Af hverju eru Debbie Harry og Blondie pönk?

  Vegna Íslandsheimsóknar bandarísku söngkonunnar Debbie Harry hefur margur fróðleiksfús spurt sig,  ættingja og nágranna:  Af hverju var Blondie pönk?  Hljómsveitin hljómaði ekki eins og pönk.  Hún var meira eins og létt popp í bland við reggí.  

  Málið er að í Bandaríkjunum var pönk ekki einhver tiltekinn músíkstíll.  Það var samheiti yfir viðhorf tónlistarfólks til tónlistarbransans.  1974-1975 þótti prog (framsækið rokk) flottast.  En átti ekki upp á pallborð hjá vinahópi sem spilaði í New York skemmtistaðnum CBGB.  Hann spilaði einfalda músík sem var ekkert flækt með flóknum sólóum og taktskiptum.  Málið var að kýla á hlutina óháð færni á hljóðfæri.  Allir fengu að vera með:  Blondie,  Patti Smith, Televison,  Ramones...  Þetta var "gerðu það sjálf/ur" (Do It Yourself) viðhorf.

  Þetta tónlistarfólk var kallað pönk með tilvísun í fanga sem níðst er á í bandarískum fangelsum.  Aumast allra aumra.  

  Víkur þá sögu til Bretlands.  1976 myndaðist þar bylgja hljómsveita sem spilaði svipaða rokktónlist (blöndu af glam rokki og pöbbarokki).  Þetta voru Sex Pistols,  Clash,  Damned, Buzzcocks og fleiri.  Í ágúst 1976 skrifaði blaðakona NME vikublaðsins um þessa bylgju.  Hún sá sterka samlíkingu við bandarísku pönkarana.  Hún fékk samþykki bylgjunnar til að kalla hana pönk.  

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Nú er ég alveg út á túni!!

Sigurður I B Guðmundsson, 30.9.2021 kl. 23:00

2 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Enda nýkominn frá Grænlandi!

Sigurður I B Guðmundsson, 30.9.2021 kl. 23:02

3 Smámynd: Ingólfur Sigurðsson

Ég á gömlu plöturnar með Blondie. Þau þróuðust mjög hratt fyrstu árin og prófuðu allskonar tónlistarstíla. Parallel Lines frá 1978 stendur enn vel fyrir sínu sem pottþétt poppplata með öðruvísi tónlistarstílum í bland. Eftir það fór þeim hnignandi og Autoamerican fyrir ofan frá 1980 er vatnaskilaplatan, þegar iðnaðarpoppið tók yfir og lagasmíðar urðu fyrirsjáanlegri.

Minna þekktur fróðleiksmoli er að Debbie Harry átti bæði þátt í góðum textum og lögum á þessum tíma, oftar textum, skilst mér. 

Mér finnst Blondie ein af mörgum hljómsveitum sem reyndu að vera arftakar Bítlanna, eins og til dæmis ELO, þar sem grunnurinn var góðar lagasmíðar og smekklegur flutningur. Pönkáhrifin eru samt til staðar.

Ég hef áhuga á þessum tónleikum, ef þau halda tónleika á næsta ári.

Ingólfur Sigurðsson, 30.9.2021 kl. 23:24

4 Smámynd: Jens Guð

Sigurður I B,  velkominn heim!  Það er samt alltaf gaman á Grænlandi.

Jens Guð, 1.10.2021 kl. 08:01

5 Smámynd: Jens Guð

Ingólfur,  takk fyrir fróðleikinn.

Jens Guð, 1.10.2021 kl. 08:05

6 identicon

Það má skoða tímalínu proto punk / early punk hljómsveita frá árunum 1963-1974, en á þeim tíma var tónlist þeirra oft skilgreind sem garage rokk. Nokkur dæmi frá Bandaríkjunum: Sonics, Kingsmen, Fugs, Standells, Yguanas, Rockin Ramrods, MC5, Seeds, Monks, 13th Floor Elevators, Squeres, Love, Dogs, Velvet Underground, Stooges, New York Dolls, Punks, Dictators, Pure Hell og Nuns. Svo kom punkið til Bretlands, en sumar af framantöldum hljómsveitum höfðu mikil áhrif á fyrstu bresku punk hljómsveitirnar.   

Stefán (IP-tala skráð) 1.10.2021 kl. 09:47

7 Smámynd: Jens Guð

Stefán,  takk fyrir upplýsingarnar.

Jens Guð, 1.10.2021 kl. 09:57

8 identicon

Afhverju eru flestir íslenskir " pönkarar " vinstri sinnaðir stjórnleysingjar?

Var Karl Marx stjórnleysingi?

Evrópskir " pönkarar " voru líklega meira feik en þeir bandarísku.

Heiðar Þór Leifsson (IP-tala skráð) 2.10.2021 kl. 05:58

9 Smámynd: Jens Guð

Heiðar Þór,  í myndinni Rokk í Reykjavík kemur fram að það var nett togstreita á milli hægri og vinstri pönkara.  Allt á vinsamlegum nótum.  Enda voru sumir til vinstri og aðrir til hægri í einni og sömu hljómsveitinni.  Í áranna rás hafa sumir sem voru til vinstri færst til hægri og aðrir sem voru til hægri færst til vinstri.

Ég held að Karl Marx hafi ekki verið anarkisti.  

Líklega er rétt hjá þér að evrópskir pönkarar hafi verið og séu meira feik en þeir bandarísku.  Sex Pistols var leikrit.   

Jens Guð, 2.10.2021 kl. 08:20

10 identicon

Hinn eini og sanni@narkisti er sá sem lætur vinstri eða hægri stefnur sem vind um eyru þjóta.

Þingræði án hártogavaldsins ( hertogavaldsins/framkvæmdavaldsins )

Með lögum skal land byggja en ólögum eyða.

Heiðar Þór Leifsson (IP-tala skráð) 3.10.2021 kl. 02:35

11 Smámynd: Jens Guð

Skál fyrir því!

Jens Guð, 3.10.2021 kl. 12:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband