27.1.2009 | 21:52
Gleymið Björk, gleymið Sigur Rós, hér kemur Sigríður Níelsdóttir!
Sigríður Níelsdóttir er einskonar huldupoppstjarna. Fjöldinn veit ekki af henni. Hefur aldrei heyrt plötur hennar né orðið var við hana. Lög hennar eru ekki spiluð í útvarpi. Samt hefur Sigríður sent frá sér tugi platna sem innihalda hátt á þriðja hundrað frumsaminna laga. En Sigríður er ekki að trana sér fram né sinni músík. Hún gefur plöturnar út í kyrrþey.
Sigríður Níelsdóttir er um áttrætt. Poppstjörnuferill hennar hófst fyrir nokkrum árum. Þá hafði hún komist yfir einfaldan skemmtara með allskonar hljómblæbrigðum (sound effektum). Lög Sigríðar eru án texta og söngs (instrúmental). Samt segja þau mikla sögu. Túlka heilar bíómyndir, bækur, sjónvarpsframhaldsþætti og sitthvað fleira. Þar koma "effektarnir" sér vel, jafnframt því sem Sigríður á létt með að herma eftir húsdýrum jafnt sem fólki.
Sigríður einskorðar ekki sköpunargleðina við músík. Hún er einnig á kafi í myndlist. Hún klippir myndir út úr tímaritum, raðar myndunum saman og límir á spjöld. Mér er minnisstætt myndverk þar sem Sigríður hafði klippt út myndir af kransatertum og límt ofan á höfuð fólks úr annarri mynd. Kransaterturnar komu í stað hatta og gáfu til kynna að um væri að ræða prúðbúið fólk á leið til veislu. Farið að hlakka til að komast í kökurnar.
Tónlist | Breytt 29.1.2009 kl. 12:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
26.1.2009 | 21:03
Hvenær slást menn og hvenær slást menn ekki?
Í nýjasta tölublaði héraðsfréttablaðsins Frétta í Vestmannaeyjum segir frá illdeilum tveggja manna, fyrrum vinnufélaga. Annar var á gangi með fjölskyldu sinni um götur bæjarins. Þá kom hann auga á hinn manninn hinumegin við götuna. Mennirnir sýndu hvor öðrum fingur og skiptust á hrakyrðum. Í kjölfarið kom sá sem var hinumegin við götuna upp að fjölskyldumanninnum. Þeir héldu áfram að rífa kjaft. Svo fóru þeir að hrinda hvor öðrum, kýla hvorn annan í andlit og annar sparkaði í hinn. Í Fréttum segir að þessu næst hafi þeir "farið að slást".
Fjölmiðlar | Breytt 27.1.2009 kl. 18:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (27)
25.1.2009 | 17:09
Athyglisverður samanburður á rófustöppum - yfir 100% verðmunur!
Núna er þorramánuður, sem svo er kallaður í höfuðið á Þorra, langafasyni Kára, þess er ræður vindum. Á þorra borðar fólk súran hval, kæstan hákarl, hrútspunga og annan þjóðlegan veislumat í öll mál. Einn af mörgum kostum við þorramat er að það þarf ekki að elda hann. Hann er keyptur tilbúinn úti í búð.
Rófustappa er ómissandi með þorramat. Í byrjun þorra keypti ég allar tegundir af rófustöppu sem ég fann: Frá Íslensku grænmeti, Kjarnafæði, Ora og Stjörnusalati. Það kom mér í opna skjöldu að rófustöppurnar bragðast líkar hver annarri.
Þegar betur var að gáð er uppistaðan í öllum rófustöppunum gulrófur (um eða yfir 90%). Skemmtileg tilviljun. Í öllum rófustöppunum er einnig sykur, kartöflur (eða kartöfluduft) og salt.
Í rófustöppunni frá Ora er að auki mjólkurduft, jurtaolía, bindiefni (E471 og E450) og óskilgreint krydd.
Í rófustöppunni frá Kjarnafæði er líka sítrónusafi, pipar og sorbat.
Í samanburðarsmakki eru rófustöppurnar frá Kjarnafæði og Ora bestar. Það örlar á að hinar séu of sykraðar. Eina rófustappan sem var búin að skilja sig á öðrum degi eftir opnun umbúða var frá Stjörnusalati. Hinar voru alveg eins og nýjar daginn eftir.
Upplýsingar um næringargildi vantar á umbúðir frá Ora. Upplýsingar um meðhöndlun (kælivara og hvað stappan er lengi neysluhæf eftir að innsigli er rofið) vantar á umbúðir frá Íslensku grænmeti.
Vegna þess hvað rófustöppurnar bragðast líkt skiptir verðið á þeim mestu máli. Þar munar nokkru. Stöppurnar frá Ora og Kjarnafæði keypti ég í Hagkaupum en hinar í Nóatúni. Ég ætla að þessar verslanir séu í svipuðum verðflokki. Hagstæðustu kaup eru í þessari röð:
1. Kjarnafæði. 350 gr á 224 kr. Kílóverð 640 kr.
2. Stjörnusalat. 250 gr á 239 kr. Kílóverð 956 kr.
3. Íslenskt grænmeti. 220 gr á 239 kr. Kílóverð 1086 kr.
4. Ora. 300 gr á 399 kr. Kílóverð 1330 kr.
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 19:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (26)
24.1.2009 | 18:42
Færeyingar gera það gott
Helsta poppmúsíkblað Dana heitir Gaffa. Það er fríbað sem liggur frammi í verslunum og víðar. Um áramótin efndi blaðið til skoðanakönnunar á meðal lesenda sinna í svokölluðu vinsældavali. Niðurstaðan liggur fyrir og er sérlega ánægjuleg fyrir bræður okkar í Færeyjum. Lagið Backstabber með færeyska popp-pönktríóinu The Dreams var kosið 3ja besta lag liðins árs. Hér er það:
The Dreams var jafnframt kosin 4ða besta hljómsveit ársins. Plata tríósins, Den Nye By, var kosin 5ta besta platan.
Í fyrravetur náði The Dreams 2. sæti í danskri hljómsveitakeppni. Þó tríóið hafi ekki náð sigursætinu stal það senunni í þessari keppni. Danskir fjölmiðlar kepptust við að taka viðtöl við liðsmenn The Dreams. Síðan hefur tríóið komið þremur lögum í 1. sæti boogie-vinsældalista danska ríkisútvarpsins. Sá árangur og niðurstaðan í vinsældavali Gaffa staðfesta að The Dreams eru súperstjörnur í Danmörku.
The Dreams semja og syngja sín sönglög á dönsku. Með þessum fína árangri. Á sama tíma syngja danskar rokksveitir yfirleitt á ensku. Flestar með síðri árangri.
Í vinsældavali Gaffa var færeyski vísnasöngvarinn Teitur kosinn 4ði besti söngvarinn. Hann semur og syngur ýmist á færeysku eða ensku. Hér flytur hann lagið Louis Louis.
Teitur er heimsfrægasti Færeyingurinn. Myndbönd hans eru sýnd í MTV og öðrum músíksjónvarpsstöðvum um allan heim. Lög hans eru notuð í vinsælum bandarískum kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. Hann skemmtir á stórum tónlistarhátíðum og annað í þeim dúr.
Í haust valdi enski popparinn Sting lög á safnplötu til stuðnings Tíbetum. Það segir sitthvað um stöðu Teits að Sting valdi lag með honum á plötuna. Þar er Teitur í félagsskap fólks á borð við Alanis Morissette, Jackson Browne og Moby.
Plötur með Teiti fást í verslunum Pier á Íslandi (glerturninum við Smáratorg og í Korputorgi). Ég mæli sérstaklega með plötunni Káta hornið.
Eivör sendi ekki frá sér plötu í fyrra. Þess vegna er hennar nafn ekki að finna í vinsældavali Gaffa. Á undanförnum árum hefur Eivör hinsvegar rakað að sér verðlaunum og titlum í Danmörku, rétt eins og á Íslandi.
Eivör er á leið í hljómleikaferð til Hawai ásamt eistneska djasssaxófónleikaranum og snillingnum Villi Veska.
Tónlist | Breytt 2.2.2009 kl. 22:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
23.1.2009 | 02:38
Frábærlega fyndnar dýramyndir
Þessar bráðfyndnu myndir skýra sig að mestu sjálfar. Ég er samt ekki alveg að fatta þessa tvo svörtu hunda: Hvers vegna er annar þeirra að bíta í skottið á hinum? Og ofboðsleg viðbrögð þess hunds eru óvenjuleg í meira lagi. Undarleg stelling hans ræðst af því að hinn hundurinn sleppir ekki skottinu.
Það er sjaldgæft að dýr komi líðan sinni svona rækilega vel til skila með augnsvip og andlitsfettum. Þessi kisi er greinilega afar ósáttur við veru sína í vatninu.
Snjallir hundar eiga þetta til: Í stað þess að rölta 3 ferðir eftir jafn mörgum boltum þá sækja þeir alla boltana í einni ferð.
Kattarkonan er dæmi um fegrunaraðgerðir sem fara yfir strikið. Mig minnir að þetta hafi byrjað með því að konan giftist lýtalækni. Hún fékk hann til að gera eina og eina smálega aðgerð til að svipur yrði með henni og ketti hennar. Svo skildu þau hjón en kella var komin á bragðið. Hún hélt áfram að láta breyta andliti sínu í sömu átt.
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 02:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
19.1.2009 | 20:06
Svínsleg lýsing á íslenskum bankastjórnendum
Á þennan einfalda og auðskilda hátt sýna útlendir fjölmiðlar þróunarferli þeirra sem fóru - og fara ennþá - með aðalhlutverk í frjálshyggjukreppu íslensku hryðjuverkaþjóðarinnar. Þetta er ósvífin og ruddaleg útfærsla, eins og búast má við af útlendum fjölmiðlum. Góðu fréttirnar eru þær að Ísland er komið á heimskortið. Það sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir þegar 1000 milljónum króna hafði verið hent út um gluggann í vonlausa kosningabaráttu fyrir setu Íslands í öryggisráði SÞ.
Spaugilegt | Breytt 20.1.2009 kl. 18:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
18.1.2009 | 15:26
Brosleg ljósmynd
Það er ljótt að hlæja að framandi menningu. Samt verða menn að leyfa sér það einstaka sinnum. En gæta þess að grínið sé góðlátlegt og litað umburðarlyndi. Á þessari ljósmynd má sjá olíufursta frá Mið-Austurlöndum. Hann brá sér í ferðalag með eiginkonum sínum. Til að hópurinn gæti síðar meir yljað sér við upprifjun á vel heppnaðri skemmtiferð var myndavél brugðið á loft. Sá sem tók myndina af olíufurstanum að ljósmynda konur sínar heyrði olíufurstann kalla eitthvað um leið og hann smellti af. Það er ágiskun að hann hafi kallað: "Tilbúnar! Allar brosa núna!"
Óskar Þorkelsson bendir á það í athugasemd hér fyrir neðan að átt hafi verið við myndina í "fótósjopp". Ég reyndi að finna "orginalinn". Þetta var það sem fannst:
Mér finnst ég kannast við dömuna sem er næst lengst til hægri. Þó getur verið að hún sé bara svona lík einhverri sem ég þekki.
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 19:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
16.1.2009 | 20:19
Brjálað fjör á sunnudaginn
Það verður rosa fjör í Ameríku á sunnudaginn. Ekki í þeim hluta Ameríku sem stendur okkur næst, Grænlandi, eða, jú, kannski. Það er alltaf fjör á Grænlandi. En við fáum fátt að vita um það. Þess í stað fáum við að fylgjast vel með í þeim hluta Ameríku sem kallast Bandaríki Norður-Ameríku, BNA.
Á sunnudaginn verður innsetningarhátíð Husseins Obama, splunkunýs forseta BNA. Það er komin hefð fyrir því að innsetningarhátíð forseta BNA sé einskonar popphátíð. Á innsetningarhátíð Husseins verður Bruce Springsteen í aðalhlutverki. Hann mun meðal annars leiða fjöldasöng í laginu This Land is Your Land eftir föður bandaríska þjóðlagapoppsins (folk), Woody Guthrie. Aðrir sem taka lagið eru Bono (söngvari U2), John Mellencamp, Stevie Wonder, James Taylor, Sheryl Crow, Queen Latifah, Beyonce, Mary J. Blige, kántrýboltinn Garth Brooks, Josh Groban, Herbie Hancock (skólabróðir Ólafs Stephensen djasspíanista), Shakira og Will.i.am.
Þetta verður - að því er virðist - ósköp fjölskylduvæn popphátíð. Ekkert pönk né dauðarokk. Denzil Washington, Jamie Foxx og Martin Luther King III flytja stutt og hnitmiðuð ávörp.
Innsetningarhátíðin fer fram við minnisvarða Lincolns. Allir eru velkomnir - nema þeir sem hyggjast myrða Hussein. Bandaríska leyniþjónustan, CIA, ætlar að reyna að halda þeim fjarri.
Þeir sem eiga ekki heimangengt geta fylgst með beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni HBO. Popphátíðin hefst klukkan 19:00 á staðartíma.
Á myndinni efst eru Brúsi Springsteen (til vinstri) með Hussein. Hér fyrir neðan er svart-hvít mynd af John Mellencamp. Litmyndin er frá sjónvarpseinvígi Husseins og McCains. McCain hafði þann kæk að þykjast í sífellu ætla að klípa Hussein í rassinn. En guggnaði alltaf á því á síðustu stundu að láta vaða. Þess vegna var honum hafnað sem forseta.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 20:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
14.1.2009 | 19:35
Gátan leyst
Löng og margkvista horn elgstarfa hafa löngum valdið mönnum, jafnt sem konum og börnum, heilabrotum. Í fljótu bragði hefur mátt ætla að lengd hornanna sé til mikillar óþurftar. En þróun náttúrunnar lætur ekki að sér hæða. Gátan hefur verið leyst, eins og myndin sýnir:
14.1.2009 | 13:30
Íslenskar hljómsveitir þátttakendur í alþjóðlegri hljómsveitakeppni
Í ár verður í fyrsta sinn haldin á Íslandi undankeppni fyrir alþjóðlegu hljómsveitakeppnina Wacken Metal Battle. Wacken er nafn á bæ í Norður-Þýskalandi sem á hverju sumri umturnast í einn allsherjar risa þungarokksbæ þegar Wacken:Open:Air hátíðin er haldin.
Í ár munu 20 þjóðir halda undankeppnir í sínu landi og er Ísland ein af þeim. Sigursveit hvers lands fyrir sig fær þátttökurétt í lokakeppninni sjálfri á Wacken hátíðinni. Það er ekki amalegt að hugsa til þess að loksins mun íslensk hljómsveit stíga á svið á þessari goðsagnakenndu þungarokkshátíð.
Sigurvegarar undankeppna eru valdir af dómnefnd. Á meðal dómara á Íslandi verður blaðamaður frá Hollandi, sem skrifar fyrir stærsta þungarokkstímarit Beneluxlandanna, Aardschok Magazine. Þessi maður er með sitt eigið bókunar- og umboðsskrifstofufyrirtæki. Það verður því mikill ávinningur að fá hann til landsins. Líklegt má telja að hann uppgötvi einhverja snillinga hér og bjóði þeim umboðssamning.
Sökum þess að undankeppnin mun fara fram síðar en áætlað var, hefur umsóknarfresturinn verið framlengdur til 1. febrúar en hann átti upphaflega að vera 15. janúar. Keppnin verður að öllum líkindum í apríl (í stað mars), en nánari dagsetning verður auglýst síðar.
Leitið upplýsinga hjá Þorsteini Kolbeinssyni hjá Restingmind Concerts, sími 823 4830. Restingmind hefur staðið fyrir hópferðum á Wacken:Open:Air undanfarin 5 ár í samvinnu við Livescenen í Danmörku. Í fyrra fóru næstum 100 manns á þessa hátíð frá Íslandi en nú er svo komið að það er hvorki meira né minna en uppselt á hátíðina í ár hjá söluaðilum úti - og hátíðin er ekki fyrr en í ágúst! Þó er eitthvað af miðum ennþá til hjá hópferðinni en hún tryggði sér miða áður en uppselt varð.
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
13.1.2009 | 14:08
Bestu þungarokksplötur ársins 2008
Breska tímaritið Classic Rock er málgagn gamla hefðbundna þungarokksins - eins og nafn blaðsins gefur í skyn. Áramótauppgjör blaðsins er til samræmis við það. Þess vegna er alltaf forvitnilegt að sjá val plötugagnrýnenda blaðsins á bestu plötum ársins. Það er pínulítið á skjön við áramótauppgjör annarra músíkblaða. Þessar plötur röðuðu sér í efstu sætin yfir bestu plötur ársins 2008:
1. AC/DC: Black Ice
2. Metallica: Death Magnetic
3. Guns N´ Roses: Chinese Democracy
4. Black Stone Cherry: Folklore & Superstition
5. Airbourne: Runnin´ Wild
Þessar plötur og flestar aðrar á listanum voru fyrirsjáanlegar þar. Meiri athygli vekur að neðar á listanum er plötur sem ekki tilheyra þungarokkinu: Tell Tale Signs með Bob Dylan og Dig, Lazarus, Dig! með Nick Cave & The Bad Seeds. Einnig er á listanum platan Live at Shea Stadium með pönksveitinni The Clash, sem hætti fyrir næstum aldarfjórðungi.
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
11.1.2009 | 23:10
Jack Bruce hraunar yfir Led Zeppelin
Skoski söngvarinn, bassaleikarinn og lagahöfundurinn Jack Bruce er þekktur fyrir hroka, kjafthátt og frekju. Á árum áður átti hann til að veitast að meðspilurum sínum í hljómsveitum með barsmíðum. Hann hefur víst lagt af þann sið, tæplega sjötugur. Jack er þekktastur fyrir að hafa leitt blús-rokktríóið Cream 1966 - ´68. Meðal annarra sem hann hefur spilað með eru Manfred Mann, Frank Zappa, Michael Mantlier, Ringo Starr og John Mayall´s Bluesbreakers. Bara svo fáir séu nefndir.
Í nýjasta hefti breska rokkblaðsins Classic Rock getur kallinn ekki leynt afbrýði sinni út í Led Zeppelin:
"Allir eru að tala um Led Zeppelin - og þeir komu fram á einum fjandans hljómleikum. Einum lélegum hljómleikum. Á sama tíma túruðum við í Cream vikum saman og héldum hvarvetna góða hljómleika. Ekki lélega eins og Led Zeppelin, sem þurftu að lækka sig um tónhæð og hvaðeina. Við fluttum öll okkar lög í upphaflegri tónhæð.
Fjandinn hirði Led Zeppelin; þið eruð drasl. Þið hafið alltaf verið drasl og þið verðið aldrei neitt annað. Gallinn er sá að fólk gleypir við draslinu sem því er selt. Cream var tíu sinnum betri hljómsveit en Led Zeppelin.
Ætlar einhver að líkja vesalingnum Jimmy Page við Eric Clapton? Svoleiðis samanburður er út í hött. Eric er góður (gítarleikari) en Jimmy er lélegur. Eini frambærilegi náunginn, eini gaurinn sem gat eitthvað í Led Zeppelin er dauður."
Ljósmyndin hér að ofan er af Cream. Jack Bruce er lengst til vinstri. Á myndbandinu hér fyrir neðan flytja Cream eitt sitt þekktasta lag, Sunshine of your Love. Cream var frábær hljómsveit og hafði töluverð áhrif á þróun blúsrokksins yfir í þungarokk. Það breytir engu um að Led Zeppelin var besta hljómsveit rokksögunnar.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 23:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (35)
9.1.2009 | 22:53
Skúbb! Uppselt á Bubba
Laugardaginn 31. janúar heldur Bubbi hljómleika í Norðurlandahúsinu í Þórshöfn í Færeyjum. Norðurlandahúsið í Þórshöfn er einstaklega glæsilegt - aldeilis frábær arkítektúr - og mun rúmbetra en Norræna húsið í Reykjavík. Stærsti salurinn í Norðurlandahúsin í Þórshöfn tekur um 200 manns í sæti. Það seldist upp á hljómleika Bubba "á no time". Vegna eftirspurnar hefur öðrum hljómleikum með Bubba verið bætt við sunnudaginn 1. febrúar.
Bubbi er stórt nafn í Færeyjum. Það líður vart sá dagur að lög með Bubba séu ekki spiluð í færeyskum útvarpsstöðvum. Sennilega er Það er gott að elska mest spilaða lagið með Bubba í Færeyjum. Talað við gluggann er einnig þekkt lag með Bubba í Færeyjum. Það var "krákað" (coverað) á plötu, Hinumegin ringveginn, með einu hæst skrifaða söngvaskáldi Færeyja, Kára P., 1992. Sú plata fæst í Pier í glerturninum við Smáratorg og á Korputorgi. Margir aðrir Færeyingar hafa krákað lagið, bæði á plötum og þó enn fremur á hljómleikum. Þetta er "klassískur" pöbbaslagari í Færeyjum. Það er sérstök upplifum að vera á pöbbahljómleikum í Færeyjum þegar allir syngja Talað við gluggann.
1998 var ég með mitt fyrsta skrautskriftarnámskeið í Færeyjum og spurði hvort nemendur kynnu eitthvert íslenskt lag. Með það sama brast á kröftugur söngur 24 nemenda í Talað við gluggann.
Á morgun, laugardag, klukkan 16:00 mun Bubbi frumflytja í Iðnó lag um fjöldamorð nasistanna í Ísraelsher á Palestínumönnum, konum og börnum á Gaza.
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
7.1.2009 | 00:24
Óvænt uppgötvun. Ekki er allt sem sýnist!
Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 00:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (25)
3.1.2009 | 22:11
Breytingar á bloggi
Áramótin eru tíminn þegar fólk setur sér markmið. Ákveður að byrja að reykja á nýja árinu eða byrja að klæðast sokkaleistum. Áramót eru góður tími til að endurskoða og endurmeta hluti. Bloggið mitt fer ekki varhluta af því. Nú verður heldur betur breyting á því.
Ég byrjaði að blogga fyrir einu og hálfu ári. Þá hafði ég aldrei lesið blogg og vissi ekkert um blogg. Fram að þeim tíma höfðum við bræðurnir og systursynir skipst daglega á "reply to all" tölvupósti. Aðallega til að spjalla um músík. En einnig til að benda hver öðrum á sitthvað broslegt sem við rákumst á í fjölmiðlum, rifja upp sögur af afa eða Önnu frænku á Hesteyri, ræða um pólitík og bara sitthvað. Stundum var tölvupósturinn þess eðlis að hann var áframsendur til fleiri.
Bloggið átti að vera framhald á minni þátttöku í "reply to all" tölvupóstinum. Eitthvað fór úrskeiðis þegar frá leið. Í stað þess að bloggið mitt væri bundið við samskipti við ættingja og vini fór það að fá 1000 - 1500 innlit á dag. Ég á ekki svo marga ættingja og vini.
Þessu hefur fylgt vaxandi fjöldi óska um að ég veki athygli á einu og öðru á blogginu. Auglýsi þetta og fjalli hitt. Sumar vikur hafa allt upp í 8 af hverjum 10 bloggfærslum mínum komið til á þennan hátt. Þessu hafa fylgt heilmikil tölvupóstsskipti og ennþá fleiri símtöl. Ekki síður frá ókunnugum en fólki sem ég þekki. Pósturinn og símtölin hefjast alltaf á orðunum: "Af því að það eru svo margir sem lesa bloggið þitt..."
Ekki misskilja mig. Það er gaman að vera í aðstöðu til að hjálpa fólki. Það er líka gaman að vera í samskiptum við fólk. Á hinn bóginn hefur þetta leitt til þess að alltof mikill tími fer í bloggið. Sú er ástæðan fyrir því að ég ætla að fækka verulega innlitum á bloggið mitt. Það geri ég með því að láta fara minna fyrir mér og mínu bloggi. Einkum með því að blogga sjaldnar, hafa bloggfærslurnar "látlausari", tengja ekki við fréttir o.s.frv.
Annað: Munið að kjósa í skoðanakönnun um best jólalagið hér vínstra megin á síðunni.
Vefurinn | Breytt 5.1.2009 kl. 21:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (55)
1.1.2009 | 22:14
Broslegar kreppuauglýsingar
Núna þegar þrengir ört í búi hjá íslensku hryðjuverkaþjóðinni er gott að búa sig undir frekari þrengingar með því að skoða þessar auglýsingar frá fátæku fólki sem reynir að gera sér pening úr hverju sem er. Vissulega broslegar auglýsingar í augum okkar á meðan við eigum ennþá til hnífs og skeiðar. En þess verður ekki langt að bíða að við sjáum svona auglýsingar í íslenskum blöðum.
Hér er notaður legsteinn til sölu. Hann er sagður henta best fyrir þann sem heitir Homer Hendel Bergen Heinzel. Aðeins eitt eintak. til sölu.
Sett af lítið notuðum gervigómum til sölu. Aðeins 2 tennur vantar.
Rúmdýna í fullri stærð. 20 ára ábyrgð. Eins og ný. Örlar á hlandlykt.
Kalkúni til sölu. Að hluta til snæddur. Aðeins 8 daga gamall. Báðir leggir ósnertir.
Spaugilegt | Breytt s.d. kl. 22:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
1.1.2009 | 19:46
Takið þátt í skoðanakönnun um besta jólalagið
Fyrir nokkru óskaði ég eftir tillögum um besta íslenska jólalagið. Góður fjöldi tillagna barst. En aðeins fjögur lög voru tilnefnd af fleiri en einum. Þau lög hef ég nú sett upp í formlega skoðanakönnun hér til vinstri á síðunni. Ykkur er velkomið að nefna til sögunnar fleiri íslensk jólalög. Ef þau eru studd af fleirum bæti ég þeim þegar í stað í könnunina.
Ég óskaði einnig eftir tillögum um leiðinlegasta íslenska jólalagið. Eitt lag reyndist pirra flesta umfram önnur, Jólahjól með Sniglabandinu. Niðurstaðan í því var svo afgerandi að önnur lög eiga ekki möguleika. Það lag náði þó einnig inn í formlegu skoðanakönnunina um besta jólalagið.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 19:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
1.1.2009 | 15:23
Færeysku tónlistarverðlaunin
Í árslok gerði færeyska netsíðan Planet upp tónlistarárið 2008 með stæl. Planet er í eigu sömu aðila og reka aðra af tveimur einkaútvarpsstöðvum í Færeyjum, Rás 2, (hin einkastöðin er Lindin, kristileg útvarpsstöð) og söluhæsta dagblað eyjanna, Sósialin (með einu n). Planet gerði tónlistarárið upp með því að verðlauna við hátíðlega athöfn þá sem sköruðu framúr á árinu.
Húllumhæið var sent út í beinni á Rás 2. Lena Andersen (til vinstri á mynd) var verðlaunuð sem söngkona ársins. Einhverjir ráku upp stór augu við að verðlaunin féllu ekki Eivör í skaut. Eivör sendi hinsvegar ekki frá sér plötu á árinu. Það munaði öllu.
Ekki svo að skilja; Lena er góð söngkona og magnaður lagahöfundur. Til viðbótar er hún afskaplega flott á sviði. Hún hélt vel heppnaða hljómleika hérlendis, á Nasa og Grand Rokk, fyrir 3 árum. Plötur hennar seljast þokkalega í Kanada og Danmörku. Og hún er stórt nafn í Færeyjum.
Poppaða pönktríóið The Dreams var kjörið hljómsveit ársins. The Dreams syngja á dönsku og njóta vinsælda í Danmörku. Það er broslegt með hliðsjón af því að danskar rokksveitir syngja á ensku. The Dreams hafa komið 3 lögum í efsta sæti vinsældalista DR (danska ríkisútvarpsins), hrepptu 3ja sæti í hljómsveitakeppni MTV og áttu lag í úrslitakeppni Dana í júrivisjón.
Jens Marni hlaut verðlaun fyrir bestu plötuna og einnig sem besti söngvarinn. Jens er gamalreyndur söngvari úr hljómsveitum á borð við Kjöla, All the Rain og Showmen. Hann er stundum kallaður færeyskur Brian Adams.
Coldplay var verðlaunuð sem besta útlenda hljómsveitin.
Færeyska ríkisútvarp/sjónvarp gerði upp árið með hávaða og látum, svokölluðu Stjörnukasti sem var sjónvarpað og útvarpað í beinni. Áheyrendur kusu víkingarokkarana í Tý poppstjörnur ársins. Bæði hljómsveitir og einstaklingar voru í kjöri.
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.1.2009 | 00:10
ÁRIÐ, IÐ FER
31.12.2008 | 22:11
Bráðnauðsynlegt að vita og kunna
Hangikjöt hefur verið þjóðarréttur Íslendinga lengur en elstu menn muna. Ennþá lengra er síðan hangikjöt varð þjóðhátíðarréttur Íslendinga. Samt er það svo að Íslendingar eru rétt nýbyrjaðir að átta sig á hvernig best er að matreiða hangikjöt. Frumskilyrði þess að útkoman heppnist er að hangikjötið sé alvöru hangikjöt. Ekki eitthvað helvítis saltsprautað plat hangikjöt. Gangið úr skugga um að hangikjötið sé kofareykt eða taðreykt.
Hangilæri er best. Frampartur er næst bestur. Þannig er staðið að matreiðslunni:
- Hangikjötið er sett í pott. Potturinn þarf að vera það stór að hangikjötið komist ofan í hann. Hellið með gusugangi ísköldu kranavatni (alls ekki kolsýrðu vatni úr flösku) yfir þar til það hylur kjötið. Setjið pottinn á nálæga eldavélahellu. Stillið á lágan styrk. Látið suðuna koma rólega og æsingslaust upp á klukkutíma og 7 mínútum. Lesið ævisögu Önnu á Hesteyri á meðan. Slökkvið eldsnögg á hellunni um leið og suðan kemur upp.
- Látið kjötið kólna í pottinum undir loki. Látið einhvern annan ganga úr skugga um að vatnið í pottinum sé orðið kalt. Þó ekki kaldara en inni í eldhúsinu. Þá er kjötið tilbúið til neyslu. Reyndar er kjötið best daginn eftir. En svangir magar hafa ekki þolinmæði til að bíða. Síst af öllu þegar ilmandi hangikjötslyktin æsir upp hungrið.
Berið hangikjötið fram og til baka með uppstúf, soðnum kartöflum, grænum baunum, rauðkáli, laufabrauði og 12 kippum af vel kældum jólabjór.
Uppstúf
52 g | smjör |
49 g | hveiti |
1 l | mjólk |
½ tsk | salt |
1-3 msk | sykur (fer eftir því hvað matskeiðarnar eru stórar) |
ögn | hvítur pipar |
- Bræðið smjörið í potti, hrærið hveitinu saman við, þannig að úr verði smjörbolla.
- Bætið mjólkinni ofur varlega í og hrærið uns leðjan er kekkjalaust. Látið sjóða í nokkrar mínútur og hrærið ofsafengið í á meðan.
- Kryddið með salti, sykri og pipar.
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 22:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)