Samgleðjumst vegna rausnalegra launahækkana

   Eðlilega hafa ríflegar nýsamþykktar launahækkanir stjórnenda HB Granda vakið athygli.  Þó eru það ekki nema 33% hækkanir. Minni athygli hafa vakið 75% launahækkanir stjórnarmanna VÍS.  Þegar betur er að gáð er ekki um háar launagreiðslur að ræða.  Menn eru að fá þetta 200 til 350 þúsund kall fyrir að sitja mánaðarlegan stjórnarfund.  Hann getur teygst alveg yfir í á annan klukkutíma.  Á móti vegur að gott kaffibrauð er á borðum.  Engu að síður eru stjórnarfundir leiðinlegir.  Ef laun stjórnamanna væru lægri myndi enginn fást til að taka sæti í stjórn svona fyrirtækja. Þeir myndu allir sem einn flytja til útlanda.  Útlend fyrirtæki myndu togast á um þá ef stjórnarlaun þeirra á Íslandi væru skorin við nögl.

 Þar fyrir utan fá stjórnarmenn ýmissa annarra íslenskra fyrirtækja alveg upp í 1,2 milljónir í mánaðarlaun fyrir fundinn.  

 Þetta er fagnaðarefni.  Þetta staðfestir að fyrirtækin eru vel rekin.  Þau hafa efni á þessu. Þau búa við gott atlæti.  Ennþá betra er að eigendur þessara sömu fyrirtækja eru að greiða sér þessa dagana allt upp í nokkra milljarða í arð.  Það er reisn yfir því.

  Ómenntaði skófluskríllinn nýtur góðs af.  Hann er ofdekraður.  Hver sem þiggja vill fær 3,5% launahækkun á næstu dögum.  Liðið þarf ekkert að gera annað en samþykkja það.  Nýverið fengu allir starfsmenn HB Granda íspinna að gjöf frá fyrirtækinu.         

íspinni

  


mbl.is Stjórn VÍS fékk 75% hækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Wilhelm Emilsson

Heh heh.

Held mig á mottunni

Vaki á nóttunni

í kjallaraholunni

Speisbragð á tungunni

Ég vil græna frostpinna

Því að þeir eru úr öðrum heimi!

https://www.youtube.com/watch?v=SP9spDNhoqQ

Wilhelm Emilsson, 16.4.2015 kl. 23:52

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já segðu, við megum alls ekki missa þessa menn frá landinu, nóg ef af skussum þó við ríghöldum í toppana okkar, skítt með almúgan. Hann á ekkert betra skilið en pinnaís.  Takk annars fyrir góða færslu smile

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.4.2015 kl. 09:07

3 identicon

Græðgi og siðleysi og árið 2007 er uppi á borðum á Íslandi í dag, verndað af siðlausum framsóknarhundum og KS-mafíu.

Stefán (IP-tala skráð) 17.4.2015 kl. 11:21

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Verndað af ÖLLUM FJÓRFLOKKNUM EINS OG HANN LEGGUR SIG.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.4.2015 kl. 13:38

5 identicon

Alltaf á ég í vandræðum með þetta fjórflokksvesen.  Sé nú fjórflokkurinn þetta allsherjarvandamál sem allir, amk. þeir sem um hann tjá sig, segja liggur vitaskuld ljóst fyrir að hann þurrkast út í næstu kosningum.  Gerist það ekki, og minna má á að oft hefur verið á þá minnst undanfarna áratugi og nauðsyn þess að losna við hann, er annað tveggja í gangi: Hættan af fjórflokknum er verulega orðum aukin og sennilega uppspunnin frá rótum og þeir þjóna almenningi prýðilega; eða þá að háttvirtir kjósendur eru fífl upp til hópa.  Ég hallast að hinu fyrrnefnda.  Þeir sem óttast fjórflokkinn trúa því síðarnefnda.

Tobbi (IP-tala skráð) 17.4.2015 kl. 19:40

6 Smámynd: Jens Guð

Wilhelm,  þetta hefur verið og er enn eitt af mínu uppáhalds.  

Jens Guð, 17.4.2015 kl. 20:47

7 Smámynd: Jens Guð

Ásthildur,  takk sömuleiðis.  

Jens Guð, 17.4.2015 kl. 20:48

8 Smámynd: Jens Guð

Stefán,  þetta er allt í stíl.  

Jens Guð, 17.4.2015 kl. 20:48

9 Smámynd: Jens Guð

Tobbi,  þetta er snúið dæmi.  Á áttunda áratugnum nam ég markaðsfræði sem hluta af námi í auglýsingadeild MHÍ.  Vann síðan við fagið til margra ára.  Fólk er vanafast og íhaldsamt þegar á reynir. Það getur verið hrifnæmt við tilteknar aðstæður um stundarsakir.  Dæmi um það er sigur Besta flokksins í Reykjavík og ég man ekki hvað listinn á Akureyri heitir,  sá sem náði þar meirihluta í þarsíðustu kosningum.  

  Til lengri tíma litið leitar klárinn aftur á sinn bás.  Framhjá því verður þó ekki horft að fjórðungur landsmanna kaus annað en fjórflokkinn í síðustu Alþingiskosningum.  Vandamálið var að þau atkvæði skiptust á milli 11 framboðslista.  Féllu þess vegna flest á milli stafs og hurðar.  

  Nú um stundir blása vindar með Pírötum.  Ég get fullyrt að sá blástur tapar krafti þegar kemur að kosningum.  Því miður.  

Jens Guð, 17.4.2015 kl. 21:19

10 identicon

Vanafesta og íhaldssemi heldur velli vegna þess að fólk veit að slíkt þjónar hagsmunum þess þegar til lengri tíma lætur.  Það að pissa í skóinn er skammgóður vermir; yljar í skamman tíma en þegar frá líður er ástandið verra. Í aldanna rás hefur fjórflokkurinn byggt upp það velferðarþjóðfélag sem hér ríkir og er líklegur til að viðhalda því til langs tíma. Hróp þeirra sem vilja pissa í skóinn fá vitaskuld alltaf einhvern hljómgrunn en þegar eðli þeirra kemur í ljós snýr skynsamur kjósandi til baka.  

Hins vegar verður aldrei hörgull á lýðskrumurum; eins og pírötum.

Tobbi (IP-tala skráð) 18.4.2015 kl. 10:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband