Týndir feluleikstjórar

  Í gær átti ég erindi í sænsku húsgagnaverslunina Ikea í Grðabæ.  Þar var allt í rugli og upplausn.  Að mér skilst hafði verið auglýstur feluleikur fyrir  börn í búðinni.  Búðin er hönnuð sem völundarhús að hætti gatnakerfis Kópavogs.  Þar er alla daga fólk úr nágrannasveitafélögum illa áttað.  Það hefur týnt sér til langs tíma og finnur sig ekki fyrr en seint eða aldrei.  Þetta er líka ástæðan fyrir íbúafjölgun í Kópabogi.  Fólk ætlar að keyra í gegnum Kópavog á leið til Garðabæjar eða Hafnarfjarðar.  Áður en hendi er veifað er það orðið íbúar í Kópavogi og ratar ekki út.

  Ikea hafði ráðið tvo hámenntaða og þjálfaða útlenda feluleikstjóra til leiks.  Þeir fundust hvergi þegar feluleikurinn átti að hefjast.  Þeir eru ekki ennþá fundnir.  Óstaðfestur orðrómur er um að þeir hafi hugsanlega villst til Akureyrar.  Heyrst hefur af tveimur umkomulausum strandaglópum í reiðuleysi á KEA hótelinu.  Í KEA.  

  Það er lán í óláni að hinir týndu séu þrautþjálfaðir í feluleiknum "Týndur - fundinn".  Næsta víst er að þeir væru miklu týndari ef þetta hefðu verið amatörar.    

  


mbl.is Feluleiksstjórar IKEA ófundnir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Blessaður,mér verður oft á orði,svo eru þeir að tala um Kópavog. Það er svo tilhæfulaust hjá þér,að það sé nokkuð öðruvísi en í Rvk.Það er orðið áliðið og seinlegt að rifja upp ógöngurnar sem maður hefur lent í,líklega hefur það lagast í nýustu hverfunum,enda líklegt að þeir læri,farandi til Evrópu að læra hönnun á gatnakerfi.

Helga Kristjánsdóttir, 13.4.2015 kl. 01:28

2 Smámynd: Jens Guð

  Helga,  gatnakerfið í Kópavogi er "spes".  Smiðjuvegurinn er eins og jólatré með greinar út um allt.  Eftir að þar var daglegt umferðaröngþveiti vegna bílstjóra sem voru rammvilltir var brugðið á það ráð að greina hina ýmsu rangala götunnar í sundur með LITUM.  Það sýnir hversu geggjað ruglið er.  Þeir sem eiga erindi í Smiðjuveg þurfa að góna út og suður eftir tilteknum lit áður en hægt er að leita uppi húsnúmer.  

  Í Kópavogi er algengt að húsnúmer tiltekinna gatna sé staðsett í annarri götu.  Svo eru götur eins og Hjallabrekka sem er út um allt og að hluta í næstu götu fyrir ofan.  

  Nýverið álpaðist ég inn á vitlausa götu í Kópavogi.  Ég þurfti að aka nánast eftir endilöngum Kópavogi til að sleppa út úr götunni.  Ég gæti haldið lengi áfram að telja upp gatnakerfisruglið í Kópavogi.   

Jens Guð, 13.4.2015 kl. 19:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband