Hættuleg þróun

  Gríðarmikill vöxtur er í neyslu metamfetamíns á Íslandi.  Það kemur glöggt fram í dómum.  Á síðustu tíu árum hefur metamfetamín komið fyrir 76 sinnum.  Þar af þriðjungur á síðasta ári.  Dómarnir hlaðast bratt upp á þessu ári.

  Þetta bendir sterklega til þess að metamfetamínið sé framleitt hérlendis.  Nokkur dæmi hafa komið upp þar sem augljóst er að menn lögðu drög að því að hefja framleiðslu.  

  Flestir sem neyta metamfetamíns hérlendis sniffa jöfnum höndum amfetamín.  Þeir þekkja ekki muninn.  Vita ekki einu sinni af honum.  Efnin,  metamfetamín og amfetamín,  eru ekki nefnd á nafn í dópheimi heldur kölluð samheitinu "speed" (framborið "spítt").

  Megin ástæðuna fyrir þróuninni má rekja til tískufyrirbæris sem kallast "Speed dating".  Það gengur þannig fyrir sig að hópi karla og kvenna er stefnt saman.  Hópurinn er svo ör ("speed" er rosalega örvandi) að hver karl "deitar" dömu í fimm mínútur.  Þá snýr hann sér að þeirri næstu.  Þannig koll af kolli.  Af þessu er dregið orðið skyndikynni.

    


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Jens. Íslendingar eru ofvirkir, umfram aðrar þjóðir. Það er staðreynd. Kannski vegna þeirrar staðreyndar að íslendingar eru með minnstu skjaldkirtla í heimi? Ofvirkir og heilbrigðiskerfis-sviknir eru fórnarlömb sölumanna dauðans. Framleiðslan á Íslandi fær skjól? Hver veitir það skjól, í réttarríkinu?

Skóli án aðgreiningar á Íslandi er bara orðabull á blöðum opinbera glæpa-svika-kerfisins.

Ástæðan fyrir að ekki eru myndavélar innan og utan opinberu grunnskólanna er trúlega sú, að ekki má mynda sölumennina, sem gefa fyrstu skammtana í kringum skólana. Þegar börnin eru orðin háð "gefins" rán-dýru efnunum, þá eru þau sett í glæpainnbrotin, til að fjármagna "gefins" rándýru efnin sem þau eru orðin háð.

Enginn banki á Íslandi er án myndavéla í öllum skúmaskotum, til að verja peningagróðann af fíkniefnasölunni?

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 13.7.2016 kl. 23:17

2 Smámynd: Jens Guð

Takk fyrir áhugaverðar vangaveltur.

Jens Guð, 15.7.2016 kl. 07:07

3 identicon

Það á alltaf að fagna innlendri framleiðslu og einkaframtakinu.

Ég vona að löggan fari nú ekki að eltast við menn sem að eru að spara gjaldeyri.

Grrr (IP-tala skráð) 15.7.2016 kl. 08:13

4 Smámynd: Jens Guð

Grrr,  mæl þú manna heilastur.

Jens Guð, 21.7.2016 kl. 09:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband