Skúbb! Íslensk hljómsveit slær í gegn í Brasilíu

Q4U - best of

  Brasilíski plötumarkaðurinn er einn sá stærsti í heiminum.  Ekki aðeins eru íbúar Brasilíu um 200 milljónir heldur nær brasilíski markaðurinn langt út fyrir landamæri Brasilíu.  Til að mynda nær hann yfir til nágrannalanda og einnig til Portúgals.  Í liðinni viku kom út í Brasilu safnplata með íslensku pönkhljómsveitinni Q4U.  Útgefandinn er eitt stærsta þarlenda plötufyrirtækið,  Wave Records.  

  Forsaga málsins er merkileg.  Forstjóri Wave Records heyrði eitthvað með Q4U fyrir nokkrum árum en gekk illa að ná sambandi við liðsmenn Q4U.  Það tók hann tvö ár eða svo að leita hljómsveitina uppi.  Þegar það loksins tókst vildi hann gera mikið til að afgreiða hana almennilega.  Í síðustu viku gaf hann út "Best of" plötu með Q4U en hefur á plötunni einnig ný lög með hljómsveitinni.  Útgáfunni vill hann fylgja eftir með hljómleikum hljómsveitarinnar í Brasilíu og myndböndum. 

  Á heimasíðu Wave Records er nýja platan með Q4U efst á blaði: 

http://www.waverecordsmusic.com/q4U_bestof_port.htm

  Þetta er virkilega spennandi dæmi.

 

  Til gamans má geta að Q4U á einnig þokkalega fjölmennan harðsnúinn kjarna aðdáenda í Þýskalandi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Númi litli heldur mikið uppá þessa hljómsveit, og á allt sem komið hefur út með þeim.

Númi (IP-tala skráð) 10.8.2011 kl. 21:21

2 identicon

http://www.popsike.com/php/quicksearch.php?searchtext=Q4U&x=18&y=11

$490 var einhver tilbúinn að borga fyrir gott eintak.

Jóhann (IP-tala skráð) 10.8.2011 kl. 21:39

3 Smámynd: Jens Guð

  Númi,  ég deili þessu með þér.  Hef fylgst með Q4U frá fyrstu hljómleikum og á allt með þeim.  Þar fyrir utan eru liðsmenn Q4U sérlega skemmtilegt fólk.  Þegar ég var með pönkplötubúðina Stuð á Laugarveginum var ég iðulega með pönkhljómleika á föstudögum.  Þeir allra bestu og eftirminnanlegustu voru með Q4U.  Ellý sagði mér um daginn að það hafi jafnframt verið einir af hennar eftirminnanlegustu hljómleikum Q4U frá því tímabili.

Jens Guð, 11.8.2011 kl. 01:32

4 Smámynd: Jens Guð

  Jóhann,  bestu þakkir fyrir þessa ábendingu.

Jens Guð, 11.8.2011 kl. 01:32

5 Smámynd: Jens Guð

  Fréttin af þessum óvæntu vinsældum Q4U í Brasilíu voru í dag inn á lista www,eyjan.is yfir vinsælustu fréttir.

Jens Guð, 11.8.2011 kl. 01:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband