Blindir keppa í skotfimi

  Stevie_Wonder

  Blint fólk er mörgum hæfileikum búið sem fáfróður almenningur áttar sig ekki á.  Blindir Bandaríkjamenn hafa til að mynda bundist samtökum um að sniðganga nýja kvikmynd sem dregur upp neikvæða mynd af blindu fólki.  Fáir sækja bandarísk kvikmyndahús stífar en sumir blindir.  Blindi bandaríski söngvarinn Stevie Wonder á meira að segja einkakvikmyndahús.  Honum þykir svo gaman í bíó.  Stevie Wonder er einnig með flugpróf.  Hann flýgur svokallað blindflug.

  Í fyrradag kepptu blindir Færeyingar við sjáandi í skotfimi.  Ég veit ekki hver úrslut urðu önnur en þau að sá blindi er stóð sig best hitti 48 sinnum í mark af 50.  Hann þakkar góðri heyrn hittni sína.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hann hlýtur að hafa verið litblindur................

Res (IP-tala skráð) 17.10.2008 kl. 22:49

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

Það er nú auðvelt að ljúga í blinda að þeir hafi hitt í mark.

Þorsteinn Briem, 17.10.2008 kl. 22:55

3 identicon

"Blindi bandaríski söngvarinn Stevie Wonder á meira að segja einkakvikmyndahús."

Hann á það sennilega ekki lengur veslings kallinn (þessi frétt er frí því í gær):

 http://www.mbl.is/mm/folk/frettir/2008/10/17/stevie_wonder_midur_sin/

Ari (IP-tala skráð) 17.10.2008 kl. 23:25

4 Smámynd: Jens Guð

  Res,  það fylgdi ekki fréttaflutningi af skotfimikeppninni.  En reikna má með að blindir séu jafnframt litblindir upp að eitthverju marki.

  Steini,  ég þreytist ekki á að endurtaka að mér verður á að skella upp úr við lestur þinna "kommenta". 

  Ari,  takk fyrir þennan fróðleik.  Ég var ekki búinn að lesa um þetta.  Hinsvegar veit ég að Stevie Wonder á útvarpsstöð.  Starfsfólk stöðvarinnar vinnur eftir ströngum fyrirmælum frá kallinum að spila aldrei músík með Stevie Wonder né neinum sem hann hefur unnið með að músík.  Þessi regla er dáldið frábrugðin því sem tíðkast hjá íslensku útvarpsfólki.

Jens Guð, 17.10.2008 kl. 23:57

5 Smámynd: Þorsteinn Briem

"Goðin léku sér að því að kasta hlutum að Baldri því Frigg hafði komið því svo fyrir að ekkert beit á honum. Loki komst þó að því að sá hlutur sem gat skaðað hann var mistilteinn og kom hann því svo fyrir að Höður, hinn blindi ás, fékk mistilteinsknippi í hendurnar og varpaði því, óafvitandi um hvað hann hafði undir höndum, að Baldri svo af hlaust bani."

Þorsteinn Briem, 18.10.2008 kl. 00:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband