Kvikmyndarumsögn

Reykjavík - Rotterdam

Titill:  Reykjavík - Rotterdam

Handrit:  Óskar Jónasson og Arnaldur Indriðason

Leikstjórn:  Óskar Jónasson

Helstu leikendur:  Baltasar Kormákur,  Ingvar E.  Sigurðsson,  Þröstur Leó Gunnarsson,  Ólafur Darri Ólafsson,  Lilja Nótt og Jörundur Ragnarsson

Einkunn: **** (af 5)

  Myndin segir frá blönkum fjölskyldumanni (Baltasar) sem smyglar spíra til landsins að undirlagi fláráðs "vinar" (Ingvar E.).  Framvindan er að mestu fyrirsjáanleg en blönduð óvæntum atburðum.  Einhversstaðar sá ég myndinni lýst sem spennu-grínmynd.  Grínið fór framhjá mér.  Ég veit ekki hvar það átti að vera.  En spennan var í fínu lagi.

  Samtöl eru óvenju eðlileg miðað við aðrar íslenskar kvikmyndir.  Leikur,  persónur og senur eru trúverðugar.  Samt var ég ekki alveg að kaupa vonda kallinn,  hrottann (Jóhann,  ég man ekki hvers son).  Hann er aðeins of vinalegur á svipinn.  Ég var heldur ekki að kaupa upprisu konu smyglarans (Lilja Nótt) eftir að hún átti að hafa verið myrt.

  Smygl á spíra hljómar eins og eitthvað sem er komið framyfir síðasta söludag.  Er einhver að smygla spíra í dag?  Er spíri ekki of fyrirferðarmikill til að slíkt borgi sig á tímum landabruggs og nettra dóppakkninga?

  Þessar aðfinnslur mega ekki hljóma eins og mínus er skiptir einhverju máli.  Alls ekki.  Þetta eru léttvæg atriði.  Myndin er góð skemmtun;  hröð,  æsileg,  viðburðarík og vel heppnuð í flesta staði.  Ég mæli eindregið með henni sem góðri haustupplyftingu í efnahagsþrengingum Jóns Ásgeirs og Björgólfs.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Þorkelsson

Jens.. 4 stjörnur af 5 og þú náðir ekki gríninu... rólegur karlinn ;) 

Óskar Þorkelsson, 7.10.2008 kl. 21:47

2 Smámynd: Ómar Ingi

2 og hálf af 4 stjörnum , ekkert að því að kíkja á hana en ekki nærri eins góð og vel gerð eins og Mýrin

Ómar Ingi, 7.10.2008 kl. 21:51

3 Smámynd: S. Lúther Gestsson

Hvernig endar hún?

S. Lúther Gestsson, 8.10.2008 kl. 00:51

4 Smámynd: Jens Guð

  Óskar,  ég varð lítið var við grínið.  En það er allt í lagi.  Þetta er spennumynd og virkaði fín sem slík.

  Ómar,  ósköp ertu spar á stjörnurnar.  En ég er sammála að  Mýrin  sé betri.  Reyndar ein besta mynd íslensku kvikmyndasögunnar.

  Sigurður Lúther,  ég held að það sé allt í lagi að kjafta frá endinum.  Ég reiknaði strax honum eins og hann er:  Að smyglið á spíranum tekst.

Jens Guð, 8.10.2008 kl. 01:12

5 identicon

Jensguð auli, takk fyrir að eyðileggja myndina fyrir mér.

Fáviti.  

Einar (IP-tala skráð) 8.10.2008 kl. 15:26

6 identicon

Hlakka til að sjá þessa mynd.

Mér finnst Mýrin ofmetin og tilgerðarleg á köflum þrátt fyrir að hún sé vel gerð og umfangsmikil.

Birkir Viðarsson (IP-tala skráð) 10.10.2008 kl. 13:57

7 identicon

Bíddu. Hvaða bygging er þetta hægra megin við hausinn á Balta, frá okkur séð?

Birkir Viðarsson (IP-tala skráð) 10.10.2008 kl. 13:58

8 Smámynd: Jens Guð

  Einar,  þú ert einstakur!  Að það eyðileggi fyrir þér myndina að hið augljósa sé upplýst:  Spírasmyglið lukkast.  Þú ert ekki kröfuharður.  Eins gott að þú sért ekki búinn að lesa bókina.

  Birkir,  byggingin er Hús verslunarinnar við Kringluna.

Jens Guð, 10.10.2008 kl. 16:30

9 identicon

Ertu viss? Gnæfir það svona svakalega? Alla vega, þá er þetta krúttleg viðleitni til a búa til Reykjavík skyline.

hehehehe

Birkir Viðarsson (IP-tala skráð) 10.10.2008 kl. 18:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.