Þegar hljómsveitir voru töff í útliti - skemmtilegar myndir

  Í gamla daga voru liðsmenn hljómsveita kallaðir hljómsveitatöffarar og poppstjörnur.  Þeir voru svo svalir og töff.  Kynþokkinn geislaði af þeim.  Af hverju er þetta ekki lengur svona?  Hvað gerðist?  Núna eru liðsmenn hljómsveita bara venjulegt og hversdagslegt fólk.  Skera sig ekkert frá skrílnum að neinu leyti.  Það er ekkert gaman.  Þess í stað er gaman að ylja sér við að rifja upp þá gömlu góðu daga þegar töffararnir réðu ríkjum.

þegar fólk var svalt og töff - mamma umbi

  Þarna var blandað saman samræmdum hljómsveitarbúningi og síðu hippahári áttunda áratugarins.  Hárið er vel greitt og snyrt.  Allir með snyrtan topp en hárið fær að vaxa villt yfir eyrun.  Snyrtimennska og "wild" í bland.  Þannig var það þegar mamman fékk að vera stílisti hljómsveitarinnar.

þegar fólk var svalt og töff - sítt að aftanþegar fólk var svalt og töff - herðapúðar og blásið hár

   Hér er það níundi áratugurinn.  Hárið er litað,  blásið og látið halda sér snyrtilega úfið með lakkúða.  Það sést ekki vel en í þessari línu fylgdi að augnlínur voru skerptar með lit og augnskuggum.  Í herðar á jökkum og frökkum var troðið stórum púðum.  Það þótti svalast að bretta aðeins upp á frakkaermar.  Hvítt belti og hvítir skór voru töff.  Söngvarinn fékk iðulega að skera sig úr með því að vera í skærlitum plastgalla.  Svona hljómsveitir spiluðu tölvupopp og hafa verið kenndar við hárstílinn sítt-að-aftan (mullet).  

þegar fólk var svalt og töff - The Dance Band

  Sumar danshljómsveitir níunda áratugnum buðu upp á blandaðan stíl:  Einn töffarinn var með sítt-að-aftan,  annar með afró-hár,  þriðji í Village People múnderingu,  fjórði með hipp-hopp húfu og sólgleraugu og svo framvegis. 

þegar fólk var svalt og töff - Pretty Boy Floyd

  Á áttunda áratugnum varð til fyrirbæri innan þungarokksins sem kallaðist glysrokk.  Hluti af glysrokkinu var hármetall (hair metal).  Hugsanleg ástæða fyrir nafngiftinni getur verið sú að hárið var verulega sítt.  Liðsmenn hármetalsveita mála sig ennþá meira en sítt-að-aftan töffararnir og mála sig heldur ekki eins fagmannlega.  Hármetalsveitirnar spruttu aftur upp í Bandaríkjunum í lok níunda áratugarins.  Í það skiptið voru hljómsveitirnar léttklæddar.  Enda oft hlýtt í Bandaríkjunum.

þegar fólk var svalt og töff - Venom

  Svo eru það þungarokkshljómsveitir sem hafa sótt í víkingastemmningu.  Þar er oft nekt og uppháum þröngum stígvélum blandað saman,  ásamt hálsfestum, armböndum og allskonar glingri,  gömlum vopnum og reiðilegum grimmum svip. 

þegar fólk var svalt og töff - Grandmaster Flash

  Fönkhljómsveitir hafa oft verið rífandi svalar.  Þar hefur guli liturinn iðulega fengið að njóta sín.

þegar fólk var svalt og töff - Blue Beatles

  Fjöldi tónlistarmanna hefur stytt sér leið að töffaraímyndinni með því að herma eftir þeim svölustu.  Ttibute-bandið The Blue Beatles fór létt með það.  Þrátt fyrir að vera að nálgast eða komnir á fimmtugs aldur létu þeir sig ekki muna um að herma eftir útliti Bítlanna frá þeim tíma sem Bítlarnir voru ennþá á unglingsárum.  Kragalausu jakkafötin og hárlubbi niður eftir enni og út yfir eyru klæða miðaldra kallana alveg jafn vel og unglingsdrengina í Liverpool.  

þegar fólk var svalt og töff - presley herma

  En hvað er til ráða fyrir lúða sem lítur út eins og Phil Collins?  Hann skellir sér í Elvis-galla og verður umsvifalaust svalasti töffari allra.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: hilmar  jónsson

Those were the days...sniff

hilmar jónsson, 20.1.2013 kl. 21:35

2 Smámynd: Heimir Tómasson

Jeminn...

Heimir Tómasson, 21.1.2013 kl. 11:22

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hahaha sá síðasti virðist vera með pungsig.... eða þannig

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.1.2013 kl. 12:37

4 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Held þetta sé ekki pungsig,Ásthildur.Held að hann sé í USA og þar eru allie vopnaðir.

Jósef Smári Ásmundsson, 21.1.2013 kl. 18:16

5 Smámynd: Jens Guð

  Hilmar,  í þá gömlu góðu daga...

Jens Guð, 21.1.2013 kl. 19:35

6 Smámynd: Jens Guð

  Heimir,  takk fyrir innlitið.

Jens Guð, 21.1.2013 kl. 19:35

7 Smámynd: Jens Guð

  Ásthildur Cesil,  hehehe!  Það er eitthvað snúið við þennan náunga.

Jens Guð, 21.1.2013 kl. 19:38

8 Smámynd: Jens Guð

  Jósef,  þetta er góð tilgáta.

Jens Guð, 21.1.2013 kl. 19:38

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ha Jósef! er hægt að geyma byssu þarna líka?

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.1.2013 kl. 20:18

10 Smámynd: Jens Guð

  Ásthildur Cesil,  er þetta ekki frekar líkt handsprengju?

Jens Guð, 21.1.2013 kl. 20:59

11 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Nebb sigin og súrsaður pungur hehehehe

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 21.1.2013 kl. 21:35

12 identicon

Þessir efstu hljóta að vera færeyskir?

Tobbi (IP-tala skráð) 21.1.2013 kl. 21:54

13 Smámynd: Jens Guð

  Tobbi,  nei, nei nei!  Færeyingar eru aldrei hallærislega töff.  Þeir eru bara töff.

Jens Guð, 21.1.2013 kl. 22:45

14 identicon

Feita Misfits cover bandið er ansi flott:

http://3.bp.blogspot.com/_klU2DaXln2c/TGsX4Y6Q8sI/AAAAAAAALIA/MShwt9EOFUg/s1600/1misfats.jpg

Grrr (IP-tala skráð) 21.1.2013 kl. 23:50

15 Smámynd: Jens Guð

  Ég er aðdáandi Misfits.  Að vísu deili ég ekki frjálshyggjuskoðunum með Michales Graves.  Sem svo sem er allt í lagi.  Hann stangast á við sjálfan sig:  Er harðlínu andstæðingur eiturlyfja en hefur verið staðinn að notkun sterkra eiturlyfja.  Það er bara í stíl við fleiri af hans sauðarhúsi.  En Misfits er góð skemmtun.  

Jens Guð, 22.1.2013 kl. 00:39

16 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Já Ásthildur.Held meira að segja að þetta sé Colt 45,sama og ég er með.Það má nú hleypa af í nokkrar hryssurnar með því verkæri.

Jósef Smári Ásmundsson, 22.1.2013 kl. 15:01

17 Smámynd: Ómar Ingi

http://ommi.blog.is/blog/ommi/entry/1278461/

Varstu nokkuð búin að sjá þetta ?

Ómar Ingi, 23.1.2013 kl. 00:10

18 identicon

Þarf að muna að lesa ekki svona þegar ég er með munninn fullan af kaffi. :D

Einar Steinn Valgarðsson (IP-tala skráð) 23.1.2013 kl. 16:14

19 Smámynd: Jens Guð

  Ómar Ingi,  ég var ekki búinn að sjá þetta.  Takk fyrir ábendinguna.

Jens Guð, 23.1.2013 kl. 18:53

20 Smámynd: Jens Guð

  Einar Steinn,  takk fyrir innlitið. 

Jens Guð, 23.1.2013 kl. 18:54

21 Smámynd: Hjóla-Hrönn

Þetta er awsome! Guli fönkgallinn er tótallí eitthvað sem ég myndi vilja eignast. Þó að ég sé ansi svört í klæðaburði þá er líka stundum gaman að klæða sig glannalega. Einhvern tíma á ég eftir að leigja mér hvítan brúðarkjól með slöri og alles og skella mér á djammið. Skrifa aftan á bakið "Ég komst undan..." Gosh, hversu margir myndu ekki skála við mig...

Hjóla-Hrönn, 23.1.2013 kl. 20:32

22 Smámynd: Jens Guð

  Hjóla-Hrönn,  ég má ekki missa af þessum brúðarkjóls-gjörningi þínum.

Jens Guð, 23.1.2013 kl. 20:50

23 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jósef heheheh.....

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 23.1.2013 kl. 20:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband