Viðbjóður

miley cyrus dmiley cyrus bmiley cyrus a  Miley Cyrus kallar ung bandarísk söngkona sig.  Hún heitir í raun eitthvað annað.  Hún syngur hrikalega leiðinlegt píkupopp.  Einhver þarf að gera það.  Stelpunni er gjarnt að reka út úr sér tunguna.  Það er allt að því vörumerki hennar.  Verra er að tungan er þakin þykkri hvítri skán.
 
  Tungan er gargandi mælitæki á heilbrigði eða heilsuleysi.  Tunga heilbrigðrar manneskju er "hrein" og rauðleit allan hringinn.  Þykk hvít skán á tungu Miley opinberar að magaflóra hennar er í klessu.  Stelpan er löðrandi í gersveppasýkingu (candid albicans).  Munnholið lyktar eins og klóakrör.  Ég fer ekki út í frekari lýsingar.  Það gæti valdið náttúruleysi og velgju.    
 
  Pabbi Miley Cyrus,  Billy Ray Cyrus,  er ekki þekktur fyrir að reka út úr sér tunguna.  Hann er þekktur fyrir lagið um Eika bleika.  
 
 
 
miley cyrus e
   

mbl.is Brotist inn hjá Miley Cyrus
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vona bara að rasísku framsóknarkellunar í Reykjavík fari ekki að reka tungurnar út úr sér, enda eru þær skárstar með lokaða munna.  

Stefán (IP-tala skráð) 2.6.2014 kl. 09:16

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ótrúlega ógeðsleg tunga í ungri konu, svei mér þá.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.6.2014 kl. 18:58

3 Smámynd: Jens Guð

Stefán, nú hló ég.

Jens Guð, 3.6.2014 kl. 00:00

4 Smámynd: Jens Guð

Ásthildur Cesil, það er einkennilegt að þessi dama - sem er langt í frá févana - skuli leyfa gersveppasýkingunni grassera svona í sér. Það er ekkert svo erfitt að kveða hana niður með mjólkursýrugerlum og góðu mataræði. Mér dettur helst í hug að stelpan sé svo mikil stjarna að já-fólkið í kringum hana bendi henni ekki á þessi vondu einkenni. Hinsvegar veldur þetta henni klárlega ýmsum óþægindum, svo sem þreytu og sleni, stöðugum vindverkjum, svima, kláða, skapsveiflum og allskonar.

Næsta víst er að innan í kinnum sé hún einnig þakin hvítri gersveppaslikju. Og víðar um skrokkinn án þess að farið sé nánar út í það.

Jens Guð, 3.6.2014 kl. 00:22

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Oj bara Jens.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 3.6.2014 kl. 00:39

6 Smámynd: Jens Guð

Ásthildur Cesil, ég hef séð myndband af tungu unglings með álíka mikla gersveppasýkingu og Miley Cyrus, myndband með nærmynd undir smásjá. Sveppirnir eru iðandi. Þetta er náskylt myglusveppum í húsum. Þetta eru gerlar/örverur (ekkert svo litlar) sem sprikkla.

Jens Guð, 5.6.2014 kl. 00:20

7 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Bíddu meðan ég æli.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 6.6.2014 kl. 16:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband