Kröfuharkan eykst

  Gamaldags umburðarlyndi og frjálslyndi eru á hröðu undanhaldi.  Þess í stað vaða smámunasemi og sérviskuleg kröfuharka uppi sem aldrei fyrr.  Það er eiginlega sama hvar borið er niður.  Þetta er allsstaðar og allt á eina bókina lært.  Til að mynda er íslenskt flugfélag að auglýsa þessa dagana eftir flugmönnum til vinnu.  Í auglýsingunum er tekið fram að umsækjendur þurfi að vera með gilt flugskírteini.

  Svona "tiktúrur" eru ekki bundnar við Ísland,  fremur en svo margt annað.   Frá Danmörku berast  fréttir um hliðstæða öfugþróun.  Þarlent safnaðarráðið er farið að taka fram í auglýsingum eftir prestum að þeir þurfi að trúa á guð.     


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég óska eftir alþingismanni sem að fylgir sinni sannfæringu

Grrr (IP-tala skráð) 10.10.2013 kl. 22:04

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hahaha þú bjargaðir kvöldinu (nóttinni) fyrir mér Jens.  Annars var ég að skoða mynd af þér í kvöld. Fór á Ipadnámskeið í Fræðslumiðstöð Vestfjarða, og sá þá að þar hékk flott mynd af þér upp á vegg, sennilega eftir skrautskriftarnámskeið.  Og ég hugsaði með mér alltaf jafnflottur þessi strákur.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 11.10.2013 kl. 00:33

3 identicon

Já og einu sinni var hér borgarstjóri sem þurfti að framvísa heilbrigðisvottorði. Núverandi borgarstjórnarlið er reyndar ekki upp á marga fiska hvar í flokkum sem það er og t.d. hröktu samherjar Gísla Marteins hann í burtu. Það er ekkert nýtt í borgarstjórn Reykjavíkur að fulltrúar þar hrekist út og suður, endalaus skrípaleikur og trúðslæti þar. Staffið á ruslabílunum virðist vera mun duglegra og skynsamara. Það ætti kanski að prófa að skipta þeim inn í Ráðhúsið og borgarstjórnarfulltrúum út á ruslabílana í mánuð eða svo og kenna þessu liði að vinna. Í Alþingishúsinu glymur bjallan endalaust og stundum virðist það vera að ástæðulausu, en samt ekki, það eru jú margir bjöllusauðir þar inni.   

Stefán (IP-tala skráð) 11.10.2013 kl. 08:31

4 Smámynd: Jens Guð

  Grrr,  þar er á bratta að sækja.  Einkum ef krafa snýr að fjórflokkamafíunni.

Jens Guð, 12.10.2013 kl. 00:10

5 Smámynd: Jens Guð

  Ásthildur Cesil,  gaman að þessu. 

Jens Guð, 12.10.2013 kl. 00:20

6 Smámynd: Jens Guð

  Stefán,  ég er alveg á öndverðri skoðun við Gísla Martein í flugvallarmálinu. Hinsvegar ber ég virðingu fyrir því hvað hann er sjálfum sér samkvæmur í því máli og öllum öðrum málum.  Hann hefur verið talsmaður samstöðustjórnmála í orði og á borði.  Það er plús í hans kladda. 

Jens Guð, 12.10.2013 kl. 00:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.