Fćrsluflokkur: Fjármál
28.10.2017 | 09:46
Skelfilegt klúđur lífeyrissjóđanna
Fyrir nokkru tóku lífeyrissjóđir upp á ţví ađ fjárfesta í Skeljungi. Svo virđist sem ţađ hafi veriđ gert í blindni; án forskođunar. Einhverskonar trú á ađ svo gömul og rótgróin bensínsala hljóti ađ vera gullnáma. Á sama tíma hefur rekstur Skeljungs hinsvegar veriđ afar fálmkenndur og klaufalegur - međ tilheyrandi samdrćtti á öllum sviđum.
Starfsmannavelta er hröđ. Reynslulitlum stjórnendum er í mun um ađ reka reynslubolta. Ţeir fá einn eđa tvo klukkutíma til ađ taka saman eigur sínar og pilla sig á brott. Engu ađ síđur eru ţeir á biđlaunum nćstu mánuđina án vinnuframlags. Í mörgum tilfellum taka ţeir međ sér dýrmćta ţekkingu og viđskiptasambönd.
Fyrr á árinu kynnti Skeljungur vćntanlega yfirtöku á 10-11 matvörukeđjunni. Ţar var um plat ađ rćđa. Til ţess eins ćtlađ ađ fráfarandi eigendur gćtu selt lífeyrissjóđum hlutabréf sín á yfirverđi.
Í vetrarbyrjun var nýr forstjóri ráđinn. Ţar var brotin hefđ og gengiđ framhjá fjórum framkvćmdastjórum fyrirtćkisins á Íslandi. Ţess í stađ var ţađ sett undir framkvćmdastjóra fćreyska dótturfélagsins, P/F Magn. Frá 1. okt hefur Skeljungi veriđ fjarstýrt frá Fćreyjum.
Nýjustu viđbrögđ viđ stöđugum samdrćtti eru ađ sparka 29 starfsmönnum á einu bretti: 9 á ađalskrifstofu og öllum á plani. Héđan í frá verđa allar bensínstöđvar Skeljungs án ţjónustu. Ţađ ţýđir enn frekari samdrátt. Fólk međ skerta hreyfigetu vegna fötlunar eđa öldrunar hverfur eins og dögg fyrir sólu af bensínstöđvum Skeljungs.
Í gćr sá ég einhentan mann leita ásjár hjá stafsmanni 10-11 viđ ađ dćla bensíni á bílinn. Sá má ekki vinna á plani. Međal annars vegna ţess ađ ţar er hann ótryggđur fyrir slysum eđa öđrum óhöppum.
Liggur nćrri ađ brottrekstur 29 starfsmanna sé um ţriđjungs samdráttur. Eftir sitja um 30 á ađalskrifstofu og um 30 ađrir á launaskrá. Hinir brottreknu eru svo sem líka á launaskrá eitthvađ fram á nćsta ár. Til viđbótar er mér kunnugt um ađ einhverjir af ţeim sem eftir sitja hyggi á uppsögn út af öllu ruglinu. Afar klaufalega var ađ öllu stađiđ. Til ađ mynda var sölustjóra efnavara sparkađ. Hann var eini starfsmađur fyrirtćkisins međ haldgóđa ţekkingu á efnavörunum. Ţađ sýndi sig í hvert sinn sem hann fór í frí. Ţá lamađist efnavörusalan á međan. Nú lamast hún til frambúđar.
Einhver kann ađ segja ađ Skeljungur hafi skorađ stig međ ţví ađ ná bensínsölu til Costco. Hiđ rétta er ađ skoriđ skilar ekki fjárhagslegum ávinningi. Ţar er um fórnarkostnađ ađ rćđa til ađ halda hinum olíufélögunum frá Costco. Nú fá ţau olíufélög fyrirhafnarlaust í fangiđ alla bílstjóra međ skerta hreyfigetu. Spurning hve eigendum lífeyrissjóđanna ţykir ţađ vera góđ ávöxtun á ţeirra peningum.
![]() |
Ekki bara hćgt ađ benda á Costco |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Fjármál | Breytt s.d. kl. 11:52 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (14)
22.9.2017 | 07:16
Yoko Ono bannar svaladrykk
John Lennon var myrtur á götu úti í New York 1980. Síđan hefur ekkja hans, Yoko Ono, unniđ ötult starf viđ ađ vernda minningu hans. Reyndar gott betur. Hún hefur náđ ađ fegra ímynd hans svo mjög ađ líkist heilagri helgimynd. Gott og blessađ.
Nú hefur henni tekist ađ stöđva sölu á pólskum svaladrykk. Sá heitir John Lemon. Fyrstu viđbrögđ framleiđanda drykkjarins voru ađ ţrćta fyrir ađ gert vćri út á nafn Johns Lennons. Lemon sé annađ nafn en Lennon.
Yoko blés á ţađ. Vísađi til ţess ađ í auglýsingum um drykkinn sé gert út á fleira en nafn Johns. Til ađ mynda séu ţćr skreyttar međ ömmugleraugum samskonar ţeim sem eru stór hluti af ímynd hans. Ţar hjá stendur setningin "let it be". Sem kunnugt er heitir síđasta plata Bítlanna "Let it Be".
Til viđbótar notađi írska útibúiđ, John Lemon Ireland, mynd af John Lennon í pósti á Fésbók.
Lögmannastofa Yokoar stillti framleiđandanum upp viđ vegg: Hótađi 5000 evra (655.000 ísl kr.) dagsektum og krafđist 500 evra fyrir hverja selda flösku. Fyrirtćkiđ hefur lúffađ. Nafninu verđur breytt í On Lemon. Breski dreifingarađilinn segir ađ lítiđ fyrirtćki sem sé ennţá ađ fóta sig á markađnum hafi ekki bolmagn til ađ takast á viđ milljarđamćring.
Fjármál | Breytt s.d. kl. 15:18 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (6)
7.9.2017 | 09:28
Gott ađ vita
Tímareimin í bílnum mínum var komin á tíma. Ég hringdi í nokkur bifreiđaverkstćđi. Spurđi hvađ skipti á tímareim kosti. Heildarverđ međ öllu. Verđin reyndust mismunandi. En öll eitthvađ á annađ hundrađ ţúsund. Af einhverri rćlni álpađist ég til ađ leita á náđir "gúgglsins". Fann ţar nokkrar jákvćđar umsagnir um Bifreiđaverkstćđi Jóhanns í Hveragerđi. Ţar á međal ađ verđlagning sé hófleg.
Nćsta skref var ađ hringja ţangađ. "Vinnan kostar 35 ţúsund," var svariđ sem ég fékk. "Ţú getur sjálfur komiđ međ varahlutina sem til ţarf ef ţú ert međ afslátt einhversstađar."
Ég var ekki svo vel settur. Spurđi hvort ađ ég gćti ekki keypt ţá hjá honum. Jú, ekkert mál. "Ţá verđur heildarpakkinn um 70 ţúsund."
Ég var alsćll. Brunađi austur fyrir fjall. Ţegar til kom reyndist vélin miklu stćrri en venja er í bíl af mínu tagi. Fyrir bragđiđ tók vinnan klukkutíma lengri tíma en tilbođiđ hljóđađi upp á.
Er ég borgađi reikninginn var ţó slegiđ til og tilbođiđ látiđ standa. Endanlegur heildarreikningur var 68 ţúsund kall.
Tekiđ skal fram ađ ég hef engin tengsl viđ Bifreiđaverkstćđi Jóhanns. Vissi ekki af tilvist ţess fyrr en "gúggliđ" kynnti ţađ fyrir mér.
Af ţessu má lćra: Nota tćknina og "gúggla". Fyrir mismuninn á fyrstu tilbođum og ţví síđasta er hćgt ađ kaupa hátt í 200 pylsur međ öllu í Ikea. Samt langar mig ekkert í pylsu.
Fjármál | Breytt 9.9.2017 kl. 09:52 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (10)
2.9.2017 | 10:37
Fćreyingar stórgrćđa á vopnasölubanni Íslendinga til Rússa
Ţađ tók Íslendinga heilt ár ađ ögra og mana Rússa til ađ sýna viđbrögđ viđ vopnasölubanni sem Gunnar Bragi Sveinsson, ţáverandi utanríkisráđherra, setti á Rússa. Seinbúin viđbrögđ Rússa fólust í ţví ađ hćtta innflutningi á íslenskum vörum. Fram til ţess voru Rússar í hópi stćrstu kaupenda á íslenskum sjávarafurđum og lambakjöti.
Um leiđ og Rússar hćttu ađ kaupa makríl af Íslendingum hćkkađi verđ á fćreyskum makríl um 20%. Allar götur síđar hafa Fćreyingar malađ gull á mjög bratt vaxandi sölu á sjávarafurđum til Rússa.
Í ár borga Rússar Fćreyingum 37,4 milljarđa ísl. kr. í beinhörđum gjaldeyri. Ţetta er 11,3 milljarđa aukning frá síđasta ári. Munar heldur betur um ţennan gjaldeyri fyrir 50 ţúsund manna samfélag.
Kaup Rússa nema 27% af útflutningi Fćreyinga. Ţeir eru lang stćrsti viđskiptavinurinn. Í humátt á eftir eru Bretar og Kanar. Ţeir kaupa hvorir fyrir tćpa 15 milljarđa. Ţar á eftir koma Danir, Ţjóđverjar og Kínverjar.
Salan til Rússa er á laxi, makríl og síld. Hinar ţjóđirnar kaupa fyrst og fremst lax. Nema Bretar. Ţeir kaupa nánast einungis ţorsk og ýsu.
Fjármál | Breytt s.d. kl. 11:09 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (16)
27.8.2017 | 15:44
Svindlađ á tollinum
Fyrir hátt í fjórum áratugum flutti Íslendingur aftur heim til Íslands eftir langdvöl í Svíţjóđ. Hann hafđi keypt ýmis heimilistćki, fatnađ, sćngurföt og fleira í Svíţjóđ. Hann var međ kvittanir fyrir öllu. Ţćr stađfestu ađ um gamlar notađar vörur var ađ rćđa. Búslóđ sem mađurinn sankađi ađ sér í áranna rás. Ţar međ ţurfti hvorki ađ greiđa vörugjald né söluskatt af henni.
Reyndar keypti hann sjónvarp rétt fyrir heimförina. Bađ búđarmanninn um ađ dagsetja kvittunina nokkur ár aftur í tímann. Sá tók ţví vel og sótti brúsa undir afgreiđsluborđiđ. Opnađi svo pappakassann međ sjónvarpinu, úđađi ryki yfir sjónvarpiđ og sagđi: "Ţú segir tollinum ađ sjónvarpiđ hafi rykfalliđ uppi á háalofti hjá ţér eftir stutta notkun. Ég er alltaf ađ gera svona fyrir Íslendinga á heimleiđ."
Mađurinn vandi sig á sánaböđ í Svíţjóđardvölinni. Sánaklefar á Íslandi kostuđu meira en tvöfalt á viđ samskonar klefa í Svíţjóđ. Mađurinn fjárfesti í glćsilegasta sánaklefa sem hann fann í Svíţjóđ. Skrúfađi bekkina lausa og notađi ţá fyrir vörubretti undir búslóđina sína. Búslóđin smekkfyllti sánaklefann. Ţar međ var hann orđinn gámur en ekki sánaklefi sem fengi á sig hátt vörugjald, söluskatt og allskonar. Á núvirđi erum viđ ađ tala um gjöld upp á meira en hálfa milljón kr.
Ţegar gámurinn var tollafgreiddur ţurfti mađurinn ađ opna hann og sýna innihaldiđ. Hann framvísađi kvittunum. Tollverđir rótuđu dálítiđ í búslóđinni og sannreyndu ađ allt var eins og ţađ átti ađ vera. Er ţeir gengu á braut bankađi einn utan í gáminn og sagđi: "Assgoti eru sćnsku trégámarnir orđnir vandađir."
Eigandinn svarađi: "Já, ég er mjög ánćgđur međ hann. Mér var sagt ađ búslóđ sé miklu betur varin í trégámi en járngámi ţegar siglt er um ólgusjó.. Ţar ađ auki get ég smíđađ sólpall eđa eitthvađ úr timbrinu."
------------------------------------------------------------------------
Til gamans má geta ađ sánaklefi kallast bađstofa á fćreysku.
![]() |
Ein flottasta sánan í eigu Íslendings |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Fjármál | Breytt 28.8.2017 kl. 13:18 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
23.7.2017 | 11:05
Broslegar hliđar Costco
23. maí verđur í framtíđinni haldinn hátíđlegur sem íslenski samkeppnisdagurinn. Ţann dag á ţessu ári hélt alvöru samkeppni í verslun innreiđ sína í formi Kaupfélags Garđahrepps. Snilldar verslun sem býđur upp á verulega miklu lćgra verđ á mörgum vörum en áđur hefur sést hérlendis.
Búđin hefur ekki ţurft ađ eyđa peningum í auglýsingar. Fagnandi viđskiptavinir sjá um ókeypis auglýsingar á samfélagsmiđlum. Vinsćlasta ađdáendasíđan á Fésbók telur 88 ţúsund félagsmenn. Á ţeirri síđu og fleiri álíka má rekast á sitthvađ til gamans og gagns.
Sumir kaupa köttinn í sekknum. Eins og gengur. Til ađ mynda hafa margir auglýst eftir tilteknum skóm fyrir hćgri fót. Ástćđan er sú ađ eitthvađ er um ţađ ađ í nýkeyptum skókassa leynist skópar fyrir vinstri fót. Allt sama tegund af skóm sem eru bara seldir fyrir vinstri fót. Ţađ er ástćđa til ađ kíkja ofan í skókassann áđur en hann er keyptur. Samt engir fordómar gagnvart vinstri skóm. Bara dálítiđ kjánalegt ađ ţramma um allt í einungis skóm fyrir visntri fót.
Vandamáliđ er ekki stćrra en svo ađ hćgt er ađ skila öllum keyptum vörum (gegn kassakvittun). Verra er ađ iđulega uppgötvast svona ekki fyrr en heim er komiđ - í tilfellum ţar sem kaupandinn hefur gert sér bćjarferđ frá Bolungarvík eđa Vopnafirđi og á ekki aftur erindi suđur á ţessu ári.
Önnur dćmi eru um fólk sem hugđist kaupa lítinn garđskúr undir sláttuvélina. Ţegar hann er settur saman kemur í ljós ađ um er ađ rćđa stćđilegan bílskúr sem breiđir sig yfir allan garđinn. Góđu fréttirnar eru ađ ţá er enginn grasblettur eftir til ađ slá.
Kunningi minn keypti forláta ósamsettan skrifstofustól. Ţegar á reyndi er bakiđ ekki stillanlegt. Ţađ er í lćstri stöđu sem vísar fram. Vinurinn situr í keng fyrir framan borđtölvuna.
Dálítiđ er um ađ fólk haldi ađ öll matvara í búđinni sé framleidd erlendis. Hinu og ţessu er hćlt á hvert reipi sem miklu betra en íslensk framleiđsla. Svo kemur í ljós ađ um íslenska framleiđslu er ađ rćđa. Nákvćmlega sömu vöru og hefur veriđ seld í árarađir í íslenskum búđum. Nema ađ núna er hún töluvert ódýrari.
Fjármál | Breytt 24.7.2017 kl. 04:49 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (4)
20.7.2017 | 06:17
Ringulreiđ á Íslandi
Ţađ er óreiđa í íslenska matvöru- og veitingahúsageiranum. Koma Kaupfélags Garđahrepps inn á markađinn í sumarbyrjun hefur sýnt og sannađ ađ verđlagning á ýmsum vörum - ţar á međal matvöru - getur veriđ lćgri en hún var fyrir ţau tímamót.
