Áhrifamikil og ævintýraleg byggingalist

15444_184402920912_657720912_3401733_2259275_n

  Góðir arkítektar fella byggingar inn í landslagið.  Leyfa náttúrinni að njóta sín og ráða för.  Það kunna íslenskir arkítektar ekki.  Sumir aðrir kunna það.

19743_302753100912_657720912_4016055_3191757_n19743_302753110912_657720912_4016056_2508164_n

  Fara jafnvel glannalega leið.  Takið eftir kláfinum sem ferjar fólk til og frá á mynd nr. 2.  Takið einnig eftir kaðalstiganum undir byggingunni á síðustu myndinni.  Hann er varasamur í hvassviðri.

kofahús

  Ég átta mig ekki alveg á þessu timburhúsi.  Fátt er um glugga í efri hæðum.  Burðarþolið er allt í hægri hluta byggingarinnar.  Kannski er þetta sumarbústaður?

ekki fyrir lofthrædda-varðstöð

  Þessi varðstöð fellur ekki beinlínis að landslaginu.  En sumir upplifa landslagið sterkt þegar farið er þarna um.  Einkum þeim sem er snúið við.  Þá er betra að vera ekki lofthræddur.

ekki fyrir lofthrædda-veitingahús

  Þetta veitingahús í Kína er ekki heldur fyrir lofthrædda.  Gönguleiðin er eftir tágarbrú sem sveiflast til og frá þegar eftir henni er gengið.  Þunnt og gegnsætt tauefni tekur ekki fallið af ef menn hrasa.

ekki fyrir-lofthrædda-Hunan-kína

  Þessi gönguleið í Hunan í Kína er öruggari.  En samt ekki fyrir lofthrædda.  Þarna eru þó járnbent handrið sem hægt er að grípa í ef manni verður fótaskortur. Gönguleiðin er varasöm í frosti.  Þá eru tröppurnar nefnilega hálar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Fallegar myndir, vel gert. Ég sé ekki betur en drangurinn á mynd 2 sé drangurinn sem sólfangarinn kom uppúr í James Bond myndinni "The man with the golden gun"

Axel Jóhann Hallgrímsson, 25.9.2012 kl. 13:27

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ekki fyrir lofthrædda samt

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.9.2012 kl. 20:52

3 Smámynd: Jens Guð

  Axel Jóhann,  ég man ekki hvar ég rakst á dranginn á mynd #2.  Einhversstaðar sá ég hana og tók til handargagns.  Þetta er vísast rétt hjá þér.

Jens Guð, 25.9.2012 kl. 21:23

4 Smámynd: Jens Guð

  Ásthildur Cesil,  ég hélt að ég væri ekki lofthræddur.  En sumar myndir sem ég rekst á eru þess eðlis að aðstæður eru ekki árennilegar.

Jens Guð, 25.9.2012 kl. 21:25

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Úff já ég myndi ekki lifa lengi í svona umhverfi, dræpist úr stressi og hræðslu.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.9.2012 kl. 22:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband