Töfrar úðans

  Ég var að selja snyrtivörur,  alnáttúrulegar heilsusnyrtivörur úr Aloe Vera plöntunni að uppistöðu til.  Aldraður maður á Egilsstöðum hringdi í mig.  Hann bað mig um að senda sér í póstkröfu sólarolíu sem heitir Dark Tanning Oil Spray.  Ástæðuna sagði hann vera þreytu í augum.  Hann grunaði að úðaspreyið gæti gert sér gott.  Einkum vegna þess að Aloe Vera var uppistöðuhráefnið.

  Nokkrum vikum síðar hringdi maðurinn aftur til að fá fleiri úðabrúsa.  Hann sagði að reynslan væri svo góð við að spreyja í augun að hann væri byrjaður að spreyja í eyrun líka.  Með jafn góðum árangri.  Eyrun hvíldust vel útspreyjuð.  

  Nokkrum vikum síðar hringdi hann enn í mig.  Hann vantaði fleiri úðabrúsa.  Nú var hann byrjaður að spreyja upp í munninn á sér undir svefninn.  Allt annað líf.  Hann svæfi eins og kornabarn.  Að auki væru draumfarir ljúfari.    


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Næst spreyar hann væntanlega í klofið á sér og hættir að nota viagra!!

Sigurður I B Guðmundsson, 29.1.2022 kl. 12:11

2 Smámynd: Jens Guð

Sigurður I B,  góður!

Jens Guð, 29.1.2022 kl. 14:07

3 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Gleymdi einu j (joði) og það minnir mig á gátuna: Hvað er í miðri Reykjavík og fæst í öllum apótekum? Svar: J en ekki joðið sem ég gleymdi!!!

Sigurður I B Guðmundsson, 30.1.2022 kl. 18:15

4 identicon

Ætla má að þessi ágæti spreyjari sé ekki lengur meðal vor, en vissulega segja margir að Aloe Vera sé allra meina bót og lengi lífið, svo að kanski lifir hann bara í hárri elli umkringdur Aloe Vera og dreymir vel. Besta meðal sem ég þekki persónulega  er góð tónlist sem virkar jafnvel á líkama og sál.

Stefán (IP-tala skráð) 30.1.2022 kl. 20:54

5 Smámynd: Jens Guð

Sigurður I B,  alltaf góður að venju!

Jens Guð, 30.1.2022 kl. 22:24

6 Smámynd: Jens Guð

Stefán,  ég kvitta undir að músík sé flestra meina bót.  Það hefur verið staðfest af vísindamönnum.

Jens Guð, 30.1.2022 kl. 22:28

7 identicon

Fólk ætti að snúa sér í rikari mæli að góðri tónlist í stað þess að toppa önnur lönd í geðlyfjaneyslu, sem hefur stóraukist undir íhalds og afturhalds stjórn VG.

Stefán (IP-tala skráð) 31.1.2022 kl. 16:01

8 Smámynd: Jens Guð

Stefán (# 7),  tónlist er heilandi.  Það er margrannsakað og sasnnað.

Jens Guð, 1.2.2022 kl. 07:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband