Hvaða Bítill var gáfaðastur?

 

  Augljósa svarið er John Lennon.  Eða hvað?  Svo skemmtilega vill til að allir Bítlarnir tóku greindarpróf (IQ) á unglingsárum í skólanum sínum.  Einhverra hluta vegna ber heimildum ekki saman um skor Lennons.  Flestar herma að hans IQ hafi mælst 165.  Aðrar heimilidir gefa upp 140.  Enn aðrar 150.  Ég hallast að hærri tölunum.  Í skóla velti John fyrir sér hvort að hann væri ofviti eða klikkaður.  Hann undraðist hvað hann átti létt með að máta kennara í tilsvörum.  Á sama tíma upplifði hann ýmislegt sérkennilegt.  Til að mynda sá hann nöfn og orð í lit.  Engir aðrir sem hann þekkti gerðu það.  Að auki samdi hann smásögur sem voru svo "sýrðar" að hann varð ringlaður.

  Paul McCartney mældist með 137 IQ.  George Harrison 117 IQ.  Ringo er sagður hafa verið skammt undan Harrison.  Meðagreind er 100 IQ.  Allir Bítlarnir voru því yfir meðalgreind.  Það þarf ekki að koma á óvart.  Yfirburðir Bítlanna á tónlistarsviði staðfesta það ásamt mörgu öðru. Kannski gáfaðasta rokkhljómsveit sögunnar.  Ofurgreind er skilgreind sem !Q 140 og þar yfir. 

  Engum blöðum er um að fletta að John Lennon var bráðgáfaður.  Leiftrandi góður húmoristi í tilsvörum,  bráðskemmtilegur og fyndinn smásagnahöfundur og einn af bestu ljóðskáldum rokksins.  

  Gáfur eru eitt.  Annað að nýta þær á besta hátt.  John Lennon stríddi við ótal vandamál sem hann kunni ekki að vinna úr.  Þau fylgdu honum alla ævi.  Hann ólst ekki upp hjá foreldrum sínum.  Hann kynntist þeim ekki fyrr en á fullorðinsárum.  Hann ólst upp hjá frænku sinni.  Hann kallaði hana aldrei mömmu.  Hann kallaði hana Mimi frænku.  Hún var ströng,  kuldaleg, stíf og afar snobbuð millistéttarfrú.  Hann var henni erfiður; reif kjaft og var óhlýðinn.  Hún skammaði hann fyrir að umgangast lágstéttarguttana Paul og George.  Til gamans má geta að pabbi Pauls varaði hann við að umgangast John.  Það myndi aðeins leiða til vandræða.  John var alræmdur í Liverpool fyrir að vera kjaftfor og árásargjarn uppvöðsluseggur.  Paul segir að allir unglingar í Liverpool hafi vitað af honum.  Hann var svo fyrirferðamikill.  Paul fannst John vera aðaltöffari Liverpool. 

  John drakk áfengi og reykti frá barnsaldri.  Hann var alki en hellti sér út í gríðarmikla eiturlyfjaneyslu sem leysti drykkjuna af hólmi um nokkurra ára skeið.

  Samskipti hans við Mimi frænku á uppvaxtarárum voru án hlýju og faðmlaga.  Hann reyndist henni vel á fullorðinsárum.  Gaf henni risastórt hús - að hennar sögn alltof stóra höll - í Liverpool og hringdi í hana aldrei sjaldnar en vikulega.  Oft tvisvar eða þrisvar í viku.

  Samskipti Johns við eiginmann Mimi frænku voru betri.  Sá var léttur og hress.  Hann gaf John munnhörpu.  Hann náði góðum tökum á henni.  Þegar upptökustjórinn George Martin tók ákvörðun um að gera plötusamning við Bítlana þá var það munnhörpuleikurinn sem heillaði hann umfram annað.  Fóstrinn dó er John var 12 ára.  Þar með missti hann sinn besta vin fram til þessa. 

  John Lennon sríddi við skapofsaköst.  Hann fór á bari til að slást.  Hann lamdi skólafélaga sína,  hann lamdi spilafélaga sína í hljómsveitinni sem varð Bítlarnir.  Hann lamdi Paul.  Hann lamdi Cyntheu fyrri konu sína.  Í viðtali við tímaritið Playboy sagðist hann sjá eftir því að hafa ekki lamið George Harrison þegar sá tók ólundarkast eftir að Yoko át súkkulaðikex hans.   

  John burðaðist með áfallastreituröskun.  Á fyrstu sólóplötu hans er upphafslagið,  "Mother",  sársaukafullur reiðisöngur í garð foreldra sinna fyrir að hafa yfirgefið hann.  Reyndar kynntist hann mömmu sínni óvænt um fermingaraldur.  Hún hafði allan tímann búið í næstu götu án þess að hann hefði hugmynd um það.  Gáfurnar og tónlistarhæfileika erfði hann frá henni.  Hún spilaði á banjó og píanó.  Hún gaf honum gítar og kenndi honum að spila banjó-hljóma.  En hún var geggjaður bóhem.  Svo ók fullur lögregluþjónn yfir hana og drap hana.  Einmitt þegar John var nýbyrjaður að njóta þess að kynnast mömmu sinni.  Pabba sinn hitti hann aðeins einu sinni.  Það var eftir að Bítlarnir slógu í gegn.  Þá bankaði kallinn upp hjá honum og sníkti pening.  John gaf honum pening en bað starfsfólk Bítlanna um að hleypa honum aldrei aftur aftur til síns.

  Sólóferill Johns hófst glæsilega.  En svo datt hann í það.  Var fullur og dómgreindarlaus í nokkur ár á fyrri hluta áttunda atatugarins.  Hann kallaði tímabilið "týndu helgina".  Allt var í rugli hjá honum.  Eiginkonan,  Yoko,  henti honum út.  Seint og síðar meir sættust þau og John dró sig út úr tónlistarheimi og sviðsljósi.

  1980 mætti hann aftur til leiks.  Samdi ennþá góð lög og texta.  En var orðinn léttpoppari.  Sagðist hafa í fríinu hætt að hlusta á framsækna músík.  Þess í stað hlustaði hann á léttpopp í útvarpinu.  Svo var hann myrtur.

  Félagsfærni Johns var broguð.  Hann hafði áráttu fyrir því að ganga fram af fólki og móðga það.  Var iðulega ruddi. Í fyrsta sinn sem Eric Clapton kynnti Lennon fyrir kærustu sinn þá gekk hann svo fram af henni með klámfengnum ruddaskap að eftir það var Clapton stöðugt á varðbergi í samskiptum við Lennon.

  Að sumu leyti hefur Paul unnið betur úr sínum gáfum.  Hann er "diplómat".  Að vísu pirraði sjórnsemi hans George og Ringo undir lok Bítlaferils.  Er umboðsmaður Bítlanna,  Brian Epstein,  dó gerðist Paul eiginlegur hljómsveitarstjóri þeirra.  Hann og George og Ringo litu þó alltaf á Bítlana sem hljómsveit Johns.  En hann var meira og minna hálfur eða allur út úr heimi í eiturlyfjaneyslu.  Paul er ofvirkur; hefur skipulagshæfileika þó að hann hafi ekki gætt nærgætni við Ringo og George er hér var komið sögu. 

  Meistaraverkið "Sgt. Peppers.." var hugmynd Pauls.  Líka "Hvíta albúmið" og "Abbey Road". 

  Einkalíf Pauls hefur verið farsælt.  Undan er skilið að hann lét gullgrafarann Heather Mills plata sig.  Gegn mótmælum barna hans. 

   Paul er 77 ára og er ennþá að afgreiða öskursöngsrokk eins og enginn sé morgundagurinn.  Hljómleikar hans eru rómaðir sem meiriháttar.  Hann spilaði betur úr sínum spilum en John.     

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Þakka þér fyrir þennan fróðleik og upprifjun.

Sigurður I B Guðmundsson, 4.5.2019 kl. 09:51

2 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Gott er og þakkarvert að fá svona góða og hnitmiðaða samantekt. 

Ómar Ragnarsson, 4.5.2019 kl. 10:39

3 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Mother: Þvílíkt lag sem heyrist ekki í útvarpi. 909 hvað ha!!!

Sigurður I B Guðmundsson, 4.5.2019 kl. 11:56

4 identicon

Paul hefur alltaf haft mikla þörf fyrir að spila live, nokkuð sem John hafði ekki þörf fyrir eftir The Beatles. Paul hafði áhuga á því að Bítlarnir færu að spila aftur live strax 1968, en þar sem það hefði aldrei gengið upp, ( George stóð manna harðast gegn því ), þá fékk Paul þá hugmynd að þeir myndu taka upp studio live plötu, sem úr varð með plötunni Let It Be. Hluti af White Album er líka tekin upp live, s.s lagið Helter Skelter. Reyndar var þannig komið fyrir hljómsveitinni á þeim tíma, að Let It Be hefði orðið þeirra seinasta plata ef Paul hefði ekki nánast barið menn saman í gerð kveðjuplötunnar frábæra Abbey Road. Víst voru gáfumenni í bítlunum, en gaman hefði verið að sjá greindarprófáf á t.d. meðlimum arkitekta hljómsveitarinnar Pink Floyd og svo háskólahljómsveitarinnar The Queen. David Bowie mældist með 160 IQ og Madonna eitthvað nálægt því.

Stefán (IP-tala skráð) 4.5.2019 kl. 16:46

5 Smámynd: Jens Guð

Sigurður I B,  þetta er magnað lag í mögnuðum flutningi.  Aðeins John á píanó,  Ringo á trommur og æskuvininn frá Hamborg,  Klaus Voorman, á bassa.  Hljóðritað "live" í hljóðverinu.  Klaus spilaði lengi með Manfred Mann,  Badfinger og inn á plötur með Ringo og George.  Hann sagðist aldrei hafa kynnst vinnubrögðum eins og John viðhafði við hljóðritun á þessari fyrstu sólóplötu sinni.  Fyrst djammaði hljómsveitin nokkra gamla rokkslagara og síðan var eitt og eitt nýtt lag eftir John hljóðritað óæft þess á milli.  Allt steinlá í fyrsta rennsli eða svo gott sem.  John ráðlagði plötuútgáfunni frá því að gefa "Mother" út á smáskífu.  Það yrði hvort sem ekki spilað í útvarpi.  Sem reyndist rétt - þó að það hafi verið gefið út á smáskífu í Bandaríkjunum í óþökk Lennons.  Hátt í tvær mínútur voru klipptar af laginu á smáskífunni.

Jens Guð, 5.5.2019 kl. 12:19

6 Smámynd: Jens Guð

Ómar,  takk fyrir það.

Jens Guð, 5.5.2019 kl. 12:19

7 Smámynd: Jens Guð

Stefán,  blessunarlega er Abbey Road glæsileg grafskrift Bítlanna.  Fyrir minn smekk þeirra besta plata.  Madonna ku hafa skorað 140 IQ á greindrprófi Mensa,  félagi ofvita.

Jens Guð, 5.5.2019 kl. 13:39

8 identicon

Sæll Jens,

Þetta er skemmtileg samantekt og gaman að lesa. Ég tel engan vafa leika á um að þeir félagarnir hafi allir náð að skora vel á svona prófum. Ringo hefur kannski átt í mestu vandræðunum sökum stopullar skólagöngu sinnar.

Það er eitt smáatriði sem mig langar að benda á en hin fræga "Lost weekend" átti sér stað á því 18 mánaða tímabili sem var eftir að Yoko henti Lennon út (1973 - 1974). Á þessum árum tók hann upp Rock and Roll album og Walls and Bridges ásamt því að spila með Paul í fyrsta skipti frá því Bítlarnir voru til. John og Yoko tóku síðan aftur saman eftir tónleika sem Elton John hélt og John kom fram á.

Jónas Yngvi Ásgrímsson (IP-tala skráð) 6.5.2019 kl. 08:59

9 Smámynd: Jens Guð

Jónas Yngvi,  þetta er góð ábending frá þér um Ringo.  Hann ólst upp meira og minna á sjúkrahúsi vegna magaveiki.  Mig minnir að hann hafi ekki lært að lesa fyrr en 10 ára eða svo og skólaganga var áfram stopul eftir það.  Honum hefur samt vegnað vel í lífinu.  Hann er góður húmoristi,  afar jákvæður og öllum líkar vel við hann.  Íslensk kona sem vinnur í mötuneyti Abbey Road hljóðversins segir hann koma eins fram við alla;  gantist við alla og sé ætið léttur og hress.  Paul sé hinsvegar ekkert að blanda geði við starfsfólkið.  

  Einnig góð ábending um týndu helgina. 

Jens Guð, 6.5.2019 kl. 19:38

10 Smámynd: Jens Guð

Á Facebook-síðunni "Bítlarnir eru bestir" fékk ég ábendingu um þetta myndband þar sem Paul segir John hafa verið gáfaðsta Bítilinn:

https://www.youtube.com/watch?v=vyGnqYwpD2g&fbclid=IwAR22k5kJPiFfRYOMgZ6L34FUQF2ohnGPs_lqEjorJQR9ln_Gh6dTriNEgiw

Jens Guð, 6.5.2019 kl. 19:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband