Íslensk terta

íslensk terta

  Á færeyskri netsíðu rakst ég á bráðskemmtilega uppskrift að íslenskri tertu.  Hún er kannski áhugavert innlegg í umræðu um "íslenska kúrinn" hans Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar,  eiganda 600 milljón króna.  Uppskriftin er þannig:  Tekinn er tertudiskur ofan úr skáp.  Á hann er lögð há skál á hvolf.  Hún þarf að vera örlítið minni en diskurinn.  Utan á skálina er raðað súkkulaðikexi sem heitir Kit-Kat.  Það er að vísu útlent (að ég held).  En mestu máli skiptir að utan um kexið sé hnýttur borði í íslenskum fánalitum. 

  Skálinni er varlega lyft upp og í hennar stað hellt M&M súkkulaðikúlum.  Þær eru reyndar líka útlenskar (að ég held).  Þegar kúlurnar hafa fyllt upp í rýmið eftir skálina er tertan tilbúin.  Kannski má nota súrsaða hrútspunga í staðinn fyrir M&M kúlurnar?  Að minnsta kosti á virkum dögum.  En M&M kúlurnar á laugardögum (nammideginum). 

.  


mbl.is Glæpsamlegur kleinuhringur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er Sigmundur ekki bara þambandi mysu og skóflandi í sig lifrapylsu?

Gunnar (IP-tala skráð) 25.8.2011 kl. 08:24

2 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Þú lýgur þessu. Þetta er kakan sem Siggi Einars pantaði þegar hann var búinn að eignast 12 banka, sem voru tómir en skörtuðu litfögrum kúlulánum. Utan um svikakökuna stóðu svo máttarstólpar Íslensks þjóðfélags vörð, hnýttir saman í þjóðernisrembingi og græðgishjúp. 

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 25.8.2011 kl. 09:48

3 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Nammi namm

Ásdís Sigurðardóttir, 25.8.2011 kl. 12:00

4 Smámynd: Birna Jensdóttir

Glæsileg þessi.

Birna Jensdóttir, 25.8.2011 kl. 16:44

5 Smámynd: Sigurbjörg Sigurðardóttir

Sigurbjörg Sigurðardóttir, 27.8.2011 kl. 13:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband