31.12.2008 | 17:07
Almenningur styđur mótmćlendur
Val hlustenda rásar 2 á söngvaranum, gítarleikaranum, söngvaskáldinu og leikstjóranum Herđi Torfasyni sem manni ársins er vísbending um ađ almenningur á Íslandi styđji mótmćlafundina sem Hörđur hefur stađiđ fyrir. Atkvćđin dreifđust yfir á 130 manns. Hörđur fékk 20% atkvćđanna. Hann hefur alltaf hvatt til ţess ađ mótmćlin fari friđsamlega fram.
Í öđru sćti var handboltaliđ sem líka mćtti á útifund. Ţar var ţađ blessađ af forsetanum, borgarstjóranum og ýmsum stjórnmálamönnum. Ţar á međal menntamálaráđherra, Ţorgerđi Katrínu Gunnarsdóttur. Hún fékk 1 atkvćđi í valinu á manni ársins.
Nćstir boltaköllunum í atkvćđamagni voru međal annars Vilhjálmur Bjarnason, formađur Samtaka fjárfesta; Björk Guđmundsdóttir og Ólafur F. Magnússon, fráfarandi borgarstjóri.
.
.
![]() |
Mótmćlin áttu ađ vera friđsamleg |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:14 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (18)
31.12.2008 | 14:20
Gjöfulasta tímabil íslensku rokksögunnar - Úrslit í skođanakönnun
Ađ undanförnu hef ég haldiđ úti skođanakönnun um besta og frjóasta tímabil íslensku rokksögunnar. Röđin á tímabilunum hefur ekkert breyst frá ţví greidd atkvćđi voru innan viđ 100. Nú hafa 580 atkvćđi skilađ sér í hús og engin ástćđa til ađ halda könnunni lengur í gangi. Niđurstađan er ţessi:
1. Bubba-byltingin/Rokk í Reykjavík (Utangarđsmenn, Frćbbblarnir, Tappinn...) 32,2%
2. Hippatímabiliđ (Trúbrot, Náttúra, Eik...) 20,9%
3. Bítlatímabiliđ (Hljómar, Dátar, Óđmenn...) 18,4%
4. Upphafsárin á sjötta áratugnum (KK, Siggi Johnny, Ţorsteinn Eggerts, Raggi Bjarna...) 14,8%
5. Harđkjarninn (Mínus, Bisund, I Adapt, Gyllinćđ...) 5,2%
6. Gruggiđ (Botnleđja, Noise...) 4,8%
7. Rappiđ (Rottweiler, Quarashi, Sesar A...) 3,6%
Ţarna var ekki veriđ ađ velja hljómsveitirnar sem slíkar heldur tímabiliđ. Nöfn hljómsveitanna eru einungis höfđ međ til ađ auđvelda kjósendum ađ stađsetja tímabiliđ. Gaman vćri ađ heyra viđhorf ykkar til útkomunnar.
Nćst set ég inn skođanakönnun um besta íslenska jólalagiđ. Ţiđ ykkar sem hafiđ ekki ţegar komiđ međ tillögu um besta jólalagiđ megiđ endilega nefna uppáhalds jólalagiđ ykkar. Lagiđ verđur ađ vera íslenskt. Lög úr nýafstađinni jólalagakeppni rásar 2 eru ekki gjaldgeng.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 14:37 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (13)
30.12.2008 | 22:41
Bestu plötur ársins 2008
Fréttablađiđ fékk nokkra tónlistarmenn og áhugafólk um tónlist til ađ velja bestu íslenskar plötur ársins 2008. Útkoman er verulega áhugaverđ. Ekki síst vegna ţess ađ nokkrar íslenskar plötur sem komu út á árinu eru jafnframt áberandi í áramótauppgjöri helstu tónlistarblađa heims. Samkvćmt niđurstöđu Fréttablađsins eru eftirfarandi plötur ţćr bestu sem komu út hérlendis 2008:
1. Sigur Rós: Međ suđ í eyrum viđ spilum endalaust
2. FM Belfast: How to make Friends
3. Dr. Spock: Falcon Christ
4. Lay Low: Farewell Good Night´s Sleep
5. Mammút: Karkari
6. Sin Fan Bous: Clangour
7. Emilíana Torríni: Me and Amini
8. Retro Stefson: Montana
9. - 10. Celstine: At the Borders of Arcadia
9. - 10. Reykjavík!: The Blood
11. Bang Gang: Ghosts from the Past
12. - 13. Bragi Valdimar & Memfismafían: Gilligill
12. - 13. Jeff Who?: Jeff Who?
14. Morđingjarnir: Áfram Ísland!
15. - 17. Bob Justman: Happiness and Woe
15. - 17. Motion Boys: Hang on
15. - 17. The Viking Giant Show: The Lost Garden of the Hooligans
Gaman vćri ađ hlera viđhorf ykkar til bestu platna ársins 2008. Ég var einn af álitsgjöfum Fréttablađsins og er afar sáttur viđ niđurstöđuna. Hún er mjög svo til samrćmis viđ mína skođun á bestu plötunum. Ég veit ekki alveg hvernig á ađ meta eđa taka ţví ađ ég er lang elstur álitsgjafanna. Kominn vel á sextugsaldur á međan hinir álitsgjafarnir eru nýlegar fermdir krakkar. En samt gaman ađ fá ađ vera međ.
Ég kvitta glađur undir allar plöturnar í 10 efstu sćtunum. Ég ćtlađi ađ hafa plötu Celestine á mínum lista. En klúđrađi ţví. Ég hef grun um ađ platan hafi ekki veriđ í Plötutíđindum ţannig ađ mér yfirsjást hún ţegar á reyndi. Ţeim mun meira gaman er ađ hún skuli hafa náđ inn á Topp 10. Frábćr hljómsveit og frábćr plata.
Plata Dr. Spock var í 1. sćti hjá mér og plata Sigur Rósar nr. 2. Spockararnir eru yndislega hressilegir og pönkađir rokkarar. Ég er mikill Sigur Rósar ađdáandi en fyrir minn smekk poppađist hljómsveitin um 1 gráđu međ nýju plötunni. Samt ekki um of. Stórkostleg hljómsveit á heimsmćlikvarđa. Og platan er hjá mér inni á Topp 5 lista yfir bestu plötur heims ársins 2008.
Í DV í dag var birtur listi yfir bestu plöturnar 2008. Hann var skemmtilega samhljóđa listanum í Fréttablađinu. Ég hlakka til ađ sjá lista Morgunblađsins yfir bestu plöturnar. Mér segir svo hugur ađ hann verđi sömuleiđis til samrćmis viđ lista Fréttablađsins.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 23:22 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (18)
30.12.2008 | 14:15
Mađur ársins á Útvarpi Sögu
Viđskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 14:16 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (15)
30.12.2008 | 04:34
Ólafur F. Magnússon - mađur ársins á rás 2
Á rás 2 stendur nú yfir leit ađ manni ársins 2008. Hlustendur hringja inn og greiđa atkvćđi. Gríđarlega öflug stemmning er fyrir ţví ađ Ólafur F. Magnússon, fráfarandi borgarstjóri, verđi kosinn mađur ársins. Stuđningurinn viđ ađ Ólafur F. verđi mađur ársins er algjörlega ţverpólitískur. Fólk - meira ađ segja hátt sett - úr öllum flokkum vill á ţennan hátt ţakka Ólafi F. fyrir stađfestu og seiglu viđ ađ standa vörđ um flugvöllinn í Vatnsmýri. Sömuleiđis fyrir skelegga vörn hans gegn ţví ađ hin ágćta sorphirđa Reykjavíkur fćri í rugl.
Ţeir sem kjósa Ólaf F. Magnússon mann ársins 2008 ţurfa ađ hringja í síma 5687123. Ađrir geta hringt eitthvađ annađ. Til dćmis í 0001234. Eđa bara eitthvađ.
27.12.2008 | 16:30
Flottasti söngvari heims átti flottasta afmćli heims
Írsk-ćttađi Lundúnarbúinn, ţjóđlagapönkssöngvarinn, söngvasmiđurinn og banjóleikarinn Shane MacGowan átti afmćli í fyrradag. Ađ óreyndu hélt ég ađ íslensku dagblöđin myndu gera kauđa góđ skil á afmćlisdaginn. En ţađ var öđru nćr. Ţau komu ekki einu sinni út. Ţađ kemur ţví í minn hlut ađ heiđra afmćlisbarniđ. Ţađ er ekki á hverjum degi sem Shane MacGowan verđur 51. árs.
Shane er best ţekktur sem söngvari ţjóđlagapönkssveitarinnar The Pogues. Í ađdraganda jólanna varđ ég var viđ ađ margir bloggarar settu inn á blogg sitt jólalagiđ The Fairytale of New York međ The Pogues. Höfundur ţess er Shane MacGowan. Ţetta lag hefur veriđ krákađ (coverađ) međ íslenskum texta af Fálkum, Ragnheiđi Gröndal og Sigurđur Guđmundssyni. Ég er ekkert ađ setja ţađ lag inn hér heldur smá bút af viđtali sem Shane ćtlađi ađ veita finnskum sjónvarpsmanni eftir vel heppnađa hljómleika. Eins og algengt er međ slík viđtöl brast Shane á međ söng. Tönnum hefur fćkkađ til muna í gómum Shanes síđan ţessi upptaka átti sér stađ.
Hér flytja Shane og The Pogues lagiđ Dirty Old Town. Ţrátt fyrir ađ ţetta lag megi finna á flestum plötum merktum vinsćlustu írsku pöbbasöngvum er höfundur ţess skoskur. Hann hét Ewan McColl og er ţekktastur sem höfundur lagsins The First Time Ever I Saw Your Face. Bandaríska söngkonan Roberta Flack kom ţví á topp bandaríska vinsćldalistans fyrir margt löngu. Ótal margir ađrir hafa sungiđ ţađ inn á plötur. Međal annars Elvis Presley og George Michael. Lagiđ samdi Ewan um bandaríska eiginkonu sína, Peggy Seeger. Bróđir hennar, Pete Seeger, er einn merkasti söngvahöfundur Bandaríkjanna. Međal ţekktra laga eftir hann má nefna Where Have All the Flowers Gone (Kingston Trio og flutt međ íslenskum texta af Ragnari Bjarnasyni, Elly Vilhjálms, Savanna Tríói og pönksveitinni Mosa frćnda), Turn, Turn, Turn (The Byrds) og We Shall Overcome (Joan Baez, Louis Armstrong og kántrýpönkssveitin Green on Red).
Dóttir Ewans, Kirsty McColl, tók iđulega lagiđ međ The Pogues, bćđi á hljómleikum og á plötum. Hún söng m.a. í laginu Fairytale of New York. Hún syngur einnig í myndbandinu hér ađ neđan.
Joe Strummer, söngvari og gítarleikari The Clash, gekk í The Pogues eftir ađ Shane MacGowan datt blindfullur út um bílglugga um áriđ. Hljómsveitin var í miđju hljómleikaferđalagi en Shane lenti rúmfastur á sjúkrahúsi. Hann var rekinn tímabundiđ úr hljómsveitinni.
Joe hafđi oft spilađ međ The Pogues fyrir ţennan atburđ, kunni öll lögin og átti létt međ ađ leysa Shane af. Í myndbandinu hér ađ neđan sést Joe vinda sér međ í leikinn.
Í upphafi bresku pönkbylgjunnar ţakti stór ljósmynd af blóđugum Shane forsíđu poppblađsins NME. Hún var tekin á einum af fyrstu hljómleikum The Clash. Ţar hafđi annađ eyrađ af Shane rifnađ hraustlega í fjörinu í áhorfendaskaranum.
Joe, Kirsty og Ewan McColl eru öll fallin frá. Shane er hinsvegar sprelllifandi og sprćkur - ţó hann deyi oft og iđulega áfengisdauđa.
Tónlist | Breytt 30.12.2008 kl. 20:48 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (16)
27.12.2008 | 01:08
Skemmtileg eldamennska fyrir stórfjölskylduna
Hvađ er skemmtilegra um jól og áramót en ađ stórfjölskyldan komi saman og allur hópurinn skipti međ sér verkum viđ ađ elda einiberjakryddađ lúxus lambalćri? Einn, til ađ mynda ađal töffarinn í hópnum, hefur leik á ţví ađ versla međ tilţrifum og ţokkalegum stćl eins og eitt stykki af einiberjakrydduđu lambalćri. Einhver annar sviđsetur fjörlegan leik viđ ađ finna á umbúđum ţyngd lćrisins. Ţriđja manneskjan ţarf ađ kunna á vasareikni, vinsćlustu fermingargjöf áttunda áratugarins.
Viđkomandi slćr inn á vasareikninn ţyngd lćrisins og margfaldarann x 44 mínútur á hvert kíló. Útkoman úr ţví dćmi sýnir hvađ lćriđ ţarf lengi ađ malla í skúffu eldavélarinnar.
Á međan skenkir fjórđa manneskjan heimilisfólkinu og gestum rauđvín. Fimmta manneskjan laumar - svo lítiđ ber á - skotum af Jameson viskýi (má einnig vera Jack Daniels) á liđiđ. Sjötta manneskjan ţarf ađ vera í jólasveinabúningi og dreifir jólabjór og syngja: "Hó, hó hó!" (nema fólk sé statt í Ástralíu. Ţar er bannađ međ lögum ađ segja: "Hó, hó, hó!". Ástćđan er sú ađ í enskuframburđi Ástrala er ekki munur á orđinu hóra og "Hó"). Í bakgrunni er heppilegast ađ hafa plötuna Never Mind the Bollocks međ Sex Pistols. Ţađ er best ađ hafa hana á rúmlega međalstyrk. Til tilbreytingar má líka spila plötur međ Frćbbblunum.
Ţađ skerpir á stemmningunni ađ att sé keppni í loftgítar.
Á međan lćriđ mallar kemur vel út ađ smjörsteikja niđurskornar kartöflur (eđa epli, eins og Fćreyingar kalla kartöflur) og sjóđa blandađ grćnmeti svo snöggt ađ sú eldamennska líkist töfrabrögđum - međ tilheyrandi handahreyfingum galdrakarls.
Ef einhver er nógu edrú til ađ treysta sér í ađ útbúa sósu ţá er uppskriftin ţannig:
6 dl. kjötsođ (sođ úr skúffunni, vatn og kjötkraftur)
5-6 einiber
1 tsk steinselja
2 dl rjómi
1 msk hunang
Salt og pipar
Setjiđ kjötsođ, einiber og steinselju saman í pott og sjóđiđ í 8 mín. Bćtiđ í rjóma og hunangi og bragđbćtiđ međ salt og pipar. Ţykkiđ sósuna međ sósujafnara. Syngiđ á međan yfir pottinum "Jólamađurinn kemur í kvöld" (sjá tónspilara). Gćtiđ ađ ţví ađ bera fram orđiđ "jólamađurinn" sem "jólameavurinn".
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 01:34 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (5)
25.12.2008 | 23:40
Öđruvísi útgáfa af Jólamanninum međ Geir Ólafs
Í tónspilaranum hér til vinstri á bloggsíđunni er ađ finna flutning Geirs Ólafs og mín á laginu Jólamađurinn kemur í kvöld viđ undirleik stórsveitar Vilhjálms Guđjónssonar. Lag sem Geir Ólafs söng međ fćreyskum texta nú fyrir jólin og fćrđi Fćreyingum ađ gjöf sem ţakklćtisvott fyrir ađ Fćreyingar lánuđu Íslendingum 6 milljarđa króna í erlendum gjaldeyri eftir ađ íslenska krónan ónýttist.
Upptakan á laginu í tónspilaranum er úr beinni útsendingu síđasta laugardag í ţćtti Halldórs E. og Markúsar Ţórhallssonar, Í vikulokin, á Útvarpi Sögu. Eins og heyra má kunni ég hvorki lag né texta. Sem gamall pönkari lét ég slag standa ţegar á mig var skorađ. Máliđ var ađ gera fremur en ţekkja verkefniđ. Ţetta var óćft og falskt eftir ţví. Mig munar aldrei neitt um ađ gera mig ađ fífli - viđ hvađa tćkifćri sem er. Enda ţaulvanur slíku. Geir var á hinn bóginn á heimavelli og syngur međ stćl, eins og alltaf.
Tónlist | Breytt 26.12.2008 kl. 13:24 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (20)
25.12.2008 | 14:27
Af hverju er jólakveđja Friđar 2000 skreytt merki Mercedes Benz?
Jólakveđja samtaka sem kenna sig viđ friđinn er ríkti áriđ 2000 (Peace 2000) vekur undrun. Eins og sjá má hér fyrir ofan er jólakveđjan skreytt ljósmynd af logandi kertum sem mynda merki ţýsku bíltegundarinnar Mercedes Benz. Mercedes Benz bílar eru ekki friđsamir. Einn vinur minn átti Mercedes Benz. Sá bíll var stöđugt ađ efna til ófriđar. Hann ýtti viđ öđrum bílum, nuddađi sér utan í ţá og var mjög ögrandi í alla stađi. Ađ lokum brunađi hann fram af bryggju í Nauthólsvík og mölbrotnađi ţar í stórgrýti. Flestum ţótti ţađ mátulegt á kvikindiđ.
Umhverfismál | Breytt s.d. kl. 21:24 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (20)
24.12.2008 | 22:40
Upphaf bresku pönkbylgjunnar VI
Fátt er betra á jólum en smá pönk. Í fćrslunni um fyrsta breska pönklagiđ kom fram ađ í Bandaríkjunum var til pönkhreyfing fyrir daga breska pönksins. Ţar var ekki um heiti á músíkstíl ađ rćđa heldur samheiti yfir ólíkar hljómsveitir sem spiluđu á ţáverandi djassklúbbi í New York, CBGB´s. Svo skemmtilega vildi til ađ ein ţessara hljómsveita, The Ramones, smellpassađi inn í ţann músíkstíl sem varđ til í Bretlandi 1976 og hlaut heitiđ pönk. Eftir ţađ varđ breska skilgreiningin á pönki ofan á í heimsbyggđinni. Líka í Bandaríkjunum.
Ţađ ruglađi margan góđan manninn, ekki síst margan góđan pönkarann, ađ framan af var í Bandaríkjunum pönkhreyfing sem náđi yfir hljómsveitir sem gátu engan veginn falliđ undir bresku skilgreininguna á pönki. Sumir eiga jafnvel enn í dag erfitt međ ađ skilja ţađ dćmi. Sú er ástćđan fyrir ţví ađ ég tíunda ţetta núna aftur. En einnig geri ég ţađ vegna ţess ađ The Ramones blandađist svona vel inn í breska pönkiđ. Fyrsta plata The Ramones, samnefnd hljómsveitinni, kom út sumariđ 1976. Sú plata og nokkrar smáskífur sem hljómsveitin sendi frá sér náđu á ţeim tíma ekki ađ gera neinn skurk. Í mars 1977 kom hinsvegar út plata međ The Ramones, Leave Home, sem náđi í 45. sćti breska vinsćldalistans. Ađ vísu var vandrćđagangur međ ţá plötu. Eitt lagiđ, Carbone Not Glue, ţótti hvetja til vímuefnaneyslu og var ţá fjarlćgt af plötunni. Hér eru tvö lög af plötunni: Babysitter (efra myndbandiđ) og California Sun.
Fyrri fćrslur um upphaf bresku pönkbylgjuna:
V: http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/750862/
IV: http://jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/747161
III: http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/746033/
II: http://jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/744949
Fyrsta breska pönklagiđ: http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/743999/
Bandaríska ljóđskáldiđ - og síđar Íslandsvinurinn - Patti Smith var oft kölluđ pönkdrottningin. Ţađ var út frá upphaflegri skilgreiningu í Bandaríkjunum á pönki. Músík Pattíar var strax í upphafi og alla tíđ síđar frekar róleg músík. Ljóđ hennar og/eđa textar voru óheflađir - jafnvel kjaftforir - og nýstárlegir. Ţeir lönduđu strax hlutverki í bandarískum skólaljóđum og voru sungnir inn á plötu hjá hinum sérstćđa róttćka últra-hćgri sinnađa bandaríska ţungarokkara Todd Rundgren og plötur bandarísku ţungarokkssveitarinnar Blue Oyster Cult. Samkvćmt ţáverandi skilgreiningu bandarískra fjölmiđla féll sú hljómsveit einnig undir pönk. Framan af flutti Patti ljóđ sín viđ píanóundirleik Bobs Dylans en stofnađi svo Patti Smith Group međ hljóđfćraleikurum sem einnig spiluđu í Blondie og Television.
Fyrsta plata Pattiar Smith, Horses, kom út 1975. Hún náđi 47. sćti bandaríska vinsćldalistans. Síđar náđi Patti 5. sćti breska vinsćldalistans međ laginu Because the Night. Ţađ fór í 13. sćti bandaríska vinsćldalistans. Ţetta lag samdi hún međ Bruce Springsteen. Hún kom fleiri plötum inn á Topp 20 vinsćldalista Bandaríkjanna og Bretlands.
Í mars 1976 sendi Patti frá sér smáskífuna Gloria/My Generation. Hér flytur hún síđarnefnda lagiđ. Ţađ örlar á Gyllinćđar-stemmningu. Nema ađ engin kveikti í sér og fáum hljóđfćrum var slátrađ:
Tónlist | Breytt 25.12.2008 kl. 01:02 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (3)
24.12.2008 | 17:36
Bert ein lítil jólaheilsan
Kćrar heilsanir.
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 18:34 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (8)
24.12.2008 | 12:22
Hamborgarhryggur
Algjör lúxusútgáfa af sígildum rétti. Hentar best á ađfangadagskvöldi en nćst best á öđrum jóladögum. Ţađ verđur enginn hryggur sem fćr lúxusútgáfu af hamborgarhrygg um jól og áramót.
1 stk | Hamborgarhryggur |
2 l | Rammíslenskt kranavatn |
4 flöskur | Rauđvín |
1 stk | Laukur |
1 stk | Sellerístilkur |
10 stk | Svört piparkorn |
4 stk | Negulnaglar |
- Setjiđ hamborgarhrygginn í vatn ásamt 2 dl af rauđvíni, gróft söxuđu grćnmeti, pipar og negul. Látiđ suđu koma rólega upp og sjóđiđ viđ vćgan hita í 38 mín. Sötriđ 2 - 3 glös af rauđvíni á međan.
- Takiđ hrygginn úr sođinu, látiđ kólna í 22 mín og sötriđ 1 - 2 glös af rauđvíni á međan.
Hunangsgljái
2 msk | Sćtt sinnep |
2 msk | Hunang |
2 msk | Púđursykur |
1 msk | Edik |
- Blandiđ hráefnunum í hunangsgljáann og pensliđ hrygginn međ honum. Setjiđ í 180°C heitan ofn í 16 mín. Sötriđ 1 glas af rauđvíni á međan.
- Beriđ fram međ rauđvínssósu, brúnuđum kartöflum, rauđkáli og rauđvíni.
Rauđvínssósa
7 dl | Sođ úr potti |
40 g | Hveiti |
40 g | Smjörlíki |
1 dl | Rauđvín |
1 msk | Rauđvínsedik |
1 msk | Rifsberjahlaup |
1 dl | Rjómi |
- Fleytiđ og sigtiđ sođiđ. Látiđ suđuna koma upp.
- Lagiđ smjörbollu úr smjörlíki og hveiti. Hrćriđ sođiđ rólega út í.
- Bćtiđ út í rauđvíni, ediki, rjóma og hlaupi. Látiđ sjóđa í nokkrar mín.
- Bragđbćtiđ međ svínakjötskrafti ef ţurfa ţykir.
- Sötriđ rauđvín af yfirvegun á međan sósan er löguđ og á međan veislunnar er neytt en af áfergju eftir ţađ.
Matur og drykkur | Breytt s.d. kl. 13:56 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (32)
23.12.2008 | 23:08
Lausn á getraun
Ekki í síđustu fćrslu heldur ţeirri nćstu á undan birti ég ljósmynd af torkennilegu fyrirbćri. Ţađ líktist dálítiđ flötum eđa eins og teygđum kolsvörtum broskalli međ skćrbláan munn og augu. Ţađ skrítna var ađ fyrirbćriđ sást úti í skógi. Kíkiđ á ţessa mynd áđur en ţiđ flettiđ upp á hlekk sem Óskar Ţorkelsson setti inn sem svar og sýnir einmitt svariđ á skemmtilegan hátt: http://www.metacafe.com/watch/314370/crazy_birds_island_p/
Spaugilegt | Breytt 24.12.2008 kl. 01:05 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (7)
23.12.2008 | 13:59
Ţetta eru jólabćkurnar sem ég mćli međ
Fátt er skemmtilegra og meira viđ hćfi um jól en nćra andann međ lestri ljúfra bóka. Ég er ţegar búinn ađ lesa nokkrar bćkur nú á litlu jólunum. Mér er ljúft og skylt ađ miđla af minni reynslu. Međ gleđi í hjarta get ég mćlt međ eftirfarandi bókum sem áhugaverđum og ánćgjulegum. Tekiđ skal fram ađ myndastćrđin af kápum bókanna hefur ekkert međ annađ ađ gera en í hvađa stćrđ ég á ţćr tiltćkar.
Í Gullstokkur gamlingjans rekur Vilhjálmur Hjálmarsson hugljúfar og margar skondnar ćskuminningar úr Mjóafirđi. Sjá nánar: http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/713864/
Sá einhverfi og viđ hin eftir Jónu Á. Gísladóttur er safn notalegra frásagna af einhverfum syni hennar. Sjá: http://jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/736914
Töfrum líkast - Saga Baldurs Brjánssonar töframanns er skráđ af Gunnari Kr. Sigurjónssyni. Baldur var og er fremsti töframađur Íslands. Sjá: http://jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/732693
Tabú - Ćvisaga Harđar Torfa segir frá mannréttindafrömuđinum, baráttumanninum, tónlistarmanninum, leikaranum og leikstjóranum sem breytti og er enn ađ breyta gangi sögunnar. Skrásetjari er Ćvar Örn Jósepsson. Sjá: http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/729597/
Ég hef nú sjaldan veriđ algild - Ćvisaga Önnu á Hesteyri er skemmtilegasta bók sem ég hef lesiđ til margra ára. Sjá: http://jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/751586
Eric Clapton - Sjálfsćvisaga á ekki mikiđ erindi til annarra en músíkdellufólks og ađdáenda Erics Claptons. En ţeir fá hér fyllri mynd af gítarsnillingnum sem er óvenju mikiđ ţjakađur af allskonar "komplexum" og sálarflćkjum.
Bćkur | Breytt 24.12.2008 kl. 00:28 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (7)
22.12.2008 | 23:01
Getraun
Hvađ er ţetta svarta međ bláa mynstrinu sem sést ţarna til hliđar viđ fuglinn? Spreytiđ ykkur. Leyfiđ hugmyndafluginu ađ fara á flug. Giskiđ ef ţiđ vitiđ ekki betur. Svar viđ gátunni verđur birt síđdegis á morgun (ţriđjudag).
Spil og leikir | Breytt s.d. kl. 23:13 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (11)
22.12.2008 | 12:00
Einn léttur
Amma svarar ofur rólega: "Ţetta er fyrir ađ hafa aldrei veitt mér almennilegt kynlíf í öll ţau 60 ár sem viđ höfum veriđ saman frá fermingaraldri. Bara alltaf ţetta sama lélegasta kynlíf í heimi."
Afi ţegir niđurlútur og skömmustulegur. Ađ nokkrum tíma liđnum slćr hann ömmu utan undir međ flötum lófa. Amma hrekkur viđ og spyr: "Hvađ er ađ ţér mađur? Ertu orđinn vitlaus? Hvađ á ţetta ađ ţýđa?"
Afi svarar: "Ţetta er fyrir ađ ţú skulir ţekkja muninn."
21.12.2008 | 23:14
Bókarumsögn
- Titill: Ég hef nú sjaldan veriđ algild - Ćvisaga Önnu á Hesteyri
- Höfundur: Rannveig Ţórhallsdóttir
- Útgefandi: Hólar bókaútgáfa
- Einkunn: **** (af 5)
Fađir Önnu á Hesteyri og afi minn voru brćđur. Ég hef ţekkt Önnu frá ţví ég fćddist. Ţessi frábćra kona verđur áttrćđ á nćsta ári. Hún er einstakt náttúrubarn. Hún hefur sterkar skođanir sem sumar koma stundum skemmtilega á óvart. Spjall viđ Önnu er ćtíđ uppspretta kátínu og gleđi. Eitthvađ sem gaman er ađ segja öđrum frá.
Í áratugi hafa ćttingjar okkar Önnu skiptst á ćvintýralegum sögum af henni. Oft hefur ţá veriđ nefnt ađ einhver verđi ađ safna ţessum sögum saman og gefa út á bók.
Í fyrravor er ég byrjađi ađ blogga hef ég rifjađ upp nokkrar sögur af Önnu. Ţađ skiptir ekki máli hvort fólk ţekkir Önnu eđa ekki. Sögurnar eru jafn skemmtilegar fyrir ókunnuga.
Ţađ var mikiđ fagnađarefni ţegar fréttist af ţví ađ Rannveig Ţórhallsdóttir, bókmenntafrćđingur, vćri farin ađ skrásetja ćvisögu Önnu. Bók um Önnu gat ekki orđiđ annađ en bráđskemmtileg. Eina áhyggjuefni ćttingjanna var ađ broslegar sögur af Önnu kćmu ekki almennilega til skila hvađ ţetta er merkileg manneskja. Ađ ţćr myndu draga upp mynd af Önnu sem "fígúru" sem er hlegiđ ađ á kostnađ ţess ađ sögurnar séu afgreiddar ţannig ađ hlegiđ sé međ Önnu.
Rannveigu hefur tekist virkilega vel ađ draga upp rétta mynd af Önnu. Koma til skila hversu heilsteypt og áhugaverđ ţessi manneskja er. Manneskja sem auđvelt er ađ bera mikla virđingu fyrir. Um leiđ og bókin er sneisafull af sprenghlćgilegum sögum.
Ţegar ég fékk bókina í hendur fletti ég henni fram og til baka og greip niđur í hana hér og ţar. Allsstađar kom ég niđur á mergjađar smásögur. Síđan las ég bókina í tvígang frá upphafi til enda. Eftir ţađ hef ég nokkrum sinnum haldiđ áfram ađ glugga í hana og rifja upp broslegar frásagnir.
Ţetta er bók sem fólk á ađ kaupa handa sjálfum sér til ađ komast í gott skap um jólin. Og líka til ađ gleđja vini sína. Bókin er í 5. sćti yfir söluhćstu ćvisögur. Mér skilst ađ hálft sjötta ţúsund eintaka af bókinni séu komin í dreyfingu. Ţar af séu um 5000 eintök seld. Ţađ ţýđir ađ margir munu skemmta sér konunglega viđ lestur ţessarar bókar um jólin um hiđ kostulega náttúrubarn, Önnu á Hesteyri. Ekki láta bókina framhjá ţér fara.
Bćkur | Breytt s.d. kl. 23:27 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (5)
21.12.2008 | 18:45
Krúttlegar ljósmyndir
Ţessar sćtu og hugljúfu ljósmyndir rifja upp ţegar íslenska ţjóđin tók bónusgrísinn í fóstur. Hann var munađarlaus. Var hvorki úr ranni Kolkrabbans né SÍS. Íslenska ţjóđin fóstrađi bónusgrísinn frá fyrsta degi og nćrđi hann viđ brjóst sér. Hann var alltaf hreinn og strokinn. Fóstran sá um ađ sleikja hann daglega hátt og lágt.
Nú er bónusgrísinn orđinn fullveđja og sér um sig sjálfur. Eđa ţannig. Ţađ eru engar myndir af ţví.
![]() |
Kalla á heildarendurskođun á samkeppnisumhverfinu |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Viđskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 18:52 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (7)
21.12.2008 | 17:09
Fćreyski vinsćldalistinn
Ţađ vćri gaman ađ koma lagi međ íslenskum flytjanda inn á fćreyska vinsćldalistann. Í framhaldi af vangaveltum um ţađ fór ég ađ skođa vinsćldalistann og hvernig stađiđ er ađ atkvćđagreiđslu á honum. Ţá kom í ljós ađ mér tekst ekki ađ skrá nein lög í númeruđ sćti heldur einungis aukalög.
Ţiđ sem hafiđ ţekkingu á tölvutćkni: Getur veriđ ađ hćgt sé ađ "blokkera" ţátttöku utan Fćreyja í ţessari atkvćđagreiđslu? Eđa tekst ykkur ađ skrá lög í númeruđu sćtin? Slóđin er http://www.kringvarp.fo/15bestu/atkvodur.asp
20.12.2008 | 23:19
Upphaf bresku pönkbyltingarinnar V
Framan af ferli Sex Pistols var hljómsveitin leitandi og breska pönkiđ var ekki orđiđ til. Sex Pistols krákađi (coverađi) lög frá The Who, Small Faces, Chuck Berry og fleirum. Iđulega hitađi Sex Pistols upp fyrir pöbbaband söngvarans og gítarleikarans Joes Strummers, 101´Ers. Um miđjan maí 1976 var Sex Pistols hinsvegar búin ađ finna sinn tón og kom ţannig fram á hljómleikum međ tveimur öđrum - í dag - gleymdum hljómsveitum.
Á ţessum hljómleikum varđ Joe Strummer fyrir vitrun. Ţarna var kominn sá tónn sem hann vildi fylgja. Hann "slúttađi" 101´Ers og stofnađi The Clash. Ţessar tvćr pönkhljómsveitir, Sex Pistols og The Clash, fylgdust ađ um tíma. Fastir fylgihnettir voru The Damned og The Buzzcocks ásamt fleiri hljómsveitum sem slćddust međ.
Á auglýsingaveggspjöldum voru nöfn Sex Pistols og The Clash skrifuđ jafn stórum stöfum. Nöfn hinna hljómsveitanna voru skrifuđ minni stöfum. Er leiđ á áriđ 1977 varđ The Clash stćrra nafn. Ţađ var allt í vandćđagangi hjá Sex Pistols. Illindi viđ plötufyrirtćki og annađ í ţeim dúr.
Seinni part mars mánađar sendi The Clash frá sér fyrstu smáskífuna, White Riot. 17 dögum síđar kom út fyrsta stóra plata The Clash, samnefnd hljómsveitinni. White Riot náđi 38. sćti breska vinsćldalistans. Sama sćti og smáskífa Sex Pistols, Anarchy in UK, áđur.
Stóra platan međ The Clash var ekki ađeins fyrsta breska pönkplatan til ađ ná inn á Topp 30 breska vinsćldalistann heldur fór hún alla leiđ inn á Topp 15 og hafnađi ţar í 12. sćti. Ţar međ var bresk pönkhljómsveit komin í hóp vinsćlustu hljómsveita í Bretlandi. Pönkiđ var ekki lengur neđanjarđarhreyfing og jađarmúsík. Pönkiđ var orđiđ ţađ stórt dćmi ađ bresku plötubúđirnar kepptust viđ ađ stilla plötunni vinsćlu međ The Clash út í glugga, útvarpsstöđvar komust ekki hjá ţví ađ spila lög af plötunni, almenn poppblöđ og slúđurblöđ fjölluđu um The Clash, rétt eins og rokkblöđin.
Ennţá merkilegra var ađ platan seldist í 100.000 eintökum í póstsendingum til Bandaríkjanna. Hún er enn í dag sú plata sem selst hefur í hćstu upplagi á ţann hátt.
The Clash tók miđ af pönkstíl Sex Pistols en var ţó međ sterkan eigin stíl. Takturinn í White Riot var hrađari en í pönki annarra hljómsveita ţess tíma. Til viđbótar kynnti The Clash til sögunnar nýjan músíkstíl: Pönkađ reggí. Eftir ţađ varđ reggí hluti af pönkinu. Utangarđsmenn og Frćbbblarnir komu ţví bćrilega til skila hérlendis.
White Riot varđ einskonar ţjóđsöngur pönksveita. Ţađ lag var krákađ (coverađ) af Sham 69, Angelic Upstarts og ótal öđrum pönksveitum. The Clash flytja ţađ í myndbandinu ađ ofan. Í myndbandinu ađ neđan er sýnishorn af ţví hvernig hljómsveitin kynnti reggí-pönkiđ til sögunnar.
Fyrri fćrslur um upphaf breska pönksins:
IV: http://jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/747161
III: http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/746033/
II: http://jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/744949
Fyrsta breska pönklagiđ: http://www.jensgud.blog.is/blog/jensgud/entry/743999/
Tónlist | Breytt 21.12.2008 kl. 15:14 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (6)