Falleg smásaga af ættleiðingu

furðumynd12

  Jón Jónsson er kominn á fimmtugsaldur.  Hann hefur aldrei verið við kvenmann kenndur.  Hann hefur ekki mátt vera að því.  Hann hefur verið upptekinn við að verða ríkur.  Til þess hefur hann prófað margar leiðir:  Sett upp sólbaðsstofu og bónstöð,  opnað gervinaglastofu og tekið þátt í öllum píramídasölukerfum sem hann hefur frétt af:  New skin,  Herbalife,  Living Forever Products,  Topperware,  Rainbow ryksugur,  gullmyntusölu,  Noni drykk,  keðjubréf af ýmsu tagi og svo framvegis. 
. 
  Frá unglingsárum hefur Jón alltaf verið þumlungi frá því að verða milljarðamæringur.  Árlega hefur hann sagt mörgum sinnum við kunningjana:  "Á sama degi að ári verð ég sestur á helgan stein.  Hættur að vinna við annað en fylgjast með milljörðum streyma inn á bankabækur mínar."  Í kjölfar hefur fylgt glæsileg útlistun á því hvernig dæmin vinda upp á sig með þessum árangri.
.
  2007 fór Jón út í bílapartasölu.  Einn daginn fékk bílapartasalan upphringingu frá Færeyjum.  Þar var Íslendingur að leita að peru í stefnuljós á gamlan bíl.  Jón átti það og sendi Íslendingnum.  Eftir þetta kallaði Jón sig útrásarvíking.  Veldi hans var farið að teygja anga sína til útlanda.
.
  Í vetur var ættleiðingalögum á Íslandi breytt.  Nú mega einstaklingar ættleiða börn.  Þá helltist yfir Jón löngun til að verða foreldri.  Hann sótti í snarhasti um að fá að ættleiða dreng.  Aldur skipti engu máli.  Kostnaðurinn var um hálf milljón króna.  Jón var ekki í vandræðum með að reiða hana fram.  Hann hringdi í pabba sinn og náði að slá hann um upphæðina.
.
  Nokkru síðar fékk Jón Jónsson tvö bréf frá ættleiðingastofu.  Hann var boðaður á fund til að ganga frá málum.
  Jón mætti tímalega.  Honum var vísað inn til ábúðamikils embættismanns.  Sá tilkynnti að nú væri allt klappað og klárt og aðeins þyrfti að undirrita pappíra og Jón yrði þaðan í frá einstætt foreldri.  Barnið væri ekki mætt en til að nota tímann væri ekki eftir neinu að bíða.  Bara vinda sér í undirskriftir.
.
  Embættismaðurinn hamaðist í tölvunni sinni og sagði með þunga:  "Þetta er drengur sem heitir Jón Jónsson,  eins og þú.  Það er skemmtileg tilviljun og einfaldar öll mál.  Hann er fæddur...ja,  bíðum nú við.  Hann virðist vera jafnaldri þinn.  Ég ætla aðeins að fletta upp á kennitölu þinni.  Já,  hér er hún.  Þetta er skrítið.  Þetta er sama kennitala.  Þú ert að ættleiða sjálfan þig."
  Jóni var brugðið:  "Ha?  Er ég að ættleiða sjálfan mig?  Hvernig má það vera?"
  Embættismaðurinn var líka hissa en sagði jafn ábúðafullur og áður:  "Þú hefur greinilega fyllt út umsóknina svona.  Þú hefur ættleitt sjálfan þig."
.
  Jón rifjaði upp í huga sér að hann hafði ekki skilið upp né niður í umsókninni.  Það hafði alltaf gefist vel að skrifa bara eitthvað á svona plögg. 
  Embættismaðurinn varð ennþá ábúðafyllri en áður og sagði:  "Þú skráðir þig sem ættleiðanda sjálfs þíns.  það erindi hefur verið samþykkt.  Pappírar þínir eru í lagi og uppfylla öll skilyrði."
  Jón maldaði í móinn:  "Ég hef fyllt eitthvað vitlaust út.  Það var ekki ætlun að ættleiða sjálfan mig."  Svo bætti hann við ráðagóður:  "Ég geri bara nýja umsókn."
  Embættismaðurinn sýndi lit og var fullur samúðar:  "Já,  þú getur aftur sótt um eftir 7 ár.  Þá höfum við fylgst með hvernig tekst til með þessa ættleiðingu.  En drollum ekki yfir þessu.  Við þurfum að skrifa hér undir örfáa pappíra til að ganga að fullu frá ættleiðingunni. "
.
   Þeir hófust þegar handa.  Þegar öllum formheitum var lokið gekk Jón Jónsson ringlaður út í góða veðrið.  Hann gekk í þungum þönkum heim á leið.  Hann gleymdi að hann hafði komið á bílnum sínum.
  Jón fékk skyndilega kvíðakast.  Hann var búinn að stefna helstu ættingjum og vinum til hátíðarkvöldverðar til að fagna ættleiðingunni.  Gestir eiga að mæta klukkan 20.00 á Hótel Nordica.  Í engu er sparað í mat og drykk.  Hljómsveit mun spila dinnermúsík á meðan borðhald stendur yfir og dansmúsík eftir það.
  Hvernig á Jón Jónsson að útskýra að hann hafi ættleitt sjálfan sig?  Þetta verður vandræðalegt.  Allt í einu fær Jón góða hugmynd.  Hann klappar sér blíðlega á aðra kinnina og segir:  "Sonur sæll.  Ég læt þig um að útskýra þetta fyrir fólkinu.  Ef þú klúðrar einhverju er það þér sjálfum til minnkunar en ekki mér."
.
  Við þessa góðu lausn verður Jón Jónsson svo glaður að hann rífur af sér harmónikutösku sem hann hefur burðast með á bakinu undanfarnar vikur.  Töskuna setur hann á jörðina og tekur upp úr henni forláta harmóniku.  Hann festir 5 metra langa keðju í töskuna og hinn enda keðjunnar krækir hann í beltið sitt.  Því næst lítur hann eldsnöggt í kringum sig.  Hann kemur auga á tvo fjúkandi innkaupapoka.  Annar er merktur Bónusi og hinn Nóatúni.  Jón hnýtir pokana með jöfnu millibili á keðjuna.  Honum þykir litríkir pokarnir laða fram hátíðastemmningu. 
.
  Jón festir í snatri á sig harmónikuna og gengur hröðum skrefum með töskuna í eftirdragi.  Hann spilar fjörugan slagara frá Utangarðsmönnum á harmónikuna.  Glaðleg músíkin kætir Jón.  Án þess að taka eftir því fer hann ósjálfrátt að syngja með.  Hann tekur heldur ekki eftir því að þegar hann þrammar framhjá elliheimilinu Grund þá renna vistmenn á hljóðið.  Þeir sleppa út á gangstétt og troðast í halarófu á eftir harmónikutöskunni.  Flestir með stafi eða í göngugrind.  Jón er horfinn inn í heim tónlistarinnar.  Hann tekur ekki eftir umhverfinu.  Fyrr en varir er hann farinn að syngja eins hátt og lungu og raddbönd leyfa.  Íbúar í næstu húsum reka höfuð út um glugga eða flykkjast út á svalir beggja vegna götunnar.  Allir taka hraustlega undir með Jóni um leið og þeir henda smákökum,  pennum og kjötbeinun í gamla fólkið af Grund.  Hverfið bergmálar í fjörlegum fjöldasöng:
  Þið munuð öll,  þið munuð öll, 
  þið munuð öll deyja!
  Þið munið stikna,  þið munið brenna!.
  Þið munuð stikna,  þið munuð brenna!
  Feður og mæður,  börn ykkar munu stikna...
.
.
.
--------------------------------------------------------------------
 

Skúbb! Fyrrverandi þingmaður sigurvegari á Landsmóti UMFÍ

  sigurjon

  Gífurlegur fjöldi er nú á Akureyri vegna Landsmóts UMFÍ.  Ég fylgist ekki með íþróttaviðburðum (ef hnefaleikar eru undanskildir ásamt strandblaki kvenna).  En meistarinn Magnús Geir Guðmundsson (www.meistarinn.blog.is) var svo elskulegur að senda mér skýrslu um hápunkta mótsins.  Fyrst  hann slær því ekki upp á sínu bloggi bregð ég við skjótt og skúbba hér:

  Keppt var í sjósundi yfir Eyjafjörð.  Af hátt í fjörtíu keppendum sigraði með glæsibrag Sigurjón Þórðarson formaður Ungmennafélags Skagafjarðar,  Hegranesgoði og fyrrverandi alþingismaður Frjálslynda flokksins.  Ég sló á þráðinn til Sigurjóns.  Hann var að vonum ánægður með árangurinn.  Sigurinn kom honum á óvart.  Þetta er í fyrsta skipti sem hann prófar sjósund. 

  Sigurjón var 29 mínútur að synda yfir fjörðinn en flestir aðrir um þrjú korter.  Vegalengdin var vel á annan kílómetra.  Sennilega tæpur hálfur annar.


Skúbb! Færeysk stórhátíð á Stokkseyri

kristianblakangelikajens marniEyðun & TerjikvönnKBY-Ygg

  Dagana 31.  júlí,  1.  ágúst og 2.  ágúst næstkomandi verður haldin færeysk stórhátíð í Draugasetrinu á Stokkseyri.  Þar verður boðið upp á feitan pakka af fjölbreyttri færeyskri tónlist og færeyskum dönsum.  Fjörið hefst með dansleik klukkan 22.00 föstudaginn 31.  júlí.  Jens Marni  og félagar leika fyrir dansi.  Dansleikurinn verður brotinn upp með færeyskum dansiharmónikuspili og innslagi frá  Simme  og hljómsveit.  

  Þetta er í annað sinn á hálfri öld sem Simme skemmtir á Íslandi.  Í fyrra skiptið kom hann hingað 1959.  Þá naut hann gífurlegra vinsælda hérlendis með lögum sem margir muna vel eftir,  svo sem  Kenna tit Rasmus  og  Sunnukvöld í plantasjuni.

  Laugardaginn 1.  ágúst hefst dagskrá með fótboltakeppni Færeyjar-Ísland klukkan 15.00.  Klukkan 19.00 flytja fiðlusnillingurinn gullfallega  Agelika Nielsen,  píanóleikarinn Kristian Blak og hljómsveit dagskrána  Heygar og dreygar.  Klukkan 20.00 tekur Simme við.  21.00 flytja Hilmar Joesen,  Angelika og Kristian Blak dagskrána  Álvastakkur.  Hálftíma síðar hefst færeyskur dans þar sem kyrjaður verður söngurinn um  Ólaf Riddararós.  Klukkan 23.00 blása Eyðun & Terji til dansleiks.  Ég sá þá spila í Færeyjum fyrir nokkrum vikum.  Þá spilaði James Olsen með þeim á trommur og söng.  Meðal laga á dagskrá þeirra var   Talað við gluggann  eftir Bubba Morthens.     

  Dansleikur Eyðuns & Terjis verður brotinn upp með innslagi frá Simme,  harmónikuspili og færeyskum dönsum.  

  Dagskrá sunnudagsins 2.  ágúst hefst með helgistund í umsjón  Matine  klukkan 11.30.  Um tónlist sjá Angelika & Kristian Blak ásamt hljómsveit.  Klukkan 15.00 er söngdagskrá í höndum - eða raddböndum öllu heldur - Jens Marni,  Kims Hansen,  Terjis & Eyðuns og Simme.  Klukkan 16.00 er það færeyski dansinn  Dvörgamöy.  Við tekur klukkan 22.00 dansleikur með Kim Hansen og hljómsveit.  Eins og fyrri kvöld verður hann brotinn upp með innslögum frá Simme,  harmónikuspili og færeyskum dansi.

  Þetta er spennandi og vönduð dagskrá.  Ég hvet alla sem geta valdið vettlingi að láta þessa glæsilegu stórhátíð ekki framhjá sér fara.

  Ljósmyndin efst til vinstri er af Kristian Blak (www.kristianblak.com).  Honum til hægri handar er fiðlusnillingurinn Angelika Nielsen (http://www.facebook.com/people/Angelika-Nielsen/590996554).  Þriðja myndin er af Jens Marni (http://www.myspace.com/jensmarni). 

  Kíkið líka á:  http://www.simme-musikkhus.fo/main.html

  Mynd númer 4 er af Eyðunni & Terji.  Mynd númer 6 er af plötuumslagi hljómsveitar Angeliku,   Kvönn.  Mynd númer 7 er af plötuumslagi Kristian Blak og Eivarar,  Yggdrasil.


Mikilvægt að leiðrétta

fiskbúfiskbúðin Heimur hafsins

  Dr.  Gunni er bráðskemmtilegur penni,  flottur tónlistarmaður og vel vakandi öflugur neytendafrömuður.  En enginn er alltaf fullkominn.  Bakþankar Fréttablaðsins í dag eru skrifaðir af Dr.  Gunna.  Þar veltir hann ýmsu fyrir sér og spyr margs.  Þar á meðal hvers vegna engin fiskbúð sé á Akureyri. 

  Þetta er villandi spurning.  Á Akureyri er að finna eina bestu fiskbúð landsins.  Hún heitir Heimur hafsins og er staðsett á Tryggvagötu 22,  við hliðina á Axels bakaríi.  Síminn er 578 6400.   Orðstír Heims hafsins nær langt út fyrir Eyjafjörð.  Matgæðingar úr Skagafirði og Þingeyjasýslu sækja stíft í þessa frábæru fiskbúð.

  Nú standa sumarfrí og hringferðir Íslendinga sem hæst.  Það er hið versta mál ef ferðamenn úr öðrum landshlutum keyra í gegnum Akureyri standandi í þeirri trú að þar sé engin fiskbúð.

  Heimur hafsins er í eigu Hallgríms Guðmundssonar,  fyrrum aðstoðarmanns Sigurjóns Þórðarsonar fyrrverandi alþingismanns,  og Huldar S.  Ringsted snyrtifræðings.  Þau heiðurshjón eru bæði harðlínu andstæðingar kvótakerfisins.


Kvikmyndaumsögn

 - Titill:  Brüno

 - Handrit/leikstjórn/aðalhlutverk:  Sacha Baron Cohen

 - Einkunn: ***1/2 (af 5)

  Enski leikarinn Sacha Baron Cohen varð fyrst þekktur í hlutverki rapparans Ali G í samnefndum sjónvarpsþáttum.  Bráðfyndnum sjónvarpsþáttum.  Í þeim tróð Cohen einnig upp sem sjónvarpsstjarna frá Kazakstan,  Borat, og samkynhneigð tískulögga,  Brüno,  frá Austurríki.

  Cohen gerði kvikmynd um Ali G.  Ekki alveg nógu góða.  Hann gerði aðra kvikmynd um Borat.  Sú var og er virkilega fyndin.  Og nú er það kvikmynd um Brüno.  Hún gefur Borat-myndinni ekkert eftir.

  Eins og í fyrri myndum er gert út á svipaða framsetningu og í myndum og sjónvarpsþáttum sem skilgreina má afbrigði af "Falinni myndavél".  Brüno er tilbúinn "karakter".  Hann á samskiptum við fólk sem veit ekki að þar er grínari á ferð að rugla í þeim.

  Ég hef séð mörg skemmtileg myndbönd með Brüno á youtube.com.  Þau eru fæst í kvikmyndinni.  Sum eru "out takes",  það er að segja urðu útundan við endanlega vinnslu á myndinni.  Sum eru kannski úr Ali G sjónvarpsþáttunum.

  Það myndi skemma fyrir þeim er eiga eftir að sjá myndina að segja frá fyndnu senunum sem þar koma fyrir.  Brandararnir byggja á því að koma á óvart.  Vegna kynningarmyndbandsins sem fylgir þessari bloggfærslu er þó óhætt að nefna þegar Brüno kemur fram í bandarískum sjónvarpsþætti með áhorfendum af afrískum uppruna.  Þar er komið inn á að Brüno hefur ættleitt blökkubarn.  Hann virðist leggja sig fram um að vera með "pólitíska rétthugsun" en gengur fram af áhorfendum með því að hafa aðra hugmynd um "pólitíska rétthugsun" en þeir. 

  Brüno er ekkert heilagt.  Hann reynir að stilla til friðar í Mið-Austurlöndum en þekkir ekki mun á "hummus" (kjúklingabaunamauk) og Hamash-samtökum Palestínumanna.  Sjálfur er Cohen gyðingur en hlífir gyðingum ekki í gríninu.

  Fræga fólkið er dregið sundur og saman í háði.  Líka tískubransinn,  bandaríski herinn og svo framvegis.  

  Kvikmyndin  Hangover  hefur verið auglýst sem fyndnasta mynd sumarsins.  Ég mæli með henni sem góðri skemmtun.  Kvikmyndin um Brüno er ennþá fyndnari.  Kíkið á báðar myndirnar.     

   


Sérkennileg þýðing hjá sjónvarpinu

  Um helgina var bandarísk kvikmynd sýnd í sjónvarpinu.  Myndin hét  Blue Collar Comedy Tour  eða eitthvað álíka.  Í henni sást og heyrðist til hóps grínara,  svokallaðra uppistandara.  Eins og slíkum er gjarnt í Bandaríkjum Norður-Ameríku voru margir brandarar á kostnað rauðhálsa (rednecks).  Það eru Hafnarfjarðarbrandarar Kanans. 

  Í íslenska skjátextanum voru rauðhálsarnir aldrei kallaðir annað en ruddar.  Ég er hugsi yfir þeirri þýðingu.  Hún er kannski ekki alveg út í hött að öllu leyti.  Kannski þarf maður bara að venjast henni.  Ég hef aldrei áður séð eða heyrt orðið "redneck" þýtt á þennan hátt.  Ef við þýðum íslenska orðið ruddi yfir á ensku er "redneck" ekki nærtækasta orðið.  Meðal annars vegna þess að uppvöðslusamir hópar unglingsdrengja sem sækja í slagsmál við aðra unglingadrengjahópa eru iðulega kallaðir "rude boys". 

  Rauðhálsar eru tiltekinn þjóðfélagshópur í suðurríkjum Bandaríkjanna.  Í stuttu máli vísar nafngiftin til þess að um er að ræða fátæka landbúnaðarverkamenn og bændur.  Í smekkbuxum og berir að ofan bogra þeir við störf sín.  Hatturinn eða derhúfan á höfðinu skýlir andlitinu en aftanverður háls og herðar roðna ubdan sólinni. 

  Dæmigerður rauðháls,  það er að segja týpan sem brandararnir fjalla um,  er lítt menntaður,  jafnvel ólæs og jafnan fáfróður um það sem gerist utan túnfótsins.  Rauðhálsinn er vel sjálfbjarga reddari.  Hann grípur til þeirra verkfæra og þess hráefnis sem hendi er næst.  Útisundlaug hans er kannski pallur á pallbíl eða drullupollur;  frisbí-diskurinn er hjólkoppur eða klósettseta;  kertastjakinn er bjórdós og svo framvegis.

  Rauðhálsinn bruggar sitt viský (moonshine) sjálfur af mikilli list en aðkeyptur bjór er aðal drykkurinn.  Tannréttingar eru pjatt sem ná ekki til rauðhálsa og skemmd tönn er bara rifin með naglbít úr gómnum.  Jesú,  byssur og bílar á stórum dekkjum eru í hávegum ásamt Suðurríkjafánanum (The South will rise Again) og andúð á hörundsdökku fólki.     

  Ég er ekki hrifinn af rasisma rauðhálsanna.  En hef lúmskt gaman að þeim að öðru leyti.  Þetta eru töffarar á sinn hátt og margir skemmtilegar týpur.  Utan Bandaríkja Norður-Ameríku er rauðhálsum oft ruglað saman við hillbillý-liðið.  Þessir tveir þjóðfélagshópar eiga margt sameiginlegt.  En eru ekki alveg sama fyrirbærið.  Báðir hóparnir eiga þó uppruna í skoskum og írskum innflytjendum til Bandaríkjanna.    

     


Fróðlegt og hjálplegt húðflúr

kort af færeyjum 1

  1972 ákvað ég að fá mér húðflúr.  Það var ekki eftir neinu að bíða.  Ég brá við skjótt og skellti mér í Tattú & skart í dag og fékk mér húðflúr.  Ég hef oft heyrt talað um að það sér rosalega sársaukafullt þegar húðflúrið er skrapað ofan í húðina.  Mér er lítið um sársauka gefið og hugleiddi að laumast til að bera á mig staðdeyfandi krem áður en mætti yrði á svæðið.  En gleymdi því.  Var eitthvað annars hugar.  Sem betur fer.  Svanur húðflúrari tjáði mér að staðdeyfiefni eyðileggi æskilegt viðnám húðarinnar þegar verið er að húðflúra.  Þar fyrir utan var aðgerðin alls ekki sársaukafull.  Þvert á móti var hún notaleg.  Þetta var eins og nett og gott krafs eða klór.

  Ég er staðráðinn í að fá mér fleiri húðflúr.  Það er svo assgoti gott.  Að þessu sinni lét ég húðflúra yfir allan hægri framhandlegginn landakort af Færeyjum.  Það smellpassaði hæð og lengd og mun auðvelda ferðalög mín um Færeyjar í framtíðinni.  Þá þarf ég ekki annað en bretta upp ermi til að sjá hvar ég er staddur og hvert skal næst halda. 

  Svo heppilega vildi til að Svanur húðflúrari bjó í Færeyjum á áttunda áratugnum og var því á heimaslóðum þegar hann skellti á mig landakortinu.

  Næsta húðflúr verður á vinstri handlegg.  Það verður mynd af rennilás.  Hjálpið mér að finna einfalda grafíska mynd af rennilás.


Verðsamanburður á grillum

einnotagrill1

  Á sólríkum degi sem þessum er næstum nauðsynlegt að laumast aðeins út fyrir bæinn.  Í farteskinu er gaman að hafa kassa af ísköldum bjór og einnota grill.  Á grillið getur verið gott að setja papriku og banana.  Eða Herragarðs grísalærissneiðar.  Eða lax.  Verð á einnota grillum er mismunandi á milli verslana og frekar lítið um verðsamráð.  Þetta hef ég verið að borga fyrir einnota grill síðustu daga:

Bónus 259 kr.

Rúmfatalagerinn 269 kr.

Byko 299 kr.

Hagkaup 329 kr.

Europrice 399 kr.

Krónan 399 kr.

Nóatún 499 kr. (en 599 kr. í Nóatúni við Nóatún)

Neinn 875 kr.


Spennandi framhaldssaga

pólskt hús

  Fátt lesefni er skemmtilegra en smáauglýsingarnar í Fréttablaðinu.  Þar er jafnvel hægt að rekast á framhaldssögur sem taka fram skáldsögum Arnaldar Indriðasonar hvað spennandi framvindu varðar.  Ein slík hefur verið í gangi undanfarna mánuði undir liðnum "Húsnæði í boði".  Sagan hófst á því að nýuppgerð stúdíóíbúð með þvottavél,  þurrkara og interneti var auglýst til leigu á 59 þúsund kall.  Síðan hefur verðið trappast niður hægt og bítandi.  Lengi var það 54 þúsund.  Síðustu daga hefur íbúðin verið auglýst á 49 þúsund.  Fólk út um allt land og nokkrir Íslendingar búsettir erlendis fylgjast spenntir með framhaldinu.  Ég spái því að endirinn komi á óvart.


Hlegið að hundum

hundar21hundar20hundar19

  Sumu fólki þykir við hæfi að búa sér til aðhlátursefni á kostnað hunda.  Það er ljótt.  Hundar eru mjög spéhræddir.  Þeir skammast sín rosalega mikið ef þeir halda að þeir líti kjánalega út og verið sé að hlæja að þeim.  Þegar fólk er búið að "dubba" hundana sína upp í fígúrur tekur það ljósmyndir af þeim og setur á netið.  Síðan berast myndirnar til mín.  Þá sýni ég ykkur þær svo þið sjáið hvað fólk er leiðinlegt við hundana sína.

hundar18hundar17hundar16hundar15hundar14hundar12hundar11kind dauðans 3


Ég festist í lyftu

hópmynd af slökkviliðsmönnum

  Í gær rétt slapp ég við að festast í lyftu.  Ég var ekki jafn heppinn kvöldið áður.  En í gær tókst ungri systurdóttur minni með snarræði að forða mér frá því að lenda í sömu vandræðum.  Hún fylgdi mér snöfurlega niður á jarðhæð í lyftunni og passaði af samviskusemi upp á að allt gengi fyrir sig á besta veg.  Forsagan er sú að kvöldið áður heimsótti ég systir mína og hennar fjölskyldu í orlofsíbúð bænda í fjölbýlishúsi í Reykjavík.  Þau eru utan af landi.  Þegar ég yfirgaf partýið hjá þeim í fyrrakvöld festist ég í lyftunni.  Ég fór í lyftuna og beið eftir að lyftan skilaði mér á jarðhæð.  Ég beið og beið í lyftunni.  Stóð þar aleinn og lyftan skilaði mér ekki á jarðhæð.  Ég tók upp á því að raula íslensk dægurlög til að stytta mér stundir.  Þegar mínútur liðu og ekkert gerðist fór ég að ókyrrast.  Eftir 10 mínútur lokaður inni í lyftunni sljákkaði í söng mínum og ég fór að velta fyrir mér vandamálinu.  Enda kominn með leið á íslensku dægurlögunum sem ég raulaði.  Þá áttaði ég mig loks á að ég hafði aldrei ýtt á hnappinn í lyftunni sem átti að bera mig niður á jarðhæð.  Ég brá við skjótt og ýtti á þann hnapp.  Það var eins og við manninn mælt:  Ég var á augabragði kominn á jarðhæðina.

  Daginn eftir tók systurdóttir mín að sér að halda utan um dæmið.  Hún fylgdi mér í lyftuna,  ýtti á hnappinn fyrir jarðhæð og fylgdi mér alveg út að útidyrum blokkarinnar.  Þetta gekk hratt og vel fyrir sig.  Ég festist ekki í lyftunni. 


Furðulegt sumarfrí

furðumynd9

  Nú þegar Íslendingar streyma í sumarfrí og umferð ýmist þyngist til eða frá höfuðborgarsvæðinu rifjast upp bráðfyndin saga sem vinafólk mitt frá Víetnam sagði mér á dögunum.  Atburðurinn átti sér stað fyrir einhverjum áratugum þegar sumarfrí var sjaldgæfur lúxus í víetnamska þorpinu sem kunningjarnir eru frá.

  Gamall maður (á víetnamskan mælikvarða.  Um sextugt) tók sitt fyrsta alvöru sumarfrí.  2ja vikna frí.  Hann undirbjó fríið vel og vandlega mánuðum saman.  Þetta var stórmál.  Því fylgdi gífurlegur ævintýraljómi.  Þetta var fyrir daga tölvupósts,  faxtækja og almenns símasambands.  Samskipti við fólk utan þorpsins fóru fram í gegnum gamaldags hægfara bréfapósts (snail mail).  Eldra fólk var flest háð yngra fólki með að lesa fyrir sig bréf og skrifa.  Kallinn bókaði gistingu á hóteli í fjarlægju þorpi og dundaði sér dag eftir dag við að skipuleggja fríið þar með aðstoð yngra fólks sem kunni að lesa og skrifa.  Kallinn hafði komist yfir bækling eða rit um þorpið.  Það auðveldaði skipulagið.  Allir í þorpinu fylgdust spenntir með framvindunni við skipulag frísins.  Síðustu vikur fyrir fríið ræddu þorpsbúar varla um annað en frí kallsins.  Enda bar yfirleitt aldrei neitt til tíðinda í þorpinu.  En þetta var alvöru ævintýri.

  Þegar frí kallsins gekk í garð fylgdu ættingjar,  vinir og vinnufélagar honum á rútustöðina.  Það var svo mikill ævintýraljómi yfir fríinu að allir samglöddust kalli og vildu kveðja hann á rútuplaninu.  Í Víetnam skiptir aldur miklu máli.  Fólk nýtur vaxandi virðingar til samræmis við hækkandi aldur.  Með því að fylgja kallinum að rútunni vildu þorpsbúar sýna öldrun mannsins tilhlýðanlega virðingu. 

  Rútan kom reglulega viðp í þorpinu tvisvar í mánuði.  Hún var ætíð troðin af fólki frá öðrum þorpum en fátítt var að fólk úr þessu þorpi tæki sér far með henni.  Fylgdarfólk kallsins fyllti rútuplanið.  Ungur vinnufélagi kallsins naut þess heiðurs að fá að bera ferðatöskur hans.  Sá ungi átti í vandræðum með að troða ferðatöskunum aftast í rútuna.  Þetta var ekki rúta eins og við þekkjum þar sem töskurými er undir rútunni heldur höfðu farþegar pinkla sína - og jafnvel húsdýr - meðferðis inni í rútunni. Ungi vinnufélaginn tróðst með töskur kallsins innan um farangur ferðafélaga í stappfullri rútunni.  Þá ók rútan skyndilega af stað.  Með vinnufélagann innanborðs en kallinn úti á rútuplani umkringdan ættingjunum og öðrum þorpsbúum.  Hópurinn á rútuplaninu horfði á eftir rútunni bruna burt.

  Vinnufélaginn kom engum skilaboðum til bílstjórans.  Rútan var svo stöppuð af fólki og allir kallandi hver ofan í annan til að yfirgnæfa hávaðann frá rútunni sjálfri.  Vinnufélaginn endaði á þeim stað sem kallinn hafði bókað frí sitt.  Vinnufélaginn var með alla pappíra í lagi,  kvittun fyrir gistingu,  uppskrift að því hvernig fríinu yrði best varið og það allt.  Næsta rúta til baka fór ekki fyrr en eftir hálfan mánuð.  Vinnufélaginn gat í raun fátt gert í stöðunni annað en fara í fríið sem kallinn hafði ætlað í.  Hann var vel settur,  með nóg af hreinum fötum af kallinum,  peningana hans og svo framvegis.
  
  Kallinn og ungi vinnufélaginn voru þeir einu sem kunnu almennilega á rafstöðina er þeir unnu við.  Kallinn gat því ekki gert annað en mæta í vinnuna á hverjum degi á meðan vinnufélaginn hafði það gott í fríinu.  Eftir að ungi vinnufélaginn kom úr fríinu var stirt á milli þeirra.  Kallinn tók algjörlega fyrir að heyra ferðasögu þess unga og tók aldrei annað frí.

 


mbl.is Mikil umferð til Reykjavíkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Örleikrit - Bannað börnum og viðkvæmum!

Hand_Saws

  Persónur og leikendur:

  Strákur á fermingaraldri,  snyrtilega klæddur í jakkaföt og með hálsbindi

  Mamma,  spariklædd í pels og með áberandi gullhringa á flestum fingrum

  Ljótur hundur

  Sviðið er myrkvað af reyk.  Taktföst sögunarhljóð heyrast og fara hækkandi.  Þau hljóma eins og grófri handsög sé beitt á undinn planka í sögunarverksmiðju í Brasilíu.  Smám saman þynnist reykurinn.  Þá sést strákurinn sitja við eldhúsborð.  Hann hefur brett upp fyrir vinstri olnboga jakka og skyrtu og er í rólegheitum að saga af sér framhandlegginn.  Blóð gusast úr sárinu og spýtist út um allt.   

  Mamman kemur inn úr dyrunum.  Hún er með stóran úttroðinn innkaupapoka úr matvöruverslun.

Mamman (glaðleg):  Hæ,  ég keypti jógúrt í matinn handa okkur.

Strákurinn (kátur):  Frábært.  Ég var að byrja að fá leið á að borða alltaf rúgbrauð með spægipylsu í matinn.

Mamman (ennþá glaðleg):  Af hverju ertu að saga af þér höndina?

Strákurinn:  Mig klæjaði í handlegginn.

Mamman:  Það er út af bómullarskyrtunni.  Bómullin er erfðabreytt.  Þess vegna veldur hún ofnæmi og kláða.  Þú hefðir getað farið úr skyrtunni.  Þá hefði þig hætt að klæja.  Það getur líka verið að þú verðir ófrjór af að vera í skyrtunni.  Fuglar í nágrenni erfðabreyttra akra verða ófrjóir.

Strákurinn:  Þetta skiptir svo sem engu máli.  Ég er of ungur til að fara að hrúga niður börnum.  Svo er ég viss um að Óli einhenti í blokkinni hér fyrir neðan fer að hrökkva upp af.  Hann er orðinn svo gamall og hrörlegur.  Þá get ég fengið gervihöndina hans fyrir slikk.

Mamman (flissandi):  Þú ert nú meiri kjáninn,  elskan mín.  Óla einhenta vantar hægri höndina.  Þú ert að saga af þér vinstri höndina.

Strákurinn (nær að saga af sér höndina.  Hún fellur með þungum slink í gólfið.  Pirraður):  Þú hefðir mátt segja mér þetta fyrr.

Mamman:  Já,  ég ætlaði að segja þér þetta í morgun.  Ég reyndi að hringja í þig en það var slökkt á símanum þínum.  En það gerði ekkert til.  Ég hringdi í vinkonu mína í staðinn og sagði henni þetta.  Hún ætlar að láta þetta berast.  Það er áreiðanlega komið út um allt núna.

Mamman (hellir úr innkaupapokanum.  Í honum voru tvær jógúrtdollur vafðar innan í sitthvora stóru kúluna úr loftblöðruplasti):  Mikið er ég fegin að jógúrtdósirnar eru heilar.  Ég hef alltaf áhyggjur af því að þær springi á heimleiðinni síðan ég datt á mjólkurkælinn í Nóatúni og sprengdi allar jógúrtdollurnar þar.  Jeminn eini.  Það var neyðarlegt.  Á leiðinni út úr Nóatúni mætti ég,  öll útbíuð í jógúrt,  konu sem horfði svo skringilega á mig að hún hélt greinilega að ég hefði lent í kynsvalli með starfsmönnum Nóatúns.  Láttu mig þekkja augnráðið.  Komdu nú að borða,  vinurinn.  Settu höndina fyrst í matarskálina hjá Ljóti.  Hann borðar hvort sem er ekki jógúrt.  (Bíðlega) Óskaplega verður hann glaður,  blessaður kallinn.  Það er langt síðan hann hefur fengið svona mikið kjöt og góð bein til að naga.

  Tjaldið fellur.  Mamman heyrist kalla vinalega á Ljót.  Hundurinn geltir.  Hávær höggsmellur heyrist og hundurinn ýlfrar hátt.  Mamman heyrist segja:  Já,  var það ekki?  Þú ofleikur, helvítis kvikindið þitt.  Ég ætti að sparka í þig aftur og miklu fastar.  Ennþá hærri höggsmellur heyrist og hundurinn ýlfrar miklu hærra.  Mamman hlær tryllingslega.  3 skothvellir heyrast og allt verður hljótt. 

------------------------------------------------


Spennandi myndband

  Mér var sent þetta skemmtilega myndband.  Með fylgdu upplýsingar um að það sýni kofa í eigu forgöngumanns verðsamráðs olíufélaganna og konu hans,  sem þekktust er fyrir að hafa látið innrétta einkagullklósett undir sig í húsakynnum dómsmálaráðuneytisins.  Næsti nágranni turtildúfanna er maður sem gegnir nafninu Tiger Woods og þykir ekki síður liðtækur í golfi en 12 ára strákurinn á Selfossi.


Aflið fær styrk

  Fréttinni hér fyrir neðan er hnuplað af heimasíðu Vikudags á Akureyri.  Heimasíða Aflsins,  systursamtaka Stígamóta á Norðurlandi,  er www.aflidak.is.  Mín kæra systir,  Sæunn,  er formaður samtakanna.  Slóðin á fréttina í Vikudegi er http://vikudagur.is/?m=news&f=viewItem&id=3817

Aflið nýtir peningastyrk til útgáfu kynningarbæklings

mánudagur 22.jún.09 13:11
 
  
  aflid-vikudagur
  Styrkurinn afhentur, Sæunn Guðmundsdóttir og Jóhanna G. Þorsteinsdóttir f.h. Aflsins og Hafdís Inga Haraldsdóttir f.h. Ladies circle nr. 1 á Akureyri.
  Á Kvennadaginn 19. júní hittust talskonur Aflsins á Akureyri, samtökum gegn heimilis-og kynferðisofbeldi og formaður Ladies Circle klúbbs númer 1 og var tilgangurinn að afhenda Aflinu peningastyrk. Aflið mun nýta styrkinn til útgáfu kynningarbæklings sem er í bígerð og verður á 10 tungumálum. 
  Með þessu móti getur Aflið lagt sitt af mörkum við að ná til sem flestra sem þurfa á aðstoð að halda.  Mjög mikil aukning hefur verið frá 2007 til 2008 eftir aðstoðs Aflsins eða 94% og enn meiri aukning er á árinu sem líður. Aflið sinnir forvörnum í grunn- og framhaldsskólum á Akureyri í fyrirlestraformi og er raunin sú að eftir hvern fyrirlestur bætist við einn þolandinn sem leitar eftir aðstoð hjá Aflinu. LC-1 klúbburinn er hluti af Ladies circle hreyfingunni, alþjóðlegum samtökum kvenna sem vilja stuðla að því að konur kynnist hver annarri, víkki út sjóndeildarhring sinn og efli alþjóðlegan skilning og vináttu.

 


Sjálfsfróun og Sjálfstæðisflokkurinn

bjarni móhíkanirokk í reykjavík

  Á dögunum var sýnd í sjónvarpinu (RÚV) stuttmynd þar sem minn góði vinur,  Bjarni heitinn Móhíkani (Bjarni Þórir Þórisson),  las á áhrifamikinn hátt kvæði eftir Halldór Laxness og fór með aðalhlutverk.  Bjarna kynntist ég þegar hann var 14 - 15 ára og árið 2000 fór hann með mér í eftirminnalega hljómleikaferð til Grænlands í kjölfar þess að lag mitt  Þorraþrællinn  fór í 6.  sæti grænlenska vinsældalistans.  Lagið er í tónspilarunum hér til vinstri.

  Bjarni sló í gegn í kvikmyndinni  Rokk í Reykjavík  sem söngvari og bassaleikari pönksveitarinnar Sjálfsfróun.  Með okkur Bjarna til Grænlands fór dauðapönksveitin Gyllinæð (einnig í tónspilaranum) og þar var enginn bassaleikari. 

  Í kjölfar þess að horfa á stuttmyndina með Bjarna í sjónvarpinu fór ég inn á youtube til að vita hvort þar væri eitthvað með Bjarna.  Þegar ég sló inn nafni frægustu hljómsveitar hans,  Sjálfsfróunar,  birtist mér listi yfir 40 myndbönd.  Þar af 38 um Sjálfstæðisflokkinn.


Mikilvægt að leiðrétta

  Í helgarblaði Fréttablaðsins er sagt frá nýafstaðinni leit að bestu íslensku plötunum.  Þar segir:

  "Dr. Gunni birtir á vinsælli síðu sinni á Netinu athyglisverðan samanburð: Nýjan lista yfir bestu plötur Íslandssögunnar sem kjörnar voru á Tónlist.is og svo sambærilegan lista sinn yfir bestu plötur aldarinnar eins og hann var í bók Dr. Gunna "Eru ekki allir í stuði?" árið 2001. Þetta eru merkilega líkir listar nema að mestallt pönkið sem hinn afkastamikli tónlistargagnrýnandi úr Kópavoginum og einn áhrifamesti umfjallandi um íslenska rokktónlist hefur haldið svo mjög á lofti í gegnum tíðina; Fræbbblar, Ham, Rokk í Reykjavík og Geislavirkir Utangarðsmenn eru nú horfnir af lista. Hvað sem það svo segir manni nema þá kannski að sögufræg pönkgigg í Kópavogsbíó í denn eru á leið inn í gleymskunnar dá?"

  Þarna er vísað til hinnar skemmtilegu bloggsíðu www.this.is/drgunni.  Verra er að þarna gætir ónákvæmni.  Fræbbblar,  Ham,  Rokk í Reykjavík og  Geislavirkir  Utangarðsmanna eru fráleitt horfnir af lista.  Að vísu eru þessar hljómsveitir og platan  Rokk í Reykjavík  ekki í neinu af 20 efstu sætum.  Þannig að texti Jakobs Bjarnar Grétarssonar er ekki beinlínis rangur - ef miðað er við 20 efstu sætin.  Hinsvegar er platan  Geislavirkir  með Utangarðsmönnum í 21.  sæti,  Rokk í Reykjavík  í 32. sæti og  Lengi lifi  með Ham í 39.  sæti.  Sjá:  http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/898725/.

  Til að gera sér grein fyrir stöðunni þarf að hafa í huga að frá því rokkbók Dr. Gunna kom út hafa rutt sér leið í efri sæti nýrri plötur með Sigur Rós,  Emilíönu Torríni og Mugison.  Það er þess vegna rökrétt - en kannski ekki sanngjarnt - að pönkið sígi örlítið á listanum.   

  Á myndbandinu hér fyrir ofan flytja Fræbbblarnir frábæru eitt af lögum sínum í  Rokki í Reykjavík.  Athugið að það er heppilegra að smella bara einu sinni á myndbandið.  Ef tvísmellt er á það kemur upp "error".   Svo er bara að stilla hátalara á hæsta styrk.  Hér er annað myndband með Fræbbblunum úr  Rokki í Reykjavík:

  Og hér eru Fræbbblarnir 27 árum síðar að kráka lag frá bandarísku pönksveitinni The Ramones,  KKK took my Baby Away:


Saga bresku pönkbyltingarinnar XI

 

  Síðsumars 1977 var sala á pönkplötum orðin það mikil að í umferð voru settar ólöglegar (bútlegg) plötur með Sex Pistols og The Clash í breskum plötubúðum.  Þær mokseldust þrátt fyrir að löglegir plötuútgefendur þessara hljómsveita reyndu allt sem í valdi þeirra stóð til að stöðva eða hindra ólöglegu plöturnar.  Það var ekki við neitt ráðið.  Spurn eftir pönkplötum var slík.  Jafnframt streymdu inn á markað plötur frá nýjum pönksveitum. 

  Um haustið 1977 sló pönksveitin The Adverts í gegn með laginu  Gary Gilmore´s Eyes.  Þar var vísað til raunverulegs atburðar er augu úr morðingja voru grædd í áður sjónlausa manneskju.  Trommuleikari The Adverts tók saman við íslenska konu,  flutti til Íslands og hefur verið búsettur hér síðan. Að því er ég best veit.  Ég man ekki nafn hans og nenni ekki að "gúgla" það. Áður hafði The Adverts sent frá sér eina smáskífu sem fór hljótt.  Gaye Adverts varð fyrst margra ágæta kvenbassaleikara pönksins.
  The Adverts sendi frá sér tvær hressilegar breiðskífur og síðar voru gefnar út 3 hljómleikaplötur með The Adverts.
.
  Írsk pönksveit,  Bommtown Rats,  kom til sögu með laginu  Looking After Number One.  Nafnið Boomtown Rats var sótt í gengi í skáldsögu föður bandarískrar þjóðlagamúsíkur,  Woodys GuthriesBound for Glory.  Tenging breska pönksins við Woody Guthrie var víðtækari því forsprakki The ClashJoe Strummer,  var forfallinn Woody Guthrie aðdáandi.  Kallaði sig meira að segja á tímabili Woody. 
  Til gamans má geta að Bubbi MorthensMikki Pollock og Megas voru/eru einnig undir miklum áhrifum frá Woody Guthrie.  Vinsælt lag Bubba,  Synetta,  er sótt í smiðju Woodys og einnig  Það er gott að elska.  
  Síðar sló Boomtown Rats rækilega í gegn á heimsvísu með leiðinda ballöðunni  I Don´t Like Mondays.  Söngvarinn;  Bob Geldof, varð alþjóðleg stjarna þegar hann samdi lagið  Do They Know it´s Christmas? og gaf það út undir nafni samstarfsverkefnisins  Band Aid og skipulagði Live Aid  hljómleika í kjölfarið.  Hann tók saman við sjónvarpsstjörnu sem varð ennþá frægari er hún tók saman við ástralska rokkstjörnu,  söngvara INXS.  Sá varð mikið frægur er hann drap sig við sjálfsfróun með einhverskonar kæfiaðferð sem fór úr böndum. 
.
.
  Breska pönksveitin Generation X  sendi í ágúst 1977 frá sér smáskífuna  Your Generation.  Generation X var afsprengi hljómsveitanna Chelsea og Throbbing Gristle.  Í síðarnefndu hljómsveitinni voru pönkarar sem síðar urðu frægir sem Psychic TV og þar var innanborðs íslenski hljómborðsleikarinn Hilmar Örn Hilmarsson, alsherjargoði Ásatrúarfélagsins.  Í Gen X var líka bassaleikarinn Tony James sem var með Mick Jones,  gítarleikara The Clash, í London SS og síðar í Sigue Sigue Sputnik.  Þeir eru í dag saman í hljómsveit sem ég man ekki hvað heitir.  Söngvari Gen X,  Billy Idol,  varð síðar alþjóðleg rokkstjarna og frægur dópisti.  Lagið  Your Generation  var útúrsnúningur og ádeila á lag The WhoMy Generation
.

Samanburður á listum yfir bestu íslensku plöturnar - og fleiri vangaveltur

  Ég er drjúgur yfir að hafa í síðustu færslu spáð rétt til um 3 efstu sætin á listanum yfir bestu íslensku plöturnar sem var opinberaður á rás 2 í dag.  Jafnframt var ég sjóðheitur í spánni um plötuna í 4.  sæti.  Hún lenti í 6.  sæti.  Það er innan skekkjumarka. 

  2001 stóð Dr.  Gunni fyrir samskonar leit að bestu íslensku plötunum.  Þann lista birti hann í bókinni  Eru ekki allir í stuði?.  Ég lék sama leik 1983 og birti í Poppbókinni.  Það er gaman að bera þessa misgömlu lista saman.  Sumar plötur halda svipaðri stöðu.  Aðrar verða heitari með hverju ári á meðan staða nokkurra fer kólnandi.

  Staða platnanna í bók Dr.  Gunna er í fremri sviganum og staðan í  Poppbókinni  er í seinni sviganum.  Í  Poppbókinni  náði listinn aðeins yfir 25 bestu plöturnar.  Það skýrir að nokkru hvers vegna sumar plötur neðar á listanum komust ekki á blað þar.  Margar aðrar plötur á listanum í dag voru ekki komnar út fyrir 26 árum.   

  Til frekari glöggvunar eru þær plötur auðkenndar með rauðum lit sem halda sinni stöðu eða hækka á listanum.  Plötur sem falla um meira en 10 sæti eru auðkenndar með bláum lit.

  Á rás 2 kom fram að Morgunblaðið hafi staðið fyrir leit að bestu íslensku plötunni fyrir nokkrum árum.  Því miður hef ég þann lista ekki undir höndum.

ágætis byrjunlifuná bleikum náttkjólum

  1. (1)   (-)   Ágætis byrjun - Sigur Rós  1999
  2. (5)   (4)   Lifun – Trúbrot  1971
  3. (3)   (1)   Á bleikum náttkjólum - Megas & Spilverk þjóðanna   1977
  4. (12) (23) Hinn íslenzki Þursaflokkur – Þursaflokkurinn   1978
  5. (4)   (3)   Sumar á Sýrlandi – Stuðmenn   1975
  6. (2)   (-)   Debut – Björk   1993
  7. (13) (-)  Gling-Gló - Björk Guðmundsdóttir & Tríó Guðmundar Ingólfssonar   1990
  8. (7)   (2)  Ísbjarnarblús - Bubbi Morthens   1980
  9. (-)   (-)  Með suð í eyrum við spilum endalaust – Sigur Rós   2008  
  10. (11) (9)  Sturla - Spilverk þjóðanna   1977
  11. (-)   (-)  Me And Armini - Emilíana Torrini   2008
  12. (16) (-)  Hana nú - Vilhjálmur Vilhjálmsson   1977
  13. (-)   (-)  Fisherman's Woman - Emilíana Torrini   2004
  14. (10) (-)  Life's Too Good – Sykurmolarnir   1988
  15. (8)   (-)  Með allt á hreinu – Stuðmenn og Grýlurnar   1982
  16. (30) (-)  Einu sinni var – Vísur úr Vísnabókinni - Björgvin Halldórsson og Gunnar Þórðarson   1976
  17. (29) (-)  Lög unga fólksins – Hrekkjusvín   1977
  18. (9)   (-)  Kona - Bubbi Morthens   1985
  19. (-)   (-)  Mugimama is this monkeymusic – Mugison   2004
  20. (-)   (-)  Takk - Sigur Rós   2005
  21. (7)   (7)  Geislavirkir – Utangarðsmenn   1980
  22. (28) (-)  Í gegnum tíðina - Mannakorn    1977
  23. (39) (-)  Jet Black Joe - Jet Black Joe    1992
  24. (21) (-)  Hljómar - Hljómar    1967
  25. (36) (-)  Loftmynd - Megas   1987
  26. (-)   (-)  Mugiboogie – Mugison   2007
  27. (-)   (-)  Bein leið - KK Band   2003
  28. (24) (-)  Þursabit - Þursaflokkurinn   1979 
  29. (17) (-)  Megas - Megas   1972
  30. (23) (12) Breyttir tímar - Egó   1982
  31. (22) (-)  Tívolí - Stuðmenn   1976
  32. (18) (13) Rokk í Reykjavík – Ýmsir   1982
  33. (-)   (-)  Allt fyrir ástina - Páll Óskar   2007
  34. (25) (10) Mjötviður mær – Þeyr   1981
  35. (27) (-)  Kafbátamúsík - Ensími   1998
  36. (20) (-)  Post - Björk   1995
  37. (52) (-)  Mannakorn – Mannakorn   1975
  38. (-)   (-)  Hljóðlega af stað – Hjálmar   2004
  39. (14) (-)  Lengi lifi - Ham   1996
  40. (41) (-)  Í mynd - Egó   1982 
  41. (-)   (-)  Hjálmar - Hjálmar   2005
  42. (-)   (-)  Spilverk þjóðanna - Spilverk þjóðanna   1975 
  43. (-)   (-)  Systkinin syngja saman - Elly Vilhjálms og Vilhjálmur Vilhjálmsson   1969
  44. (15) (-)  Homogenic - Björk   1997 
  45. (38) (-)  Millilending - Megas   1975
  46. (40) (18) Ekki enn - Purrkur Pillnikk   1981 
  47. (-)   (-)  Halldór Laxness - Mínus   2003 
  48. (66) (-)  Trúbrot - Trúbrot   1969
  49. (34) (-)  Todmobile - Todmobile   1990 
  50. (-)   (-)  Sleepdrunk Seasons - Hjaltalín   2008 
     
  51.   Athygli vekur að plöturnar í 30 efstu sætunum á lista Dr.  Gunna eru allar á þessum lista nema tvær.  11 af 23 efstu plötunum í  Poppbókinni  eru sömuleiðis á listanum þrátt fyrir allan þann fjölda platna sem bæst hafa í hópinn á þessum rösklega aldarfjórðungi.  Af 7 plötum sem falla mest voru aðeins 2 í Poppbókinni.

      Elsta platan er frá 1967,  Hljómar.  Þær eru bara 3 plöturnar frá þeim áratug.  Ég einkenni tímabilið '67 - '79 með grænu ártali (15 útgefnar ´71 - ´79).  1980 urðu afgerandi kaflaskipti og uppstokkun í íslenskri músík.  Tímabilið ´80 - ´99 er einkennt með bleikum ártölum (20 plötur).  Það eru engar plötur frá árunum 2000 - 2002 á listanum.  Yngri plötur eru einkenndar með blásvörtum ártölum (12 plötur).  Að óreyndu hefði mátt ætla að mun fleiri plötur væru frá síðustu árum.  Þær eru fólki í ferskara minni,  jafnframt því sem yngra fólk þekkir eðlilega síður til eldri platna. 

      Þegar ártöl eru skoðuð betur kemur í ljós að gjöfulustu tímabil sem skila plötum á þennan lista eru annarsvegar ´75 - ´77 (11 plötur) og hinsvegar ´80 - ´82 (8 plötur).

      Gaman væri að heyra skoðun ykkar á niðurstöðu listans og þeim plötum sem eru á upp- eða niðurleið.  Sjálfur er ég alsáttur við plöturnar í efstu sætum listans og nokkuð sáttur við listann í heild.  Þar undanskil ég að mér þykir leiðinlegt að sjá lækkandi stöðu flestra þeirra platna sem síga mest.


100 bestu íslensku plöturnar

  Á morgun (17. júní) verður afhjúpaður listi yfir 100 bestu íslensku plöturnar,  unninn í samvinnu rásar 2,  Tónlistar.is og Félags íslenskra hljómplötuútgefenda.  Ég varpa hér fram spá yfir efstu sætin og bíð síðan spenntur eftir úrslitunum.  Spá mín er þessi:

1.  Ágætis byrjun  með Sigur Rós

2.  Lifun  með Trúbroti

3.  Á bleikum náttkjólum  með Megasi og Spilverki þjóðanna.

4.  Debut  með Björk.

  Gaman væri að hlera spá ykkar um niðurstöðuna.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband