Hvenær byrja menn að neyta fíkniefna?

robbiewilliams

  Ég veit ekki af hverju síðustu færslur mínar fjalla um eiturlyf.  Kannski er undirmeðvitundin að búa mig undir að verða dópisti.  Eða þá að þetta er tilviljun.  Í Morgunblaðinu er frétt af breska píkupopparanum leiðinlega,  Robbie Williams.  Þar er sagt að hann hafi byrjað að neyta fíkniefna 1993.  Jafnframt er upplýst að áður en hann fór að neyta fíkniefna hafi hann verið í e-pillunni, spítti og sýru. 

  Einhverra hluta vegna rifjar þetta upp dómsorð í líkamsárásarmáli.  Þar sagði frá tveimur mönnum sem hittust á götu í Vestmannaeyjum.  Eftir rifrildi og hótanir fóru þeir að kýla og sparka í hvorn annan.  Síðan stóð í dómnum:  "Þessu næst fóru þeir að slást". 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sveinn Elías Hansson

Einn þekki ég sem hafði farið á Vog í afvötnun.

Læknirinn sagði við hann þegar hann útskrifaðist. Þú mátt aldrei neyta áfengi hér eftir.

Maðurinn hefur algerlega staðið við það, tók lækninn á orðinu, og neitar aldrei áfengi sé honum boðið það.

Sveinn Elías Hansson, 12.3.2010 kl. 01:53

2 Smámynd: Jens Guð

  Sveinn Elías,  þessi var góður

Jens Guð, 12.3.2010 kl. 02:07

3 Smámynd: Jenný Stefanía Jensdóttir

Kann að vera að píkupopparinn hafi orðað þetta öðruvísi, en í meðhöndlun fagmanna MBL birtist þetta svona fábjánalega, tja nema að skilgreining fíkniefna undanskilji e-pillu, spítt og sýru.

 Stjörnulögfræðingurinn gæti jafnvel notað þessi rök, næst þegar tekur til að verja "karlmann á sjötugsaldri" með "afleiður" e-pilla í iðrum sér.

Jenný Stefanía Jensdóttir, 12.3.2010 kl. 04:09

4 identicon

Kannski þú hafir verið hollenskur díler í fyrra lífi og þetta er einhvers konar síðbúið flassbakk?

Grefillinn Sjálfur - Koma svo! (IP-tala skráð) 12.3.2010 kl. 09:34

5 Smámynd: Jens Guð

  Jenný Stefanía,  áreiðanlega var þetta þýdd frétt.  Spurning hvort hún var þýdd orðrétt eða hvort boðskapurinn varð svona sérkennilegur í þýðingunni.  Að óreyndu hefði ég haldið að neysla á spítti,  e-pillum og sýru flokkaðist til fíkniefnaneyslu,  fremur en að lína sé dregin við útrásarvillinga-kók.

Jens Guð, 12.3.2010 kl. 11:30

6 Smámynd: Sigurbjörg Sigurðardóttir

Gaman að lesa hugafar Islendinga um allt sem heitir Fíkni, tala um það sem maður drekkur, áfengi það sem maður kyngir,pillur sveppi eða annað og það sem maður sígur upp í nös,svo það sem maður reykir og það er nú margt .Alltaf áhugavert.Hef upplifað margt og hef gaman að lesa athugasemdirnar.

Sigurbjörg Sigurðardóttir, 12.3.2010 kl. 21:47

7 Smámynd: Ómar Ingi

Þessi var snilld Sveinn

Ómar Ingi, 13.3.2010 kl. 13:25

8 Smámynd: Jens Guð

  Bergur,  það er mjög líkleg skýring. 

Jens Guð, 14.3.2010 kl. 14:00

9 Smámynd: Jens Guð

  Sigurbjörg,  um fátt er skemmtilegra að ræða. 

Jens Guð, 14.3.2010 kl. 14:01

10 Smámynd: Jens Guð

   Ómar Ingi, hvað varð um færsluna þína með spánni um úrslit í Óskarnum?

Jens Guð, 14.3.2010 kl. 14:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband