Sjálfsmyndir afhjúpa geðheilsu

  Sjálfsmyndir,  svokallaðar sjálfur eða "selfies",  eru tískufyrirbæri.  Í fyrra var þetta "orð ársins" í Bretlandi.  Algengasta orðið á samfélagsmiðlum í netheimum.  Og kannski víðar.  Eðlilega eru sálfræðingar og geðlæknar farnir að gefa fyrirbærinu gaum.  Niðurstaða skoðunar og greiningar á fyrirbærinu er þessi:  Það er eðlilegt og ekkert athugavert við að fólk taki sjálfsmynd og deili á fésbók og instigram.  Vandamálið er að þegar fólk verður upptekið af sjálfsmyndum þá sé andleg heilsa í ólagi.  Það er sterkt samband þarna á milli.  Þeim mun fleiri sjálfsmyndir því verri er andlega heilsan.  Sjálfhverf hugsun,  sjálfsdýrkun og þráhyggja.

  Frægasta fjölmiðlafígúra sem er uppteknust af sjálfsmyndum er kanadíski klikkhausinn Justin Bieber.     

  Þegar slegið er inn í "gúggl" orðin "selfies and mental illness" skilar leitin 50 milljón síðum.   Reyndar er þetta svo augljóst að engin þörf er á að bera málið undir sálfræðinga og geðlækna.  Ekki frekar en að hómópata-bullið eða smáskammtalækningar standast auðvitað engar alvöru vísindalegar rannsóknir.  Né heldur höfuðbeina- og spjaldhryggsruglið og það allt.  Svo ekki sé nú minnst á óþolsprófið sem nú er í tísku.

  Fólk elskar að láta plata sig og plokka af sér aura fyrir allskonar dellu.  Sumir ganga svo langt að kjósa Framsóknarflokkinn.     

----------------------------------------------------------

  Í Póllandi er fagmennska í gerð músíkmyndbanda á sama stigi.  Hér er gott dæmi um myndband ofurvinsæls lags.  Lagið er spilað sem "playback";  söngur og hljóðfæraleikur "mæmuð".  Gítarleikarinn í myndbandinu kann greinilega ekkert á gítar.  Sömu sögu er að segja um bassaleikarann.  Hann kann ekkert á bassa.  Hefur það fram yfir gítarleikarann að vera í buxum.  Bæði snúa hljóðfærinu í vitlausa átt.  Bassaleikarinn er "splæstur" inn í myndbandið eftir á.  Pólskir sjónvarpsáhorfendur eru gagnrýnislausir og halda að þetta sé "live" í hljóðveri.  

 


mbl.is Tók sjálfsmynd eftir árásina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

,, Sumir ganga svo langt að kjósa Framsóknarflokkinn " skrifar þú.  Mikið rétt og þeir kjósendur skammast sín flestir í dag, enda skín ekki sól í skagfirsku efnahagssvæði. 

Stefán (IP-tala skráð) 11.4.2014 kl. 08:29

2 Smámynd: Sæmundur Bjarnason

Og ég sem hélt að hómópatía og smáskammtalækningar væri það sama.

Sæmundur Bjarnason, 11.4.2014 kl. 20:53

3 Smámynd: Jens Guð

Stefán, skagfirska ks efnahagssvæðið er ljótara eftir því sem betur er flett ofan af þeirri ormagryfju.

Jens Guð, 11.4.2014 kl. 23:35

4 Smámynd: Jens Guð

Sæmundur, þetta er alveg rétt hjá þér. Ég orða lýsingu mína klaufalega. Ég er svo hneykslaður á því að ennþá sé til fólk sem lætur platast af öllu þessu hómópatíu smáskammta-bulli. Það er nákvæmælega ekkert sem styður delluna en hver vísindaleg rannsókn á fætur annarri afhjúpar heimskuna og ruglið.

Jens Guð, 11.4.2014 kl. 23:40

5 identicon

Þetta pólska "lag" er grínútgáfa (parody) af öðru lagi svo það er ekki hægt að segja að pólskir sjónvarpsáhorfendur séu gagnrýnislausir, það er eins og að segja að íslendingar séu allir barnalegir,asnalegir og hallærislegir útaf hraðfréttum og spaugstofunni (er ekki að segja að hraðfréttir og spaugstofan sé asnalegt!!!)

Gaur (IP-tala skráð) 15.4.2014 kl. 11:23

6 Smámynd: Jens Guð

Gaur, þetta er rangt hjá þér. Þarna syngur Patty (Patricia Dłutkiewicz) lagið sitt "Krzyk". Þetta er orginal flutningurinn á þessu vinsæla laginu. Svona flutti Patty lagið í pólska morgunsjónvarpsþættinu "Góðan dag TVN". Það var ekkert Hraðfrétta- eða Spaugstofugrín. Bara Patty sjálf að flytja vinsæla lagið stitt. Það hefur verið mikið skrifað um þetta í heimspressunni. Hitt er rétt að ýmsir hafa orðið til að gera grín að einmitt þessu myndbandi. Þar á meðal - eins og ég tek fram í færslunni - er bassaleikarinn splæstur inn á myndbandið eftir á. Hér er ein grínútgáfan (hljóðfærin úr pappa): http://www.youtube.com/watch?v=fGo5E4fL5wQ

Jens Guð, 15.4.2014 kl. 19:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.