Ţađ dugir skammt ađ vísa til ţess ađ Kaupfélagiđ starfi í mörgum löndum og geti gert magninnkaup. Jú, vissulega er ţađ rétt ađ hluta. Á móti vegur ađ verulegur hluti af matvörum og drykk í búđinni er framleiddur hérlendis, einungis fyrir íslenskan markađ. Hún er međ flata 14% álagningu. Lífeyrissjóđir krefjast mun hćrri álagningar hjá sínum stórmarkađskeđjum. Stjórnarmenn ţurfa há laun og góđa bónusa.
Á sama tíma og Íslendingar eru ađ kynnast áđur óţekktu lágu verđi í Kaupfélagi Garđahrepps berast skemmtilegar fréttir af hátt verđlögđum veitingum úti á landi. Ómerkileg smá hveitibrauđsbolla er seld á 500 kall. Stakur tepoki er seldur á 400 kall (án vatns og án ţjónustu). Rúnstykki međ skinkusneiđ og osti á 1200 kall. Rćfilsleg kleina á 980. Hamborgari á 3000. Plokkfiskur á 4500 kall. Kjötsúpa á 4500 kall.
Ferđaţjónustuokrarar undrast ađ útlendir túrhestar hiksti yfir verđlagningunni. Ţeir stytta ferđir og eru teknir upp á ţví ađ smyrja sér nesti. Viđbrögđin eru ađ bćta viđ skál viđ hliđina á peningakassanum. Skálin er kyrfilega merkt "TIPS". Forsendur eru ţćr ađ uppistađan af útlendum túrhestum í lausagöngu á Íslandi er vanur ađ borga ţjórfé heimafyrir. Ţeir vita ekki ađ ţađ er ekki vani á Íslandi. Samt. Ţađ er reisn yfir ţví ađ ná ţjórfé af túrhestunum ofan á 500 króna hveitibollu.
Fjármál | Breytt s.d. kl. 18:04 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (12)
22.6.2017 | 19:12
Snillingarnir toppa hvern annan
Stundum er sagt um suma ráđamenn ađ ţeir sitji í fílabeinsturni. Ţá er átt viđ ađ ţeir séu úr tengslum viđ almúgann. Ţeir lifi í sýndarveruleika. Ţeir rađa í kringum sig já-mönnum. Loka eyrunum fyrir gagnrýnum röddum.
Á tíunda áratugnum hratt ţáverandi heilbrigđisráđherra úr vör verkefninu "Ísland án eiturlyfja 2002". Ég man ekki hver ţađ var en einhver Framsóknarmađur. Peningum var sturtađ í verkefniđ og gćđingum rađađ á jötuna; ótal nefndir og ráđ međ tilheyrandi fundarhöldum og veisluföngum.
Um síđustu aldamót vakti dómsráđherra, Sólveig Pétursdóttir, athygli fyrir ađ deila ekki salerni međ öđrum starfsmönnum ráđuneytisins. Ţess í stađ lét hann innrétta splunkunýtt einkaklósett sem kostađi milljónir króna. Gékk undir gćlunafninu gullklósettiđ. Enda var ekki vitađ um jafn dýrt og glćsilegt klósett hérlendis.
Ráđherrans er ekki síđur minnst fyrir skelegg viđbrögđ viđ kröfu um fjölgun lögregluţjóna. Hann lét fjöldaframleiđa pappalöggur! Ţeim var plantađ á ljósastaura viđ Reykjanesbraut. Pappalöggurnar útrýmdu ekki hrađakstri og öđrum afbrotum á Suđ-Vestur horni landsins. Fjarri ţví. Ţess í stađ var pappalöggunum stoliđ og vöktu kátínu í partýum út um allt.
Nokkru síđar fóru utanríkisráđherrann Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og forsćtisráđherrann Geir Haaarde á flug viđ ađ koma Íslandi í Öryggisráđ Sameinuđu ţjóđanna. Tilgangurinn var enginn nema ađ spila sig stóra/n í útlöndum. Allir međ lágmarksţekkingu á heimsmálum vissu ađ ţetta var meira en út í hött; meira en óraunhćft. Dćmigert heilkenni íbúa fílabeinsturnsins.
Ţetta var brandari. Dýr brandari. Yfir 1000 milljónum króna var sturtađ út um gluggann. Ísland átti aldrei raunhćfa möguleika á inngöngu í Öryggisráđiđ. Ţví síđur erindi.
Nú reynir fjármálaráđherrann, Benedikt, ađ toppa Sólveigu Pétursdóttur, Ingibjörgu Sólrúnu og Geir Haaarde. Hann bođar upprćtingu svartrar atvinnustarfsemi međ ţví ađ taka 10.000 kallinn og 5000 kallinn úr umferđ. Ţjóđinni og 2,5 milljónum túrista árlega verđi skylt ađ borga fjölskyldufyrirtćkjum Engeyinga, Borgun og Valitor, "kommisjón" af öllum viđskiptum.
Rökin eru snilld: Ţeir sem stunda svarta atvinnustarfsemi eru svo vitlausir ađ ef ţeir geta ekki borgađ međ 5000 kalli ţá fatta ţeir ekki ađ ţađ er hćgt ađ borga međ 5 ţúsund köllum.
![]() |
10.000 króna seđillinn úr umferđ |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Fjármál | Breytt 23.6.2017 kl. 10:21 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (10)
18.6.2017 | 13:00
Bensínsvindliđ
Margir kaupa eldsneyti á bílinn sinn hjá Kaupfélagi Garđahrepps - heildverslun. Bensínlítrinn ţar er ađ minnsta kosti 11 kr. lćgri en á nćst ódýrustu bensínstöđvum. Dćlt á tóman 35 lítra tank er sparnađurinn 385 kr. Munar um minna. Annađ hefur vakiđ athygli margra: Bensíniđ er ekki einungis ódýrast heldur miklu kröftugra og endingarbetra.
Fjöldinn hefur upplýst og skipst á reynslusögum á Fésbók, tísti og víđar. Gamlar kraftlitlar druslur breytast í tryllitćki sem reykspóla af minnsta tilefni. Rólegheitabílstjórar sem voru vanir ađ dóla á 80 kílómetra hrađa á ţjóđvegum eiga nú í basli međ ađ halda hrađanum undir 100 km.
Einn sem átti erindi úr Reykjavík til Sauđárkróks var vanur ađ komast á einum tanki norđur. Ţađ smellpassađi svo snyrtilega ađ hann renndi ćtíđ á síđasta lítranum upp ađ bensíndćlu Ábćjar. Ţar keypti hann pylsu af Gunnari Braga. Nú brá svo viđ ađ međ bensín frá KG á tanknum var nóg eftir ţegar hann nálgađist Varmahlíđ. Hann beygđi ţví til hćgri og linnti ekki látum fyrr en viđ Glerártorg á Akureyri. Samt gutlađi enn í tanknum.
Hvernig má ţetta vera? KG kaupir bensíniđ frá Skeljungi.
Skýringin liggur í ţví ađ Skeljungur (eins og Neinn og Olís) ţynnir sitt bensín međ etanóli á stöđvunum. Ţetta er gert í kyrrţey. Ţetta er leyndarmál. Hitt er annađ mál ađ Costco blandar saman viđ sitt bensín efni frá Lubisol. Ţsđ hreinsar og smyr vélina.
Fjármál | Breytt 22.6.2017 kl. 19:52 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (12)
24.5.2017 | 16:13
Costco veldur vonbrigđum
Ég átti erindi í Hafnarfjörđinn. Um leiđ var bíllinn ađ suđa um ađ fá bensín. Af ţví ađ ég er töluvert á rúntinum um allt höfuđborgarsvćđiđ ţá var upplagt ađ virkja gömlu kaupfélagshugsjónina og gerast félagsmađur í breska útibúi Costco í Garđabć (sem er útibú frá bandarísku demókratamóđurfélagi). Ég sé í hendi mér ađ til lengri tíma er sparnađur ađ kaupa bensínlítrann ţar á 170 (fremur en 186 í Orkunni).
Allt gekk ţetta hratt og vel fyrir sig. Allir sem ég átti samskipti viđ voru Bretar (allt í góđu. Ţađ er ekkert atvinnuleysi á Íslandi. En eitthvađ atvinnuleysi í Bretlandi). Frekar fáir á ferli - miđađ viđ ađ ţađ er 2. í Costco. Ég rölti hring inni í búđinni. Einsetumađur sem eldar ekki mat ţarf ekki ađ fínkemba matvörubretti. Ţó sá ég út undan mér ađ flest allt er selt í miklu stćrri pakkningum en íslenskir neytendur eiga ađ venjast. Einnig ađ ekki er hćgt ađ kaupa staka flösku af hinu eđa ţessu. Ađeins 20 - 40 flöskur í einingu. Enda heitir Costco fullu nafni Costco heildverslun. Fjölmennir vinnustađir og stćrri mötuneyti geta gert hagstćđ kaup. Einnig stórar fjölskyldur. Ýmislegt er á hćrra verđi en fyrst var slegiđ upp. Til ađ mynda kranavatn. Ţađ er á 11 krónur en ekki 6. Ađeins í 30 flaskna pakkningu. Sem svo sem eru ekki vond kaup - nema í samanburđi viđ ókeypis kranavatn.
Ég skimađi vel um fatadeildina. Rúmfatalagerinn er töluvert ódýrari. Hvort sem um er ađ rćđa gallabuxur, skyrtur, nćrföt eđa sokka.
Bónus, Krónan, Kostur, Nettó, Iceland og Elkó ţurfa ekki ađ óttast flótta á sínum viđskiptavinum yfir til Costco. Ađ ţví leyti olli Costco mér vonbrigđum. Verđlagningin ţar er ekki sú róttćka bylting sem lá í loftinu - og var bođuđ.
Ég keypti ekkert í Costco nema bensín. Ég skráđi ekki hjá mér verđ sem ég sá. Ég man ađ kílóverđ á Prince Póló er um 1100 kall. Svipađ og í Bónus. Heitur kjúklingur er á 1300 kall. Er ţađ ekki svipađ og í Krónunni? Kókómjólkin er á 230 kall. Er ţađ ekki svipađ og í Bónus? Kellog´s kornflögur á 475 kall. Sama verđ og í Bónus. Pylsa og gosglas kostar 400 kall í Costco en 195 kall í Ikea (hinumegin viđ götuna).
Ég fagna innkomu Costco alla leiđ. Undanfarnar vikur hafa íslenskar verslanir lagt sig fram um ađ lćkka verđ til ađ mćta samkeppninni. Ekki ađeins íslenskar verslanir. Líka erlendir framleiđendur og heildsalar. Margir ţeirra hafa skilgreint Ísland sem hálaunasvćđi; dýrt land og verđlagt sínar vörur hátt til samrćmis viđ ţađ. Nú ţurfa ţeir ađ endurskođa dćmiđ til ađ mćta samkeppninni.
Annađ gott: Costco selur ekki innkaupapoka. Viđskiptavinir verđa ađ taka poka međ sér ađ heiman. Eđa fá hjá Costco pappakassa - ef ţeir eru til stađar í ţađ skiptiđ. Ég sá fólk draga upp úr pússi sínu platspoka frá Bónus og Hagkaupum.
Ástćđa er til ađ taka međ í reikninginn ađ viđskiptavinir Bónus, Krónunnar, Kosts, Iceland, Nettó og Elkó ţurfa ekki ađ borga 5000 kall međ sér til ađ spara aurinn og henda krónunni. Eđa ţannig.
Túpupressan fćst nú í Skagafirđi
Túpupressan vinsćla fćst ekki í Costco. Hinsvegar fćst hún núna á Sauđárkróki. Nánar tiltekiđ hjá Nudd & trimform, Skagfirđingabraut 6. Listi yfir ađra sölustađi má finna međ ţví ađ smella HÉR
![]() |
Ódýrara í Costco en hann bjóst viđ |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Fjármál | Breytt 28.5.2017 kl. 12:48 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (10)