Það er svo geggjað...

  Findus hefur í langan tíma verið framarlega í framleiðslu og sölu á tilbúnum klárum frystum nautakjötsréttum.  Réttirnir hafa þótt vera á hóflegu verði í almennt hryssingslegu verði stórmarkaða.  Nú hafa Findus-menn hleypt á skeið og eru farnir að bjóða upp á ferskvöru, frísandi ferskt nautakjöt.

findus ferskvara


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Jens, er þetta ekki atvinnurógur ?

Án alls gamans, hvar eru til óspillt viðskipti ?

Hvers vegna er verið að skerða lífeyris fólks í lífeyrissjóðum ?

Hversu mörgum ,,hrosskjöts"  málum hafa lífeyrisstjórnir ekki komið að ?

Hvað ætlar formaður sjálfstæðisflokksins að framkvæma til að gera ,,allt fyrir alla"  sem kostar ekkert ?

Þarf Þorgerður Katrín ekki að passa hestana sína sv Bjarni Ben. taki þá ekki og selji sem fyrsta flokks nautakjöt ?

Þú sérð það Jens , það má snúa þeeum gjörningi þínum upp á marga !

JR (IP-tala skráð) 22.2.2013 kl. 22:22

2 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ég skil ekki þetta fár yfir gæðavöru.  Það er ögn öfugsnúið að allt sé vitlaust vegna þess að menn fá með samblöndun á hrossakjöti við nautakjöt betri vöru fyrir verri og á lægra verði.  Það vita allir að hrossakjöt er miklu betra kjöt en nautakjöt svo ekki sé talað um samanburðinn við beljukjötið, sem allir halda hér á landi að sé urðað eða eitthvað, því ekki er það til sölu í búðum undir réttu nafni. Það er niðurlæging fyrir hrossakjötið að blanda því saman við eitthvert nautakjötsómeti.

Þó ég sé mikill aðdáandi hrossakjöts, þá vill ég fá það afgreitt á fæti og með fullum reiðtygjum, því þrátt fyrir alla nútíma tækni er ekki hægt að slátra minna en einum hesti í einu.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 23.2.2013 kl. 10:20

3 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

 ....þá vill ég ekki fá það afgreitt á fæti og með fullum reiðtygjum...  átti þetta að vera.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 23.2.2013 kl. 10:59

4 Smámynd: Jens Guð

  JR,  þetta er ekki atvinnurógur heldur hin besta auglýsing fyrir Findus.

Jens Guð, 23.2.2013 kl. 15:27

5 Smámynd: Jens Guð

  Axel Jóhann,  það eru aðeins örfáir áratugir síðan Íslendingar og fleiri fóru að borða hrossakjöt.  Samkvæmt fyrirmælum Biblíunnar má aðeins borða kjöt af dýrum sem bæði hafa klaufir og jórtra.  Svín hafa klaufir en jórtra ekki.  Hestar hafa hvorki klaufir né jórtra. 

  Í fátækt, hungri og harðindum fyrri alda var freistandi að slátra hesti.  En það hefði þýtt bjargráðaleysi þegar kom að vor- og sumarverkum.  Þess vegna var praktískt að hamra á því að ekki mætti borða hrossakjöt.  Alveg fram á sjöunda áratug síðustu aldar trúðu Íslendingar því að át á hrossakjöti myndi senda þá rakleitt niður til helvítis og þangað til myndi vera af þeim stækur fnykur hrossataðs. 

Jens Guð, 23.2.2013 kl. 15:34

6 Smámynd: hilmar  jónsson

Ef valið stendur á milli hrossafile og nautafile, þá vel ég hestinn. Einfaldlega betra kjöt.

hilmar jónsson, 23.2.2013 kl. 17:12

7 identicon

Heyrði það á Rás 2 í síðdegisþætti í dag að núna vantar hrossakjöt í Danmörku og farið er að nota nautakjöt sem hrossakjöt ! Er þetta ekki dásamtlegt ?

JR (IP-tala skráð) 23.2.2013 kl. 18:29

8 Smámynd: Jens Guð

  Hilmar,  ég er sammála því að hrossakjöt sé betri kostur.

Jens Guð, 24.2.2013 kl. 00:43

9 Smámynd: Jens Guð

  JR,  þetta er vandamál á öllum Norðurlöndum.  Hrossakjöt skortir.  Það er að segja samkvæmt uppgefnum tölum frá sláturhúsum og matvælafyrirtækjum.  Vitað er um fjölda hrossa en afföll/slátrun á þeim er allt önnur tala en sala á hrossakjöti. 

Jens Guð, 24.2.2013 kl. 00:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband