Einn léttur

  Hún er mesta ljóskan í bænum.  Og jafnvel þó víðar væri leitað.  Eftir að hafa tekið þátt í vafasömum viðskiptum fékk hún greitt með ávísun.  Hún hélt þegar í næsta banka til að leysa ávísunina út.  Gjaldkerinn bað ljóskuna að fylla út bakhlið ávísunarinnar.  Það var ekkert mál.  Þegar hún rétti gjaldkeranum útfyllta ávísunina sagði hann:    

  - Ertu með skilríki til að staðfesta að þetta sért þú?

  Ljóskan dró þá upp lítinn spegil úr handtöskunni sinni,  horfði rannsakandi í hann og sagði síðan ákveðin:

  - Jú, þetta er ég.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Meðan ég var að undirbúa jólabókasölu 2008 frá Bókaútgáfunni Hólum til bókasafna landsins að þá var mér að leik að "Google" örlítið að kanna bækurnar sem ég var með í boði í ár og þá birtist þessi bloggsíða og það vegna Önnu á Hesteyri og hennar bók en Bókaútgáfan Hólar gefur bókina út.T

il mikillar ánægju bíða nú margir spenntir eftir ævisögu hennar sem mun bera heitið.  

"Ég hef nú sjaldan verið algild" 
      Ævisaga Önnu á Hesteyri
Rannveig Þórhallsdóttir skráir bókina.

Anna á Hesteyri er alveg einstaklega skemmtilegur og hrífandi persónuleiki.
Brosandi, tannlaus fegurðardís í sóleyjarskrúða? Ruslasafnari á hjara veraldar? Hetja? Verndari utangarðs- og glæpamanna?
Til hvaða ráða grípur Anna á Hesteyri þegar til hennar kemur óboðinn gestur um nótt?
Hvað fékk hún Landhelgisgæsluna til að gera?
Hvernig lék hún á dýralækninn?
Og hverju lofaði hún þegar í óefni stefndi í bílprófinu?
Bráðskemmtileg saga og spennandi - sögð með orðum einbúans á Hesteyri og þeirra sem til hennar þekkja. 

Reyndar ætla ég að bjóða þeim sem standa að þessari síðu og þeim sem hana heimsækja upp á að eignast þessa bók hér og nú með

25% austfirðinga afslætti.
(Ég og útgefandinn sem er bróðir minn erum ættuð frá Norðfirði en fædd og uppalin á Eskifirði)

Leiðbeinandi verð er: 4.980 kr.   Tilboðsverð hér: 3.700 kr.

Áhugasamir panti með tölvupósti á netfangið annaeiriks@simnet.is og eftirfarandi upplýsingar þurfa að fylgja þar með.

NAFN KAUPANDA - HEIMILISFANG OG PÓSTNR - KENNITALA - HEITI BÓKAR OG TILBOÐSVERÐ - ANNAÐ.

Best er að nýta sér greiðslukortaþjónustu okkar enda er það lang einfaldast fyrir báða aðila og þá má tvískipta greiðslu án aukakostnaðar ef áhugi er á.
Kortanúmer alls 16 tölustafir og gildistími korts þurfa þá að fylgja pöntun.
Póstkrafa er annað greiðsluform og þá er greitt fyrir bókina á pósthúsi athugið að engin kostnaður er á sendingunni og því ofangreint tilboðsverð

3.780 kr endandlegt.

Nauðsynlegt er að gefa upp nafn bókarinnar við pöntun og tilboðsverðið sem ég býð ykkur hana á hér á þessari slóð.MEÐ VON UM AÐ ÞESSI KYNNING HAFI VAKIÐ ÁHUGA Á AÐ PANTA BÓKINA MEÐ ÞESSUM AFSLÆTTI.

Pantanir berist sem fyrst á netfang mitt annaeiriks@simnet.is með ofangreindum atriðum.

Með vinsemd og virðingu.
Kveðja f.h. Hóla bókaútgáfu
Anna Eiríksdóttir
annaeiriks@simnet.is
S: 695-4983 eftir kl 18.00

AE (IP-tala skráð) 8.11.2008 kl. 14:55

2 Smámynd: Ómar Ingi

HAHAHAHAHAHA

Góðir brandarar

Ómar Ingi, 8.11.2008 kl. 15:37

3 Smámynd: Jens Guð

  Anna,  takk fyrir þetta.  Getur þú reddað mér mynd af forsíðu bókarinnar?  Ég hef verið að leita að forsíðunni á netinu til að vekja athygli á bókinni.  Án árangurs.  Ég á forsíðuna á Adobe Reader formi og næ henni ekki þaðan til að skella henni á bloggið.  Hún þarf að vera í jpg formi til að ég ráði við hana.

  Ómar,  ég hló þegar ég las þennan brandara áðan og fannst þá upplagt að leyfa fleirum að brosa.

Jens Guð, 8.11.2008 kl. 16:04

4 Smámynd: Rannveig H

Búin að panta bók, og var snögg að því.

Rannveig H, 8.11.2008 kl. 16:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.