Gjöfulasta tímabil íslensku rokksögunnar - Úrslit í skoðanakönnun

  Að undanförnu hef ég haldið úti skoðanakönnun um besta og frjóasta tímabil íslensku rokksögunnar.  Röðin á tímabilunum hefur ekkert breyst frá því greidd atkvæði voru innan við 100.  Nú hafa 580 atkvæði skilað sér í hús og engin ástæða til að halda könnunni lengur í gangi.  Niðurstaðan er þessi:

utangarðsmennfræbbblarnir

 1.  Bubba-byltingin/Rokk í Reykjavík (Utangarðsmenn, Fræbbblarnir, Tappinn...) 32,2%

 2.  Hippatímabilið (Trúbrot, Náttúra, Eik...) 20,9%

 3.  Bítlatímabilið (Hljómar, Dátar, Óðmenn...) 18,4%

 4.  Upphafsárin á sjötta áratugnum (KK, Siggi Johnny, Þorsteinn Eggerts, Raggi Bjarna...) 14,8%

 5.  Harðkjarninn (Mínus, Bisund, I Adapt,  Gyllinæð...) 5,2%

 6.  Gruggið (Botnleðja, Noise...) 4,8%

 7.  Rappið (Rottweiler, Quarashi, Sesar A...) 3,6%

  Þarna var ekki verið að velja hljómsveitirnar sem slíkar heldur tímabilið.  Nöfn hljómsveitanna eru einungis höfð með til að auðvelda kjósendum að staðsetja tímabilið.  Gaman væri að heyra viðhorf ykkar til útkomunnar.

  Næst set ég inn skoðanakönnun um besta íslenska jólalagið.  Þið ykkar sem hafið ekki þegar komið með tillögu um besta jólalagið megið endilega nefna uppáhalds jólalagið ykkar.  Lagið verður að vera íslenskt.  Lög úr nýafstaðinni jólalagakeppni rásar 2 eru ekki gjaldgeng.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Siggi Lee Lewis

Það er einhver mótsögn í þessari niðurstöðu. Hvernig getur fæðing rokksins, ekki verið frjóasta djöfulasta tímabil rokksögunar? Án fæðingar er ekkert líf. Rokkið fæddist kannski ekki hér á Íslandi, en rokkið á Íslandi gerði það.

Siggi Lee Lewis, 31.12.2008 kl. 15:10

2 Smámynd: Siggi Lee Lewis

gjöfulasta ætlaði mér að tjá yður.

Siggi Lee Lewis, 31.12.2008 kl. 15:10

3 Smámynd: Óskar Þorkelsson

þetta tímabil hjá bubba og co er það gjöfulasta því aldrei hafa komið fram á sjónarsviðið jafnmargar hljómsveitir og þá.. þetta ætti að svara spurningunni þinn SLL

Óskar Þorkelsson, 31.12.2008 kl. 15:13

4 Smámynd: Siggi Lee Lewis

Bubba æðið var bara loftbóla. Bubbi og félagar hefðu aldrey orðið þekktir fyrir rokktónlistarflutning ef rokkið hefði aldrey byrjað. Svo einfalt er það félagi Óskar.

Siggi Lee Lewis, 31.12.2008 kl. 15:48

5 Smámynd: Óskar Þorkelsson

ég veit ekki alveg hvernig þú skilur þetta kæri félagi SLL.. en það var talað um tímabilið.. Bubbi var bara einn partur af þessu tímabili því tugir ef ekki hundruðir hljómsveita spruttu upp á þessum tíma og spilaði ég meðal annars í 3 eða 4 sveitum á stuttum tíma.  Slepptu bara bubba út úr jöfnunni ef þér líður eitthvað betur .. útkoman er samt hin sama.. 

Óskar Þorkelsson, 31.12.2008 kl. 16:00

6 Smámynd: Siggi Lee Lewis

Félagi Óskar: Þín útkoma dvínar töluvert ef þú sleppir Bubbinu, svo ég myndi ríghalda í það.

Siggi Lee Lewis, 31.12.2008 kl. 22:06

7 identicon

Til SLL:  Það er ekki samasemmerki á milli frumkvöðla á einhverju sviði og þess hvenær viðkomandi svið er í mestum blóma.  Það sést glöggt þegar saga lista og menningar er skoðuð.  Frjósmasta tímabil í bókmenntum var ekki þegar fyrstu bækurnar voru skrifaðar.  Frjósamasta tímabil í kvikmyndasögu var ekki þegar fyrstu kvikmyndir voru framleiddar. Til að skýra þetta betur skulum við taka dæmi úr öðru:

  Það er ekki hægt að segja að brauðmenning Íslendinga hafi náð hæstum hæðum þegar fyrstu bakaríin voru opnuð á Íslandi.  Úrval og framboð á brauðmeti hefur verið miklu meira síðar  

Sveinn (IP-tala skráð) 31.12.2008 kl. 23:54

8 Smámynd: Siggi Lee Lewis

Sveinn (eða Svenni sem mér finnst nú flottara): Ég set samasemmerki við frumkvöðla og rokkara að sjálfsögðu. T.d er Elvis Presley konungur rokksins að flestra mati. Ég get sett samansemerki á milli hans og upphaf rokksins. Hann hefði í fyrsta lagi aldrey sungið rokk, ef rokkið hefði ekki verið komið til sögunnar.

Ég reyndar skil ekki hvers vegna ég er að útskýra þetta fyrir ykkur Svenni minn og félagi Óskar. Þetta er eitthvað svo borðliggjandi...

Siggi Lee Lewis, 1.1.2009 kl. 13:33

9 Smámynd: Siggi Lee Lewis

Svenni: Bókmenntir og Rock n Roll eru andstæður, svo ekki koma með bókmennta líkingu inn í þessa umræðu...Í bæ guðanna

Siggi Lee Lewis, 1.1.2009 kl. 13:35

10 Smámynd: Siggi Lee Lewis

og brauð? ? Gleðilegt ár Svenni minn!

Siggi Lee Lewis, 1.1.2009 kl. 13:36

11 Smámynd: Óskar Þorkelsson

SLL ertu ekki að rugla saman orðaskilning ? 

Gjöfult = eitthvað sem gaf mikið af sér, sbr gjöful mið.

frjósamt = eitthvað sem getur gefið af sér.. en er ekkert endilega að gefa af sér..

mér finnst þetta svo borðliggjandi að ég skil ekki afhverju þú skilur þetta ekki SLL 

Óskar Þorkelsson, 1.1.2009 kl. 13:51

12 identicon

  SLL upphaf tónlistarstefnu segir ekki til um hvenær tónlistarstefnan nær hámarki í vinsældum eða gefur mest af sér á annan hátt.  Þetta er mismunandi á milli landa.  Rappið byrjaði í Bandaríkjunum á áttunda áratugnum en varð ekki útbreitt og vinsælt fyrr en á níunda áratugnum.  Hérlendis varð ekki til rappbylgja fyrr en 2000/2001. 

Jóhannes (IP-tala skráð) 1.1.2009 kl. 14:18

13 Smámynd: Jens Guð

  Trommuleikarinn Svavar heitinn Gests upplifði upphafsár rokksins,  bítlaæðið,  hippaárin og Bubbabyltinguna.  Hann skrifaði mikið um rokkmúsík í blöð og tímarit,  gaf út plötur,  var með hljómsveit,  gerði útvarpþætti og svo framvegis.  Ég kynntist honum vel þegar ég var að byrja að skrifa um músík á áttunda áratugnum.  Kom oft við á skrifstofu SG-hljómplatna og naut þess að ræða við hann um músík.  Með okkur tókust góð kynni.  Meðal annars hringdi hann ósjaldan í mig og spilaði fyrir mig upptökur af plötum sem hann var að fara að gefa út.  Eða sendi mig til Sigurðar Árnasonar,  upptökustjóra hans,  til að hlusta á upptökur. 

  Svavar fékk mig meðal annars til að hanna plötuumslag fyrir fyrstu sólóplötu Bjögga Gísla,  gítarsnillings.  Bjögga þótti mitt umslag þó vera of galgopalegt og fékk Alfreð Flóka til að afgreiða umslag meira í þeim stíl sem Bjöggi leitaði eftir.  Gott umslag út af fyrir sig en seldi ekki plötuna.  Öfugt við það sem mitt umslag hefði gert. 

  Förum ekki nánar út í það.  Bjöggi Gísla er frábær og Svavar var líka merkilegur maður í rokksögu Íslands.  Svavar fullyrti við mig að Bubba-byltingin/Rokk í Reykjavík hafi verið mesta æði = frjóasta tímabil íslensku rokksögunnar.  Svavar ítrekaði þessa skoðun sína í blaðagrein í tímaritinu Mannlífi.    

Jens Guð, 3.1.2009 kl. 00:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.