Meiriháttar flottar ljósmyndir af eldgosinu

  Fyrir tveimur árum (júní 2008) skrapp ég til Boston í Bandaríkjunum.  Svo einkennilega vildi til að á þeim tímapunkti fór þar á hausinn fríblað í eigu Íslendinga.  Mig minnir að það hafi heitið Boston News.  Það var í eigu Baugsfeðga.  Það kom mér á óvart að hljótt hafði farið um þetta blað í íslenskum fjölmiðlum.  Einnig þegar það fór á hausinn.  En í Boston gerðu "lókal"fjölmiðlar mikið úr örlögum þessa fríblaðs.

  Bostonbúar skildu hvorki upp né niður í þessu uppátæki Íslendinga að ryðjast inn á dagblaðamarkað í Boston.  Sögðu það ganga brjálæði næst.  Dæmið væri svo vonlaust. 

  Svo undarlega vildi til að í Boston rakst ég á fjölda Íslendinga.  Ég þekkti þá ekki alla með nafni.  En kannaðist við menn eins og Kára Stefánsson,  Geir Haaarde og Lúðvík Bergsveinsson (eða hvað hann heitir samfylkingargaurinn með öll bankalánin).  Þetta lið rölti um aðal verslunargötuna í Boston ásamt fjölda annarra Íslendinga.

  Áður en ég fór til Boston hef ég aðallega verið í suðurríkjum Bandaríkjanna.  Ólíkt suðurríkjamönnum eru Bostonbúar mjög evrópskir og fylgjast vel með heimsmálum.  Ég held að ég hafi ekki hitt neinn Bostonbúa sem var ekki neikvæður í garð Bush.  Jafnframt kom mér á óvart hvað margir þekktu til Íslands,  áttu plötur með Björk og Sigur Rós og voru bara vel á nótunum.  Töluvert annað en þegar rætt er við suðurríkjamenn.

  Hér er safn frábærra ljósmynda af eldgosunum á Íslandi birtar á boston.com (smelltu á slóðina):    http://www.boston.com/bigpicture/2010/04/more_from_eyjafjallajokull.html


mbl.is Mun stærra íslenskt eldfjall „við það að springa“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég á komment númer 1317

Grefillinn Sjálfur - Koma svo! (IP-tala skráð) 22.4.2010 kl. 23:59

2 Smámynd: Jens Guð

  Grefill,  til hamingju með það!

Jens Guð, 23.4.2010 kl. 00:09

3 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Þarna eru margar fallegar myndir sem ég hef ekki séð áður.

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 23.4.2010 kl. 01:36

4 identicon

Þakka þér fyrir ... ég roðna alveg ...

Grefillinn Sjálfur - Koma svo! (IP-tala skráð) 23.4.2010 kl. 01:40

5 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ásdís Sigurðardóttir, 23.4.2010 kl. 12:13

6 Smámynd: Þorsteinn Briem

Gleðilegt sumar, Jensinn minn!

Þorsteinn Briem, 23.4.2010 kl. 12:19

7 Smámynd: Jens Guð

  Jóna Kolbrún,  þær eru ótrúlega flottar flestar.

Jens Guð, 23.4.2010 kl. 12:21

8 Smámynd: Jens Guð

  Grefill,  láttu það eftir þér.

Jens Guð, 23.4.2010 kl. 12:21

9 Smámynd: Jens Guð

  Ásdís,  takk fyrir innlitið.

Jens Guð, 23.4.2010 kl. 12:21

10 Smámynd: Jens Guð

  Steini,  gleðilegt sumar!

Jens Guð, 23.4.2010 kl. 12:22

11 Smámynd: Ómar Ingi

Sumarið Jens

hérna er eitt fyrir þig http://ommi.blog.is/blog/ommi/entry/1046506/

Ómar Ingi, 23.4.2010 kl. 14:57

12 Smámynd: Jens Guð

  Ómar Ingi,  blessaðar skepnurnar. 

Jens Guð, 23.4.2010 kl. 20:19

13 Smámynd: Guðmundur Júlíusson

sá þetta í vikunni og er alveg ótrúlega flott, en það er engu að síður skemtilegra að lesa kommentin í lok myndanna þar sem fólk hvaðanæva úr heiminum er að kommenta á þetta!

Guðmundur Júlíusson, 23.4.2010 kl. 20:32

14 Smámynd: Jens Guð

  Guðmundur,  takk fyrir að benda á það.  Ég var sjálfur ekki búinn að fatta að "komment" fylgi myndunum.

Jens Guð, 23.4.2010 kl. 21:19

15 Smámynd: Jens Guð

  Hannes,  það er alveg ljómandi að vera með öfga í músík.  Mér finnst það.  Ég er öfgakall í músík.  Það er gaman.

Jens Guð, 23.4.2010 kl. 23:11

16 Smámynd: Sigurbjörg Sigurðardóttir

Er búinn að sjá marga myndir sendar til okkar sem vinnum í ferðabrasanum,en sumar sem þú sendir hef ég ekki séð.Frábærar.Takk,

Sigurbjörg Sigurðardóttir, 24.4.2010 kl. 00:45

17 Smámynd: Jens Guð

  Sigurbjörg,  ég er dolfallinn af hrifningu yfir þessum myndum á boston.com.  Mér þykir frábært að þessi vinsæli vefur skuli hafa smalað saman þessu myndum frá hinum ýmsu ljósmyndurum.  Þetta staðfestir fyrir mér og rifjar upp hvað Bostonbúar þekkja vel til Íslands.  Og hafa áhuga á þessari eyju í austri.  Sem er mjög ólíkt fáfræðinni í suðurríkjum Bandaríkjanna.

Jens Guð, 24.4.2010 kl. 01:01

18 Smámynd: Sigurbjörg Sigurðardóttir

Fór til Boston fyrir 3 árum síðan (fyrsta skipti til hennar Ameriku) Frábær borg og hafði gaman af. En ég fór 19 janúar og herrar mínir það var -19 stiga frost jesus hef aldrei upplifað annans eins kulda.En skemtileg borg mjög svo evrópsk.

Sigurbjörg Sigurðardóttir, 24.4.2010 kl. 01:25

19 Smámynd: Jens Guð

  Sigurbjörg,  Boston er dálítið norðarlega og þar getur verið kalt.  Eitt sem ástæða er til að vekja athygli á fyrir Íslendinga sem ferðast til Boston:  Þegar lent er þar á flugvelli hringir maður á hótelið og er þá sóttur án aukagjalds á flugvöllinn.

Jens Guð, 24.4.2010 kl. 01:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.