Bókin um Önnu á Hesteyri - Allt annað: Burt með spillingarliðið!

annaáhesteyri - bókarkápa

  Bókin um Önnu á Hesteyri kemur út 15.  nóvember.  Hún heitir Ég hef nú sjaldan verið algild.  Það sem ég hef lesið úr bókinni er bráðskemmtilegt.  Enda er Anna svo frábær og merkileg persóna að ævisaga hennar getur ekki annað en bergmálað það.  Í baksíðutexta á bókarkápu segir:

Anna á Hesteyri er alveg einstaklega skemmtilegur og hrífandi persónuleiki.
Brosandi, tannlaus fegurðardís í sóleyjarskrúða?
Ruslasafnari á hjara veraldar? Hetja? Verndari utangarðs- og glæpamanna?
Til hvaða ráða grípur Anna á Hesteyri þegar til hennar kemur óboðinn gestur um nótt?
Hvað fékk hún Landhelgisgæsluna til að gera?
Hvernig lék hún á dýralækninn?
Og hverju lofaði hún þegar í óefni stefndi í bílprófinu?
Bráðskemmtileg saga og spennandi - sögð með orðum einbúans á Hesteyri og þeirra sem til hennar þekkja.
 

  Það er Rannveig Þórhallsdóttir, bókmenntafræðingur,  sem skráir bókina.  Búðarverð á bókinni er 4980 krónur.  Bókaútgáfan Hólar býður hinsvegar lesendum þessarar bloggsíðu bókina á 3780 krónur.  Sendingarkostnaður er innifalinn í því verði.

  Það eina sem þú þarft að gera er að senda eftirfarandi upplýsingar á netfangið annaeiriks@simnet.is:

NAFN - HEIMILISFANG OG PÓSTNR - KENNITALA - HEITI BÓKAR OG TILBOÐSVERÐ. 

  Greiðslukortaþjónusta er í boði og hægt að tvískipta greiðslu án aukakostnaðar.  Kortanúmer - alls 16 tölustafir - og gildistími korts þurfa þá að fylgja pöntun.
  Póstkrafa er annað greiðsluform og þá er greitt fyrir bókina á pósthúsi.

  Eftir klukkan 18.00 er hægt að hringja í Önnu Eiríksdóttur og ganga frá pöntun í síma 695 4983. 

  Þeir sem ekki kannast við Önnu á Hesteyri (og líka þeir sem kannast við hana) geta lesið hér nokkrar sögur af henni:

- Gestir
- Slóst við mömmu
- Farandssali
- Sendi lögguna
- Leikur í umferðinni
- Glannaakstur
- Samanbrotinn konfektkassi
- Málað yfir málverk
- Festist í hringtorgi 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurgeir Orri Sigurgeirsson

Mikið hlakka ég til að lesa þessa bók. Ég varð aðdáandi Önnu við að lesa sögurnar sem þú hefur sagt af henni. Jólabókin mín í ár, heyriði það systkini og vinir!

Sigurgeir Orri Sigurgeirsson, 9.11.2008 kl. 23:47

2 Smámynd: Rannveig H

Ég er búin að pannta og hlakkar verulega til að á bókina.

Rannveig H, 9.11.2008 kl. 23:48

3 identicon

ég hlakka voðalega til að lesa hana.

alva (IP-tala skráð) 9.11.2008 kl. 23:54

4 Smámynd: Jens Guð

  Sigurgeir,  það eru fleiri sem fá bókina í jólagjöf.  Ég frétti af einum sem var að panta 30 eintök. 

  Rannveig,  ég hlakka líka verulega til að lesa bókina.

Jens Guð, 9.11.2008 kl. 23:54

5 Smámynd: Jens Guð

  Alva,  þú verður áreiðanlega ekki fyrir vonbrigðum.

Jens Guð, 9.11.2008 kl. 23:55

6 Smámynd: Jens Guð

  Sigurður,  þeir þættir (þeir urðu tveir) komu karakter Önnu vel til skila.  Heiðar og Margrét náðu að umgangast Önnu á réttan hátt.  Það er ekki öllum gefið.

Jens Guð, 10.11.2008 kl. 00:32

7 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Þessa bók langar mig að lesa og kaupi hana náttúrulega ódýra   Þetta tilboð er líka á næstu vikum?  Er það ekki

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 10.11.2008 kl. 00:40

8 Smámynd: Jens Guð

  Jóna,  að óreyndu held ég að tilboðið standi eitthvað áfram.  Að minnsta kosti var ekkert minnst á nein tímamörk við mig.

Jens Guð, 10.11.2008 kl. 00:57

9 Smámynd: Heimir Tómasson

Ég væri sko alveg til í að panta bókina, en sem tölvunarfræðingur þá kemur það bara hreinlega ekki til greina að ég sendi kortanúmer í tölvupósti og vara ég alla sterklega við því að gera það. Það hlýtur að vera til önnur leið til að inna greiðslu af hendi. Munið Bjarna Harðar - stórslys er bara eitt músarklikk í burtu.

Heimir Tómasson, 12.11.2008 kl. 09:45

10 Smámynd: Jens Guð

  Heimir,  það er gefið þarna upp símanúmer fyrir þá sem taka ekki áhættu með að senda í tölvupósti upplýsingar um greiðslukort.

  Í ævisögu Eric Clapton er upplýst um eitt Bjarna-slys.  Einn af spilurunum hans var að kvarta í tölvupósti undan Claptoni við - að mig minnir - umboðsmann sinn.  Hann skrifaði sitthvað ljótt um Clapston.  En sendi tölvupóstinn í ógáti til Clapstons í stað umboðsmannsins!  

Jens Guð, 12.11.2008 kl. 14:33

11 Smámynd: Heimir Tómasson

Ah, biðst ég forláts án afláts, mér hefur yfirsést það einhvernveginn. En ég las einmitt bókina um clapton þegar hún kom út. Mögnuð lesning.

Heimir Tómasson, 12.11.2008 kl. 16:57

12 identicon

Komið sæl.  Ég er að benda ykkur á að það má greiða bókina með gíróseðli þó svo að við kjósum frekar hina leiðina. En gíróseðill er líka í boði.

Fyrir hönd Bókaútgáfunnar Hóla

Anna Eiríksdóttir

Pantanir berist á tölvupósti með upplýsingum um nafn,heimilisfang kennitölu.

annaeiriks@simnet.is

Anna Eiríksdóttir (IP-tala skráð) 15.11.2008 kl. 01:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.