Frábær tískubylgja á leið til Íslands

beygla Abeygla Bbeygla Ibeygla C

  Það er aðeins spurning um tíma hvenær nýjasta tíska í andlits"förðun" skellur á Íslandsströndum og fer eins og hvítur stormsveipur um land allt,  rétt eins og fótanuddtækin á sínum tíma,  Soda Stream-ið,  bumbu-baninn og það allt.  Það er kannski rangt að fella tískubóluna undir andlits"förðun" þar sem enginn farði er notaður.  Andlits"lyfting" væri réttari lýsing.  En það orð er frátekið fyrir annars konar fegrunaraðgerðir.

  Erlendis er tískubólan kennd við beyglur.  Þeir sem bera skreytinguna eru kallaðir beygluhausar. 

  Beyglubylgjan fer eins og eldur í senu um Japan og er farin að berast til annarra landa.  Aðgerðin er framkvæmd á húðflúr- og húðgötunarstofum.  Sérstökum vökva er sprautað undir húðina.  Við það eins og bólgnar hún upp.  Um leið er lögun "bólgunnar" formuð.  Vinsælt þykir að forma eins og kleinuhring eða kleinuhringi á ennið.

  Algengt er að beygluhausar hafi áður fengið sér húðflúr og húðgatanir fyrir neflokka, eyrnalokka og annað glingur.  Þó er það engin regla.  Sumir láta sér beyglur nægja.  Enda eru þær assgoti töff einar og sér.  Og virðast fara öllum vel.

beygla Ebeygla Fbeygla Gbeygla H

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Skelfilegt að sjá þetta

Ásdís Sigurðardóttir, 18.11.2011 kl. 12:13

2 identicon

Jón Gnarr ætti að fá sér svona í takt við Hitlersæsku-klippinguna sína.. ha

DoctorE (IP-tala skráð) 18.11.2011 kl. 13:35

3 identicon

Ég treysti mér ekki til að kommentera á herlegheitin hér að ofan er en megi þeir lifa vel og lengi með sjálfum sér :)

Jens Það sem mig langaði að segja er það hvort að þú vitir til þess að það muni verða boðið upp á Færeyskt hlaðborð hér í Reykjavik einhverntíma á næstunni

Eg sá nefnilega hér á blogginu þínu fyrir nokkru síðan frétt um að það hefði verið slíkar kræsingar á boðstólum en missti af því vegna þess að eg var ekki í bænum þá

Sólrún (IP-tala skráð) 18.11.2011 kl. 17:35

4 Smámynd: Jens Guð

  Ásdís,  sennilega tekur smá tíma að venjast þessari tísku,  eins og svo mörgum öðrum tískubólum.

Jens Guð, 18.11.2011 kl. 22:10

5 Smámynd: Jens Guð

  DoctorE,  góð hugmynd!

Jens Guð, 18.11.2011 kl. 22:11

6 Smámynd: Jens Guð

  Sólrún,  það er alltaf af og til boðið upp á færeyskan mat.  Siðast var það um mánaðarmótin.  Ég veit ekki hvenær það verður næst.  Þetta er dáldið tilfallandi.  Ég skal vekja athygli á hér á þessu bloggi þegar boðið verður upp á færeyskan mat.  Ég reikna með að eitthvað gerist í þeim málum fyrir jól eða fljótlega á næsta ári.

Jens Guð, 18.11.2011 kl. 22:15

7 identicon

Ojojojojojojoj...........u

alva (IP-tala skráð) 19.11.2011 kl. 23:34

8 Smámynd: Jens Guð

  Alva,  þetta er frekar óaðlaðandi.

Jens Guð, 20.11.2011 kl. 00:32

9 identicon

Þetta er rosalega flott !!! Veistu hvort það er hægt að fá sér svona hérna á Íslandi ???

röggi (IP-tala skráð) 22.11.2011 kl. 17:18

10 Smámynd: Jens Guð

  Röggi,  mér skilst að á einhverjum húðflúrstofum séu menn viðbúnir því að þessi tískubylgja skelli á hérlendis.  Þeir eru búnir að kynna sér hvernig að þessu þarf að standa og búnir að koma sér upp samböndum til að fá efni og tól með stuttum fyrirvara.  Hinsvegar hefur enginn pantað aðgerð.   

Jens Guð, 22.11.2011 kl. 20:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband