Ekki láta hanka þig í gamaldags og úreltri tísku!

stóll 3stóll 4stóll 5stóll 6stóll 7stóll 8stóll 9

  Það er gríðar mikilvægt að tolla í tískunni.  Sá sem klúðrar því er í vondum málum.  Nú fer hver að verða síðastur að skipta yfir í nýjustu stólatískuna.  Góðu fréttirnar eru að það kostar ekki krónu og fyrirhöfnin tekur ekki meira en örfáar mínútur.  Ótrúlegt en satt.  Og heimilið breytir um svip svo um munar.  Verður umlukið tískunni og kemur gestum rækilega í skilning um að þetta heimili sé ekki eitt af þeim púkalega gamaldags og úreltu þar sem hallærislegheit eyðileggja allt og fæla gesti burt.

  Byrjum á eldhúsinu.  Við eldhúsborðið eru um það bil 6 stólar.  Þeir eru allir eins.  Það er komið úr tísku.  Núna eiga eldhússtólar að vera eins ólíkir hver öðrum og hugsast getur.  Bæði að lögun og lit. 

  Hvernig má leysa það?  Svar:  Taka alla stólana nema einn og rölta með þá út á götu.  Þaðan er einn stóllinn borinn að næsta húsi og beðið um að skipt sé á honum og stóli í því húsi.  Þannig er gengið með hvern stól á fætur öðrum í þarnæstu hús þangað til tískunni er náð. 

  Kannski þarf að útskýra erindið fyrir nágrönnunum.  Þó er öllu líklegra að þeir viti um hvað málið snýst og fagni ofsafengið að fá að taka þátt í nýjustu tísku.

  Næst er sami leikur framinn með borðstofustóla og sófasett.  Síðan er röðin komin að vinnustaðnum. 

  Þegar hvergi sjást tveir stólar saman af sömu tegund og í sama lit er ástæða til að ganga því næst ætíð í ósamstæðum sokkum.  Með því er þessi tískubylgja fullkomnuð. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mér líst mjög vel á byssustólinn en ég held að hann geti orðið dýr

Grrr (IP-tala skráð) 7.11.2011 kl. 02:30

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ásdís Sigurðardóttir, 7.11.2011 kl. 11:16

3 identicon

Þeir einu sem tolla í tísku eru þeir sem fylgjast ekki með tísku.

DoctorE (IP-tala skráð) 7.11.2011 kl. 14:42

4 Smámynd: Jens Guð

   Grrr,  mér líst einnig vel á geisladiskastólinn.  En þessir dýru stórar eiga yfirleitt sameiginlegt að vera ekki eins þægilegir í notkun og ódýrustu stólar.

Jens Guð, 7.11.2011 kl. 19:36

5 Smámynd: Jens Guð

   Ásdís,  takk fyrir innlitið.

Jens Guð, 7.11.2011 kl. 19:36

6 Smámynd: Jens Guð

  DoctorE,  tískuiðnaðurinn heldur öðru fram.

Jens Guð, 7.11.2011 kl. 19:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband