Draumalandið

autt

  Ekkert útvarp.  Ekkert sjónvarp.  Enginn plötuspilari.  Engin málverk á veggjum.  Engar bækur.  Engar styttur eða skúlptúrar  Engin listiðnaðarhönnuð húsgögn.  Engir sinfóníuhljómleikar.  Engar leiksýningar.  Engar kvikmyndir.  Engin tugmilljarða króna velta lista og menningar.  Engin Björk.  Engin Sigur Rós.  Enginn Erro.  Enginn Laxness.  Enginn Arnaldur Indriðason.  Engar nokkur hundruð íslenskir bókatitlar á markað erlendis.  Enginn ferðaiðnaður.  Ekkert Iceland Airwaves.  Ekkert Vesturport.  Engir þúsundir fjölmiðlamanna.  Engin friðarsúla í Viðey. 

  Bara fólk sem situr á Alþingi.  Bara Ásbjörn Ólafsson.  Bara fólk sem vinnur venjulega vinnu:  Kvótagreifar sem borga sér tugmilljónkróna arðgreiðslur út úr félagi í taprekstri.  Það er olöglegt.  Draumalandið.       


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aðalsteinn Agnarsson

Flottur ertu, Jens!!!

Aðalsteinn Agnarsson, 13.10.2010 kl. 00:56

2 Smámynd: Lárus Gabríel Guðmundsson

Er gullni meðalvegurinn orðinn að fjarlægum veruleika ?

Lárus Gabríel Guðmundsson, 13.10.2010 kl. 04:10

3 identicon

like

ábs (IP-tala skráð) 13.10.2010 kl. 12:00

4 identicon

Gud...aetlar thú ekki ad bjóda thig fram til stjórnlagathings?

http://www.kosning.is/stjornlagathing

Gjagg (IP-tala skráð) 13.10.2010 kl. 12:40

5 identicon

Guð frekar en Ólaf Ragnar

Gsss (IP-tala skráð) 13.10.2010 kl. 13:42

6 Smámynd: Kristján Jón Sveinbjörnsson

Góð lýsinga hjá þér á því hvernig er nú útlits innan í kollinum á þingmönnum sumum hverjum...

Kristján Jón Sveinbjörnsson, 13.10.2010 kl. 16:23

7 identicon

Ég hélt það væri búið að stinga þér inn og þú að lýsa því þegar ég las þetta.

Tralli (IP-tala skráð) 13.10.2010 kl. 16:46

8 Smámynd: Theódór Norðkvist

Ég er með lausn á þessu máli. Ásbjörn Ólafsson heldur bara námskeið fyrir listamenn á listamannalaunum þar sem hann kennir þeim að stofna fyrirtæki, reka það með bullandi tapi og greiða sér síðan tugir milljóna í arð.

Eftir tvö til þrjú ár geta listamennirnir keyrt félögin sín í gjaldþrot og lifað góðu lífi á arðinum það sem eftir er. Sinnt list sinni eins og þeir vilja og ríkið losnar við að borga listamannalaun.

Allir verða ánægðir (nema kröfuhafar listamannafyrirtækjanna. )

Theódór Norðkvist, 13.10.2010 kl. 17:00

9 identicon

Ekkert útvarp.  Ekkert sjónvarp tad er einmit tad besta sem getur komid firir .

http://www.youtube.com/watch?v=aFaCvtYEGC8&feature=related

Helgi Armannsson (IP-tala skráð) 13.10.2010 kl. 21:31

10 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Sóttu um listamannastyrk.Þú færð hann örugglega.Þú ert einn af þeim sem halda að það sé list að betla peninga af ríkinu.Alvöru listamenn þiggja ekki betlarapening frá ríkinu.Erró er besta dæmið.Hann þiggur ekki þennan ríkislistamannabetlarapening þótt á hverju ári sé reynt að klína á hann listamannalaunum.Hnn vinnur fulla vinnu við list sína.

Sigurgeir Jónsson, 13.10.2010 kl. 22:21

11 identicon

Þetta er það flottasta sem ég hef lesið lengi.

Bjorn Hroarsson (IP-tala skráð) 13.10.2010 kl. 22:25

12 Smámynd: Jens Guð

  Aðalsteinn,  takk fyrir það.

Jens Guð, 14.10.2010 kl. 14:32

13 Smámynd: Jens Guð

  Lárus,  ef menn eru með óþol gagnvart listum og menningu þá er enginn millivegur.  Né heldur þegar menn vilja greiða sér arð út úr fyrirtæki óháð fjárhagsstöðu fyrirtækinsins.  Enginn millivegur.

Jens Guð, 14.10.2010 kl. 14:34

14 Smámynd: Jens Guð

  ábs,  takk fyrir það.

Jens Guð, 14.10.2010 kl. 14:34

15 Smámynd: Jens Guð

  Gjagg,  nei.  Hinsvegar styð ég nokkra frambjóðendur.

Jens Guð, 14.10.2010 kl. 14:35

16 Smámynd: Jens Guð

  Gsss,  það fer eftir því um hvað málið snýst.

Jens Guð, 14.10.2010 kl. 14:36

17 Smámynd: Jens Guð

  Kristján Jón,  það er alltaf lærdómsríkt og forvitnilegt þegar þingmenn sýna í ógáti inn í forstokkaðan og lágkúrulegan hug sinn og opinbera skilningsleysi sitt og vanþekkingu á málum.

Jens Guð, 14.10.2010 kl. 14:39

18 Smámynd: Jens Guð

  Tralli,  ég er sloppinn út.

Jens Guð, 14.10.2010 kl. 14:39

19 Smámynd: Jens Guð

  Theódór,  þetta er brilljant hugmynd.

Jens Guð, 14.10.2010 kl. 14:40

20 Smámynd: Jens Guð

   Helgi, það hendir.  Þetta er áhugaverð klippa sem þú vísar í.

Jens Guð, 14.10.2010 kl. 14:41

21 Smámynd: Jens Guð

  Siggeir,  þú veður í villu.  Eiginlega í allar áttir.  Listsköpun hefur ekkert að gera með það hvort listamaðurinn fái listamannalaun,  laun vegna seldra verka eða er á framfæri maka síns og svo framvegis.

  Tónlistarmaður semur ekki öðru vísi lög eða spilar öðruvísi á hljóðfæri þegar hann fær listamannalaun.  Rithöfundurinn skrifar ekki öðruvísi á meðan hann er á listamannalaunum.  Né listmálarinn máli öðru vísi þegar hann fær listamannlaun.

  Það er alrangt hjá þér að alvöru listamenn þiggi ekki listamannalaun (ef þú átt við það með betlaratuggunni).  Listamenn eru ekki alvöru eða plat eftir því hvort þeir fá listamannalaun eða ekki.

  Ég held ekki að það sé list að betla peninga af ríkinu.  Hvernig dettur þér það í hug? 

  Listir og menning skila þjóðarbúinu árlega tugmilljarða króna veltu,  standa að verulegu leyti undir prentsmiðjurekstri landsins,  eiga verulegan hlut í ferðamannaiðnaði landsins,  afla gríðarlega mikils gjaldeyris o0g svo framvegis.  

  Það hefur verið sýnt fram á með einföldum útreikningi að hver króna sem fer úr ríkissjóði í kvikmyndasjóð skilar sér margföld til baka í ríkissjóð.  Í því tilfelli er sá stuðningur úr ríkissjóði hrein og klár arðbær fjárfesting fyrir ríkissjóð.

  Þá má benda á að fátítt er að ríkissjóður þurfi að afskrifa hundruð milljóna eða tugi milljarða vegna listamanna.  Bankahrunið var ekki sök listamanna,  heldur manna sem hugsa eins og þú.

Jens Guð, 14.10.2010 kl. 15:08

22 Smámynd: Jens Guð

  Björn,  takk fyrir það.

Jens Guð, 14.10.2010 kl. 15:08

23 identicon

Siggeir: Meistarar klassísku tónlistarinnar þáðu flestir einskonar listamannslaun. Mörg verk þeirra voru samin fyrir konunga og aðra aðalsmenn fyrir stórar upphæðir. Allir geta verið sammála um að þessi sömu tónlistarmenn eru engu minni listamenn en Erro, með fullri virðingu fyrir honum.

Daníel (IP-tala skráð) 14.10.2010 kl. 16:50

24 Smámynd: Jens Guð

  Daníel,  góð ábending.  Þetta á líka við um Michael Angelo og marga aðra af helstu myndlistamenn sögunnar.

Jens Guð, 14.10.2010 kl. 19:09

25 identicon

Eru ekki reglurnar thannig ad madur megi bara stydja einn frambjódanda?

Gjagg (IP-tala skráð) 14.10.2010 kl. 19:38

26 Smámynd: Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson

Takk fyrir, þetta er ansi góð hugvekja!

Sveinbjörn Kristinn Þorkelsson, 16.10.2010 kl. 19:29

27 Smámynd: Jens Guð

  Gjagg,  mér skilst að einungis megi skrá sig á meðmælalista hjá einum frambjóðanda.  Hinsvegar er í góðu lagi að styðja fleiri.  Til að mynda með því að smella á "like" við þeirra framboðsyfirlýsingu á Facebook,  deila yfirlýsingunni o.s.frv.

Jens Guð, 16.10.2010 kl. 20:32

28 Smámynd: Jens Guð

  Sveinbjörn,  takk fyrir innlitið.

Jens Guð, 16.10.2010 kl. 20:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband