Kleppur er víða

hofsvallagata.jpg

 

 

 

 

 

 

 

  Íslendingar hafa löngum hlegið að heimsku bræðranna á Bakka í Svarfaðardal,  þeim Gísla, Eiríks og Helga.  Heimildir herma að þeir hafi verið svo illa gefnir að einföldustu verk þvældust fyrir þeim og enduðu iðulega í klúðri.  Áreiðanlegustu heimildir herma að þannig hafi það verið en þekktustu sögurnar af Bakkabræðrum eru þó innfluttar frá Bretlandi.  Það eru flökkusögur sem margir kannast einnig við sem sögur af dönsku Molbúum.

litrikar_gangbrautir.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 

  Við þurfum ekki lengur innfluttar sögur af vitleysisgangi.  Af nógu er að taka hér á höfuðborgarsvæðinu.  Gott dæmi: Þessa dagana skiptist starfsfólk umhverfis- og skipulagssviðs á við lögregluna um að koma fyrir og fjarlægja litríkar gangbrautir í Laugardal.  

  Starfsfólk umhverfis- og skipulagssviðs kemur gangbrautunum niður og lögreglan rífur þær upp jafn óðum.  Þannig hefur það gengið fyrir sig í dag.  Líklegt er talið að þetta haldi áfram fram eftir helgi.  Enda fátt annað að gera á þessum tíma árs.  Lögreglustjórinn útskýrði framgöngu lögreglunnar með þeim orðum að enginn hafi gefið lögreglunni fyrirmæli um að fjarlægja EKKI litríku gangbrautirnar.  

  Verktakar sem breyttu Hofsvallagötunni í hjólreiðavæna götu á dögunum lentu í svipuðu atviki.  Þeir höfðu ekki undan að merkja hjólreiðastíga í skærum litum.  Starfsmenn Reykjavíkurborgar spúluðu merkingarnar jafn harðan í burtu.   Það var ekki fyrr en fjölmiðlar komust í málið sem lát varð á þráteflinu.

  Á Seltjarnarnesi stóð lengi á stalli glæsilegur skúlptúr eftir Sigurjón Ólafsson.  Þegar World Class byggði æfingastöð á Nesinu átti að færa skúlptúrinn.  Það tókst ekki betur til en svo að honum var fyrst komið fyrir í geymslu og síðar hent þaðan út með "öðru" rusli.  Að lokum fannst hann í reiðuleysi og allur í klessu úti á túni innanum drasl.  

listaverk_sigurjon2.png

   

 

 

 

 

 

  Mynd tekin af www.eirikurjonsson.is


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Magnaðast er tvískinnungur Gnarrs hvað varðar réttindi samkynheigðra.

Hann vill/vildi slíta vinskap við rússa fyrir það að virða ekki rétt samkynhneigðra, en hann gefur múslimum (í trúarriti þeirra eru samkynhneigðir réttdræpir) eina bestu lóð landsins til að stofna útibú, til að viðhalda þeim hatursboðskap.

"The Hadith and homosexuality: The Hadith are collections of sayings attributed to Muhammad. Many Hadiths (ahadith) discuss liwat (sexual intercourse between males). Two examples are:

"When a man mounts another man, the throne of God shakes."

"Kill the one that is doing it and also kill the one that it is being done to." (in reference to the active and passive partners in gay sexual intercourse)

Grrr (IP-tala skráð) 28.9.2013 kl. 15:13

2 identicon

Vantaði heimildina, http://www.missionislam.com/knowledge/homosexuality.htm

Þetta er s.s. pro íslam síða

Grrr (IP-tala skráð) 28.9.2013 kl. 15:14

3 Smámynd: Jens Guð

   Grrr,  bækur eru varasamar.

Jens Guð, 29.9.2013 kl. 22:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband