af næsta meti. Til að skerpa á sagðist ég efast um að bjórkrár séu allt í kringum hnöttinn.
Nú þarf ég að finna út hvað ég get gert við múrtappann.
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 22:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (34)
13.5.2009 | 19:46
Hann á afmæli á morgun
Það er skammt stórra högga á milli. Trommusnillingurinn Viðar Júlí Ingólfsson á Reyðarfirði átti afmæli í gær. Til hamingju með það, öllsömul! Á morgun er það forsetinn sem á afmæli. Það er gott að vita fyrir þá sem eiga eftir að pósta til hans afmælispakka.
Hvað gefur Dorrit kauða á morgun? Ég grísa á að hún byrji morguninn á að gefa honum selbita og síðan læknagrímu fyrir vitin svo hann fái ekki svínaflensu. Í sama pakka verður Immiflex af sömu ástæðu. Það svínvirkar. Sem aukagjöf fær kallinn kvikmyndina ömurlegu "Grease" á DVD,
Síðdegis bakar Dorrit skúffuköku handa forsetanum og skreytir hana með Smarties. Enginn veit hvað forsetinn er gamall. Þess vegna verður bara eitt risastórt útikerti ofan á kökunni. Hvers óskar forsetinn sér þegar hann blæs á kertið? Mig grunar að hann óski þess að fá grísasamloku í kvöldmat.
Vinir og fjölskylda | Breytt 14.5.2009 kl. 19:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
9.5.2009 | 01:26
Góður banki
Ég er ekki vanur að lofsyngja banka. Nema kannski gríska sæðisbankann fyrir að hafa verið með lógó (firmamerki) gamla Íslandsbankans löngu á undan Íslandsbanka. Í dag fór ég í útibú Íslandsbanka við Kirkjusand til að borga vel hrærða reikningasúpu. Að því loknu tók ég eftir að einn reikningurinn virtist vera ógreiddur þó af honum hafi verið tekið eintak bankans.
Ég snéri mér aftur til gjaldkera. Lenti reyndar á öðrum en þeim sem hafði afgreitt mig. Gjaldkerinn, ljúf kona, kannaði málið. Hún komst fljótlega að sömu niðurstöðu og ég. Og varð alveg miður sin. Svo niðurbrotin að ef gler hefði ekki skilið okkur að hefði ég faðmað hana, klappað og hughreyst. Ég benti henni á að enginn hefði slasast. Allir væru við góða heilsu nema fólk í útlöndum með svínaflensu.
Konan var óhuggandi þangað til hún sagðist hafa tekið eftir að ég væri aldrei með seðlaveski. Hún bauð mér að þiggja af bankanum glæsilegt seðlaveski sem afsökun fyrir mistökunum. Mér var ljúft að samþykkja það.
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 01:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (34)
7.5.2009 | 23:13
Dúndur flott kvikmynd
Ég hef verið með horn í síðu Skjábíós síðan vesalingar þar á bæ hófu auglýsingaherferð sem afhjúpaði ótrúlega aulaleg viðhorf til sjónvarpsefnis. Þið kannist við þessar auglýsingar. Þær hefjast á því að þulur kynnir sjónvarpsdagskrá kvöldsins. Áður en hann hefur lokið máli sínu er skrúfað fyrir hann og annar þulur boðar að enginn þurfi að horfa á leiðinlegt sjónvarpsefni því hægt sé að finna eitthvað skemmtilegt í skjábíó.
Það hafa verið nokkrar útgáfur af þessari auglýsingu. Allar eiga það sameiginlegt að sjónvarpsdagskráin sem þulurinn byrjar að lesa hljómar verulega áhugaverð. Í fljótu bragði man ég eftir að kynnt er leikin grænlensk kvikmynd, ísraelsk gamanmynd og norskur heimildarþáttur um dreng í Afríku sem þarf að fara um langan veg til að sækja vatn.
Eftir að hafa heyrt flestar auglýsingarnar í þessari syrpu frá Skjábíói er ljóst að höfundur auglýsingaherferðarinnar hefur heimóttalega fordóma gagnvart sjónvarpsefni frá löndum sem við erum ekki vön að sjá kvikmyndir eða sjónvarpsefni frá. Hann er með öðrum orðum heimskur í upprunalegri merkingu þess orðs.
Nú hef ég ekki heyrt aulaauglýsinguna í langan tíma. Þess vegna kíkti ég á Skjábíó. Þar er fátt um fína drætti, að venju. En þeim mun meira af drasli. Samt fann ég áhugaverða heimildarmynd um tónlistarmanninn Joe Strummer. Leikstjóri hennar er Julien Temple sem áður hefur gert vel heppnaða heimildarmynd um bresku pönksveitina The Sex Pistols.
Joe Strummer var söngvari og gítarleikari bresku pönksveitarinnar The Clash. Þessar tvær hljómsveitir, The Sex Pistols og The Clash leiddu bresku pönkbyltinguna á síðari hluta áttunda áratugarins. Mikið gekk á hjá báðum hljómsveitunum og þær störfuðu náið saman. The Sex Pistols starfaði stutt og sendi aðeins frá sér eina alvöru plötu en The Clash varð ofurgrúppa á heimsmælikvarða. Þar munaði mestu að hún sló rækilega í gegn í Bandaríkjunum.
Myndin nær að fanga togstreituna sem það olli Joe Strummer að verða súperstjarna og hljómsveit hans að mörgu leyti það sem pönkhugsjón hans var uppreisn gegn. Blessað dópið setti einnig sitt mark á hljómsveitina.
Þetta er löng mynd. Sléttar tvær klukkustundir (og vel það með pissuhléi og kaupum á poppkorni). Hún dregur upp sanna mynd af breiskleika Joes og ótal mótsögnum í hans persónu. En samt rímar þetta allt einhvern veginn saman þegar upp er staðið. Maður öðlast skilning á þessari að mörgu leyti ringluðu persónu, sem sagði eitt í dag og annað á morgun. En var engu að síður trúverðug í einlægni og opinskáum yfirlýsingum. Mér datt stundum Bubbi Morthens í hug þegar ég horfði á myndina. Einnig vegna þess að músíksmekkur þeirra lá saman: Bandarísk þjóðlagamúsík (Woody Guthrie), bandarískur blús, jamaískt reggí, heimspopp (World Music) og pönk.
Myndin heitir einfaldlega Joe Strummer. Ég ætla að fleiri en aðdáendur pönks og The Clash hafi góða skemmtun af að kíkja á myndina.
Joe Strummer féll frá, rétt um fimmtugt. Myndbandið hér að ofan er gert eftir fráfall hans. Þarna flytur hann Bob Marley slagarann Redemption Song.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 23:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
7.5.2009 | 21:11
Kíkið á plötudóm
Í síðustu viku gaf íslenska plötufyrirtækið Kimi Records út, fyrir íslenskan markað, plötuna Haré! Haré! með Högna Lisberg. Haré! Haré! er þriðja sólóplata Högna. Högni er að vanda höfundur söngvanna, spilar á öll hljóðfæri og syngur. Fyrir sólóferilinn var Högni trommuleikari færeysku súpergrúppunnar Clickhaze, þar sem Eivör var fremst meðal jafningja.
Magnús Geir Guðmundsson hefur skrifað ítarlegan plötudóm um Haré! Haré!. Ég hvet ykkur til að lesa hann: http://www.meistarinn.blog.is/blog/meistarinn/entry/870303/#comment2393963
Platan með Clickhaze og fyrri sólóplötur Högna fást í verslunum Pier í glerturninum við Smáratorg og Korputorgi. Eflaust fást þær víðar.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 21:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)