Furðulegar upplifanir á veitingastöðum

  Hvers vegna borðar fólk á veitingastöðum?  Ein ástæðan getur verið að það sé svangt.  Mallakúturinn gargi á næringu.  Önnur ástæða getur verið að upplifa eitthvað öðruvísi.  Eitthvað framandi og meira spennandi en við eldhúsborðið heima.  Þó að pepperóni-sneiðar séu hversdaglegar má hressa þær við með því að þræða þær á skrítna grind.  

  Forréttur þarf ekki að vera matarmikill.  En hann getur orðið ævintýralegur sé honum stillt upp eins og hnöttum himins. 

  Nokkru skiptir hvernig þjónninn ber matinn fram.  Til dæmis með því að skottast með hann á stórri snjóskóflu. 

  Sumt fólk er með klósettblæti.  Það fær "kikk" út úr því að borða súkkulaðidesert upp úr klósetti. 

  Annað fólk er með skóblæti.  Þá er upplagt að snæða djúpsteiktan ost úr skó. 

  Hvernig geta beikonsneiðar sýnt á sér nýja hlið?  Til dæmis með því að vera hengdar upp á snúru.

  Smjörklípa er óspennandi.  Nema henni sé klesst á lófastóran stein. 

  Það er eins og maturinn sé lifandi þegar hann er staðsettur ofan á fiskabúri.

  Með því að smella á mynd stækkar hún.

veitingar aveitingar bveitingar cveitingar dveitingar eveitingar fveitingar gveitingar h

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sem betur fer hef ég ekki rekist á svona subbulega veitingastaði i Reykjavík. Hamborgarnir á Lebowsky bar, Laugavegi eru alltaf jafn spennandi og eru mínir uppáhalds. Þar er heldur ekkert verið að okra eins og víða á landsbyggðinni. 

Stefán (IP-tala skráð) 10.7.2022 kl. 08:02

2 Smámynd: Jens Guð

Stefán,  ég verð að drífa í því að kíkja á Lebowsky.  Þú hefur áður hrósað honum.

Jens Guð, 10.7.2022 kl. 08:07

3 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

Er að fara út að borða í næatu viku þar sem við hjónum höldum uppá 48ára hjónaband og 50ára sambúð. En förum stundum út af engu tilefni nema að njóta og vera til!!

Sigurður I B Guðmundsson, 10.7.2022 kl. 11:16

4 identicon

Jens, ég fæ mér alltaf well done. Íslensku  þjóðfélagi blæðir svo mikið í dag, að ég þoli illa alblóðuga hamborgara. 

Stefán (IP-tala skráð) 10.7.2022 kl. 12:11

5 Smámynd: Jens Guð

Sigurður I B,  til hamingju með hálfrar aldar sambúðina!

Jens Guð, 10.7.2022 kl. 14:47

6 Smámynd: Jens Guð

Stefán (# 4),  þá sjaldan sem ég fæ mér hamborgara skal hann vera verulega steiktur!

Jens Guð, 10.7.2022 kl. 14:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband