7.5.2009 | 15:09
Merkileg saga
Þessa skemmtilegu sögu fékk ég senda. Ég veit ekki hvort hún er sönn eða lygasaga. Hvort heldur sem er þá er eitthvað kunnuglegt við hana. Ekki fylgir sögunni hver er höfundur.
Ester er bareigandi í Berlín. Til þess að auka veltuna ákvað hún að leyfa dyggum viðskiptavinum sem flestir eru atvinnulausir alkar að drekka út á krít.Hún skráir allt sem drukkið er í þykkan kladda. Þegar þetta þægilega fyrirkomulag spyrst út þá flykkjast nýir viðskiptavinir á barinn. Frelsi fólks til þess að njóta augnabliksins og borga seinna gefur Ester valið tækifæri til þess að hækka verðið á vinsælustu veigunum, bjór og víni
Salan eykst gífurlega. Ungur og efnilegur lánafulltrúi í hverfisbankanum gerir sér grein fyrir að þessar skuldir viðskiptavinanna eru framtíðarverðmæti. Hann hækkar því yfirdráttarheimild Esterar í bankanum. Lánafulltrúinn telur þetta vandræðalaust vegna þess að skuldir alkanna eru haldgóð veð.
Í höfuðstöðvum bankans breyta sérfræðingar í æðri peningalist þessum viðskiptaskuldum í Drykkjuskuldabréf, Alkabréfavafninga og Gubbuafleiður. Þessi verðbréf sem virt áhættumatsfyrirtæki hafa (gegn þóknun) stimplað AAA gæðastimpli ganga síðan kaupum og sölum út um allan heim. Raunverulega skilur enginn hvað nöfn bréfanna þýða eða hvernig þau eru tryggð. Samt sem áður halda þau áfram að hækka. Þau eru metsöluvara.
Einn góðan veðurdag, þrátt fyrir að bréfin séu enn á uppleið, þá ákveður áhættusérfræðingur bankans að nú sé tímabært að drykkjuhrútarnir á bar Esterar borgi eitthvað upp í skuldirnar. Þeir geta það hins vegar ekki. Ester getur því ekki staðið í skilum við sína skuldunauta og lýsir yfir gjaldþroti. Drykkju- og Alkabréf falla um 95%. Gubbubréfin gera betur og ná stöðugkeika eftir 80% fall. Nýr veruleiki blasir við hjá fyrirtækjum sem seldu barnum á lánakjörum og hafa jafnvel líka fjárfest í fyrrnefndum bréfum. Heildsalan sem seldi Ester vín er gjaldþrota og fyrirtækið sem seldi bjórinn er yfirtekið af keppinauti.
Eftir dramatísk fundahöld og andvökustundir sem standa samfleytt í marga sólarhringa þá ákveða stjórnvöld að bjarga bankanum: Nýr skattur er lagður á bindindismenn.
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 20:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
6.5.2009 | 21:02
Áhugaverð ræða Ólafs F. Magnússonar, fyrrverandi borgarstjóra
Eins og ég sagði frá á dögunum - og fréttastofur fjölmiðlanna hafa nú einnig sagt frá - hefur Ólafur F. Magnússon yfirgefið Frjálslynda flokkinn og stofnað nýtt framboð, H-listann. Ég hef komist yfir ræðu Ólafs þar sem hann gerði borgarstjórn grein fyrir ákvörðun sinni í gær. Það er hin fróðlegasta lesning og þess vegna birti ég hana hér í heild:
Forseti, góðir borgarfulltrúar.
Fyrir tíu árum, um vorið 1999, var ég í þeirri sérkennilegu stöðu, að vera borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, en gat engan veginn hugsað mér að kjósa flokkinn í Alþingiskosningum þá um vorið. Árið áður hafði ég verið í framboði fyrir flokkinn til borgarstjórnar og kosið hann í síðasta sinn á lífsleiðinni. Því mér hafði smám saman orðið ljóst, og alveg hvellljóst um vorið 1999, að Sjálfstæðisflokkurinn stóð ekki lengur fyrir þeim gildum, sem alla tíð hafa mótað lífsskoðun mína. Gildum umhyggju og réttlætis og baráttunnar fyrir velferð og öryggi þegnanna ásamt óskoruðu eignarhaldi almennings yfir auðlindum til lands og sjávar og rétti ófæddra kynslóða til að erfa landið okkar fagra með einstöku náttúrufari sínu.
Sjálfstæðisflokkurinn var þá þegar farinn að starfa þvert á þessi gildi með gegndarlausri græðgis- og einkavinavæðingu, spillingu, valdníðslu og niðurgreiddum náttúruspjöllum. Pólitík sem gat með góðu móti kallast öfug Hróa hattar pólitík með rányrkju á auðlindum og eigum almennings, umhverfissóðaskap og stalíniskri stóriðjustefnu.
Þegar ég gerðist frumstofnandi og ábyrgðarmaður grasrótarhreyfingarinnar Umhverfisvinir um haustið 1999, vissi ég að dagar mínir í Sjálfstæðisflokknum væru taldir. Það var hins vegar sannarlega þess virði að fórna stjórnmálaferli sínum fyrir jafn góðan málstað og þann að bjarga náttúruperlu á borð við Eyjabakka og forða því að þeim væri sökkt fyrir minna en engan efnahagslegan ávinning. En í þeirri baráttu kynntist ég rækilega því valdi óttans sem þáverandi forysta og ráðandi öfl innan Sjálfstæðsisflokksins beittu gegn öllum þeim, sem voguðu sér að efast um ágæti þeirrar ósjálfbæru og óhagkvæmu ofurvirkjanastefnu, sem hefur tröllriðið náttúru landsins og efnahag þjóðarinnar.
Það var því vonum seinna, að ég sagði mig úr Sjálfstæðisflokknum, hér í pontu borgarstjórnarsalarins, í upphafi borgarstjórnarfundar hinn 20. desember árið 2001, klukkustundu áður en þáverandi umhverfisráðherra felldi úr gildi úrskurð Skipulagsstofnunar um að ekki skyldi ráðist í Kárahnjúkavirkjun, vegna umtalsverðra og óafturkræfra umhverfisáhrifa hennar. Með úrsögn minni úr Sjálfstæðisflokknum var auðvitað og ekki í fyrsta sinn talið fullvíst að pólitískum ferli mínum væri lokið. Rétt eins og allt benti til þegar talningu var að ljúka í borgarstjórnarkosnungunum vorið 2002, þegar ég náði óvænt kjöri sem óháður borgarfulltrúi í samstarfi við Frjálslynda flokkinn. Samstarfi sem nú er komið að leiðarlokum vegna þess einstaka getuleysis , sem núverandi forysta Frjálslynda flokksins hefur sýnt, í einu og öllu, nema að hrekja á brott alla þá sem vilja vinna meintum málstað flokksins gagn. Málstað sem ég hélt að snerist um að vernda auðlindir almennings til sjávar og sveita fyrir þeirri gegndarlausu græðgisvæðingu og auðlindasóun, sem höfuðspillingaröfl íslenskra stjórnmála, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur, hafa stundað tiltölulega óáreittir um árabil og hafa alla aðstöðu til að stunda áfram um nokkurt skeið á vettvangi borgarstjórnar Reykjavíkur.
Senn fer þó að fjara undan helmingaskiptameirihlutanum í Reykjavík, þegar tillögur mínar í borgarstjórn frá síðasta ári, um að fjárframlög til frambjóðenda í prófkjörum verði gerð opinber ná fram að ganga. Allir vita að þá kemur fiskur undan steini. Og athygli vekur að einungis fulltrúar vinstri grænna hafa staðið vaktina við hlið mér gegn spillingunni í borgarstjórn Reykjavíkur. Rétt eins og fulltrúar vinstri grænna stóðu einir vaktina í umhverfis-, orku- og auðlindamálum fyrir síðustu Alþingiskosningar, sem og árið 1999, en bæði þá og í vor átti ég ekkert annað val, sem einlægur talsmaður sjálfbærrar umhverfis- og auðlindastefnu en að kjósa einmitt vinstri græna.
Í Alþingiskosningunum í vor gat ég ekki stutt,eins og ég hefði viljað, allt það ágæta fólk, sem hefur haft hugsjónir Frjálslynda flokksins um að vernda auðlindir í eigu almennings gagnvart eignaupptöku í þágu sérhyggju- og græðgisvæðingar. Því er um að kenna að forysta flokksins boðaði gegndarlitla ofveiði- og ofurvirkjanastefnu, stefnu þar sem auðlindin er hvorki vernduð né nýtt með sjálfbærum hætti og ekkert hugsað um næstu kynslóð á Íslandi. Það samrýmist ekki upphaflegum hugsjónum flokksins, að halda áfram að láta almenning greiða niður orkusölu til erlendra álbræðslurisa, á sama tíma og okrað er á innlendum orkukaupendum. Það samræmist ekki heldur hugsjónum flokksins að fórna náttúruperlum fyrir minna en ekki neitt og nýta aðeins brot af hitaorkunni úr iðrum jarðar við raforkuframleiðsluna. Ég ítreka að ég ber góðan hug til þeirra frambjóðenda og stuðningsmanna Frjálslynda flokksins, sem reyndu að þreyja þorrann fram til hins síðasta, þrátt fyrir slaka frammistöðu formannsins, fyrrverandi þingflokksformannsins og framkvæmdastjórans, sem hafa sett flokkinn málefnalega og fjárhagslega á höfuðið. Þessir þremenningar hafa sýnt dugleysi og óráðsíu og seint verða þeir vændir um hreinlyndi eða að tala vel um félaga sína.
Á borgarstjórnarvaktinni hef ég oftast staðið einn vörð um verndun umhverfisins og náttúru- og menningarminja, auk þeirrar þungu áherslu sem ég legg á velferðar og öryggismál, enda mótaður af bakgrunni mínum sem heilbrigðisstarfsmaður. Ég vænti engu að síður sívaxandi stuðnings við og samstarfs um mín sjónarmið af hálfu borgarfulltrúa og varaborgarfulltrúa vinstri grænna, sérstaklega gagnvart spillingarmálunum, enda er það einbeittur vilji minn að vinna gegn þeirri rótgrónu spillingu, sem tíðkast hefur hjá helstu valdaflokkum íslenskra stjórnmála, Framsóknarflokki og Sjálfstæðisflokki, sem illu heilli sitja enn að kjötkötlum borgarinnar og nýta það óspart í fyrirgreiðslum, launagreiðslum, ferða- og dagpeningagreiðslum og veislugjörðum sjálfum sér til dýrðar en á kostnað borgarbúa.
Góðir borgarfulltrúar og góðir Reykvíkingar.
Um leið og ég segi öllu samstarfi borgarstjórnarflokks F-listans við Frjálslynda flokkinn slitið, boða ég nýtt framboð óháðra, sem ég hyggst leiða í næstu borgarstjórnarkosnungum, að líkindum undir merkjum H-lista og með einkunnarorðunum: Hreinskilni, hæfni, heiðarleiki, þó að einkunnarorðin góðu frá 2002 Umhyggja, hreinskilni, réttlæti, séu enn í fullu gildi. Á allt þetta skortir hjá núverandi meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur. Það er brýn þörf á því að venjulegt fólk með eðlileg tengsl við atvinnulíf og mannlíf í borginni láti ekki útsendara á vegum óprúttinna fjárplógsmanna, hagsmunaafla og stjórnmálaflokka hrekja sig frá því að starfa að borgarmálum. Það hefur svo sannarlega verið reynt gagnvart mér en ekki tekist. Með því vil ég sýna öðrum borgarbúum gott fordæmi um leið og ég hvet allan almenning til virkrar þáttöku í borgarlífinu og að gefa duglausum atvinnvinnustjórnmálamönnum reisupassann. Af langri reynslu þekki ég vel þá ríku tilhneigingu atvinnustjórnmálamanna að hugsa fyrst og fremst um eigin velferð og vera ávallt tilbúnir að sveigja frá hugsjónum sínum og fyrirheitum. Ég mun hins vegar sem óháður borgarfulltrúi berjast fyrir velferð og öryggi allra borgarbúa, enda aðeins skuldbundinn af orðum mínum og sannfæringu.
5.5.2009 | 23:39
Það er auðvelt að grennast
Þessi gutti slapp í pönnukökur þegar enginn sá til. Hann tók ekki eftir því að við hverjar 100 pönnukökur sem hann sporðrenndi á einu bretti bætti hann aðeins á sig í þyngd. Það var ekki fyrr en hann hitti bróðir sinn fyrir tilviljun að þeir bræður tóku báðir eftir því að þeir litu ekki lengur út eins og tvíburar. Þeir urðu hissa.
Það var þá sem guttinn ákvað að borða frekar hefðbundinn heimilismat en 100 pönnukökur í hvert mál. Það var eins og við manninn mælt. Mörinn rann af kauða og hann varð grannur og spengilegur.
Húðin virtist ekki taka þátt í breytingunni. Það var ekkert mál. Hún var bara klippt burt með einfaldri skurðaðgerð og kauði saumaður saman eins og sláturkeppur. Hann notaði tækifærið og lét klippa á sér hárið í leiðinni - fyrst skærin voru á lofti hvort sem var.
Núna eru þeir bræður aftur eins og tvíburar.
Enginn þekkir þá í sundur. Þeir aðgreina sig með því vera ekki í eins skyrtum.
Svona er auðvelt að kippa hlutunum í lag.
Matur og drykkur | Breytt 6.5.2009 kl. 21:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
3.5.2009 | 22:41
Hverjir eru bestu trommuleikarar rokksögunnar?
Breska músíktímaritið New Musical Express efndi á dögunum til skoðanakönnunar um bestu trommuleikara rokksögunnar. Úrslit liggja fyrir. Þau koma mér verulega á óvart. Ég er ekki sáttur við hverjir hreiðra um sig í allra efstu sætunum. Reyndar verð ég að játa að hafa ekki hlustað mikið eða náið á trommuleikinn hjá The Killers og Green Day. Lög sem ég hef heyrt með þeim í útvarpi hafa ekki dregið eyru mín sérstaklega að trommuleik þeirra.
Af þeim trommuleikurum sem ég hef lagt mig eftir að hlusta á tel ég John Bonham vera þann besta í rokksögunni. Listinn hjá NME var fundinn út þannig að lesendur gáfu helstu rokktrommuleikurum heims einkunn á bilinu 1 til 10. Klárlega er hátt hlutfall lesenda blaðsins ungir að árum og þekkja lítið til trommusnillinga fyrri ára. Þess meiri áhuga hafa þeir á vinsælustu rokkhljómsveitunum í dag.
Gaman væri að heyra viðhorf þín til listans. Svona er hann (fyrir aftan er meðaleinkunn viðkomandi):
Tónlist | Breytt s.d. kl. 23:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (125)
3.5.2009 | 17:47
Auglýsingar
Það er ekki gott að átta sig á því hvort um meðvitaða gamansemi er að ræða í þessum auglýsingum eða hvort auglýsendurnir eru furðufuglar. Það er nóg til af þeim. Hvorutveggja kemur til greina. Og hvort sem er þá dregur það ekki úr skemmtanagildi auglýsinganna.
Í auglýsingunni hér fyrir ofan segir: "Óska eftir einhverjum til að ferðast aftur í tímann með mér. Þetta er ekki grín. Þú færð greitt fyrir þegar við erum komnir til baka. Þú verður að koma með þín eigin vopn. Öryggi er ekki gulltryggt. Ég hef aðeins framkvæmt þetta einu sinni áður."
"Við leitum að tölvufræðingi sem getur leyst erfið vandamál. Hringdu strax í þetta símanúmer:"
"Ég á viagra en vantar konu. Hvaða konu sem er á aldrinum 18 - 80."
Hér eru leiðbeiningar um hvernig þvo á flíkina í þvottavél og strauja. Lýsingunni líkur á þessum orðum:
"Eða láttu konuna þína um þetta. Þetta er hvort sem er hennar hlutverk."
Spaugilegt | Breytt 12.6.2009 kl. 00:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
2.5.2009 | 04:14
Brosleg hlið á bisness
![]() |
Hlutafé FL var fært niður og nafni breytt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Spaugilegt | Breytt 3.5.2009 kl. 03:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
30.4.2009 | 16:55
Tvífarar dagsins - bráðfyndið dæmi
Þetta fékk ég sent og sprakk úr hlátri. Mér er ljúft að deila þessu með ykkur. Þau eru glettilega lík þessi tvö þegar vel er að gáð: Sama hár, sömu augabrýr, sama haka, sömu kinnar, líkt nef og svo framvegis. Fyrir þau ykkar sem vita ekki hver hún er, konan á myndinni til hægri, þá varð hún heimsfræg á dögunum er hún keppti í breskum sjónvarpsþætti. Ég er ekki klár á hvaða þáttur þetta var eða hvort keppt var í söng eða almennum hæfileikum.
Konan þótti svo ljót að áhorfendur og dómarar hlógu er hún birtist á sviði. Jafnframt sagðist konan vera jómfrú og hafa aldrei verið svo mikið sem kysst af karlmanni. Síðan söng hún og heillaði dómara og áhorfendur. Ég hef ekki heyrt söng hennar en hef heyrt tvennar sögur af honum.
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 21:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (60)
28.4.2009 | 00:43
Partý aldarinnar
Fyrir nokkrum árum ákvað kunningi minn að halda upp á þrítugsafmæli sitt með stæl. Hann var nýskilinn við kellu sína. En blankur. Hann sló bankalán fyrir því sem kallað var "partý aldarinnar". Enda var hann í leiðinni að halda upp á skilnaðinn. Þar fyrir utan var þetta einnig innflutningspartý vegna íbúðar sem hann hafði tekið á leigu.
Ekkert var til sparað þó ekki væri gengið jafn langt og hjá íslenskum auðmönnum sem buðu upp á Elton John eða Duran Duran. Blessunarlega ekki.
Kunninginn keypti bílhlass af bjór og kampavíni. Hann skreytti íbúðina ótal uppblásnum blöðrum, utan sem innan, og allskonar partýglingri. Keypti helling af furðulegum pappírshöttum, ýlum og dóti sem er áberandi á gamlárskvöldi.
Hann fékk vin sinn til að spila á hljómborð (skemmtara) inn á geisladisk undirleik við helstu rútubílasöngva. Hann lét fjölrita texta þessara sömu slagara: Fatlafól, Stál og hnífur, Undir bláhimni og svo framvegis. Það átti að syngja vinsælustu slagarana fram undir morgun.
Allur eftirmiðdagur fór í að smyrja snittur og smábrauð. Jafnframt voru skálar fylltar kartöfluflögum og raðað innan um ídýfur af ýmsu tagi.
Um klukkan 23:00 kíkti ég við. Enginn var mættur í partý aldarinnar. Ég stoppaði stutt við og hélt síðan á hverfispöbbinn. Kunninginn gaf mér fyrirmæli: "Ekki vera of lengi. Partý aldarinnar hefst upp úr miðnætti. Þú mátt ekki missa af fjörinu."
Ég ílengdist á pöbbnum. Skilaði mér í partý aldarinnar um klukkan 2. Þá var allt með sama sniði og klukkan 23:00. Enginn hafði mætt. Ekki ein einasta manneskja. Ef undan er skilin ein fullorðin útlend kona sem kunninginn hafði rekist á í stigaganginum. Hann náði að hella í hana einu bjórglasi. En þau gátu ekki spjallað saman. Konan talar hvorki ensku né íslensku. Bara pólsku.
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 13:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (28)
26.4.2009 | 22:04
Frábær furðuhljómsveit á leið til landsins
Hljómsveitin Orka hljómar eins og hljómsveit með hefðbundin hljóðfæri. Eins og sést hér á myndbandinu nota liðsmenn Orku samt ekki venjuleg hljóðfæri. Þess í stað blása þeir ofan í glerflöskur, plokka strekktan snærisspotta, banka á trésög og ýmsa brúsa, tunnur og fleira.
Orka er færeysk hljómsveit, hugarfóstur Jens L. Thompsen bassaleikara Clickhaze, gömlu trip-hopp hljómsveitar Eivarar. Það er frábærlega gaman á hljómleikum Orku. Það er til dæmis gaman að loka augum um stund og hlusta á þessa rammfæreysku músík eins og hún sé spiluð á hefðbundin hljóðfæri. Glenna svo skyndilega upp augun og sjá hvernig þessir galdramenn fara að því að framkalla tónlistina með því að spila á heimilistæki, verkfæri og allt annað en venjuleg hljóðfæri.
Orka býður upp á hljómleika í tilefni færeyska fánadagsins, 30. apríl (miðvikudag) klukkan 21:00 í Norræna húsinu. Álfadrottningin Eivör kemur einnig fram. Ég lofa frábærri upplifun.
Plata Orku fæst í verslunum Pier í glerturninum við Smáratorg og Korputorg.
Tónlist | Breytt 28.4.2009 kl. 13:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
25.4.2009 | 02:26
Smásaga um hund
Einu sinni var fjárhundur á sveitabæ. Hann hét Geir Finnur Þór. Enginn vissi af því. Þess vegna var hann kallaður Snati. Einn góðan veðurdag síðsumars fékk hann að fara í göngur með húsbónda sínum. Húsbóndinn reið með björgunum fram og Snati elti. Snata þótti ósanngjarnt að þurfa að hlaupa alla þessa leið á meðan húsbóndinn sat óþreyttur á hestbaki. Snati sagði ekki neitt. En hugsaði þeim mun meira. Eftir að hafa velt málinu fyrir sér á hlaupum inn dalinn komst Snati að þeirri niðurstöðu að húsbóndinn væri ójafnaðarmaður.
Innst í dalnum hafði safnast saman hópur fólks á hestum og hundar. Snati kom þar auga á fallegustu tík sem hann hafði augum litið. Snati vonaðist til að þau yrðu samferða í fjársmöluninni. Honum varð ekki að ósk sinni. En þau hittust aftur þegar komið var með féð í réttirnar. Snati vissi ekki hvernig hann átti að stofna til samskipta við tíkina. Í ráðaleysi sínu réðist hann á hana með kjafti og klóm. Hún varði sig af hörku. Þá kom eigandi hennar og sparkaði fantalega í Snata og lamdi hann með píski. Snata þótti það svínslegt. Leikurinn var orðinn ójafn. Tvö á móti einum. Snati rölti ýlfrandi heim á leið. Það var hundur í honum.
Bækur | Breytt 16.9.2009 kl. 12:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
21.4.2009 | 22:38
Fyndnar og snjallar hannanir
Sem áhugamaður um hönnun og framþróun á því sviði hef ég leitað uppi snilldar hannanir sem auðvelda heimilisfólki jafnt sem starfsfólki veitingastaða að afgreiða mat og drykk á einfaldari og fljótlegri hátt en áður. Hér fyrir ofan sést hvernig tvöfalda má afköst þess sem hellir svalandi drykk í glös fyrir marga.
Hér eru teketill og brauðrist sameinuð í eitt. Upplagt fyrir plásslítið og nett eldhús. Annar kostur er sá að um leið og brauðið ristast þá skerpist hitinn á vatninu.
Sumir þjónar eru alltaf að missa bakkann í gólfið fullan af góðgæti. Einkum vill þetta gerast þegar þeir eru með smjörlíki á puttunum. Með þennan bakka á hönd eru litlar líkur á að missa góðgætið í gólfið. Þó getur það gerst þegar þjónar stíga á smjörlíki á gólfinu og missa fótanna.
Þegar gest ber að garði er mikið hagræði af því að leggja fyrir hann svona kaffibolla. Það sparar uppvask á stórum smákökudisk á miðju borði og litlum kökudisk við hlið bollans. Til viðbótar skammtar þessi bolli gestinum aðeins 3 smákökur. Það er sparnaður ef gesturinn er gráðugur og kann sig ekki. Hver kannast ekki við gest sem hakkar í sig heilan kexpakka ef honum er gefinn laus taumur?
Fátt er sárara en vera með glas fullt af ísköldum bjór eða ísköldu brennivíni og horfa á eftir glasinu renna úr greipum sér vegna rakans sem myndast utan á glasinu. Þá kemur svona glas að góðum notum. Maður kemur hendinni vandlega fyrir í mótið og rígheldur síðan af öllum kröftum utan um glasið. Sama hvað gengur á.
Á öllum veitingastöðum þekkist óhagræðið af því þegar starfsmenn eru með nefrennsli. Þeir eru síhlaupandi inn á klósett til að snýta sér. Með því að spenna klósettrúllustatíf á höfuð er hægt að halda starfsmanninum við eldavélina alla vaktina. Sumir kokkar - sem ekki hafa yfir svona klósettrúllustatífi að ráða - taka ekki í mál að leyfa starfsfólki sínu að bregða sér frá til að hreinsa nefið. Kokkarnir standa yfir þeim með svipuna og leyfa þeim ekki að hreyfa sig frá eldavélinni. Eldhússtrákurinn hér fyrir neðan lenti í þannig aðstæðum. Hann varð að hræra í sósunni sama hvað það kostaði. Annars hefði sósan hlaupið í kekki. Stráksi var einnig með kuldahroll og vettlinga á höndum og ullarsokk á fótum. Að vísu götótta. Sem kom þó ekki að sök. Annað gatið var fyrir ofan hæl. Það klóraði hann sjálfur á sokkinn í taugaóstyrk er hann tók strætó og þekkti engan í vagninum. Hitt gatið var undir miðri il. Það kom til þegar hann festist í lausum nagla á þröskuldi í herbergisdyrum sínum. Þá komst styggð að honum. Í hamagangnum kom gat á sokkinn. Góðu fréttirnar eru þær að naglinn er óskemmdur. Pabbi stráksa geymir naglann í brjóstvasanum til minningar um atburðinn. Kallinn sýnir stundum nákomnum ættingjum naglann í fermingarveislum og öðrum mannfagnaði þegar atburðinn ber á góma. Það veldur kátínu og léttir stemmningu.
Spaugilegt | Breytt 22.4.2009 kl. 04:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
21.4.2009 | 01:21
Gullkorn Hannesar Hólmsteins
Við þessi gullkorn er engu að bæta. Þau standa fyrir sínu. Það verður trauðlað sagt að málflutningur sé tekinn úr samhengi. Allir vita hvað fjrálshyggjutrúboð Hannesar gengur út á. Hallelúja! Þetta er einfaldlega gott innlegg í umræðuna og má ekki liggja ónýtt hjá garði. Sjálfur hefur ríkisstarfsmaðurinn Hannes hælt sér í erlendum fjölmiðlum af því að hafa hannað módelið er leiddi til fjrálshyggjuhrunsins sem við nú öll súpum seyði af.
Hér er óklippt trúboðsræða: http://jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/855499/
Pepsi-deildin | Breytt s.d. kl. 20:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
20.4.2009 | 01:32
Takið þátt í formlegri skoðanakönnun um bestu íslensku smáskífuna
Núna stendur yfir leit að 100 bestu íslensku plötunum. Að þeirri leit standa tonlist.is, rás 2 og Félag hljómplötuútgefenda. Þetta er frábært og skemmtilegt uppátæki. Áður hefur verið leitað eftir niðurstöðu um bestu íslensku plöturnar í tvígang. Fyrst í Poppbókinni 1983 (sem ég tók saman) og síðar í bók Dr. Gunnars, Eru ekki allir í stuði? 2001. Þrátt fyrir 18 ára mun varð útkoman glettilega samhljóða.
Í umræðu um leitina að 100 bestu plötunum kom upp gagnrýni á að smáskífur væru afskiptar. Fyrr á árum sendu margar af merkilegustu hljómsveitum landsins einungis frá sér smáskífur. Þeirra vægi í sögu íslenskrar dægurlagamúsíkur eru fyrir borð bornar í leit að bestu íslensku plötunum.
Doddý skoraði á mig að rétta hlut þeirra. Ég óskaði eftir tillögum um bestu íslensku smáskífurnar. Svörun varð vonum framar. Eftir að hafa stillt dæminu upp voru á annað hundrað smáskífur tilnefndar. Ég bað um stuðning við tilnefndar smáskífur og þær sem fengu flest atkvæði hef ég nú stillt upp í formlega skoðanakönnun hér til vinstri bloggsíðunni. Ég ætla að 1000 atkvæði skeri úr um endanlega niðurstöðu. Sjálfur hef ég haldið mér til hlés og ekki látið mín persónulegu viðhorf til þessara smáskífa hafa nein áhrif á úrtakið. Mig langar meira til að fá marktæka niðurstöðu.
Forsendurnar eru þær að smáskífurnar standi sem sjálfstæð útgáfa. Séu ekki hluti af stórri plötu flytjandans. Séu ekki krákur (útlend cover lög). Lög af safnplötu með ýmsum flytjendum voru gjaldgeng en það reyndi ekki á þannig dæmi.
Það væri rosalega gaman að heyra rök ykkar fyrir hvers vegna þið greiðið viðkomandi smáskífu atkvæði.
Tónlist | Breytt 21.4.2009 kl. 22:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (57)
19.4.2009 | 23:10
Gífurleg aukning á heimilisofbeldi
Aflið, samtök gegn kynferðis- og heimilisofbeldi á Norðurlandi, birti nýlega ársskýrslu sína fyrir árið 2008. Þar kemur meðal annars fram að það var 94% aukning hjá þeim í einstaklingsviðtölum og hefur aldrei verið svona mikil aukning á milli ára.
Þar kemur fram að árið 2007 hafi viðtölin verið 147 en árið 2008 voru þau orðin 285. Af þessum 285 voru 274 viðtöl við þolendur kynferðisofbeldis. Aflskonur taka á móti símtölum allan sólarhringinn og skiptu símtölin í fyrra hundruðum, símtöl bárust frá öllu landinu. Þær voru einnig ötular við að halda fyrirlestra um forvarnir, fræðslu og kynningar og héldu þær til að mynda fyrirlestra í flestum grunn- og framhaldsskólum á Akureyri og nágrannabæjum.
Sæunn Guðmundsdóttir, annar formaður Aflsins, sagði í samtali við Landpóstinn að mjög sýnileg aukning hafi orðið á því að leitað hafi verið til Aflsins í kjölfar bankahrunsins á haustdögum. Það sé greinilegt að heimilisofbeldi hafi aukist og sé það mikið áhyggjuefni.
Öll þjónusta við þolendur kynferðis- og/eða heimilisofbeldis og aðstandendur þeirra er þeim að kostnaðarlausu.
Aflið er til húsa að Brekkugötu 34 á Akureyri í húsi Lautarinnar.
Heimasíða Aflsins er www.aflidak.is
-------------
Þessi texti er tekinn af www.landpóstur.is, fréttavef fjölmiðlafræðinema.
Heilbrigðismál | Breytt s.d. kl. 23:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
18.4.2009 | 17:38
Svo fárveikur að hann kaus Sjálfstæðisflokkinn
Í nýföllnum dómi yfir geðveikum afbrotamanni eru geðsjúkdómar hans tíundaðir af nákvæmni. Þar segir meðal annars:
"...hann hafi hætt að vinna árið 1978 og þá verið beint inn á við"... byrjað að stunda trúarbrögð og geimvísindi...fengið samband við verndara sinn og gyðjurnar tvær sem hafi þá verið að tala inn á huga hans...hafi hætt að aka bíl árið 1978, en lifað á eignum sínum næstu 10 árin en þá hafi peningarnir verið búnir. Þá hafi helgistjórnin sent hann á geðsjúkrahús, hann hafi skotið á mann en verið handleiddur til að gera það, allt gert í þeim tilgangi að koma honum á örorku...þetta hafi verið nágranni hans og...að hann hafi verið innblásinn til að drepa nágranna sinn en hann hafi verið heppinn að það hafi ekki tekist...hafa verið lagður inn á geðdeild í tengslum við þessa skottilraun og hafi fengið sprautur einu sinni í mánuði í mörg ár eftir það...sé innblásinn af guðunum og guðirnir hafi fengið hann til að gera þetta til að reyna hann sjálfan...sé undir eftirliti tveggja gyðja, Sollu og Geraldine, og hafi verið undir vernd þeirra í 20 ár. Solla sjái um hann á daginn en Geraldine á nóttunni en undanfarin 20 ár hafi hann verið í stöðugu sambandi við þessar gyðjur og ræðir um að sambandið sé huglægt...gyðjurnar yfirtaki huga hans og stjórni honum alveg. Á köflum píni þær hann og píski. Yfir þessum gyðjum sé helgistjórn jarðar sem veiti honum innblástur og stýri þessu öllu. Það séu sex guðir og sex gyðjur sem myndi helgistjórnina og aldur þeirra sé 4-8 milljarða ára...verndari hans hafi sagt honum að hætta á lyfjum og líklega hafi það verið Solla sem hafi sagt honum það...hann sé undir sérgæslu guðanna. Guðirnir hafi ákveðið að láta reyna á ákærða sérstaklega, meðal annars með því að láta hann léttast, en verndararnir hefðu komið inn og séð að hann hafi nú byrjað að borða...hafi verið látinn komast í samband við dópista og hann látið dópistann hafa peninga reglulega alla tíð síðan. Tilgangurinn væri sá að gera ákærða að öreiga eins og Krist og spámennina...í innlögn ákærða á geðdeild 1987 hafi hann fengið sjúkdómsgreininguna paranoid schizophrenia (aðsóknargeðklofi)...miklar ofsóknarhugmyndir um skipulagðar aðgerðir gagnvart misindismönnum og kenndi þá meðal annars guðunum um tvö vélhjólaslys sem höfðu orðið ári áður...aftur verið lagður inn á geðdeild 2008 og þá fengið sömu sjúkdómsgreiningu...miklar ranghugmyndir af sama toga og í fyrri innlögn...flókið fast ranghugmyndakerfi sem einkennist af trúarhugmyndum og segist fyrir nokkrum árum hafa verið innblásinn til að hengja sig en ekki gert það...hafi lesið Morgunblaðið reglulega, lesi Fréttablaðið af og til en fylgist hvorki með útvarpi né sjónvarpi. Hann hafi kosið Sjálfstæðisflokkinn alla tíð en hætt því fyrir nokkrum árum því Solla hafi verið á móti því. Hlutverk hans í lífinu sé að leysa lífsgátuna með því að opinbera líf og tilveruna. Hann sé langt kominn með að leysa þessi mál og kveðst ætla að birta grein um þetta síðar á árinu í Morgunblaðinu. Sjúkdómsgreiningin er Paranoid schizophrenia...alvarlegan geðklofasjúkdóm að stríða um áratuga skeið. Sjúkdómurinn einkennist af miklum og flóknum ranghugmyndakerfum, en þau kerfi séu að megninu til af trúarlegum toga. Hann telji sig vera undir stjórn æðra máttarvalds og eftir því sem best verði séð hafi þessi einkenni verið stöðug í að minnsta kosti 20-30 ár."
![]() |
Þarf að vinna litla sigra á hverjum degi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
18.4.2009 | 03:26
Í sviðaveislu hjá mótorhjólagengi
Í gærkvöldi var mér boðið í sviðaveislu hjá kærri vinkonu, Rannveigu Höskuldsdóttur, og til langs tíma félaga mínum í Frjálslynda flokknum. Mér skilst á henni að hún sé nú búin að yfirgefa flokkinn. Það breytir ekki því að Rannveig er jafn frábær manneskja fyrir því og hefur í engu breytt afstöðu gangvart baráttu gegn kvótakerfinu.
Þegar á reyndi kom í ljós að sviðaveisla Rannveigar var samfundur mótorhjólagengis. Það var gaman að kynnast í persónu Ingva Högnasyni, mótorhjólatöffara og stríðnispúka á blogginu. Ég biðst forláts á að hafa jafnóðum gleymt nöfnum annarra mótorhjólatöffara í sviðaveislunni. En sviðin voru eðal góð veisla með rófum. Bestu þakkir fyrir mig. Við Siggi "ginseng" vorum þeir einu í veislunni sem vitum ekkert um mótorhjól en hlustum þeim mun meira á hljómsveitina Motorhead og mótorhjólalög á borð við Born to be Wild með Steppenwolf.
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 03:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
17.4.2009 | 12:52
Meira grín!
Þessa brandara fékk ég senda. Mér þykir sjálfsagt að deila þeim með ykkur.
Ljóskan var á bekkjarmóti með skólafélögunum. Ein fyrrverandi bekkjarvinkonan snýr sér að henni og spyr frétta."Hvað áttu svo mörg börn?" spyr hún ljóskuna.
"Ég á átta syni," svarar ljóskan.
"Vá!" segir vinkonan. "Það er aldeilis. Það hlýtur að vera nóg að gera hjá þér. Hvað heita svo drengirnir?"
"Þeir heita Guðmundur," svarar ljóskan.
"Ha? Guðmundur? Varla hefur þú skýrt þá alla Guðmund?"
"Jú, jú," svarar ljóskan. "Það er svo þægilegt að þeir heiti allir sama nafni því þá er ekkert mál að kalla á þá í matinn til dæmis. Ég kalla bara Guðmundur og þá koma þeir allir hlaupandi."
"Ó," segir vinkonan hugsandi. "En hvað ef þú þarft að ná í einhvern einn af þeim?"
"Ekkert mál," segir ljóskan. "Þá kalla ég bara með föðurnafni."
Pabbi gamli ákvað að flytja á elliheimilið.
Sonurinn var í heimsókn til athuga hvernig honum liði.
"Þetta er hreinn unaður," sagði sá gamli. "Maturinn fyrsta flokks og umönnunin ekki síðri."
"Hvernig sefurðu?" spurði sonurinn.
"Eins og steinn," svaraði pabbi. "Klukkan tíu er komið með heitt kakó handa mér og síðan fæ ég eina víagratöflu."
"Víagra?! Pabbi minn, ég trúi alveg að þú fáir kakó fyrir svefninn en mér finnst ótrúlegt að 85 ára karl fái víagra fyrir svefninn."
"Þetta er alveg rétt hjá honum," sagði hjúkrunarfræðingur sem heyrði tal þeirra feðga. "Við gefum kakóbolla til að hann sofi betur og víagratöflu til að hann velti síður fram úr rúminu."
Ég horfði gagnrýnum augum á konuna, sem ég hef verið giftur í 30 ár og sagði:
"Heyrðu elskan fyrir 30 árum áttum við ódýra íbúð, ódýran bíl, við sváfum á sófanum í stofunni, horfðum á 10 tommu svart/hvítt sjónvarp og á hverju kvöldi iðkaði ég bólfarir með viljugri 25 ára stelpu.
Núna á ég 80 milljóna hús, 15 milljóna bíl, rúm á stærð við skeiðvöll og
50 tommu flatskjá en þarf að sætta mig við það á hverju kvöldi, að fara í bólið með þreyttri 55 ára konu. Ég fæ ekki séð að þú hafir haldið í við þróunina hér!"
Ég verð að játa að ég á skynsama konu. Hún leit snöggvast á mig og sagði um leið:
"Ekki vandamálið. Drífðu þig bara út og finndu þér 25 ára viljuga stelpu! Ég sé um að þú fáir hitt aftur: Ódýra íbúð, bíldruslu og ódýrt svart/hvítt sjónvarp! Eftir þessi 30 ár veistu að ég meina það sem ég segi."
Er konan mín ekki frábær? Grái fiðringurinn hvarf á einu andartaki!
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 13:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
16.4.2009 | 23:29
Húrra! Nú ætti að vera ball!
Við þennan frábæra útlistann Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar á frjálshyggjuuppskrift Sjálfstæðis-FL-okksins sem nú hefur kollsteypt íslensku þjóðfélagi er engu við að bæta. Nema kannski mútugreiðslunum frá FL-Group og Landsbankanum. Eins og segir í gömlum slagara: "Húrra, nú ætti að vera ball!" Takið eftir því að trúboðinn virkilega trúir því sem hann er að segja.
Merki ránfuglsins er útfært að Guðsteini Hauki Barkarsyni.
Pepsi-deildin | Breytt s.d. kl. 23:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
16.4.2009 | 21:29
Rokkviðburður ársins!
Um helgina fer fram hérlendis alþjóðlega hljómsveitakeppnin Wacken Metal Battle. 7 hljómsveitir keppa í þessari undankeppni en sigurhljómsveitin heldur utan til Þýskalands í sumar til að taka þátt í aðalkeppni Metal Battle á Wacken Open Air hátíðinni. Wacken er nafn á litlum smábæ í Norður-Þýskalandi sem umturnast í einn allsherjar risa þungarokksbæ fyrstu helgina í ágúst þegar þar þjarka inn fyrir bæjarmörkin 70.000 gestir hvaðanæva úr heiminum til að hlusta á kanónur þungarokksins spila. Í ár er svo komið að hátíðin verður haldin í 20. skiptið og því mikið um dýrðir.
Forsvarsmenn þessarar hátíðar hafa haldið hljómsveitakeppnina síðan 2004, en meðal vinninga sem sigursveitin hlýtur er alþjóðlegur hljómplötusamningur, trommusett, önnur hljóðfæri og magnarar. Keppnin gefur ungum sveitum, sem ekki eru á hljómplötusamning, tækifæri til að skríða út úr heimabæ sínum og koma sjálfum sér á framfæri fyrir alvöru. Mörg þúsund blaðamenn sækja hátíðina heim á hverju ári, útvarpsmenn, sjónvarpsþáttastjórnendur og útsendarar plötufyrirtækja og stórra festivala.
Stærsti þungarokksviðburður ársins! - Upphitunarpartýkvöldi bætt við
Til að gera þetta að enn stærri viðburði en þegar er verður haldið sérstakt pre-party daginn fyrir keppnina, eða 17. apríl. Þar koma saman 5 af frambærilegustu þungarokkssveitum landsins til að hita upp fyrir keppnina daginn eftir. Sjálf undankeppnin verður haldin 18. apríl.
Þessi viðburður, þ.e. þessi helgi í heild sinni, er tvímælalaust einn stærsti þungarokksviðburður ársins með íslenskum hljómsveitum, ef ekki sá stærsti. Það er ekki á hverjum degi sem íslenskar þungarokkssveitir munu koma fram á Wacken Open Air, virtasta og stærsta þungarokksfestivali heims eins og verður einmitt afleiðing þessarar keppni.
Tímasetningar og staðsetning
Upphitunarkvöldið og keppnin verður haldin á Dillon Sportbar, Trönuhrauni 10 í Hafnarfirði.
Wacken Metal Battle upphitunarpartíkvöldið
Föstudaginn 17. apríl
Húsið opnar 21:30 - Byrjar 22:30
18 ára aldurstakmark
Miðaverð: 1000 í forsölu - 1.300 við hurð
01:15 - CHANGER - http://www.myspace.com/changermetal
00:30 - AGENT FRESCO - http://www.myspace.com/agentfresco
23:50 - MUNNRIÐUR - http://www.myspace.com/munnridur
23:10 - IN SIREN - http://www.myspace.com/insireniceland
22:30 - CARPE NOCTEM - http://www.myspace.com/carpenoctemiceland
Wacken Metal Battle - keppniskvöld
Laugardaginn 18. apríl
Húsið opnar 18:00 - Byrjar 18:30
EKKERT aldurstakmark
Miðaverð: 1000 í forsölu - 1.300 við hurð
21:30 - DIABOLUS - http://www.myspace.com/diaboliciceland
21:00 - SEVERED CROTCH - http://www.myspace.com/severedcrotch
20:30 - PERLA - http://www.myspace.com/musicperla
20:00 - GONE POSTAL - http://www.myspace.com/gonepostalmetal
19:30 - CELESTINE - http://www.myspace.com/celestinemusic
19:00 - BENEATH - http://www.myspace.com/beneathdeathmetal
18:30 - WISTARIA - http://www.myspace.com/wistariatheband
Þetta eru sannarlega þungavigtarsveitir í íslensku þungarokki og því verður fróðlegt að sjá hver þessara sveita verður fulltrúi Íslands á Wacken 2009.
Forsala aðgöngumiða: http://www.midakaup.is
Viðburðurinn á Facebook
Hægt er að finna upplýsingar um viðburðinn á Facebook:
Fyrra kvöldið: http://www.facebook.com/event.php?eid=78911787737
Seinna kvöldið: http://www.facebook.com/event.php?eid=162325650122
Tónlist | Breytt s.d. kl. 21:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.4.2009 | 23:30
Undarleg uppákoma á matsölustað
Ég átti erindi á matsölustað. Ekki til að fá mér að borða heldur í öðrum erindagjörðum. Þegar ég vatt mér þangað inn sátu fjórir miðaldra menn saman að snæðingi við eitt borðið. Ég þekkti engan þeirra. Ég staðnæmdist við afgreiðsluborð með smurbrauði, samlokum og öðru slíku. Einhverra hluta geng ég aldrei framhjá slíku borði án þess að skoða hvað er í boði. Þó ég sé ekki svangur.
Skyndilega var einn mannanna komin upp að hlið mér. Hann segir í hálfum hljóðum - sennilega til að afgreiðsludaman heyri ekki:
- Djöfulsins okurbúlla sem þetta er. Þetta er viðbjóður.
Hann benti á svokallaðar samlokuhyrnur sem voru verðmerktar á 450 kall og sagði:
- Sjáðu þetta. 500 kall fyrir eina helvítis samloku. Maður fær samloku á næstu bensínstöð fyrir 300 kall. Það kostar ekki meira en 100 kall að smyrja svona samloku heima hjá sér. Bara kaupa dollu af rækjusalati eða túnfiskssalati á 200 kall og skella á milli tveggja brauðsneiða. Maður nær alveg 3 - 4 samlokum út úr því.
Ég nennti ekki að benda manninum á að samlokuhyrnur kosta 520 kall á bensínstöðvum. Þar fyrir utan hefði ég ekki komist að. Maðurinn var óðamála og ákafur. Næst benti hann á diska með matarmiklu smurbrauði. Heldur stærri skammt en venja er. Það var ýmist verðmerkt á 890 eða 950 krónur.
- Sjáðu hérna, maður. Ein andskotans örþunn brauðsneið með gumsi er seld á 1000 kall. Pældu í því. 1000 kall fyrir auma brauðsneið. Maður fær sjóðheita 16" pizzu beint úr ofninum fyrir 4ra manna fjölskyldu á sama verði hjá Dominós. Gott ef 2ja lítra kók og brauðstangir fylgja ekki með í því dæmi. Þetta er viðbjóður.
Svo nafngreindi hann mann sem er líkast til kokkurinn á staðnum eða eigandi. Ég nota hér tilbúið nafn:
- Jón Jónsson er þvílíkur óþverra svíðingur. Hann er að eyðileggja allt. Hugsaðu þér aumingja bændurna sem koma glorhungraðir langt utan af landi og lenda í höndunum á svona óþokka. Þeir fá áfall; halda að Reykjavík sé ein allsherjar okurbúlla. Það ætti að læsa manninn inní fangelsi ásamt útrásarvíkingunum og henda lyklinum.
Þegar hér var komið sögu bjóst ég til farar. Maðurinn gekk aftur til sætis hjá félögum sínum. Um leið og ég gekk út í nóttina sá ég út undan mér hvar hann gekk með súpudiskinn sinn til afgreiðsludömunnar og sagði smeðjulega:
- Get ég fengið smá ábót, elskan mín. Hún er einstaklega góð hjá ykkur súpan í dag.
Matur og drykkur | Breytt 4.5.2009 kl. 21:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)