Löggan er að standa sig

sofandi

  Kunningi minn lenti í því seint að kvöldi - eða snemma nætur - að á hann sótti svefnhöfgi.  Hugsanlega hafði eitthvað að segja að hann hafði staðið sig óvenju vel við drykkju á áfengum heilsudrykkjum þann daginn.  Verra var að hann var á reiðhjóli sem strauk undan honum og hvarf.  Hann hélt þó eftir öðrum petalanum (fann hann í jakkavasanum daginn eftir).  Við tóku tveir jafnfljótir.

 Á gangi eftir miðri Snorrabraut gerðu draumaheimar ákaft kall á hann.  Góðu fréttirnar voru að veður var gott og þurrt.  Fyrst féll hann varfærnislega niður á hné.  Eiginlega lak niður. Því næst fór hann á fjóra fætur og hugðist skríða þannig hálf dottandi heim til sín upp í Hlíðar.  Eftir örstuttan spöl gáfu útlimirnir sig. Hann lagðist á stéttina og sofnaði værum blundi.  

  Nokkru síðar - óvíst hvursu löngu síðar - veittust að honum lögreglumenn.  Þeir reyndu að reisa hann á fætur.  Án árangurs.  Samt rumskaði maðurinn og reyndi að hjálpa til.  Alltaf fús og viljugur til að hjálpa.  Svo fór að lögreglumennirnir skiptu liði. Annar tók undir hendur og hinn undir fætur.  Þannig var hann selfluttur inn í Svörtu-Maríu.

  Vininum var stirt um stef en gat framvísað skilríkjum.  Þar sást heimilisfang.  Þangað brunaði lögreglan.  Aftur skipti hún liði.  Með sömu aðferð og fyrr var hann ferjaður inn í hús.  Kominn að rúminu þekkti hann sinn næturstað.  Við það bráði örlítið af honum og hann hugðist hátta sig með hraði.  Tókst ekki betur til en svo að hann rúllaði út á gólf og stangaði lögregluskó.  Með einhverskonar umli sem hann skildi ekki sjálfur tókst að koma bón á framfæri um aðstoð við að hátta.  Laganna verðir voru ekkert nema hjálpsemi.  Losuðu af honum skó, sokka, jakka, skyrtu og buxur.  Leyfðu honum að vera í næbuxunum.  Þessu næst skorðuðu þeir hann í rúm og breiddu sængina yfir,  alveg upp að höku.  Það eina sem vantaði upp á fullkomna fagmennsku var að þeir byðu góða nótt með kossi á ennið.

         


mbl.is Ökumaðurinn nánast áfengisdauður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Jens. Sumir eru oft staðsettir á þröngum og vandrötuðum torfæruvegi milli vídda. Torfæruvegir eru líklega alltaf svolítið erfiðir. Lífsins ganga er torfær.

Og einhver sagði víst eitt sinn, að enginn réði sínum næturstað, og það er líklega staðreynd, í margskonar merkingum.

Löggan getur notað vit sitt og vald til að láta hlý orð og verk frá sér fara. En löggan getur ekki framfleytt sér og fjölskyldu sinni á launum undir framfærsluviðmiðum.

Hvað á björgunarsveitar-löggan launasvikna þá að gera?

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 3.9.2016 kl. 23:14

2 Smámynd: Jens Guð

Anna Sigríður,  ævinlega kærar þakkir fyrir þín áhugaverðu innlegg. 

Jens Guð, 4.9.2016 kl. 17:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.