Færsluflokkur: Matur og drykkur

Tölvan segir nei

  Samfélagið okkar er að mjakast í mannlegri átt.  Hægt og hljótt.  Mannúð og samkennd sækja á.  Lög og reglur eru leiðbeinandi.  Þau eru mannanna verk.  Þau eru ekki sett til að níðast á börnum.  Af og til koma hinsvegar upp þær aðstæður að lög og reglur stangast á við þarfir barna.  Þá reynir á mannlega þáttinn.  Þá vegur neyðarréttur þyngra.

  Það er aum framkoma gagnvart börnum í vanda að yppa öxlum og skýla sér á bak við reglur.  "Tölvan segir nei,"  er vinsæl klisja í sjónvarpsþáttunum Litla Bretland.  Það er gott grín og lýsandi fyrir starfsfólk Wow á dönskum flugvelli sem skildi þrjú börn eftir í reiðuleysi.  Líka fyrir starfsfólk Fellaskóla sem neitaði stelpu um að snæða pizza-sneið með skólasystkinum sínum.

  Barnaheimlin í Breiðavík og Kumbaravogi tilheyra fortíðinni. Blessunarlega. Látum hin dæmin einnig tilheyra fortíðinni. Verum í nútímanum 2016.  


mbl.is Þrjú börn urðu eftir á Kastrup
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hollusta SS pylsunnar

  Sífellt fleiri eru að uppgötva hollustu SS pylsunnar.  Hún er þéttþjappaður heilsubiti.  Lengi vel snæddu Íslendingar í dögun hafragraut með súrsaðri blóðmör.  Með fylgdi gúlsopi af þorskalýsi,  fjölvítamíntafla og Rautt Eðalvöru ginseng hylki.  Þetta er liðin tíð.  

  Í dag borða Íslendingar SS pylsu. Ekki síst á morgnana.  Hún skerpir athygli og eykur þol.  Gefur fólki gott start inn í daginn.  Hún gefur heilbrigt og hraustlegt útlit.  Hún eyðir flestum húðsjúkdómum,  krabbameini og lömun.  Með auknu og almennu SS pylsuáti getur Ísland orðið hjólastólalaust árið 2020.  

  Sú var tíð að fólk hafði hrásalat, kartöflur, grænar baunir, rauðkál,  maís,  tómata og agúrkur með fiski eða kjöti í hádegi og í kvöldmat.  Í dag hefur þetta meðlæti vikið fyrir SS pylsu.  Hún er heilsusamlegasti kostur sem völ er á með steiktum fiski,  soðningu,   svo og purusteik,  lambahrygg og kjúklingi.

  SS pylsa er besti heilsubiti á milli mála og kvöldsnakk.  Öfugt við epli þá hefur hún ekki verið úðuð með skordýraeitri.

  Einn af mörgum eiginleikum SS pylsu er sá að hana má borða beint úr pakkanum.  Einnig má hita hana í 20 sek í örbylgjuofni.  Færri vita að upplagt er að geyma hana í frysti.  Gaddfreðin er hún bragðgott og meinhollt sælgæti sem hlær að rjómaís og frostpinnum.

  SS pylsa hefur reynst vel þeim sem vilja hætta að reykja.  Þá handleika menn hana á milli fingra líkt og sígarettu og sjúga hana af og til eins og snuð.

  SS pylsa er besta val fyrir grænmetisætur.  Í henni er einugis kjöt af dýrum sem lifa alfarið á grænmeti.    

  Fremstu sitjandi íþróttamenn landsins borða SS pylsu.  Það á jafnt við um bridge spilara og skákmenn.  Þetta á einnig við um þá sem eru fljótastir að hlaupa á eftir tuðru,  hvort sem er til að sparka af og til í hana eða hrinda frá sér með höndum.  

  Það er næstum því sannað að fólk sem neytir SS pylsu reglulega er gáfaðra og fljótara að leysa einföld reikningsdæmi á blaði en þeir sem vita ekki af henni.   

  Ein SS pylsa jafngildir fjögurra klukkutíma puði á líkamsræktarstöð.  

  iceland- pylsur-1    


Færeyskt veitingahús á Íslandi

flóranmarentza poulsen

  Eftir röskan mánuð,  í mars,  munu Færeyingar opna nýjan veitingastað hérlendis.  Hann verður í fimm kílómetra fjarlægð frá miðbæ Reykjavíkur.  Nánar tiltekið á Grensásvegi 10.  Súper staðsetning.  

  Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Færeyingar koma nálægt matseld á Íslandi. Marentza Poulsen (systir Elisar Poulsen) hefur í áratugi fóðrað svanga Íslendinga.  Frá því á síðustu öld hefur hún rekið af rausnarskap Flóruna,  veitingastað í Grasagarðinum í Laugardal.   

  Á Laugavegi 170 er rekin færeyska Smurbrauðsstofa Sylvíu.  Árlega er þar boðið upp á færeyska viku.  Þá er á borðum bragðsterk og matarmikil færeysk ræstkjötsúpa ásamt brauði með ýmiskonar færeysku áleggi.  Þar á meðal skerpukjötinu góða.  

birgir enni  Af og til eru spennandi færeyskir dagar í Fjörukránni.  Þá kokkar einn af heimsins bestu kokkum,  Birgir Enni,  færeyskar kræsingar af einskærri snilld.  Birgir er föðurbróðir tónlistarmannanna vinsælu Brands Enni og Tróndar Enni.  

  Færeyingarnir sem blanda sér í veitingahúsaflóruna á Íslandi í mars opnuðu í fyrra veitingastaðinn Angus Steakhouse í Þórshöfn í Færeyjum. Frá fyrsta degi hefur verið troðið út úr dyrum.  Þar á meðal hafa íslenskir túristar fjölmennt, tekið hraustlega til matar síns og komið dag eftir dag.  Fá aldrei nóg af því góða. 

  Eðlilegt næsta skref til að koma til móts við íslenska aðdáendur er að opna útibú í Reykjavík.

  Angus Steakhouse tilheyrir samnefndri enskri matsölukeðju.  Enskir kokkar hafa almennt ekki hrifið Íslendinga.  Öfugt við færeyska kokka.  Í því liggur stóri munurinn.  Færeyingar kunna þetta.  

Angus steikAngus steikhús    


Heimskir glæpamenn

 Margir glæpamenn eru heimskir.  Þess vegna eru þeir glæpamenn.  Af sömu ástæðu tekst oft að koma upp um þá og koma þeim á bak við lás og slá.  Þar eiga þeir heima.  Þeim er refsað fyrir heimsku umfram annað.  

  Þútúpan er full af myndböndum af heimskum glæpamönnum.  Þó er ekkert myndband til af áströlskum glæpamanni sem hugðist stela bensíni úr stórri rútu.  Hann setti slöngu ofan í tank rútunnar og saug upp úr honum "munn við munn" til að dæla bensíni þaðan ofan í sinn bensínbrúsa.

  Svo illa tókst til að þjófurinn ruglaðist á bensíntanki og klósetttanki rútunnar.  Hann saug upp úr klósetttanknum.  Sennilega varð hann fljótlega var við að bragðið sem hann fékk upp í sig var ekki af bensíni.  Ælur úr honum á vettvangi benda til þess.

rúta 

  


mbl.is Óljóst hver skaut fyrst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gátan leyst

Fréttir hafa borist af eldri borgurum í Reykjavík,  höfuðborg landsins.  Þeir eru svangir.  Einkum og sér í lagi um helgar.  Fréttirnar af þessu eru um margt óljósar.  Jafnvel villandi.  Sumir fullyrða að matur eldri borgara sé eldaður af alúð.  Hann sé skammtaður samviskusamlega ofan í þar til gerð hitabox.  Vandamálið er að maturinn hefur ekki skilað sér til eldri borgara.  Einhver annar borðaði hann.  Nú er komin skýring á.  Sá sem borðaði mat eldri borgara hefur játað:  "Dagur borðaði mat eldri borgara".

matur  


mbl.is Dagur borðaði mat eldri borgara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gríðarleg eiturlyfjaneysla í kirkjum

kirkja  Það er ekkert leyndarmál að í Alþingishúsinu og í kirkjum er almenn og töluvert mikil neysla á eiturlyfjum.  Einkum kókaíni og amfetamíni.  Líka hassreykingar og misnotkun þunglyndislyfja,  áfengis og munntóbaks.  Þetta vita allir sem vilja vita.  

  Þetta hefur verið sannreynt í breskum kirkjum.  Tekin voru sýni á klósettsetum 25 kirkja.  Af þeim reyndist næstum helmingur (11) vera löðrandi í kókaíni.  Undrun vakti að hlutfallið væri ekki hærra.  Á móti vegur að kókaín er svo sem ekkert vinsælasta eiturlyf í kirkjum.  E-pillur, hass,  LSD,  englaryk,  áfengi og sitthvað fleira er alveg eins vinsælt.  Ekki síst hérlendis.

k+ók í kirkjumCocaine-in churchhólar 


Veitingaumsögn

 - Staður:  Tacobarinn,  Hverfisgötu 20,  Reykjavík

 - Réttur:  Taco

 - Verð:  1990 kr. fyrir þrjá rétti

 - Einkunn:  *** (af 5)

  Þegar ég gekk inn á Tacobarinn fékk ég fyrst á tilfinninguna að ég væri staddur úti á Spáni.  Kannski af því að ég er nýkominn frá Alicante.  Við nánari athugun blasti við að þetta er mexíkóskur staður.  Klárlega sitthvað líkt með spænskum og mexíkóskum veitingastöðum.  Til að mynda tónlistin sem hljómar úr hátölurum.

  Tacobarinn er rúmgóður og bjartur.  Glerveggir og glerþak ramma hann inn.  Ótal ljós í ýmsum litum og af ýmsu tagi upp um alla veggi og út um allt skapa suðræna stemmningu,  ásamt mynstri á borðum og framhlið stórs barborðs.   

  Eins og nafnið bendir til þá er Tapasbarinn bar fremur en matsölustaður. Bar sem býður upp á allskonar framandi og spennandi rétti.  Prentaður matseðill liggur ekki frammi.  Ástæðan er sú að það er dagamunur á þeim réttum sem í boði eru.  Það er of dýrt og tímafrekt að prenta nýjan matseðil á hverjum degi.  Í staðinn er nýr matseðill dagsins handskrifaður á krítartöflur.  Á honum eru taldir upp nokkrir tacoréttir,  pizzur og súpa. Af tacoréttum er þess gætt að eitthvað sé um kjötrétti,  sjávarréttataco og grænmetistaco.

  Tacoréttur samanstendur af þunnri hvítri hveitiköku,  um það bil 5 tommur að stærð.  Á henni er meirt (hægsteikt) kjöt með grænmeti og sósu eða sjávarréttur eða grænmetisréttur.  Stakur réttur kostar 790 kr. Heppileg máltíð samanstendur af þremur réttum á samtals 1990 kr. Matmikil súpa kostar 1350 kr.  Pizza kostar 1000 kall. Lambakjötstaco,  þorskur og kjúklingataco er góð blanda.  Allt alveg ágætlega bragðgott en frekar bragðdauft.  Hægt er að bera sig eftir bragðsterkum sósum til að skerpa á.  Þá er betra að þekkja sósurnar og styrkleika þeirra.  Það hjálpar.  

  Tacoréttirnir eru bornir fram án hnífapara.  Þetta er fingramatur að hætti fátækra Mexíkóa.  Við Íslendingar erum ekkert of góðir til að spara hnífapör einstaka sinnum.  Það sparar uppvask.  

  Ég mæli alveg með því að fólk kíki á Tacobarinn og prófi mexíkóska matreiðslu.   

tacobarinn

taco       

  

    

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Fleiri veitingaumsagnir með því að smella á HÉR 


Blindfull

  Um árámótin hlaut breskur barþjónn verðlaunin Wetherspoon Perfect Server.  Það eru ekki fréttir út af fyrir sig.  Einhver breskur barþjónn fær árlega þessi verðlaun.  Ekki samt alltaf sá sami.  Það sem er fréttnæmt nú er að verðlaunahafinn er blind kona.  54. ára amma í þokkabót.

  Júlía Richards var hjúkrunarkona.  Þegar hún blindaðist skipti hún um starf.  Gerðist barþjónn.  Hún er gleggri á gesti en aðrir barþjónar.  Hún þekkir lyktina af þeim,  skóhljóð þeirra, rödd og man hvaða drykk þeir vilja.  Áður en þeir hafa lokið við að bjóða gott kvöld er hún búin að rétta þeim BLINDfullt bjórglas í lúkur.  Afgreiðsla hennar gengur þess vegna mun hraðar fyrir sig en hjá öðrum.

blind 


Glútenfrí matvæli eru óþverri

 Í huga margra er samasemmerki á milli glútenfrírra matvæla og hollustu.  Ekkert er fjær sanni.  Glútenfrí matvæli eru óhollur óþverri.  Eina ástæðan fyrir því að einhver ætti að borða glútenfrí matvæli er þegar viðkomandi þjáist af glútenóþoli.  Fylgikvillar þess að snæða glútenfrían mat eru margir.  Þar á meðal hætta á krabbameini í meltingarvegi og hvítblæði.  Margar glútenfríar vörur eru ekkert annað en næringarlaus sterkja án trefja og próteina.

glútinfrí


Alþingismenn eru að reyna að taka sig á

  Á síðustu árum hafa alþingismenn reynt að taka sig á.  Þeir hafa reynt að draga úr áfengisneyslu á vinnustað.  Það ber að virða.  En þetta er erfitt.  Freistingar kalla á hverju húshorni.  Alþingi er umkringt vínveitingahúsum.  Það er eðlilegt.  Þar blómstra viðskiptin mest og best.  Þetta er keðjuverkun.  

  Betur hefur gengið í baráttunni við sniffið.  Við bankahrunið 2008 varð einnig hrun á því.  Þar var um keðjuverkun að ræða.  Framboð dróst saman.  Banksterarnir í stuðningsmanna- og vinahópnum hættu að bjóða hægri vinstri.  Einnig hafði uppstokkun í þingliði vorið 2009 töluvert að segja.  En þetta er snúið.  Venjuleg manneskja getur eiginlega ekki verið allsgáð í Alþingishúsinu.  

 


mbl.is „Svona áburður er óþolandi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband