Eineltið færist í aukana

  Hálfskoski-kvartþýski New York athafnamaðurinn Dónald Jón Trump hefur sætt stanslausu einelti síðustu mánuðina.  Ekki síst af hálfu íslensks almennings og íslenskra fjölmiðla.  Hann er hæddur og spottaður.  Að því er virðist fyrir það eitt að taka þátt í forvali repúblikana fyrir forsetakosningar í Bandaríkjum Norður-Ameríku.

  Eineltistilburðir Íslendinga hafa eitrað út frá sér. Bandarískir tónlistarmenn hafa snúist gegn Dónaldi Jóni.  Menn sem hann áleit vera sína bestu og nánustu vini.  Fleiri skemmtikraftar hafa fylgt í kjölfarið og sagt ljót orð um manninn.

  Nú eru kjósendur reppanna hver á fætur öðrum farnir að taka þátt í eineltinu.  Þeir eru margir hverjir hættir að kjósa hann.  Núna síðast í Wyoming og Washington DC.  Um og yfir 9 af hverjum 10 kusu ekki Trump.  

  Góðu fréttirnar eru að hann nýtur einarðs og einlægs stuðnings nasistahópa á borð við Ku Klux Klan. 

  Dónald Jón er breyskur eins og allt annað fólk. Einn af hans göllum er að treysta ekki fagmönnum.  Hann stólar á eigin getu.  Það kemur ekki alltaf vel út.  Til að mynda ber hann sjálfur á sig sjálfbrúnkukrem.  Yfirleitt er það misheppnað. Of mikið,  of appelsínugult,  flekkótt og ójafnt.  Þetta þarf að laga.  Svona gera menn ekki.  Það má ekki bera sjálfbrúnkukrem alveg að augum og hársverði. Fagmenn kunna að afgreiða það með einfaldri tækni.  Hún er kennd í förðunarskólum.  Greinilega og hrópandi kann Dónald Jón það ekki.  Auk þess virðist hann ekki vita af því að til eru sjálfbrúnkukrem sem framkalla eðlilegan sólbrúnkutón án appelsínugula litsins. Ég er miður mín yfir því hvernig hann klúðrar þessu. Niðurstaðan gæti orðið sú að hann verði fyrsti appelsínuguli forseti Bandaríkjanna eða þó öllu heldur ekki.    

trumpd trump


mbl.is Trump gersigraður í tveimur ríkjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Synd að svona friðsemdarmaður skuli fá það óþvegið.  cry  Þ.E.brúnkukremið. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.3.2016 kl. 15:36

2 identicon

Já, illa frið með góðan dreng. Verðum við Skagfirðingar ekki bara að senda honum landa og hangikjet til að púrra upp baráttuandann hjá honum?

Tobbi (IP-tala skráð) 13.3.2016 kl. 19:55

3 identicon

Hann ber á sig brúnkukrem,

en bannar Mexíkana,

heilinn, enginn sama sem,

skröltir af gömlum vana...sealed

Hildibjörg Kletts (IP-tala skráð) 13.3.2016 kl. 20:03

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tobbi ertu ef til vill að leggja til að senda honum sviðakjamma tongue-out

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 13.3.2016 kl. 20:37

5 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Trump mun baka liðið en hann vinnur þótt hann komi ekki orði upp.Eftir því sem meira er hæðst að honum fær hann meira fylgi það eitt er víst.

Valdimar Samúelsson, 13.3.2016 kl. 21:11

6 identicon

Pólitíkusar, sem ætla að láta kjósa sig í embætti ljúga hálfvitana (almenning) fulla af þvættingi sem þeir hafa aldrei neina áætlun um að standa við.  Hinir, sem hafa lítin áhuga á að láta kjósa sig í raun og veru ... hrækja sannleikanum í andlitið á almenningi.  En þessi heimski almenningur, er lýðurinn sem kaus G.W.Bush sem forseta, sneri blinda auganu við "pyntingum", heldur að Abu Grahib sé skemmtiatriði, Fallujah sé barnaleikvöllur, Tyrkir séu bjargvættir Guddu og þessi sami heimski almenningur kaus Adólf Hitler í embætti á sínum tíma.  Og allar götur eftir að hafa kosið þessa kauða, fela sig á bakvið krossfestingu Jesús, fyrir syndir sínar.

Trump verður aldrei forseti, Hillary Clinton verður næsti forseti Bandaríkjanna.  Nema eitthvað "stórfenglegt" gerist, sem breitir málum.

Bjarne Örn Hansen (IP-tala skráð) 13.3.2016 kl. 22:39

7 identicon

Ótrúlegt hvað mannkynið hefur lítið þróast á ákveðnum sviðum síðustu árþúsund. Íslendingar eru lítt skárri en aðrir hvað það varðar. Grimmd,græðgi og siðleysi sem aldrei fyrr. Þetta verður mannkynininu að aldurtila fyrir rest því miður.

Róbert Jensson (IP-tala skráð) 13.3.2016 kl. 23:26

8 Smámynd: Erla Magna Alexandersdóttir

MER FINNST HÁRGREIÐSLAN ÖLLU VERRI EN KREMIÐ-- HEFUR MAÐURINN EKKI EFNI Á HÁRGREIÐSLU ?

Erla Magna Alexandersdóttir, 14.3.2016 kl. 00:03

9 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hann er að greiða yfir skallann :)

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.3.2016 kl. 07:55

10 identicon

Jú, er ekki eins farið með framsóknarmenn hér. Þeir eru sí kvartandi yfir einelti, aumingjans greyin. Þessir líka heilögu lygalaupar. 

Stefán (IP-tala skráð) 14.3.2016 kl. 08:23

11 Smámynd: Jens Guð

Ásthildur Cesil (#1),  ég tek undir það.

Jens Guð, 15.3.2016 kl. 09:16

12 Smámynd: Jens Guð

Tobbi,  í svona bráðatilfelli dugir ekki minna en skerpikjöt.

Jens Guð, 15.3.2016 kl. 09:17

13 Smámynd: Jens Guð

Hildibjörg,  takk fyrir skemmtilega stöku.

Jens Guð, 15.3.2016 kl. 09:17

14 Smámynd: Jens Guð

Valdimar,  það var þannig.  En vindurinn er eitthvað að snúast.  

Jens Guð, 15.3.2016 kl. 09:18

15 Smámynd: Jens Guð

Bjarne Örn,  það er sitthvað til í þessu hjá þér.

Jens Guð, 15.3.2016 kl. 09:20

16 Smámynd: Jens Guð

Róbert,  ég óttast að þú sért sannspár. 

Jens Guð, 15.3.2016 kl. 09:21

17 Smámynd: Jens Guð

Erla Magna og Ásthildur Cesil,  ein af fyrrverandi eiginkonum hans upplýsti að upphafsverk hans að morgni sé að greiða sér.  Hárgreiðslan er mikil og frumsamin kúnst.  Tilgangurinn er að fela tungl á hvirflinum. Það tekst vel út af fyrir sig.  En kostar heilmikla og tímafreka vinnu og einhver límsprey til að ekkert fari úr skorðum út daginn.   

Jens Guð, 15.3.2016 kl. 09:28

18 Smámynd: Jens Guð

Stefán,  einmitt.  

Jens Guð, 15.3.2016 kl. 09:30

19 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Datt það í hug hahaha

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 15.3.2016 kl. 14:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband