Örstutt glæpasaga um skelfilegt morð

  Rúnar er fyrir hæstarétti.  Í héraði var hann dæmdur í sextán ára fangelsi fyrir að myrða Margréti,  meðleigjanda sinn.  Hann hefur fúslega játað að hafa þrifið upp blóð úr konunni.  Hinsvegar veit hann ekki hvers vegna blóð hennar var út um allt eldhúsgólfið.  Hann tilkynnti ekki hvarf hennar.  Líkið hefur aldrei fundist.  Móðir hennar tilkynnti hvarfið eftir að hafa án árangurs reynt að ná á henni vikum saman.

  Rúnar hefur ekki leynt því að þeim Margréti sinnaðist oft.  Stundum kom til handalögmála.  Einkum þegar vín var haft við hönd.  Vitni segja að hann hafi verið ástfanginn af henni.  Ástin var ekki endurgoldin.  Þvert á móti hafi konan hræðst skapofsaköst hans og hamslausa áfengisneyslu.     

  Rúnar man ekkert eftir kvöldinu sem Margrét hvarf.  Hann hafði verið á fylleríi í nokkra daga.  Allt í "blakkáti".  Rámaði samt í að hafa þrifið upp blóð.  Einnig hníf í sinni eigu.  Mjög óljóst kannaðist hans við hugsanleg áflog. 

  Öllum að óvörum mætir Margrét í hæstarétt.  Hún óskar eftir að fá að ávarpa réttinn.  Hún segist hafa reynt sjálfsvíg kvöldið sem hún hvarf.  Skar sig á púls.  Ástæðan var ósætti við nýjan kærasta.  Á síðustu stundu hætti hún við allt.  Batt fyrir púlsana og tók rútuna norður til gamallar skólasystur sinnar.  Þar hefur hún verið síðan.  Hún fylgdist með fréttum af morðmálinu.  Henni þótti gott að vita af Rúnari engjast fyrir dómstólum.  En hún getur ekki horft upp á hann sakfelldan fyrir hæstarétti. 

  Réttarhaldið er í uppnámi.  Dómarar eru reiðir.  En hún er ekki ákærð í málinu.  Bara Rúnar.  Fangelsisvist hans er lækkuð niður í fjögur ár.  Honum til refsiþyngingar er að hann var ósamvinnuþýður við rannsókn málsins.  Þverskallaðist við að vísa á líkið.  Var óstöðugur í yfirheyrslum og reyndi að fela sönnunargögn.  Meðal annars með því að þrífa blóð af hnífi og gólfi.  Yfirlýsing Margrétar um að hann sé saklaus af meintu morði á henni er metið honum til refsilækkunar. 

  Einn dómari skilar séráliti.  Hann telur sanngjarnt að stytta dóminn niður í tvö ár.  Ástæðan sé sú að dagblað birti á baksíðu ljósmynd af Rúnari.  Myndbirtingin hljóti að hafa valdið honum skelfingu og hugarangri.  Með því hafi hann tekið út refsingu sem jafngildi einu ári í fangelsi.   

fangi    


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vinstri Græn eru að fremja pólitískt sjálfsmorð og vissulega væri það gleðilegt ef þau hyrfu með öllu eftir næstu alþingiskosningar. Hvern ætti þá að dæma fyrir pólitíska sjálfsmorðið ? Katrín og co verða auðvitað dæmd af verkum sínum, að ganga gegn stefnu flokksins í flestum málum. Réttmætasta refsingin væri auðvitað að dæma flokkinn alveg úr leik, en alltaf má finna einhverja sauði sem vilja halda lífi í líflvana skaðræðis grip. Slíkt mætti jafnvel kalla refsivert athæfi. 

Stefán (IP-tala skráð) 2.12.2023 kl. 15:35

2 Smámynd: Sigurður I B Guðmundsson

 Það er margt skrítið í kýrhausnum!!

Sigurður I B Guðmundsson, 2.12.2023 kl. 22:11

3 Smámynd: Jens Guð

Stefán,  það verður forvitnilegt að fylgjast með framvindunni.

Jens Guð, 2.12.2023 kl. 22:35

4 Smámynd: Jens Guð

Sigurður I B,  heldur betur!

Jens Guð, 2.12.2023 kl. 22:35

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þessi saga er bara "kerfið" hérna í hnotskurn og þá sérstaklega dómskerfið.  Og svo er sagan uppfull af rökvillum og þversögnum og segir svolítið um greindarvísitöluna hjá dómurunum.  Og svo er alveg tvímælalaust hægt að segja að kallgreyið hann Rúnar sé STÓRA FÓRNARLAMBIÐ í þessari sögu, best fannst mér að það var til refsiþyngingar að hann þverskallaðist við  að vísa á "LÍKIÐ", sem ekki var til........

Jóhann Elíasson, 3.12.2023 kl. 10:22

6 Smámynd: Jens Guð

Jóhann,  takk fyrir góða greiningu á sögunni.

Jens Guð, 3.12.2023 kl. 11:50

7 identicon

Svo rétt hjá þér Sigurður I B, kýrhausar eru klárlega skrúfaðir á margan manninn. Fylgjumst t.d. með alþingisumræðum og Omega.

Stefán (IP-tala skráð) 3.12.2023 kl. 19:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband