Færeyskt veitingahús á Íslandi

flóranmarentza poulsen

  Eftir röskan mánuð,  í mars,  munu Færeyingar opna nýjan veitingastað hérlendis.  Hann verður í fimm kílómetra fjarlægð frá miðbæ Reykjavíkur.  Nánar tiltekið á Grensásvegi 10.  Súper staðsetning.  

  Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Færeyingar koma nálægt matseld á Íslandi. Marentza Poulsen (systir Elisar Poulsen) hefur í áratugi fóðrað svanga Íslendinga.  Frá því á síðustu öld hefur hún rekið af rausnarskap Flóruna,  veitingastað í Grasagarðinum í Laugardal.   

  Á Laugavegi 170 er rekin færeyska Smurbrauðsstofa Sylvíu.  Árlega er þar boðið upp á færeyska viku.  Þá er á borðum bragðsterk og matarmikil færeysk ræstkjötsúpa ásamt brauði með ýmiskonar færeysku áleggi.  Þar á meðal skerpukjötinu góða.  

birgir enni  Af og til eru spennandi færeyskir dagar í Fjörukránni.  Þá kokkar einn af heimsins bestu kokkum,  Birgir Enni,  færeyskar kræsingar af einskærri snilld.  Birgir er föðurbróðir tónlistarmannanna vinsælu Brands Enni og Tróndar Enni.  

  Færeyingarnir sem blanda sér í veitingahúsaflóruna á Íslandi í mars opnuðu í fyrra veitingastaðinn Angus Steakhouse í Þórshöfn í Færeyjum. Frá fyrsta degi hefur verið troðið út úr dyrum.  Þar á meðal hafa íslenskir túristar fjölmennt, tekið hraustlega til matar síns og komið dag eftir dag.  Fá aldrei nóg af því góða. 

  Eðlilegt næsta skref til að koma til móts við íslenska aðdáendur er að opna útibú í Reykjavík.

  Angus Steakhouse tilheyrir samnefndri enskri matsölukeðju.  Enskir kokkar hafa almennt ekki hrifið Íslendinga.  Öfugt við færeyska kokka.  Í því liggur stóri munurinn.  Færeyingar kunna þetta.  

Angus steikAngus steikhús    


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já, sæll Jens.

Þegar ég var stubbur og átti heima á Langholtsvegi þá bjó í næst-næsta húsi Grímur Esteroy kafari með sinni færeysku fjölskyldu. Yndislegt fólk eins og Færeyingar eru upp til hópa. Við  krakkarnir í hverfinu lékum okkur saman eins og fara gerir. Ég hafði alltaf á tilfinningunni að þar væri einstaklega góður heimilismatur í boði. Ekki spillti fyrir að Grímur kafari var lifandi goðsögn fyrir afrek sín á hafsbotni. Ég fer nánast aldrei á veitingahús en þetta langar mig til að prófa.

Skarfurinn.

Sigurður Bjarklind (IP-tala skráð) 30.1.2016 kl. 16:13

2 Smámynd: Jens Guð

Sigurður,  takk fyrir innleggið.  Af því að þú undirritar með nafninu Skarfurinn þá má til gamans geta að í Kaupmannahöfn er færeyskur skemmtistaður sem heitir Skarvur.  Þangað er alltaf gaman að koma.

Jens Guð, 1.2.2016 kl. 09:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.