Fúsk leikmanna

clintonbill_clinton 

  Margir hafa tekið eftir því hvað forsetar Bandaríkja Norður-Ameríku eldast hratt í embætti.  Þegar þeir setjast í forsetastól geislar af þeim æskuljómi.  Þeir eru strákslegir í útliti og til orðs og æðis.  Er þeir fara úr forsetastóli er annað upp á teningnum.  Þá eru það hokin og útslitin gamalmenni sem staulast á braut.  Hárið hefur gránað (sumir fela það með ósannfærandi hárlit),  hrukkur marka ennið,  baugar undir augum.  Í stað brosandi galgopasvips er kominn alvörugefinn áhyggjusvipur.  Ástæðurnar fyrir breytingunni eru einmitt áhyggjur.

georgebushGeorge-Bush

  Bandarískir forsetar burðast ætíð með gríðarlegar áhyggjur.  Þessa dagana nær Hussein Obama,  forseti Bandaríkjanna,  varla að festa blund á nóttunni.  Áhyggjurnar halda fyrir honum vöku.  Ekki síst yfir því hvað illa gengur að drepa fanga í Bandaríkjunum.  Fangadrápin einkennast af fúski áhugamanna um dráp.  Treglega gengur að fá vandvirka fagmenn í verkið.    

  Á sama tíma hefur Hussein ennþá stærri áhyggjur af því að Íslendingar drepa hval.  Bandarískir embættismenn hleypa Íslendingum ekki inn á alþjóðlega ráðstefnu um sjóinn - vegna siðleysis og hvalréttindabrota Íslendinga.  Þeir skella aftur hurðinni á nefið á Íslendingum.  Allt vegna þeirrar villimennsku Íslendinga að drepa hval.     

  Á móti vega góðar fréttir af því að hvaladráp Bandaríkjamanna ganga mun betur og snurðulausar fyrir sig en fangadrápin.  Svo vel ganga þau að Bandaríkjamenn drepa fleiri hvali en nokkur önnur þjóð í heiminum.  Það kitlar stoltið að vera númer 1.  


mbl.is Aftökuteymið algörlega vanhæft
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Góður!

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.6.2014 kl. 11:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband